Morgunblaðið - 11.06.1981, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
Lóðaúthlutun í Fossvogi og Suðurhlíðum:
Um 1130 aðilar
sóttu um 19 ein-
býlishúsalóðir
Alls bárust 1650 lóðaumsóknir
„ÞAÐ hárust 1650 lóða-
umsóknir þegar Suður-
hlíðarnar og Fossvogur-
inn voru auglýst til úthlut-
unar,“ sagði Hjörleifur
Kvaran hjá borgarverk-
fræðingi í samtali við
Morgunblaðið í gær, en
hann var spurður um
hversu margir þeirra sem
sóttu um lóð á dögunum í
þessum hverfum, hefðu
ekki fengið úthlutun.
Hjörleifur sagði að hægt væri
að nálgast það dæmi á nokkra
vegu, en ef Suðurhlíðarnar væru
teknar, kæmi það í ljós að í
upphafi hefðu lóðirnar verið
þrettán fyrir einbýlishús, tvær
fóru vegna uppgjörs á landi,
síðan hefðu fimm lóðir farið til
aðila sem fengu úthlutað sam-
kvæmt sérstakri undanþágu,
„þannig að það voru sex lóðir
eftir til venjulegra einstaklinga,
en um þær lóðir sóttu 496
aðilar," sagði Hjörleifur. Hjör-
leifur gat þess að þarna væri um
að ræða fólk sem aðallega hefði
sótt um einbýlishús.
í Fossvogi sagði Hjörleifur að
einbýlishúsalóðirnar hefðu verið
18. Fjórar hefðu farið í erfða-
festuuppgjör og ein í sérstaka
úthlutun, því hefðu staðið eftir
þrettán lóðir til úthlutunar. Um
þessar lóðir hefðu sótt 634
aðilar.
Hjörleifur sagðist ekki hafa
nákvæmar tölur um raðhúsin,
því margir þeirra sem um ein-
býli sóttu hefðu sótt til vara um
raðhúsalóð. Ennfremur kvaðst
hann ekki hafa alla umsækjend-
urna á skrá, því þeir sem voru
með undir 88 punktum komu
aldrei inn í dæmið og aldrei
verið dregið úr þeim umsóknum.
En hinsvegar væri það Ijóst að
1130 aðilar hefðu sótt um 19
einbýlishúsalóðir.
Þá kom það fram hjá Hjörleifi
að í Suðurhlíðum hefðu 60
raðhús verið til úthlutunar, 28
umsækjendur hefðu fengið 90
punkta eða fleiri og því hefði
ekki verið dregið úr þeirra
nöfnum. í Fossvoginum hefðu
raðhúsin verið 42 og þar hefðu
einnig verið 28 aðilar sem lóð
fengu án útdráttar. Því hefði
verið dregið um 46 lóðir, en þar
komu til álita 124 aðilar, þ.e.
þeir sem voru með 88 punkta.
Akranes:
Dýpkunarframkvæmd-
ir í Lambhúsasundi
Akranosi. 4. júní.
NÚ NÝVERIÐ hófust dýpkunar-
framkvæmdir í Lambhúsasundi
við skipasmíðastöð Þorgeirs og
Ellerts hf. á Akranesi.
Dýpkunina framkvæmir dýpk-
unarskipið Grettir. Eru þessar
framkvæmdir vegna fyrirhugaðs
stálþilsbakka sem allt að 60 m
löng skip eiga að geta legið við.
Viðlegunni er ætlað að bæta
verulega úr aðstöðu skipasmíða-
stöðvarinnar til viðgerða og þjón-
ustu. Til framkvæmdanna í ár eru
ætlaðar um 2,0 m kr. en heildar-
kostnaður fyrir utan steyptan
kant og þekju er áætlaður 3,5 m
kr. Jólíiis
Atriði úr leikritinu „Sterkari en Súpermann“
Fatlaðir með úti-
fund á Lækjartorgi
DAGANA 13. og 14. júní næstkomandi verður haldið aukaþing
Sjálfsbjargar. landssambands fatlaðra. Aðalumræðuefnið verður
réttur fatlaðra til vinnu undir kjörorðinu „Fullkomin þátttaka
og jafnrétti“. Er þetta gert, að sögn Theodórs A. Guðmundssonar,
formanns Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra. til þess að
vekja athygli á atvinnumálum og lífeyrismálum fatlaðra.
