Morgunblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
23
Sendiherra rekinn?
WashinKton, 29. júlft. AP.
ROBERT G. Neumann, sem
tók við embætti sendiherra
Bandarikjanna i Saudi-Arabíu
fyrir aðeins tveimur mánuðum,
hefur nú látið af þeim störfum.
Fer tvennum sögum um ástæð-
una. Haft er eftir „áreiðan-
leKum“ heimildum að Neu-
mann hafi verið rekinn eftir að
hafa farið hörðum orðum um
Aiexander Haig, utanrikisráð-
herra, á fundi með Charles
Percy, formanni utanrikis-
nefndar Öldungadeildar
Bandaríkjaþings. Hins vegar
segir David Gergen, talsmaður
Ilvíta hússins, að Neumann
hafi ekki verið settur af emb-
ætti, heldur hafi hann sagt
starfi sínu lausu af persónu-
legum ástæðum.
Ronald Reagan, forseti, hefur
fallizt á lausnarbeiðni Neu-
manns, en í bréfi sínu til
forsetans sagði Neumann meðal
annars: „Persónulegar ástæður
gera mér ókleift að sinna áfram
þessu embætti." í svari forset-
ans segir Reagan að hann fallist
á lausnarbeiðnina „með eftir-
sjá“, en hann „skilji og virði“
þær persónulegu ástæður, sem
að baki liggi.
Neumann er 65 ára, fæddur í
Austurríki, og voru foreldrar
hans Gyðingar. Eftir ársdvöl í
fangabúðum nazista fluttist
hann til Bandaríkjanna árið
1941. Fyrir forsetakosningarnar
1980 var hann í ráðgjafanefnd
Reagans um utanríkismál. Seg-
ir talsmaður Hvíta hússins að
nú bíði Neumann ráðgjafastarf
hjá utanríkisráðuneytinu.
Wyler látinn
Hollywood, 29. júlft. AP.
IIINN frægi kvikmyndaleikstjóri
William Wyler, lézt aðfaranótt
þriðjudags á heimili sinu i HoIIy-
wood. Wyler stjórnaði mörgum
kvikmyndum, sem frægar urðu,
og þrivegis fékk hann Oscars-
verðlaun fyrir kvikmyndaleik-
stjórn, það var fyrir myndirnar
Frú Miniver, Beztu ár ævinnar
og Ben Hur.
William Wyler hafði að mestu
dregið sig í hlé hin seinni ár. Hann
varð 79 ára gamall.
Fækkun í f orystuliði
ÞEIM hefur farið fækkandi nánustu ráðgjöfum og
stuðningsmönnum Ayatoliah Khomeini í íran frá þvi
Khomeini sneri heim til Teheran úr útlegð í París fyrir
tveimur og hálfu ári. Þessir menn, sem ýmist voru
samferða Khomeini í flugvélinni frá París, eða tóku á
móti honum á flugvellinum við Teheran, hafa margir
hverjir lent í „hreinsunum“, eða verið ráðnir af dögum,
og aðeins fáir enn í náðinni, eins og sjá má á eftirfarandi
skrá.
Samferðamenn
frá París:
Abolhassan Bani-Sadr
Ibrahim Yazdi
Sadeq Ghotbzadeh
Mostafa Chamran
Abbas Emir Enteram
Áður:
Forseti
Vara-forsætisráðherra,
utanríkisráðherra
og ritstjóri
Utanríkisráðherra
Varnarmálaráðherra
Vara-forsætisráðherra
í mótttökunefnd á flugvellinum
Ayatollah Behesti Forseti Islamska
lýðveldisflokksins
Ayatollah Taleghani Stjórnarskrárfræðingur
Ayatollah Motaheri
Ayatollah Mofateh
Medhi Bazargan
Karim Sanjabi
Mohammed Montazeri
Ayatolah Khamenei
Byltingarráðsmaður
Byltingarráðsmaður
Forsætisráðherra
Forseti Þjóðfylkingar
Þingmaður
Trúarleiðtogi í Teheran
Ayatollah Shariat-MadariLeiðtogi í Azerbajan
Ayatollah Khalkali Dómari
Hojatoleslam Rafsanjani Talsmaður Majlis
Nú:
Á flótta
Sagður særður
hefur ekkert
embætti
í ónáð
Felldur í írak
Myrtur
Myrtur
Lézt úr
hjartaslagi
Myrtur
Myrtur
í ónáð
í ónáð
Myrtur
í sjúkrahúsi
í stofufangelsi
í náðinni á ný
í náðinni
íþróttafólk frá
Tékkóslóvakíu
biður um hæli
Köln. Vestur I*ý/.kalandi. 29. júli. AP.
