Morgunblaðið - 30.07.1981, Page 5

Morgunblaðið - 30.07.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981 5 Sjávarútvegsráðuneytið: Heimilar kaup á f jórum togurum Kaupendur eru Sjólastöðin í Hafnar- firði, Garðskagi, Heimaskagi og Söltunarstöð Dalvíkur Sjávarútvegsráðuneytið hef- ur mælt með því fyrir sitt leyti að heimiluð verði kaup á fjórum togveiðiskipum frá Bretlandi, en smíði þessara skipa lauk árin 1974 og 1975. Ileimild ráðuneytisins fer nú til umfjöliunar i viðskipta- ráðuneytinu og i ianglána- nefnd, en reiknað er með, að skipakaupin verði samþykkt. Kaupendur eru Ileimaskagi á Akranesi, Garðskagi i Garði, Soltunarstöð Dalvikur og Sjólastöðin i Hafnarfirði. Áætlað kaupverð skipanna er 4,3 til 5 milljónir króna fyrir Að glæðast í Laxá í Leirársveit „Þetta hefur verið þokka- legt að undanförnu og verið að glæðast, sérstaklega eftir rigninguna í síðustu viku. Áin óx þá töluvert og skolaðist, en úr því fór að bera talsvert á nýrunnum smálaxi," sagði Sigurður Sigurðarson í Stóra-Lambhaga, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þetta er heldur betra en á sama tíma í fyrra, laxinn var heldur vænn framan af, en meðalþunginn hefur lækkað dálítið að undanförnu," bætti Sigurður við. Utlendingar stunda nú veiðar í Laxá í Leirársveit, en þar er veitt á 7 stangir. Tjáði Sigurður Mbl. að um 330 laxar væru komnir á land, þeir stærstu um 16,5 pund. Þá sagði Sigurður að nokkuð væri farið að veiðast af laxi í Eyrarvatni og hans hefði að- eins orðið vart í Selósnum, sprænunnar milli Eyrarvatns og Þórisstaðavatns. Frekar rólegt í Aðaldalnum „Þetta hefur gengið rólega fyrir sig, veiðin verið fremur slök, en þó aðeins verið að glæðast að undanförnu. Verst er, að veðrið hefur verið heldur leiðinlegt með fáum undantekningum," sagði Helga í veiðihúsinu að Laxa- mýri, er Morgunblaðið sló á þráðinn í gær. Samkvæmt upplýsingum Helgu eru komnir um 760 laxar á land á þær 12 stangir sem veitt er á í þessum hluta Laxár. í gærmorgun komu 10 laxar á land, en það nær ekki einum fiski á stöng að meðaltali. Bleik er brugðið við þessa frammistöðu hjá Laxá, en Helga skaut fram tilgátu sem hún sagði veiðimenn velta mjög fyrir sér. „Það voru gífurleg flóð í ánni vorið 1979, menn velta því mjög fyrir sér hvort seiðin hafi hreinlega lifað hamaganginn af. Að minnsta kosti er það sá ár- gangur sem ætti að vera að koma í ána nú sem 10—14 punda lax, en það er einmitt stærðin sem vantar í sumar. Laxinn er yfirleitt 5—7 pund og enn hefur enginn veitt stærri lax en 19 pund, en þrír slíkir fiskar hafa komið á land,“ sagði Helga. Helga tjáði Mbl. einnig, að frést hefði af afar slakri veiði frammi í Laxárdalnum, lítið sæist af urriðanum fræga, hvað þá sjálfum konungi fisk- anna, laxinum. Lítil veiði mun einnig hafa verið í Mý- vatni. Frekar smár í Miðfjarðará Svanhvít í Laxahvammi við Miðfjarðará tjáði Mbl., að í kringum 450—460 laxar væru komnir á land úr Miðfjarð- ará, það sem af væri sumri, en veitt væri á 10 stangir. Svanhvít