Morgunblaðið - 11.06.1981, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
25
Tómas Þorvaldsson fráíarandi formaður SÍF setur aðalfund samtak-
anna í gærmorgun. <Lj«Hm. Guðjón)
Nýkjörin stjórn og varastjórn SÍF ásamt framkvæmdastjórunum.
Framleiðslan jókst um
17% á síðustu vertíð og
afskipanir ganga vel
- Sagt frá ræðum Tómasar Þorvaldssonar og Friðriks Pálssonar á aðalfundi SÍF
AÐALFUNDUR Sölusamhands islenzkra fiskframleiðenda var hald-
inn að Hótel Sögu í jjær. Tómas Þorvaldsson, formaður SÍF, setti
fundinn og minntist hann i upphafi félaga i samtökunum, sem létust á
siðastliðnu starfsári og sjómanna, sem farizt hafa á hafi úti frá siðasta
aðalfundi.
I setningarræðu sinni fjallaði
Tómas nokkuð um stöðu mark-
aðsmála í helztu viðskiptálöndum,
og sagði hann að menn gætu leyft
sér að vera bjartsýnir á framtíð-
ina. Spánverjar og Portúgalir
hefðu á árum áður verið með flota
veiðiskipa hér við land og aflinn
hefði verið saltaður um borð. Með
árunum hefði mikil breyting orðið
á og hin síðari ár hefði þróunin
orðið sú að margar þjóðir hefðu
fært landhelgi sína út í 200
sjómílur. Stöðugt hefði verið
þrengt að þjóðum eins og Spán-
verjum og Portúgölum á úthafinu
og við það hefði orðið mikil
breyting á mörkuðum í þessum
löndum. Hann sagði, að ef metta
ætti alla þá munna, sem áhuga
hefðu á neyzlu saltfisks þá væri
óhætt að horfa með bjartsýni til
komandi ára. Sagði Tómas, að
Islendingar hefðu nokkuð forskot
á t.d. Norðmenn og Kanada í
þessum löndum, en við þyrftum að
gæta okkar mjög.
Tómas fjallaði síðan um stöð-
una í helztu markaðslöndum og
sagði, að misgengi dollars hefði
valdið miklum erfiðleikum. Líkti
hann því við er ákveðið var að
hætta að styðjast við sterlings-
pund í saltfisksölusamningum
fyrir allmörgum árum, en viðmið-
un við dollar var tekin upp.
Friðrik Pálsson, framkvæmd-
astjóri SÍF, fjallaði einnig um
þetta mál í skýrslu sinni og benti
hann á, að tveir helztu keppinaut-
ar íslendinga á þessum mörkuð-
um, Norðmenn og Færeyingar,
miða við sinn eigin gjaldmiðil, en
íslendingar við Bandaríkjadollar
eins og áður sagði. Með styrkingu
dollars undanfarna mánuði hefur
saltfiskur hækkað mjög í innkaup-
um í viðskiptalöndunum frá því að
samningar hafa verið gerðir.
Nefndi Friðrik Ítalíumarkaðinn
sem dæmi, en frá því að samning-
ar um sölu á saltfiski voru gerðir
við ítali á síðasta ári hefur líran
fallið um rúmlega 42% gagnvart
dollar.
í máli þeirra Tómasar og Frið-
riks kom fram, að í ár hafa engir
samningar verið gerðir við ítaliu,
en á síðasta ári voru seld þangað
rösklega 8.200 tonn af söltuðum
fiski og þorskflökum, sem var
meira heldur en þangað hafði
verið selt um langt skeið. Miklar
birgðir af saltfiski söfnuðust upp
á Ítalíu á síðasta ári og fór svo að
fyrir milligöngu SIF voru 1250
tonn seld frá Italíu til Portúgal og
flutti Eldvík þennan farm i
marzmánuði sl.
Ástæða þess, að samningar hafa
enn ekki náðst er veik staða
lírunnar gagnvart dollarnum,
framboð frá keppinautum, sem
bjóða saltfisk á lægra verði en
Islendingar, og einnig má nefna
mikil kaup á síðasta ári, náttúru-
hamfarir á Ítalíu á síðasta ári,
minni gæði fiskjarins frá íslandi
en áður, að sögn kaupenda, og
heitt veður, sem hefur samdrátt á
neyzlu í för með sér. Sagði Tómas,
að samningaviðræðum við ítali
hefði nú verið frestað um sinn.
