Morgunblaðið - 11.06.1981, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
Aukinn áhugi fyrir nor-
rænni kvikmyndagerð
f Menntaskólanum við Hamra-
hlíð hefur staðið yfir solusýning
sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum.
Nordic screeninK. »K lauk henni i
K»t. Þetta er i sjöunda sinn, sem
sýninK þessi er haldin ok er hún nú
i fyrsta sinn á íslandi. Á sýninK-
unni eru myndir frá Norðurlönd-
um sýndar kaupendum utan
Skandinavíu. Kaupendur frá tutt-
uku löndum sækja þessa sýninKU i
ár ok á boðstólum eru 110 sjón-
varpsþættir ok myndaflokkar frá
öllum Nurðurlöndunum.
Á sýningunni eru fimm nýjar
myndir frá íslandi, auk mynda frá
fyrri árum. Það eru Snorri Sturlu-
son, Flæðarmál, Dagur í lífi forseta,
Vandarhögg og Óðurinn um afa. Að
sögn Eilínborgar Stefánsdóttur,
framkvæmdastjóra sýningarinnar,
er erfitt að segja til um hvaða
undirtektir islensku myndirnir hafi
fengið, því yfirleitt séu ekki gerðar
Ljósm. Kristján
Sölumenn frá Norrænum sjónvarpsstöðvum ásamt framkvæmdastjóra
sýningarinnar, Elinborgu Stefánsdóttur (t.h.).
pantanir fyrr en fulltrúarnir hafa
ráðfært sig við stjórnendur stöðv-
anna heimafyrir. Þó mátti heyra að
Flæðarmál eftir Ágúst Guðmunds-
son hafði verið vel tekið og Dagur í
lífi forseta sem er unnin upp úr
Fréttaspegli, hafði einnig vakið at-
hygli. ,
Fulltrúar frá norrænu sjón-
varpsstöðvunum sátu fyrir svörum
blaðamanna og töldu þeir að löngun
eftir tilbreytingu væri aðalástæðan
fyrir því að erlendar sjónvarps-
stöðvar sæktust eftir kvikmyndum
frá Skandinavíu nú í auknum mæli.
Myndir frá Norðurlöndum hefðu á
sér annað yfirbragð en t.d. dæmi-
gerðar bandarískar eða breskar
kvikmyndir. Helst væri myndunum
þó fundið til foráttu að þær væru
langdregnar.
Blm. spjallaði við William Har-
pur, frá sjónvarpsstöð í Dublin,
Irlandi, hann sagðist mjög hrifinn
af kvikmyndunum Saga úr stríðinu
og Flæðarmál eftir Ágúst Guð-
mundsson. Hann átti eftir að sjá
myndina um Snorra Sturluson eftir
Þráin Bertelsson. Sérstakan áhuga
hfði hann á heimildarmyndum, m.a.
um þjóðdansa og náttúru tslands.
Einnig spuröist hann fyrir um hvort
til væru upptökur með Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Þessar myndir
væru nauðsynlegar til mótvægis við
Kojak-myndir og Dallas-myndir.
Veitingin sizt til að hvetja konur
til að sækja um ábyrgðarstöður
HÉR FER á eftir greinargerð
Jafnréttisráðs um veitingu
menntamálaráðherra í i prófess-
orsembætti í ónæmisfræði við
Iláskóla íslands; en eins og kom-
ið hefur fram í frétt Mbl. átclur
ráðið ráðherra fyrir það hvernig
staðið var að máli þessu:
„Jafnréttisráði barst ósk frá
Kvenréttindafélagi íslands, um að
ráðið kannaði veitingu mennta-
málaráðherra í prófessorsembætti
í ónæmisfræði við Háskóla íslands
með tilliti til Iaga nr. 78/1976 um
jafnrétti kvenna og karla.
Samkvæmt 10. gr. jafnréttislag-
anna, 6. tölulið, á ráðið að „taka
við ábendingum um brot á ákvæð-
um laga þessara og rannsaka
málið af því tilefni og senda að
rannsókn lokinni málskjöl til
þeirra aðila, sem málið varðar."
Jafnréttisráð óskaði eftir grein-
argerð frá menntamálaráðherra
um málið og barst hún ráðinu 24.
apríl sl. Einnig leitaði ráðið upp-
lýsinga hjá forseta læknadeildar
Víkingi H. Arnórssyni.
Þá leitaði ráðið álits Helgu M.
