Morgunblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
11
Skúli Þorvaldsson hótelstjóri Hótel Oolts i hinni nýju setustofu. Hin nýja Kestamóttaka á Hótel Holti.
Breytingar á húsakyimum Hótel Holts
Rætt við Skúla Þorvaldsson hótelstjóra
ÝMSAR breytingar hafa verið
gerðar á húsakynnum Hótel
Hoits að undanförnu og fleiri
munu fylgja i kjölfarið með
haustinu.
Þetta kom fram i viðtali við
Skúla Þorvaldsson hótelstjóra, en
hann hefur rekið Hótel Hoit i 10
undanfarin ár. Sú breyting hefur
einnig orðið, að Skúli hefur tekið
Hótel Holt á ieigu frá og með
siðustu áramótum. Þetta er að-
eins breyting á rekstrarformi en
breytir ekki rekstri hótelsins að
neinu öðru leyti, að sögn Skúla.
Sú endurnýjun, sem orðið hefur
á húsakynnum Hótel Holts, er að
gestamóttaka hefur verið stækk-
uð, auk þess sem tölvuvætt síma-
kerfi hefur verið tekið í notkun,
sem þýðir að nú geta gestirnir
hringt beint út í bæ eða til útlanda
frá herbergjum sínum án þess að
hafa fyrst samband við skipti-
borðið.
Ný setustofa hefur verið inn-
réttuð og þar hefur verið komið
fyrir smekklegum ítölskum leður-
húsgögnum og á veggjum eru
listaverk eftir hina ýmsu meist-
ara. Ætlunin er að þarna komi
líka sjónvarp og myndsegulband.
Setustofan og hin nýja gesta-
móttaka eru í húsnæði því sem
verslun og kjötvinnsla Síld og
fisks var í áður, en kjötvinnslan
flutti að Dalshrauni í Hafnarfirði.
Þær breytingar, sem eru á
döfinni þessu til viðbótar, eru að
loka barnum, sem er inn af
veitingasalnum og opna annan
bar, sem verður inngengt í úr
veitingasal og anddyri og verður
gert ráð fyrir að barinn taki
fimmtíu manns. Ætlunin er að
hafa þar flygil auk þess sem þar
verður lítið dansgólf fyrir þá sem
vilja fá sér snúning við undirspil
lifandi tónlistar eða segulbands.
Skúli sagði að það hefði lengi
staðið til að fara út í þessar
breytingar og væru þær gerðar til
að auka þægindi og þjónustu við
gesti Hótel Holts.
En hvernig er að reka hótel í
Reykjavík?
Skúli sagði, að rekstur Hótel
Holts hefði alltaf gengið vel. Þó
virtist sem júlímánuður, sem
venjulega er einn mesti annamán-
uðurinn, ætlaði að verða í daufara
lagi. Sagði Skúli ennfremur, að
það þyrfti að horfast í augu við þá
staðreynd, að ferðamönnum, sem
hefðu viðdvöl í Reykjavík, færi
fækkandi. Hefði það aukist á
undanförnum árum að fólk kæmi
á eigin farartækjum og færi beint
upp á hálendið en dveldist ekki í
Reykjavík.
Stafaði þetta meðal annars af
því, að Island væri verðbólguland
og laðaði því ekki að sér hinn
almenna ferðamann, auk þess sem
Reykjavík hefði upp á fátt að
bjóða, sem ekki mætti fá annars
staðar.
Miðað við aðstæður væri of
mikið framboð af gistirými í
Reykjavík, sem leiddi af sér undir-
boðsverð yfir þá sjö mánuði árs-
ins, sem minnst væri að gera, þ.e.
frá byrjun október til aprílloka.
Skúli var spurður að því hvernig
honum litist á aukningu matsölu-
staðanna í borginni og hvernig sú
fjölgun kæmi út fyrir Hótel Holt.
Sagði hann þróunina mjög já-
kvæða, því öll eðlileg samkeppni
væri aðeins til góðs. Aukningin
sýndi, að markaðurinn hefði
stækkað.
Við hina auknu samkeppni hefði
fjölbreytni réttanna aukizt og
þekking fólks á því hvað sé góður
eða vondur matur fleygt mjög
fram. Frá bæjardyrum þeirra á
Hótel Holti séð, þá breytti þessi
samkeppni ekki miklu. Hótelið
hefði alltaf verið að koma með
nýja rétti á sinn matseðil og prófa
sig áfram með nýjungar. Það
kæmi líka vel út fyrir veitinga-
reksturinn, að hafa aðgang að
kjötvinnslu Síld og fisks, þar sem
hægt væri að búa ýmsar matvæla-
nýjungar.
Skúli var spurður að því hvort
fólk kynni sig ekki almennt mjög
vel á veitingahúsunum.