sagði, að veiðin hefði verið að glæðast að undanförnu, þannig hefði morgunaflinn í gær verið 15 stykki. „En laxinn er fremur smár og það hefur verið frekar lítið vatn í ánni að undanförnu," bætti Svanhvít við. Fullt af laxi í Kjósinni „Það gengur mjög vel hjá okkur, það eru komnir rúm- lega 900 laxar á land, sem er næstum helmingi betri afli en á sama tíma í fyrra. Bugðan á um 280 af þessum afla og hún hefur gefið vel að undan- förnu," sagði Kristinn í veiði- húsinu við Laxá í Kjós í gær. Og Kristinn hélt áfram: „Áin er full af laxi og hann er kominn upp um allt. Það er mikill lax á miðsvæðinu, en gjöfulasta svæðið hefur þó verið frá Laxfossi og niður í Kvíslafoss. Það er frekar mikið vatn í ánni nú, en tært og mjög hæfilegt." Mbl. fékk einnig þær upp- lýsingar hjá Kristni, að stærsti lax sumarsins hafi verið 20 punda fiskur sem Bandaríkjamaður að nafni Marshall Coyne veiddi 1. júlí í Kvíslafossi. Agnið var smá- flugupadda, Shrimp númer 10. Kristinn sagði meðal- þungann vera um 8—9 pund en auk 20 pundarans hefðu nokkrir 15—18 punda fiskar verið dregnir á þurrt. hvert skip eða tæplega hálfur milljarður gkr. Umrædd skip eru 34 metra löng og eru um 250 brúttólestir. Fyrirtæki í Grimsby hefur gert skipin út, en þau eru nú í Hull. Einhverjar breytingar þarf að gera á skipunum og bætist sá kostnaður þá við fyrrnefndar tölur um kaupverð. Fyrir nokkru fóru starfsmenn Fiski- félags íslands til Bretlands á vegum sjávarútvegsráðherra að skoða þessi skip og leist þeim vel á þau. Samkvæmt athugun, sem gerð hefur verið í ráðuneytinu er talið að útgerð þeirra verði hagkvæm enda er fjármagnskostnaður tiltöiu- lega lítill. Við afgreiðslu ráðuneytisins á umsóknum um þessi skip var vísað til samþykktar ríkis- stjórnarinnar frá því síðastlið- ið vor varðandi Söltunarstöð Dalvíkur, en Arnarborg EA 316 hefur verið tekin úr notk- un. Dalvíkurskipið mun einkum verða á rækjuveiðum. Varðandi umsóknir Heima- skaga og Garðskaga er vísað til álits nefndar, sem athugaði hráefnisframboð og atvinnu; möguleika víða um land. í fjórða dæminu, varðandi Sjóla- stöðina, sér ráðuneytið ekkert því til fyrirstöðu, að fyrirtækið fái eitt skipanna, en fyrirtækið gerði út Steinunni RE 32 og Sjóla EA 377, en samtals eru skipin 225 tonn. Upphaflega var reiknað með, að eitt þessara skipa færi til Djúpavogs, en ráðamenn þar hafa nú skrifað undir samning um kaup á skipi frá Færeyjum og fengið ábyrgð frá Ríkis- ábyrgðasjóði. Ekkert þessara fimm skipa er því keypt með láni frá Fiskveiðasjóði, en sjóð- urinn gerir þá kröfu, að sé skip keypt inn í landið fari skip sambærileg að tonnatölu úr landi. FYRIR ALLA FJOLSKYLDUNA 3, 5, 10, og 12 gíra reiðhjól. Heimsfræg gæðavara. Varahluta-og viðgerðarþjónusta á staðnum. Reiðhjólahandbók Fálkans með leiðbeiningum um notkun og viðhald fylgir öllum Raleigh reiðhjólum. Útsölustaðir og þjónusta víða um land. FALKINN _ SUCURIANDSBKAUT 8. SÍMI 84670 >4-T J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.