Ógmundsdóttur á þessu máli og
Keflavík-
urganga
í sumar
SAMTÖK herstöðvaandstæðinKa
hafa ákvcðið að efna til „friðar-
göngu 1981“ hinn 20. júní næst-
komandi og verður gengið frá
Keflavik til Reykjavikur.
Daginn eftir verður farin ganga,
sem hefst í Kaupmannahöfn og
lýkur í París með fundahöldum 6.
til 9. ágúst. Meginkrafa þeirrar
göngu verður „kjarnorkuvopna-
laus Evrópa frá Póllandi til Portú-
gal.
Megininntak Keflavíkurgöng-
unnar verður hins vegar krafan
um brottför hersins af Islandi og
úrsögn úr Atlantshafsbandalag-
inu.
— segir m.a. í greinar-
gerÖ Jafnréttisráðs
um veitingu mennta-
málaráöherra í stöðu
prófessors við HÍ
sendi henni greinargerð mennta-
málaráðherra.
I svari Helgu kom m.a. eftirfar-
andi fram:
„Það hafði ekki hvarflað að mér,
að fram hjá mér hefði verið gengið
við þessa embættisveitingu vegna
þess, að ég er kona. Ég tel, að
Helgi Valdimarsson hefði verið
vel að embættinu kominn, ef ekki
hefði komið til sá leiði forleikur að
veitingu þess, sem ég hef vikið að.
Af ofanskráðu er ljóst, að ég álít
ekki, að jafnréttissjónarmið séu
aðalatriðið í þessari embættisveit-
ingu. Ég óska því ekki eftir frekari
aðgerðum af hálfu Jafnréttisráðs
en þakka ráðinu þann áhuga sem
það hefur sýnt þessu rnáli."
Jafnréttisráð mun vegna af-
stöðu Helgu ekki hafast frekar að
í þessu máli.
Jafnréttisráð átelur ráðherra
fyrir að leita ekki álits ráðsins
áður en hann veitti prófessors-
embættið, en samkvæmt jafnrétt-
islögunum er það m.a. hlutverk
Jafnréttisráðs að vera ráðgefandi
gagnvart stjórnvöldum við stöðu-
veitingar.
Jafnréttisráð leggur sérstaka
áherslu á, að stjórnvöld gangi á
undan með góðu fordæmi, fari að
lögum og gæti jafnréttissjónar-
miða kynjanna.
Þá vill Jafnréttisráð benda á, að
þessi veiting verður síst til að
hvetja konur til að sækja um
ábyrgðarstöður.
Virðingarfyllst,
f.h. Jafnréttisráðs
Bergþóra Sigmundsdóttir,
framkv.stj.“
Frímerkjasýn-
ing í Garðabæ
í SAMBANDI við 14. landsþing
L.Í.F., sem haldið verður næst-
komandi laugardag i Flataskóla i
Garðabæ. verður efnt til frí-
merkjasýningar í skólahúsinu.
Ilefur hún hlotið nafnið Garðar
'81.
Um 60 rammar verða á sýning-
unni og efni allmargbreytilegt. Áf
íslenzku efni má nefna umslög frá
Þjóðminjasafni Islands í sex
römmum og notuð bréfspjöld úr
safni Hálfdanar Helgasonar í
jafnmörgum römmum. Þessi söfn
bæði eru verðlaunasöfn. Þá sýnir
Guðmundur Ingimundarson í 12
römmum frímerkjaefni, sem tengt
er Vestmannaeyjum. Er þar bæði
um margvíslega stimpla að ræða á
stökum merkjum og heilum bréf-
um með réttu burðargjaldi. Jón
Halldórsson sýnir stimplasafn sitt
á 20 aura frímerki frá 1925
(Safnahúsið). Jón Aðalsteinn
Jónsson sýnir dönsk frímerki frá
1851—1904 í fjórum römraum, en
þetta safn hlaut silfrað brons á
NORDIA 1981. Margt annað
áhugavert verður sýnt þarna, t.d.
margs konar mótífsöfn.
Gefin verður út sýningarblokk
til ágóða fyrir sýninguna og eins
umslög með merki sýningarinnar.
Sýningin er opin föstudag nk.
kl. 18—22 og laugardag og sunnu-
dag kl. 14—20. Aðgangur er
ókeypis.
Sérstakt pósthús verður starf-
rækt í tengslum við GARÐAR ’81
og opið alla þrjá daga sýningar-
innar. Sérstimpill hefur verið
gerður, og eru í honum auk
staðarnafns og dagsetningar bæði
merki L.Í.F. og hins unga Garða-
bæjar. Póst- og símamálastofnun-
in hefur sent út tilkynningu um
þetta pósthús. Rétt er að vekja
athygli á því, að menn verða að
nota lágmarksburðargjald undir
sendingar sínar til þess að fá þær
stimplaðar.
