Morgunblaðið - 11.06.1981, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
33
Afmæliskveðja:
Guðmundur J.
Kristjánsson
Nú þegar vinur minn, veiðifé-
lagi og samstjórnarmaður, Guð-
mundur J. Kristjánsson, leggur í
áttunda áratuginn að árum, tel ég
það skyldu mína að minnast hans
nokkrum orðum við þessi tímamót
hans.
Það veit ég að fyrir munn
margra mæli ég er ég lýsi Guð-
mundi sem einstökum gæfumanni,
hreinskiptum, sanngjörnum og
réttsýnum. Hann vill allra manna
vanda leysa á farsælan hátt, er
trúr starfi sínu og samtíðar-
mönnum, gengur sjaldan til
rekkju fyrr en hans borð eru hrein
af dagsins störfum, það þekkjum
við samstjórnarmenn Guðmundar
að á engan er hallað þó sagt sé að
einstök reglusemi og snyrti-
mennska hafi verið handbragð
Guðmundar þar sem hann hefur
verið valinn til starfa.
Sem ritari Stangaveiðifélags
Reykjavíkur um mörg árabil með
föllnum vini sínum, Óla J. Ólasyni,
stórkaupmanni, sem var formaður
þann tíma, kom það aldrei fyrir að
allir hlutir væru ekki á sínum
stað, og minnist ég þess sérstak-
lega þegar ákvörðun var tekin á
stjórnarfundi SVFR eitt sinn að
rita stjórn Landssambands
stangaveiðifélaga bréf vegna ein-
hvers er snerti hagsmuni stang-
veiðimanna. Las óli formaður
Guðmundi ritara bréfið, Guð-
mundur ritaði því næst bréfið sem
Óli undirritaði, og óskaði þess að
hann kæmi því í réttar hendur,
sem Guðmundur gerði, áritað og
merkt. Það athyglisverða var að
Guðmundur var þá formaður
Landssambands stangaveiði-
manna og tók hann og las bréfið
félögum sínum í þeirri stjórn, en
þarna var Guðmundi vel lýst að
blanda ekki saman tveimur trún-
aðarstörfum er honum var- þá
trúað fyrir, heldur hélt hann
forminu sem um tvo aðskilda
Guðmundi væri að ræða, þannig
veit ég að við erum margir sem
þekkjum Guðmund að slíkum
störfum, enda hefði hann ekki
verið fenginn til jafn margra
trúnaðarstarfa sem raun ber vitni
væri ekki svo.
Guðmundur J. Kristjánsson er
fæddur að Sveinseyri við Dýra-
fjörð 11. júní 1911. Foreldrar hans
voru þau Guðmunda Ólöf Guð-
mundsdóttir og Kristján Jóhann-
esson sem þá bjuggu þar.
Guðmundur vann við sjó-
mennsku til að byrja með bæði á
fiskiskipum og farskipum, þar til
hann réðist til rannsóknarstofu
Háskólans árið 1934 sem nemi í
meinefnafræðum, sótti tíma í
læknadeild háskólans, og var hann
með þeim fyrstu sem hlutu viður-
kenningu sem meinatæknir hér-
lendis, og hefur hann unnið við
þau störf síðan og nú seinni ár
sem deildarstjóri í sýklaætisdeild
Rannsóknarstofu háskólans. Veit
ég að kostir hans sem áður er
getið, nýtast deildinni vel, og
hefur um mörg ár árvekni Guð-
mundar og vinnusemi komið
mörgum til góða.
Guðmundur er kvæntur Guð-
björgu Unni Guðjónsdóttur, sem
fædd er í Reykjavík 9. apríl 1913
og eiga þau 4 börn, öll dugleg og
mannkostafólk, og bera foreldrum
sínum báðum góðan þokka, enda
ekki við öðru að búast.
Sem áður er getið átti Guð-
mundur sæti í stjórn Stangaveiði-
félags Reykjavíkur sem ritari
mörg árabil, og formaður Lands-
sambands stangaveiðimanna var
hann og átti sæti í endurskoðun-
Á Reykjavíkurborg
að greiða gatnagerð-
argjöld Seðlabankans?
Á síðasta borgarstjórnar-
íundi var samþykkt að fram
færu makaskipti milli
Reykjavíkurborgar og Seðla-
banka íslands. Samkvæmt
því leggur borgin fram
Sænsk-íslenska frystihúsið
og lóð þess auk innlausnar-
verðs bílastæða vegna ófull-
nægðrar bilastæðakvaðar en
Seðíabankinn lóð sína að
Sölvhólsgötu 2, auk fram-
reiknaðs framkvæmdakostn-
aðar vegna grunns.
Mismunurinn, tæpar 6
milljónir króna, fer til
greiðslu byggingaframlags
borgarinnar til byggingar
hílageymsluhúss á lóð að-
liggjandi lóð Seðlabankans.
Þetta bílageymsluhús
byggir Seðlabankinn, en
Reykjavíkurborg greiðir.