TUTTUGU og fimm Tékk-
ar , sem hafa verið í Köln á
14. heimsleikum heyrnar-
lausra, hafa óskað eftir því
að fá hæli í Vestur-Þýzka-
landi. Frétt þessa efnis var
birt í blaðinu Die Welt og
var sagt að í hópnum væru
þrjár fjölskyldur með eitt
eða tvö börn. Ekki var
kunngert hversu margir
þeirra sem báðu um hæli
voru íþróttamenn, ellegar
hvort þarna var um að
ræða þjálfara hópsins. Die
Welt sagði að fólkið hefði
fengið inni á hóteli til
bráðabirgða, enda flótta-
mannabúðir borgarinnar
yfirfullar af fólki frá aust-
urblokkinni, sem hefur
beðið um hæli í V-Þýzkal-
andi.
Brúðhjónin i opnum vagni á leið til Buckingham-hallar.
milljarður með brúðkaupinu, sjðtti
hluti mannkyns.
Fjórir gæðingar drógu
vagn brúðhjónanna
Fjórir gráir gæðingar drógu opinn
vagn brúðhjónanna til Bucking-
ham-hallar og kirkjuklukkur Sánkti
Páls-dómkirkjunnar hljómuðu um
nágrennið. Vagn brúðhjónanna fór
um Trafalgar Square, Admiralty
Arch og síðan til Buckingham-hall-
ar. Skömmu eftir hádegi að íslenzk-
um tíma, tveimur klukkustundum
eftir að athöfnin hófst í Sánkti
Páls-dómkirkjunni, komu Karl prins
af Wales og prinsessan af Wales
fram á svölum Buckingham-hallar
og veifuðu til fólksins. Hundruð
þúsunda veifuðu til baka. Einnig
komu drottningin og Spencer jarl
fram á svalirnar.
í Buckingham-höll var efnt til
mikillar veislu og þangað voru sam-
an komnir þeir þjóðarleiðtogar,
kóngar og drottningar, prinsar og
prinsessur, sem boðið hafði verið til
brúðkaupsins. Fimm fyrrum forsæt-
isráðherrar Bretlands voru og mætt-
ir ásamt Michael Foot, leiðtoga
Verkamannaflokksins. Síðdegis fóru
Karl og lafði Díana til Waterloo-
járnbrautarstöðvarinnar og fóru
með lestinni til Broadlands, heimilis
hins látna Mountbattens jarls. Þar
munu þau dvelja fyrstu hveiti-
brauðsdagana. Á laugardag fara þau
til Gíbraltar. Þar bíður konungs-
snekkjan Britannia þeirra.
Þrjú þúsund lögreglu-
menn gættu brúðhjónanna
Gífurlegur viðbúnaður var í
heimsborginni í dag. Þrjú þúsund
lögreglumenn gættu öryggis brúð-
hjónanna og gesta. Þyrlur flugu yfir
svæðinu, sérþjálfaðir lögreglumenn
voru á húsþökum og sjónvarpsvélar
fylgdust með hreyfingum mann-
fjöldans.
§
Manstu
þegar hægt var aó borða
fynr£L50
áskemmtilei
í Lonáon?
Þaö er hægt ennþá!
Sumir hlutir breytast aldrei. Þannig
er því varið með ensku bjórstofurnar,
pöbbana vinsælu. Það er varla hægt
að segja að þeir hafi breyst nokkuð í
áratugi.
íslendingar, sem ferðast til London
hafa kunnað að meta bjórstofurnar
og hið sérkennilega andrúmsloft
þeirra. Margur ferðalangurinn hefur
notfært sér staðgóðan og ódýran
mat, sem fæst á hverri bjórstofu í há-
deginu. Pub lunch getur verið allt frá
ítölskum kjúklingarétti til enskrar
pylsu og bakaðra bauna - auðvitað
með tilheyrandi bjórkollu. Verðið er
nánast hlægilegt, - eitt og hálft
sterlingspund er algengt verð.
Bjórstofurnar ensku eru einn af
þægilegustu þáttum heimsóknar
þinnar til London. Ódýr og góður
matur, enskur bjór og sérkennilegt
umhverfi gerir sitt til þess að heim-
sókn þín til London verði eftirminn-
anleg.
Eitt geturðu bókað. Gamla, góða
London breytist stöðugt með tíman-
um en hún heldur samt áfram að vera
töfrandi borg, sem býður upp á
góðan ,,Pub Lunch“ á hagstæðu
verði. Apex fargjaldið til London með
Flugleiðum kostar aðeins kr. 2.465.-
FLUGLEIDIR
Traust tólkhja góóu félagi