Morgunblaðið - 11.06.1981, Síða 35

Morgunblaðið - 11.06.1981, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JUNl 1981 35 VAKTPOST • »-«■>— •» 4H Vlktlc * bmn i nora ssz?—-' ISLAND hMMI Fjallað um Island í riti norskra nem- enda i blaðamennsku NEMENDUR við norska hlaða- mannaháskólann i Osló voru hór á landi i hyrjun maímánaóar ok söfnuðu efni í rit, sem var þáttur í lokaprófi þeirra frá skólanum. Blað þetta hefur nú litið da«sins Ijós o({ er víða komið við í umfjöllun ncmendanna. Varnarmál Islands, Atlants- hafsbandalagið og bandríska varnarliðið á Keflavíkurflugvelli fá mikið rúm í blaðinu. Sömu sögu er að segja um Jan Mayen-samn- inga íslendinga og Norðmanna. Fjallað er um möguleika á olíu á íslenzka landgrunninu, fiskveiðar og verðbólgu, eldgos og jarðhita. Rætt er við listamenn og fjallað um íslenzka menningu, svo dæmi séu nefnd. Óhætt er að segja að þessi norski hópur hafi víða komið við í efnissöfnuninni hér á landi og birtist hluti þess efnis í þessu 20 síðna riti. Hluti efnisins hefur hins vegar og á eftir að birtast í norskum dagblöðum og tímarit- um. Bændaferðir í sumar: Farið til Irlands, Græn lands og Norðurlanda „AÐAL FERÐIN verður til ír- lands og hún verður farin á sunnudaginn." sagði Agnar Guð- nason blaðaíulitrúi bændasam- takanna i samtali við Mbi., er hann var spurður um utanlands- ferðir á vegum bænda í sumar. -Dað fara um 130 manns I þessa ferð og þar af eru um 90 manns úr sveit og verða þeir sér. Ferðin er skipulögð af irsku bændasamtökunum og verða m.a. heimsóttar tilraunastöðvar og farið verður á landbúnaðarsýn- ingu sem haldin verður i Cork á Suður-írlandi. Við fljúgum til Dublin á sunnu- dag og verður ekið þaðan yfir á vesturströndina og verða bændur og mjólkurframleiðendur heim- sóttir og einnig verður tilrauna- stöð í sauðfjárrækt heimsótt," sagði Agnar. Þá kom það fram hjá Agnari að ferðin væri blanda af venjulegu ferða- og skemmtiprógrammi og heimsóknum. Agnar sagði að ferð þessi stæði í 10 daga. Þá sagði Agnar að 29 manna hópur færi í ferð til Norðurlanda og yrði farið laugardaginn 13. júní og komið aftur þann 24. júní, og Grænlands- ferð yrði farin þann 21. júní, en hún væri farin á vegum búnaðar- félagsins og færu 28 manns i þá ferð. Hins vegar væru ferðirnar til írlands og Norðurlanda farnar á vegum Upplýsingaþjónustu land- búnaðarins. Efnir tii samkeppni um gerð veggmyndar LANDSVIRKJUN hefur ákveðið að efna til samkeppni meðal íslcnzkra listamanna um gerð veggmyndar við stöðvarhús Sig- ölduvirkjunar. Verðlaun eru sam- tals allt að kr. 50.000,00, þar af verða 1. verðlaun kr. 20.000,00. Öllum íslenzkum listamönnum er heimil þátttaka. í dómnefnd eru dr. Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Lands- virkjunar, Guðmundur Kr. Krist- insson arkitekt og Hörður Ág- ústsson listmálari. Trúnaðarmaður dómnefndar er Ólafur Jensson, framkvæmda- stjóri Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1, Reykjavík og afhendir hann keppnisgögn og veitir frekari upplýsingar um keppnina. Skila skal tillögum til hans eigi síðar en 15. september 1981. Einbýlishús í Suðurhlíðum og Fossvogi: Gatnagerðar- og tengd gjöld allt upp í 102.458 krónur GATNÁGERÐARGJÖLD ásamt svokölluðum tengdum gjöldum, en það er gjald sem borgin innheimtir samhliða gatnagerð- argjaldi að þremur fjórðu hlut- um. nema af einbýlishúsum i Fossvogshverfi kr. 100.610. Af einbýlishúsum í Suðurhlíðum. nýja hverfinu í Öskjuhlið, eru greidd tvennskonar gjöld. fyrir minni og stærri hús. Fyrir minni húsin eru gatnagerðargjöld og tengd gjöld að upphæð kr. 81.190. en fyrir stærri húsin er upphæðin 102.458 kr., samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið fékk hjá Iljörleifi Kvaran hjá borgar- verkfræðingi í gær. 1 Fossvogshverfi eru gatnagerð- ar- og tengd gjöld af raðhúsum að upphæð 76.830, en nokkuð er þessi upphæð mismunandi í raðhúsum í Suður-hlíðum, allt frá 61.510 kr. og upp í 101.158 krónur. Hjörleifur sagði að þessi gjöld greiddust þannig að þriðjungur IIITAVEITA Suðurnesja hefur tryggt sér jarðnæði i landi Húsa- tófta. skammt vestan við Grinda- vík. í landi þessu er svæði, sem Eldvörp nefnist. og er talið að jarðhiti sé þar ekki minni en i þvi landi. sem hitaveitan hefur yfir að ráða í Svartsengi. Þetta kom fram í máli Finnboga Biörnssonar stiórnarformanns á að- ætti að greiðast mánuði eftir úthlutun, þriðjungur þann 15. september og þriðjungur þann 15. desember. alfundi Hitaveitunnar, sem haldinn var nýlega. Þar kom einnig fram, að eignir Hitaveitu Suðurnesja eru nú metnar á 330 milljónir króna en skuldir eru 220 milljónir króna. Ennfremur kom fram að rafmagnsframleiðsla hefur gengið mjög vel hjá Hitaveitu Suðurnesja, en hún hófst í vetur. Hitaveita Suðurnesja: Hef ur tryggt sér land með miklum jarðhita VICONCORD Amerískur lúxusbill meðöllu 6 cyl 258 cid vól. Sjálfskipting, vökvastýri, aflhemlar, hiti í aftur- rúöu, hallanleg sætabök, pluss- áklæði, viöarklætt mælaborö, vinyl- toppur, teppalögð geymsla, hliöar- listar, krómlistar á brettaköntum, síls og kringum glugga, klukka D/L hjólkoppar, D78x14 hjólbaröar meö hvítum kanti, gúmmíræmur á höggvörum og vönduö hljóöein- angrun. CONCORDINN er meðal sparneytnustu bíla, um og undir 12 I. á 100 km. Verö: Station kr. 163.734 - 4ra dyra (Sedan) kr. 159.851.- Allt á sama Stað Sýningarsalur Smiðjuvegi 4, sími 77200. EGILL VILHJÁLMSSON HF Samkeppni í gerð minjagripa Framlengd til 22. júní n.k. Við vekjum athygli á því, að samkeppnin hefur verið framlengd til mánudagsins 22. júní n.k. Muniö aö minjagripunum skal skila til Feröamálaráös íslands, Laugavegi 3. Ferðamálaráð íslands Iðntæknistofnun íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.