Páll Gíslason (S) benti á að
samningur þessi væri óhagstæð-
ur borginni. Sérstaklega væri
tekið fram að gatnagerðargjöld
af væntanlegri byggingu Seðla-
bankans við Ingólfsstræti séu
meðtalin í makaskiptunum og
þau séu því að fullu uppgerð.
Gagnrýndi Páll þessa málsmeð-
ferð þar sem hvergi kæmi fram í
samkomulaginu á hvern hátt
bankinn greiddi gatnagerðar-
gjald eða hve mikil þau ættu að
vera, ef reiknuð hefðu verið.
Kom ekki fram í svari borgar-
stjóra á hvern hátt þetta ákvæði
hefur orðið til.
arnefnd Lax- og silungsveiðilög-
gjafarinnar auk fjölmargra trún-
aðarstarfa sem á hann hafa hlað-
ist, enda skilja félagar hans að
betri maður verður vart fundinn
til slíkra starfa.
Svo sem áður má sjá hefur
tómstundagaman Guðmundar
verið veiðiskapur og eru þeir ófáir
dagarnir sem hann hefur staðið á
bökkum fallegra laxveiðivatna þar
sem umgangur hans er sem ann-
ars staðar öðrum til eftirbreytni.
Þegar þú leggur að baki einn
áratuginn, vinur minn, óska ég
þess að þú megir um ókomin ár,
skelfa laxana með komu þinni og
við hinir yngri megum af þér læra
sem áður. Minnist ég þess sér-
staklega þegar við sem stjórnar-
menn vorum við veiðar í Norðurá í
Borgarfirði við opnun laxveiði-
tímabilsins þegar þú varst kominn
í gang með fluguna á „Brotið" við
Laxfoss. Var kappið og köstin í
góðu samhengi við pípureykinn
sem lagði til himins, og var manni
oft í huga að þarna væri á ferðinni
kolakyntur veiðimaður enda var
ekki veiðivon væri pípan ekki á
sínum stað. Hinn góðkunni frétta-
maður og skemmtikraftur, Ómar
Ragnarsson, gerði eitt sinn um þig
vísu svohljóðandi:
(■uðimindur or Rarpur snjall
onn icáta or það flostum.
Að sa*t or um þonnan kraftakarl
krankur vorði af postum.
Erfltt starf or á hann lagt
«K oðliloict það sýnist mér.
Að sýklana moð pomp ok praKt
profi hann á sjálfum HÓr.
Sitt sýnist hverjum, og látum
við hann um það, en eitt er þó víst
að sem betur fer hafa sýklarnir
ekki náð á þér tökum, enda þótt þú
hafir áratugi búið í sambýli við
þá, og er það vel.
Nú þegar þú gerir okkur vinun-
um dagamun í heimili Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, svó sem
vera ber, færum við þér og fjöl-
skyldu þinni bestu árnaðaróskir,
og megi við, laxarnir, sýklarnir og
lömbin njóta handleiðslu þinnar
um mörg ókomin ár. Innilegar
hamingjuóskir.
Axel
Samkomulagið var samþykkt
með tíu atkvæðum gegn atkvæði
Páls Gíslasonar, sem gerði þá
grein fyrir atkvæði sínu að
hinum fyndist Seðlabankinn
ætti að greiða gatnagerðargjald
eins og aðrir sem byggja hús í
borginni.
KREBS
MÁLNINGARSPRAUTUR
Þegar ákvörðun er tekin um kaup á málningarsprautum þá er nauðsynlegt að athuga
eftirfarandi:
1. Úr hvaða efni slithlutir sprautunnar eru gerðir.
2. Hver afköstin eru.
3. Verðið.
Við bjóðum Krebs málningarsprautur til flestra nota úr bestu fáanlegum hráefnum og á mjög
hagstæðu veröi.
30 og 40 Vatta fyrir lakk og olíu. Efni: hert stál, afköst 10—12 1. á klst. (Heppilegar fyrir
föndur).
60 Vatta fyrir olíu og lakk. Efni: hert stál, afköst 15 1. á klst.
100 Vatta fyrir olíu, lakk og vatnsmálningu. Efni: mangan Carbide, afköst 21 1 á klst.
120 Vatta fyrir olíu, lakk og vatnsmálningu. Efni: Mangan Carbide, afköst 28.8 1. á klst.
Útsölustaðir: Sveinn Egilsson, hf. Skeifunni 17, Rvík. Liturinn, Síðumúla 15, Rvík. Ingþór
Haraldsson, Ármúla 1, Rvík. Haukur og Ólafur, Raftækjaverslun, Ármúla 32, Rvík. Atlabúðin,
Glerárgötu 34, Akureyri. Kjarni sf„ Skólavegi 1, Vestmannaeyjum.
KREBS svissnesk gæðaframleiösla.
SVEINN EGILSS0N HF
Skeifunni 17.
S: 85150.
SVEFNHERBERGISHUSGOGN
í geysimiklu
úrvali
Einnig geysigott úrval
af alls konar húsgögn-
um af ýmsum geröum.
husgögn,
Langholtsvegi 111,
sími 37010 — 37144.