Sagði hann fólk afar frjálslegt,
þegar það kæmi á Hótel Holt að
borða og hagaði sér í alla staði
mjög vel.
Cargolux
hefur ekki
óskað eftir
ríkisaðstoð
_ÞETTA er algerlega úr lausu
lofti gripið. við höfum ekki farið
fram á neina ríkisaðstoð,“ sagði
Jóhannes Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Cargolux. í samtali
við Mbl., er hann var inntur eftir
þvi hvort rétt væri, að fyrirtækið
hefði óskað eftir ríkisaðstoð 1
Luxemborg vegna slæmrar af-
komu að undanförnu, i svipuðu
formi og Flugleiðir.
„Annars skil ég ekki hvaðan
svona sögur eru komnar. Rekstur-
inn hefur gengið ágætlega hjá
okkur. Við vorum til að mynda
réttu megin við strikið í fyrra, þ.e.
fyrirtækið skilaði hagnaði," sagði
Jóhannes ennfremur.
Trúnaðarbrotin:
Varða Tímann,
Vísi og Hp,
EKKERT frekara hefur enn
gerst i rannsókn iðnaðarráðu-
neytisins á trúnaðarbrotum varð-
andi birtingu efnisatriða úr
skýrslu endurskoðunarfyrirtæk-
isins Coopers og Lybrand um
súrálsmálið svonefnda, að þvi er
Hjörieifur Guttormsson iðnaðar-
ráðhera sagði i samtali við
blaðamann Morgunblaðsins.
Hjörleifur sagði að um það væri
að ræða að gögn hefðu verið birt í
fjölmiðlum gegn vilja iðnaðar-
ráðuneytisins, og yrði kannað
hvernig það gat átt sér stað. Blöð
þau er hér er átt við eru dagblaðið
Tíminn, Vísir og Helgarpóstur
Alþýðublaðsins, að sögn iðnaðar-
ráðherra.
Sveinn Einarsson vegghleðslu-
maður að störfum.
látir versluninni fyrir þessa gjöf.
Sögðu þeir ennfremur, að þeir sem
tækju þátt í námskeiðinu yrðu að
koma sjálfir með verkfæri, það er
að segja stunguspaða, járnkarl og
gaffal.
Námskeiðagjöldum verður hald-
ið í lágmarki og verða lægri eftir
því, sem fleiri taka þátt í nám-
skeiðinu að sögn forráðamanna.
Þeir, sem hafa áhuga á að taka
þátt í að læra vegghleðslu af þeirri
gerð, sem ofan greinir er bent á að
hafa samband við Jón Thoroddsen
í síma 30619 á kvöldin.
VERSLARÐU VIÐ
TOLL VÖRUGE YMSLUN A?
Þá átt þú erindi viö Apple-tölvuna.
Ert þú aö dragast afturúr bara af því aö þú hefur ekki tölvu?
Klukkustundir veröa aö mínútum. Allir kannast viö pappírs-
flóöiö, sem fylgir Tollvörugeymslunni og alla vinnuna. Þaö er
því ómetanlegt aö hafa möguleika á aö útbúa nauösynleg
gögn til úttektar á sem skemmstum tíma.
Ert þú einn þeirra, sem segir viö viöskiptavin. ,Ég gat ekki
afgreitt þetta í dag, þetta er nefnilega inni í Tollvöru-
geymslu", og viöskiptavinurinn fer ef til vill annaö?
Hefur þú efni á því?
Hvað gerir Apple-tölvan fyrir þig?
1. Skrifar úttektarbeiðni.
2. Skrifar stööu í hvert t-númer.
3. Skrifar stööu hvers vöruheitis.
4. Skrifar heildarstööu vörubirgða.
5. Skrifar heildarverömæti vörubirgöa.
6. Skrifar söluyfirlít meö tölulegum upplýsingum og línurit-
um, þannig aö sölu- og pantanaáætlun veröur leikur einn.
Auk þess:
Fjárhagsbókhald — Viöskiptamannabókhald.
Birgöabókhald — Launabókhald.
Aöflutningsskýrsluforrit — Veröútreikningaforrit.
Samninga- og víxlaforrit, og svo framvegis.
Apple-tölvan kostar svipaö og Ijósritunarvél.
Hefuröu efni á því aö vera án hennar?
Apple kynnir nú yfir 30 ný
forrit, sem öll eru hönnuö
fyrir Apple II plús.
Hér eru nokkur:
• Apple Project Manager
Redefinable Data Base
Personal Finance Man-
ager
Visitrend/Visiplot
Visiplot
Visicalc
Apple Writer
Apple Plot
Apple Pilot
Pilot Animation Tools
Apple Graphics
jcipplG computcr
Nafn
Fyrirtæki
Gerö fyrirtækis
Póstnúmer
Heimilisfang
Sími ........
tölvudeild, Skipholti 19*
Sími 29800.
Forrit, sem ég hef áhuga á: