Morgunblaðið - 30.07.1981, Síða 10

Morgunblaðið - 30.07.1981, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981 Útvegsbanki íslands: Iimlánsaukmng nam 67,2% árið 1980 Ársskýrsla Útvegsbanka íslands fyrir árið 1980 er nýkomin út. Niðurstöðutölur á efnahagsreikningi voru 88.459 milljónir gamalla króna í árslok 1980 og höfðu hækkað um 33.121 millj. á árinu. Innlán jukust í heild um 15.528 milljónir króna en útlán á móti um 12.374 milljónir. Nettóskuld bankans við Seðlabankann, að frádreginni endursölu, nam í árslok 2.539 milljónum og hafði lækkað um 2.998 milljónir á árinu. Nettó inneign í erlendum bönkum var í árslok 3.507 milljónir króna. millj. kr. í 2.122 millj. kr., eða í skýrslunni er að finna eftir- farandi upplýsingar um starf- semi bankans á liðnu ári. Tekið skal fram, að allar upphæðir eru í gömlum krónum. Innlán Innlán viðskiptabankanna í heild á árinu 1980 jukust um 128.378 millj. kr., sem er 67,2%. Heildarinnlán Útvegsbankans hækkuðu um 15.528 millj. kr. á árinu 1980, eða úr 23.031 millj. kr. í 38.559 millj. kr., sem er 67,4% aukning eða nánast sama hlutfallsaukning og varð hjá bönkunum í heild. Veltiinnlán voru í árslok 1980 8.773 millj. kr., og höfðu aukist um 3.696 millj. kr., eða um 72,8%. Spari- innlán jukust hlutfallslega minna, eða úr 16.989 millj. kr. í 27.664 millj. kr., sem er 62,8% aukning. Innlán á gjaldeyris- reikningum hækkuðu úr 965 um 119,9%. Af einstökum tegundum spariinnlána, hafa innstæður á þriggja mánaða vaxtaauka- reikningum aukist tiltölulega mest, eða um 112,9%, en þá eru ekki talin með vísitölubundin innlán, sem voru tekin upp í júlí 1980. Útlán í upphafi ársins 1980 lagði Seðlabankinn áherslu á, að viðskiptabankarnir bættu lausa- fjárstöðu sína í samræmi við markmið lánsfjáráætlunar rík- isstjórnarinnar. Áður hafði tíð- kast að marka stefnu um þak- lánahækkun í byrjun hvers árs. Þegar líða tók á sumarið kom í ljós, að lausafjárstaða við- skiptabankanna hafði versnað mjög á árinu, og gerði Seðla- bankinn því ráðstafanir í sept- ember um herta skilmála um fyrirgreiðslu viðskiptabankanna í Seðlabanka. Jafnframt því gerðu viðskiptabankarnir sam- komulag sín á milli um útlána- takmarkanir. Batnaði lausafjár- staða bankanna mjög á síðustu þremur mánuðum ársins. í heild hækkuðu þaklán við- skiptabankanna um 56,4% á árinu 1980, en árið áður nam þaklánahækkunin 63,0%. Heildarútlán Útvegsbankans jukust um 12.358 millj. kr. á árinu 1980, eða úr 27.524 millj. kr. í 39.882 millj. kr., sem er 45,0% hækkun. Þaklán jukust um 8.373 millj. kr., eða um 44,3%, og voru í árslok 1980 27.271 millj. kr. Útlánaaukning Útvegsbankans varð því minni en viðskiptabankanna í heild. Á árinu 1979 hækkuðu heildarút- lán Útvegsbankans um 52,9% og þaklánin um 53,7%. Á meðfylgjandi töflu sést skipting og hækkun útlána bankáns eftir atvinnugreinum í árslok 1980. Stærstur hluti út- lána fór til sjávarútvegs, eða 59,5% miðað við 59,2% árið áður. Útlán til sjávarútvegs hækkuðu um 7.416 millj. kr. á Góður^ félagi GF-8989H/E Stereo Portable Radio Cassette Glæsilegt feröatæki Kr. 3.800.