Hyggjast standa straum
af kostnaði við endnr-
bætur Fríkirkjunnar
FÖSTUDAGINN 12. júní mun
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins I
Reykjavík vera með útimarkað á
Rit Milton Friedmans
Margir hafa spurt eftir sjón-
varpsþa-tti Milton Friedmans og
umræðurnar um kenningar hans í
blöðum. hvar rit eftir hann sé að
finna. Morgunblaðið sneri sér til
Skafta Ilarðarsonar, umsjónar-
manns Pontunarþjónustu Félags
frjálshyKKÍumanna. ok spurði
hann þess.
„Ég held, að flestar bókaverzlanir
hafi á boðstólum það rit Friedmans,
sem samið er upp úr sjón-
varpsþáttunum, bókina Frec to
Ch<H)se. En Pöntunarþjónusta Fé-
lags frjálshyggjumanna útvegar
mönnum ýmsa bæklinga eftir hann,
sem Institute of Economic Affairs í
Lundúnum gefur út, en Pöntunar-
þjónustan hefur einkaumboð á ís-
landi fyrir þá stofnun," sagði
Skafti.
„Þessir bæklingar eru fjórir:
From Galhraith to Economic Free-
dom, sem eru tveir fyrirlestrar,
annar gagnrýni á hagfræðikenning-
ar Johns Kenneths Galbraiths, sem
er einn kunnasti kennimaður sósí-
aiista á okkar dögum, hinn lýsing á
þeim leiðum, sem Fricdman hefði
farið til að endurreisa brezka hag-
kerfið. Monetary Corrcction, þar
sem Friedman sýnir, hvernig lag-
færa megi stjórn peningamála. In-
flation and Unemployment. The
New Dimension in Politics, sem er
nóbelsræða Friedmans, en þar leið-
ir hann rök að því, að verðbólga
afstýri síður en svo atvinnuleysi, en
Milton Friedman
margir stjórnmálamenn, ekki sízt
íslenzkir, hafa haldið það. The
Counter-Revolution in Monetary
Theory, þar sem Friedman segir
frá því, hvernig reynslan hefur
hrakið kenningar Keyness lávarðar
um það, að ríkið gæti og ætti að
stjórna atvinnulífinu, og færir rök
fyrir peningamagnskenningu sinni,
en þeim hagfræðingum fjölgar í
sífellu, sem taka undir hana.“
Skafti sagði að lokum: „Þessir
bæklingar eru mjög ódýrir og
auðlæsilegir, enda ætlaðir þeim,
sem hafa ekki tíma til að lesa
dögum saman löng fræðirit, en vilja
gjarnan kynnast kenningum Fried-
mans. Við getum útvegað mönnum
þessi rit, enda er nýkomin sending
af þeim til okkar. Auðveldast er að
skrifa okkur í pósthólf 1334, 121
Reykjavík og panta þannig ritin.
Þess má geta, að Geir Haarde
hagfræðingur er að þýða bókina
Capitalism and Freedom eftir
Friedman, sem er að verða sígilt rit
í stjórnspeki, og kemur sú bók
væntanlega út í haust á vegum
Félags frjálshyggjumanna og Al-
menna bókaféiagsins.“
La-kjartorgi. „Er hér með skorað
á alla meðlimi og velunnara Fri-
kirkjunnar að styrkja þessa fram-
kvæmd með gjöfum og framlögum
ok með því að nota sér það, sem
þar verður á boðstólum,“ segir i
fréttatilkynninKU frá stjórn kven-
félags Frikirkjusafnaðarins.
Gjöfum og munum til markaðs-
ins verður veitt móttaka að Garða-
stræti 36 í dag, fimmtudag 11. júní,
og fyrir hádegi á morgun 12. júní.
Ýmsar fjárfrekar framkvæmdir
eru nú á döfinni í Fríkirkjunni, og
má þar nefna nýja hitalögn í
kirkjuna, lagfæringar á skrúðhúsi
og skrifstofu prestsins, og auk þess
þarf að mála turn kirkjunnar. Mun
kvenfélagið að verulegu leyti
standa straum af þessum fram-
kvæmdum og er því fjárþörf þess
mikil um þessar mundir. Er það
einlæg von kvenfélagsins, að
Reykvíkingar bregðist vel við að
þessu sinni eins og ávallt áður.