I þinghléi á laugardag verður
efnt til útifundar á Lækjartorgi
og hefst hann kl. 13.30. Á fundin-
um flytja Björn Þórhallsson,
varaforseti ASÍ, Hulda Steins-
dóttir og Sigursveinn D. Krist-
insson stutt ávörp. Þá mun Lúðra-
sveit Árbæjar og Breiðholts leika
áður en fundur hefst.
I lok fundarins mun Alþýðu-
leikhúsið flytja atriði úr nýju
leikriti sem heitir „Sterkari en
Súpermann" eftir Roy Klift. Þýð-
inguna gerði Magnús Kjartans-
son. Leikritið sem fjallar um
fatlaðan dreng verður tekið til
sýningar hjá Aiþýðuleikhúsinu í
haust.
Að sögn Theodórs A. Guð-
mundssonar hefur allstór hópur
fóiks, þar á meðal nokkrir fatlaðir
séð æfingar hjá AL á verkinu
fyrir skömmu. „Voru allir sam-
mála um að Alþýðuleikhúsið hefði
ekki einungis valið afburðagott
verk til sýningar heldur að það
unga fólk sem að sýningunni
stendur hefði náð ótrúlegum tök-
um á hinu vandmeðfarna efni,
sem þarna er fjallað um. Verkið
er afar grípandi án þess nokkurs-
staðar örli á þeirri viðkvæmni og
stundum væmni, sem oft einkenn-
ir slík verk. Leikverkið teygir
tilfinningar áhorfandans og ber
öll einkenni hinna fullkomnu
ádeiluverka þegar gengið er fram
á ystu nöf hvað mannleg sam-
skipti varðar, en heldur ekki
fetinu lengra," sagði Theodór
ennfremur.
Að lokum vildi Theodór benda
fólki á að útvega sér aðstoðarfólk
í tíma um flutning til og frá fundi.
Ferðaþjónusta og aðstoð yrði í
tengslum við fundinn og vildi
Theodór hvetja alla sem aðstoðar
þyrftu að hafa samband við
skrifstofu Sjálfsbjargar sem allra
fyrst.
Kvikmynd um
starísemina
í frystihúsum
Á AÐALFUNDI SH í síðastlið-
inni viku var í fyrsta skipti
sýnd 18 mínútna löng kvik-
mynd um hraðfrystiiðnað hér-
lendis.
Að sögn Guðmundar H.
Garðarssonar hjá SH er fyrir-
hugað að sýna kvikmynd þessa
innanlands og er ætlunin að
kynna starfsemi i frystihúsum
og framleiðsluna þar með
kvikmyndinni. Myndin verður
væntanlega tilbúin til sýn-
ingar fyrir almenning i
sumar.
Þá er hafinn undirbúningur
að kvikmynd um starfsemi SH
og Coldwater Seafood Corpor-
ation í Bandaríkjunum, sem
vera á svipuð að lengd. Það er
Sigurður Sverrir Pálsson, sem
gerir þessar myndir, en þulur
er Ólafur Ragnarsson.
• •
Orfáar sýning-
ar ef tir á „Sölu-
maður deyr“
FIMMTUDAGINN 11. júní verA
ur sýning á Sölumaður deyr eftir
Arthur Miller i Þjóðleikhúsinu
eftir nokkurt hlé á sýningum og
skal fólki bent á að nú eru
einungis þrjár sýningar eftir á
þessu vinsæla leikriti. Verkið var
frumsýnt i febrúar sl. og hefur
veríð sýnt yfir 30 sinnum við
mjög góða aðsókn.
í aðalhlutverkunum eru Gunnar
Eyjólfsson, Margrét Guðmunds-
dóttir, Hákon Waage, Andri Örn
Clausen, Róbert Arnfinnsson,
Bryndís Pétursdóttir, Árni
Tryggvason og Randver Þorláks-
son. — Dr. Jónas Kristjánsson
þýddi leikinn, Þórhallur Sigurðs-
son er leikstjóri.
