Morgunblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JULÍ1981 Rætt við Luxemborg- ara um almanna- tryggingasamning Samninfraviðræður standa yfir um þessar mundir i Reykjavik miili embættismanna frá Lux- emhurK »K íslandi um Kerð al- menns samnings milli landanna um almannatryggingar. Jón Sæmundur Sigurjónsson, deildarstjóri í heilbrigðisráðu- neytinu, einn íslenzku samningar- mannanna, sagði í samtali við Mbl., að þessar viðræður ættu sér mjög langan aðdraganda, en til þessa hefðu ekki verið neinir gagnkvæmir samningar um þessi mál við önnur lönd en Norðurlönd. „Við byrjuðum að ræða við Breta fyrir mánuði síðan og ég reikna með, að þær viðræður haldi áfram með haustinu. Sömuleiðis geri ég mér vonir til þess, að viðræðurnar við Luxemborgara haldi áfram þannig að lausn fáist á þessum málum. Það ber hins vegar að taka skýrt fram, að þær eru á algjöru byrjunarstigi," sagði Jón Sæmundur ennfremur. Jón Sæmundur sagði einnig, að þessar viðræður við Luxemborgara, og reyndar Breta líka, væri til komn- ar m.a. vegna þrýstings frá íslend- ingum búsettum í þessum löndum. í dag er ástandið t.d. þannig, að flytjist íslendingar heim eftir langa dvöl erlendis, þá geta þeir ekki flutt með sér lífeyrisgreiðslur og þar með réttindi til lífeyris- greiðslna. Stórhýsi hverfur úr miðbæ Reykjavíkur Sænska frystihúsið, eitt stærsta hús á íslandi um áratugaskeið, og eitt þeirra húsa er hefur lengi verið hluti af umhverfi miðborgar Reykjavíkur, hefur nú runnið skeið sitt á enda. Myndin hér að ofan sýnir hversu áfram miðar að rýma til fyrir musteri Mammons, stór- hýsi Seðlabankans, og brátt mun Sænska frysti- húsið tilheyra fortíðinni eins og svo margar bygg- ingar er áður settu svip sinn á miðbæ Reykjavík- ur. Geðdeild Landspítalans Tilboð óskast í einangrun, múrverk innanhúss og lagnir fyrir 1., 2. og 3. hæö A-álmu Geödeildar Landspítalans viö Eiríksgötu í Reykjavík. Húsiö er aö flatarmáli 3X735 fm. Einangrun útveggja skal lokiö 1. nóvember 1981, en verkinu aö fullu lokiö 1. maí 1982. Otboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7 í Reykjavík gegn 1.000.- kr. skilatryggingu. Tilboö veröa opnuð á sama staö þriöjudaginn, 25. ágúst 1981, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 9 AS- v > u 1 1 n pWÍlk í Wm 1 N v ■mTm L iM* J ðHl % jm hrÍ 1 Úr flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavikurflugvelli. Tölvuskjáirnir sem sjá um skeytadreifingu eru fyrir framan hvern flugumferðarstjóra. Ljósm. Mbi. RAX. Nýr áfangi í tæknivæðingu flugstjórnarmiðstöðvarinnar EMBÆTTI flugmálastjóra boðaði blaðamenn til fundar i gær þar sem kynntur var nýr áfangi i tæknivæðingu flugöryggisþjónustu Flugmálastjórnar og flugstjórnarmiðstöðvarinnar, eins og Haukur Hauksson framkvæmdastjóri flugöryggisþjónustunnar komst að orði. Tekið hefur verið í notkun tölvukerfi til skeytadreifingar í flugstjórnarmiðstöðinni, en skeytin hafa hingað til borist eftir fjarritalinum frá fjarskiptastöðinni i Gufunesi, og verið handdreift i prentuðu formi i flugstjórnarmiðstöðinni. Hafist var handa í ársbyrjun 1979 við þróun tölvukerfisins, og var það alveg á vegum Flugmála- stjórnar, sem réð menn til verks- ins. Þróun skeytadreifikerfisins hefur því staðið yfir í rúm tvö ár, en það var formlega tekið í notkun 3. júlí sl. Kostnaður við kerfið mun nema 1,7 milljónum króna á núverandi verðlagi, en hann verð- ur að fullu greiddur af Alþjóða- flugmálastofnuninni (ICAO), enda þjónar tölvukerfið eingöngu milli- landaflugi. Með tilkomu tölvukerfisins, sem