Á síðasta ári voru seld 4.627
tonn af saltfiski til Grikklands og
er það með því mesta, sem þangað
hefur verið selt á einu ári. I ár
hafa hafa verið flutt út 1400 tonn
af saltfiski til Grikklands og 500
tonn fara á næstu vikum. Þar hafa
komið upp vandamál vegna hring-
orms í saltfiskinum og hafa heil-
brigðisyfirvöld í Grikklandi tvisv-
ar sinnum stöðvað innflutning á
saltfiski frá íslandi á síðustu
mánuðum. Grísk yfirvöld hafa
hert matvælaeftirlit verulega á
síðustu misserum og nýlega voru 5
kaupmenn dæmdir í fjögurra ára
fangelsi óskilorðsbundið fyrir að
selja fisk, sem ekki var hæfur til
manneldis. Þessi fiskur var ekki
frá íslandi.
Keppinautar Islendinga á þess-
um markaði hafa notað sér þessi
ormamái í fiski frá íslandi og
hefur þessi galli veikt stöðu ís-
lenzka fiskjarins. Hringormur í
saltfiski hefur ekki verið vanda-
mál í útflutningi fram til þessa, en
er hins vegar mikið vandamál í
frystingu. Benti Friðrik Pálsson á
hversu brýnt það er að vanda
verkun salfisksins svo sem frekast
er kostur og einnig á hversu
alvarlegt mál er þarna á ferðinni
fyrir íslenzkan fiskiðnað í heild.
Á síðasta ári gerðu Portúgalir
samning um kaup á 20 þúsund
tonnum af saltfiski frá Islandi.
Reyndist það of lítið fyrir markað-
inn í Portúgal og hafði það ýmsa
erfiðleika í för með sér fyrir
stjórnvöld. I ár hefur hins vegar
verið samið um sölu á um 45
þúsund tonnum. Búið er að af-
skipa þangað um 16 þúsund tonn-
um, sem er tvöfalt meira en í fyrra
og sagði Friðrik Pálsson, að 4 skip
lestuðu saltfisk í þessari viku.
Er Tómas Þorvaldsson ræddi
um portúgalska markaðinn gat
hann þess, að á síðasta ári hefðu
Portúgalir gert samning við
Kanadamenn um veiðiréttindi í
lögsögu Kanada. Hefði samning-
urinn verið þannig, að 85% af
farmi skips mátti vera eigin afli,
en minnst 15% skyldi kaupa af
Kanadamönnum. Þessi hlutföll
hefðu þó oft snúist við og mikill
meirihluti hefði verið keyptur af
Kanadamönmnum, en síðan hefði
öllu verið landað sem eigin afla í
Portúgal og fiskurinn verið lítt
verkaður. Tengdi Tómas þetta
hugmyndum ákveðinna íslend-
inga, sem mjög voru til umræðu á
síðasta ári, þ.e. að flytja út
óunninn eða nætursaltaðan fisk til
Portúgal, og sömu öfl hefðu staðið
að málum við Kanada og hefðu
ætlað sér að fá hlutdeild í fiski frá
Islandi.
Friðrik Pálsson sagði, að siðan
1974 hefði ríkisfyrirtækið Regula-
dora eitt haft leyfi til að flytja inn
saltfisk til Portúgals. Um nokkurt
skeið hefðu verið uppi raddir um
að gefa þennan innflutning frjáls-
an, en svo hefði enn þá ekki orðið.
Hann sagði, að þó væri enn talið
líklegt að sú breyting yrði gerð á
innan tíðar.
Nýlega var greint frá stöðu
markaðsmála á Spáni í Morgun-
blaðinu, en þar kom fram að SÍF
tók á sig verðtoll á saltfiski, sem
settur hefur verið á. Þá hefur
staða peseta veikzt mjög gagnvart
dollar. Samið hefur verið um 10
þúsund tonn af saltfiski til Spánar
í ár og hefur um 4 þúsund tonnum
verið afskipað.
Síðari hluta síðasta árs komu
upp erfiðleikar við sölu á söltuðum
þorskflökum. Nokkrar birgðir eru
enn á þorskflökum í viðskipta-
löndunum og verð er lægra en
áður. Markaðurinn fyrir söltuð
flök virðist þó vera að rétta úr
kútnum að því er kom fram í máli
Friðriks Pálssonar.
Framleiðslan á vetrarvertíðinni
nam 44 þúsund tonnum af flöttum
fiski og er það 17% aukning frá
síðustu vetrarvertíð. Afskipanir
hafa gengið vel og hafa um 22
þúsund tonn verið flutt út.
Eru
þeir að
fá 'ann
-?
■
Laxá í Þing.:
Fylltu kvótann fyrir hádegi!