Taprekstur frystihúsa
8—10% af veltu á árinu
— segir m.a. í ályktun aðalfundar SH
AÐALFUNDI Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna lauk á
fimmtudagskvöld. í lok fund-
arins var samþykkt eftirfar-
andi ályktun:
„Aðalfundur SH haldinn í
Reykjavík 3. og 4. júní 1981 lýsir
áhyggjum sínum yfir þeirri þróun,
sem orðið hefur í framleiðslumál-
um frystihúsanna á þessu ári.
Þetta kemur fram í miklum
samdrætti framleiðslu, sem er
15%, og einnig er afkoma fryst-
ingar með eindæmum léleg, enda
má áætla, að taprekstur það sem
af er þessu ári hafi numið 8% til
10% af veltu. Kemur það til
viðbótar taprekstri á sl. ári. Af
þessu tapi hefur Verðjöfnunar-
sjóður skuldbundið sig til að
greiða um 4%.
Nýlega hefur orðið umtalsverð
hækkun á markaðsverði frystra
fiskafurða í Bandaríkjunum, en
þegar litið er til heildarfram-
leiðslu, nemur þessi hækkun rétt
rúmlega þeirri upphæð, sem Verð-
jöfnunarsjóður hafði skuldbundið
sig til að greiða á framleiðslu
tímabilsins 1. janúar til 31. maí í
ár. Þessi verðhækkun bætir því
ekki afkomu frystihúsanna, held-
ur losar hún Verðjöfnunarsjóð við
greiðslur.
Nýafstaðin gengisbreyting sem
nam um 4%, hrekkur því ekki til
að jafna það tap, sem frystingin
hefur búið við undanfarið.
41. vormót Hraunbúa
haldið um næstu helgi
SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar í
Ilafnarfirði heldur sitt 41. vor-
mót i Krýsuvík dagana 12. til 14.
júní. þ.e. um næstu helgi. Rammi
mótsins er að þessu sinni „skát-
un“, sem táknar að mútsgestir
vinna að ýmsum skátastörfum,
en markmið skáta er að þjálfa
og þroska einstaklinginn til að
mæta framtíðinni.
Vormótið verður sett af félags-
foringja Hraunbúa, Sigurði Bald-
vinssyni kl. 22 föstudaginn 12.
júní.
Á mótinu verður flokkakeppni
og einstaklingskeppni í ýmsum
greinum sem tengjast skátastörf-
um. Þá er á dagskrá gönguferð,
gróðursetning trjáa en Hraunbú-
ar hafa annast gróðursetningu í
Krýsuvík og á síðasta vormóti
voru gróðursettar þar um tvö
þúsund plöntur og svæðið girt af.
Tjaldbúðaverðlaun verða veitt
fyrir hreinlegustu tjaldbúðirnar.
Þá verða fjölskyldubúðir á mót-
inu og þangað geta komið fjöl-
skyldur og eldri skátar. Laugar-
daginn 13. júní koma ljósálfar og
ylfingar frá Hafnarfirði og dvelja
þau á mótinu fram yfir kvöld-
vöku. Mótinu verður slitið sunnu-
daginn 14. júní kl. 13.
Vonast skátarnir í Hraunbúum
til að skátafélög notfæri sér þetta
mót til að undirbúa skáta sína
undir Landsmót skáta ’81, sem
haldið verður í Kjarnaskógi við
Akureyri dagana 26. júlí til 2.
ágúst, segir í fréttatilkynningu
um vormótið frá Hraunbúum.
Mótsmerki 41. vormóts
Ilraunhúa, sem haldið verður
í Krýsuvik um næstu helgi.
Nú er komin til framkvæmda
8% hækkun vinnulauna og nýtt
fiskverð á að taka gildi frá 1. þ.m.
Það er ljóst, að frystingin getur
ekki tekið á sig hækkanir þessara
kostnaðarliða, nema fá það bætt í
auknum tekjum með rétt skráðu
gengi.
Að lokum vill fundurinn undir-
strika mikilvægi þess, að við
glötum ekki neinum þeim mark-
aði, sem þegar hefur unnist fyrir
framleiðslu frystihúsanna. Enn-
fremur vekur fundurinn athygli á
því mikilvæga hlutverki, sem
frystihúsin gegna í atvinnulífi
víðsvegar um landið. Mikill sam-
dráttur, eða tilfærsla framleiðsl-
unnar í aðrar verkunargreinar,
hlýtur að leiða til samdráttar í
atvinnu og margháttaðra erfið-
leika í rekstri frystihúsanna."