nú hefur verið tekið í notkun, eru skeytin send á sjálfvirkan hátt á tölvuskerm flugumferðarstjórans, sem stjórnar viðkomandi flugi. Helsti kostur tölvudreifingarinnar er, að skeytið berst þegar í stað til notandans að lokinni móttöku. Auk þess eru öll skeytin geymd í aðgengilegu formi í tölvunni og má kalla þau fram á tölvuskerm- inn eftir þörfum. Tölvudreifing þessara skeyta hefur því í för með sér betri þjónustu við notendur, þ.e. flugfélögin, auk hagræðingar í flugstjórnarmiðstöðinni. Kerfissetning, hönnun og gerð hugbúnaðar hefur að öllu leyti verið unnin hérlendis, en undir- búningur og stjórnun verkefnisins hefur verið í höndum dr. Þorgeirs Pálssonar verkfræðings. Fram- kvæmd verksins fór fram í náinni samvinnu við fulltrúa Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra, Braga Ólafsson og Sveinbjörn Bárðar- son, sem tóku virkan þátt í hönnun kerfisins. Guðmundur Matthíasson deildarstjóri flugum- ferðardeildar, Þórarinn Guð- mundsson deildarstjóri garskiptadeildar og Valdimar lafsson yfirflugumferðarstjóri tóku einnig þátt í umsjón með þróun kerfisins. Ýmsir aðiljar hafa tekið þátt í hönnun kerfisins og séð um hug- búnaðargerð. Skeytadreifingar- og notendaforrit hafa verið samin af Birni R. Björnssyni hjá Verkfræðistofnun Háskólans og Maríusi Ólafssyni reiknifræðingi, en Björn hefur jafnframt séð um kerfisforritun. Ari Arnalds verk- fræðingur og Friðrik Marteinsson kerfisfræðingur hjá Verk- og kerf- isfræðistofunni hafa haft með höndum hönnun og gerð þess hluta kerfisins, sem sér um mót- töku og úrvinnslu flugsleyta. Þá hafa tölvufræðingar frá Reikni- stofnun Háskólans veitt aðstoð við gerð einstakra kerfisþátta. Telja má að þróunin á skeyta- dreifikerfi Flugmálastjórnar sé nýmæli, þar sem sérhæft tölvu- kerfi af þessari gerð og stærð hefur ekki verið hannað fyrr hér á landi. Hugbúnaður flugstjórnar- tölvukerfa er yfirleitt flókinn að gerð og miklar kröfur eru gerðar um rekstraröryggi slíkra kerfa. Mikilvæg reynsla og þekking í gerð slíkra kerfa hefur því fengist með þróun skreytadreifikerfisins. Auk skeytadreifingarinnar verður unnið að því á næstunni að koma á sendingum flugheimilda frá flugstjórn til fjarskiptastöðv- arinnar í Gufunesi gegnum tölvu- kerfið. Flugheimildir, sem flytja fyrirmæli um leyfilegar flugleiðir, eru nú sendar símleiðis til Gufu- ness, sem sér um að koma þeim áfram til viðkomandi flugvélar. Þessi aðferð hefur ýmsa ókosti, sem hægt er að komast hjá með sjálfvirkri skeytasendingu gegn- um tölvukerfi flugstjórnar og tölvukerfið í Gufunesi sem sér um dreifingu flugheimilda til loft- skeytamanna þar. Þá eru í athug- un ýmsir framtíðarmöguleikar varðandi frekari tölvunotkun í flugumferðarstjórn. Kemur þá einkum til greina að láta tövuna vinna úr flugáætlun og prenta flugræmur, sem flugumferðar- stjórar nota við stjórn flugsins. í Kaupmannahöf n FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI g <2«2«2«2«2«2«2 «2«2«2«2«2 Lokað vegna sumarleyfa til 4. ágúst 39400 Til sölu 2ja herb. skemmtileg íbúð við Baldursgötu. 3ja herb. + 1 herb. f risi viö Njaröargötu. Raðhúsagrunnur í Hverageröi. Timbur og teikningar fylgja. Skipti ó bfl. Höfum kaupendur aö: 3ja herb. íbúð í vesturbn eöa Þingholtunum. 3ja herb. í Hliöunum eöa Noröurmýri. Gömlum húsum og íbúðum sem þarfnast viðgerðar. lönaðarhúsnæöi ó jaröhæö, 600—800 fm. í tilefni af óri fatlaöra renna 5% af sölulaunum f Styrktarsjóö Sjólfsbjargar. Nýja fasteignasalan, Ármúla 40, sfmi 39400.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.