- Soft-Touch Operation GAPSS I y 11 OOLBY SYSTEM | Aul° P'Oqram Search Svslem Stereo ferðatæki frá kr. 1.900,- Feröa- og kassettutæki meö 4 útvarpsbylgjum, FM stereó, stuttbylgju, miðbylgju og langbylgju. 2x5,5 wött RMS. „2-way“ hátalarar, 2 innbyggöir míkrófónar. Óvenjulega góöir upptökueig- inleikar. Lengd 510 mm. Hæð 284 mm. Breidd 134 mm. LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999 Útsölustaöir: Karnabaer Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík — Portið Akranesi — Patróna Patreksfiröi — Epliö isafiröi — Álfhóll Siglufiröl — Cesar Akureyri — Radíóver Húsavík — Hornabær Hornafiröi — M.M. hf. Selfossi — Vestmannaeyjum. Eyjabær HUJTWLLSLEG SKIFTING ÚTL4NK ÚIVEGSBANKK ÍSLNNDS 31. DES. 1980 //W I SJÁVARÚTVEGUR 59.5% VERSLUN OG OLÍUFÉLOG 13.2%: IONAÐUR 8.4% BYGGINGAR OG MANNVIRKJAGERÐ 6.4% LÁN TIL EINSTAKLINGA OG FL. 6.5%: SAMGÖNGUR 3.0%: OPINBERIR AOILAR 3.0%i árinu, en þar af hækkuðu endur- seld lán um 3.868 millj. kr. Af öðrum útlánum hækkuðu lán til einstaklinga hlutfallslega mest, eða um 56,8%. Rekstrarafkoma Tekjuafgangur Útvegsbank- ans fyrir afskriftir varð röskar 78 millj. kr. á árinu 1980 saman- borið við 25 millj. kr. árið 1979. Rekstrarkostnaður reyndist 3.761 millj. kr. á árinu og hækkaði um 50,7% frá árinu áður. Launakostnaður hækkaði um 49,4%, en annar rekstrar- kostnaður um 51,0%. Bankinn greiddi 517 millj. kr. í skatt vegna gjaldeyrisviðskipta og rúmar 18 millj. kr. í landsút- svar. Af hagnaði bankans 1980 var 20 millj. kr. ráðstafað til vara- sjóðs, 20 millj. kr. til afskrifta- reiknings og 36 millj. kr. til Eftirlaunasjóðs starfsmanna Útvegsbankans. Bókfært eigið fé bankans nam í árslok 3.812 millj. kr. og hækkaði um 1.356 millj. kr. á árinu, en þar af voru 1.321 millj. kr. vegna endurmats fasteigna miðað við fasteigna- mat. Klamhrahleðsla á hlöðuvegg. Ætla að kenna strengja- og klambrahleðslu ÁHUGAFÓLK um grjót og vegg- hleðslu hefur tekið sig til og fengið Svein Einarsson þekktan vegghleðslumann frá Egils- stöðum til að koma suður til Reykjavíkur og halda námskeið i þessari fornu hleðsluaðferð. Námskeiðið, sem er öllum opið verður haldið upp á Kjalarnesi í landi sem heita Strýtuhólar. Kennt verður að tyrfa og hlaða úr grjóti og torfi bæði strengja- hleðslu og klambrahleðslu. Einnig verður kennd torfrista og veggja- gerð með mismunandi samsetn- ingum af ofangreindum efnum. Hlaðinn verður hringlaga veggur, við kennsiuna, sem nota má síðar til ýmissa hluta. Einn forráðamanna námskeiðs- ins, sagði að þessi kennsla í vegghleðslu færi nú fram til þess að hin forna hleðsluaðferð gleymdist ekki heldur varðveittist með kynslóðunum. Sögðust þeir líta á vegghleðslu, sem listgrein því líkja mætti henni við listvefnað þar sem torfið og grjótið mynda eins konar mynstur. Öll verkfærin, sem notuð verða við kennsiuna fengust gefins hjá vesluninni Ellingsen og sögðust forráðamennirnir vera afar þakk-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.