ÓHÆTT er að segja, að laxveiði-
vertíðin hafi byrjað með glæsibrag
í Laxá í Þingeyjarsýslu, en þar
hófst veiði í gærmorgun. Á hádegi
í gær höfðu veiðst 30 laxar á 3
stangir, en þar sem aðeins má
veiða 10 laxa á stöng á dag, urðu
veiðimenn að láta af frekari veið-
um þann daginn! Er óhætt að
fullyrða, að sjaldan ef nokkurn
tíman hafi veiði byrjað af slíkum
krafti í Laxá þó menn séu þaðan
ýmsu vanir. Laxarnir voru flestir á
bilinu 10—12 pund.
Þokkleg byrjun
í Miðfjarðará
„ÞETTA hefur byrjað alveg
þokkalega, veiðin byrjaði eftir há-
degið á þriðjudaginn og veiddust
þá 7 laxar, en síðan átta til
viðbótar í morgun," sagði Ragnar
örn Pétursson veiðimaður við
Miðfjarðará í samtali við Morgun-
blaðið í gærdag. Þar er veitt á átta
stangir framan af og 15 fiskar á
fyrstu 12 stundunum því bærilegt.
„Þetta er yfirleitt vænn lax,
7—13 punda og það merkilega er,
að fyrstu laxarnir sem veiddust
voru ekki lúsugir. Það er talsverð-
ur lax í Miðfjarðará og Vesturá, en
dauft enn sem komið er í Núpsá og
Austurá. Best hefur veiðst til þessa
í kistunum og Arndísarhyl í Vest-
urá og hafa laxarnir veiðst ein-
göngu á maðk og spún,“ bætti
Ragnar við áður en hann hljóp
aftur í veiðiskapinn.
Um 150 úr Þverá
„FYRSTI hópurinn fékk 30 laxa á
tveimur og hálfum degi, en nú eru
bændadagar og veiðin hérna á
neðra svæðinu er nú líklega komin
í 50 laxa. Hins vegar voru 100 laxar
komnir á land á Fjallinu í gær,
þannig að heildarveiðin telur nú
um 150 fiska," sagði Halldór í
veiðihúsinu við Þverá í Borgarfirði
í spjalli við blaðið í gær. Halldór
sagði enn fremur að flestir laxarn-
ir væru milli 10—12 pund, en sá
stærsti væri 17 pund. „En þeir eru
líka allt niður í 5 pund,“ sagði
Halldór ennfremur og bætti við, að
• Laxveiði hófst i Elliðaánum í
gærmorgun og urðu m.a. fyrst-
ir til að renna þeir Egill Skúli
Ingibergsson borgarstjóri, Sig-
urjón Pétursson íorseti borgar-
stjórnar og Aðalsteinn Guð-
johnsen rafveitustjóri. Þeir öfl-
uðu vel, til dæmis mokaði Sigur-
jón 5 löxum upp úr Fossinum á
fyrsta klukkutimanum. Egill
nældi einnig i lax og mikið líf
var að sjá í ánni. Lofar þessi
byrjun góðu fvrir framhaldið.
Á myndinni þreytir Sigurjón
einn af löxum sinum.
áin væri fremur vatnsmikil um
þessar mundir, en þó ekki skoluð.
Veitt er á sjö stangir á neðra
svæðinu í Þverá, en sex á Fjallinu.
Þetta hefur farið vægast sagt
mjög vel af stað hjá okkur, yfir 30
laxar komu á land á 10 stangir
fyrir hádegið og það er allt fullt af
laxi. Þetta held ég að slái öll met
hér í Kjósinni og ef við lítum til
dæmis á síðasta sumar, þá veidd-
ust aðeins 13 laxar allan fyrsta
daginn,“ sagði Jón Pálsson í veiði-
húsinu við Laxá í Kjós í gær, er
Mbl. sló á þráðinn.
Þetta hefur veiðst næstum allt á
svæðinu frá brúnni og upp í
Klingenberg (Laxfoss, Breiðan,
Holan og Kvíslafoss), en Jón tjáði
Mbl. enn fremur, að tveir fiskar
hefðu veiðst fram í Pokafossi, sem
er spöl fyrir innan Vindáshlíð.
„Það er frekar óvenjulegt að þeir
veiðist þar svona snemma, þó
kemur það fyrir. Þá er einnig
óvenjulegt að lax veiðist snemma
sumars í Meðalfellsvatni, en þar
hafa fengist að minnsta kosti
fjórir síðustu dagana," sagði Jór
Jón sagði að lokum, að
meðalþyngdin væri um 12 pund
stærstu laxarnir í kring um 15
pund og þeir minnstu um 10 punú
— KK-