Morgunblaðið - 30.07.1981, Page 15
MOfcGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
15
VESTMANNAEY JAR
„Þjóðhátiðirí‘
Jack Elton verður meðal gesta
Þjóðhátíðin í Vestmanna-
eyjum verður haldin nú um
verzlunarmannahelgina. A
morgun klukkan 13.30 byrj-
ar dagskráin með því að
lúðrasveit Vestmannaeyja
leikur, en siðan er hátíðin
sett af Agústi Bergssyni. Þá
verður hátíðarræða flutt,
síðan helgistund og íþróttir
en klukkan 16.30 verður
brúðuleikhús.
Klukkan 17.20 er barna-
skemmtun og dansleikur þar
sem Grýlurnar verða og Tóti
trúður. Síðan hefst kvöld-
vaka klukkan 20.15 þar sem
Jack Elton „Presley" kemur
m.a. fram svo og Brimkló og
Þjóðhátiðarlag 1981 verður
leikið. Síðan verður dans á
pöllum til klukkan sex þar
sem Brimkló og Presley, auk
Grýlanna, sem koma í heim-
sókn eftir miðnætti, leika. Á
laugardaginn byrjar
dagskráin klukkan 10 með
léttri tónlist en síðan verða
leikir og ýmislegt fyrir ungu
kynslóðina auk söngs. A
kvöldvökunni sem byrjar
klukkan 20.15 verður m.a.
Haukur Morthens og
Brimkló. Síðan verður á mið-
nætti flugeldasýning og dans
til klukkan sex. Á sunnudag-
inn byrjar dagskráin eins og
á laugardaginn með léttri
tónlist klukkan 10 en síðan
kemur Presley og skemmtir
áhorfendum. Varðeldur og
brekkusöngur verður klukk-
an 23.00, en einnig er dans á
báðum pöllum til klukkan
tvö.
Brimkló
Kynnir og dagskrárstjóri
er Árni Johnsen. Strangt
verður tekið á ölvun og hefur
læknaþjónustan og hjálpar-
sveitin aðsetur í gamla
golfskálanum.
Grýlurnar
Frá Arnarstapa á Snæfellsnesi.
ARNARSTAPISNÆFELLSNESI
Jöklagleði ’81
MNGEYJARSÝSLA
Laugahátíð
„Laugahátið“ sem er í Þingeyj-
arsýslu hefst á föstudaginn
klukkan 18.00. Dansleikur verð-
ur frá klukkan 22.00 og er það
hljómsveitin Start sem leikur
fyrir dansi öll kvöldin. Einnig
verða kvikmyndasýningar alla
dagana. Frá klukkan 14.00 laugar-
dag og sunnudag er dagskrá í
íþróttahöllinni þar sem fimleika-
sýning verður og eftirhermur,
búktal og hjólaskautasýning. Þá
verður þjóðdansasýning frá
Vestur-Þýskalandi og skák með
lifandi taflmönnum. Þar tefla þeir
Alexei Suetin og Jón L. Árnason.
Tjaldstæði eru nóg og veitingar
verða fyrir hendi. Kjörorð hátíð-
arinnar mun verða „Skemmtun án
áfengis er skemmtun fyrir alla“.
Er þessi hátíð haldin til fjáröflun-
ar endurbyggingar
íþróttavallarins og til æskulýðs-
starfs.
BORGARFJÖRÐUR
Upplyfting
leikur fyrir
dansi
Nú um helgina verður svoköll-
uð Borgarfjarðargleði þar sem
dansleikur verður föstudag, laug-
ardag og sunnudag i Logalandi.
Hljómsveitin „Upplyfting" leik-
ur fyrir dansi öll kvöldin. Tjald-
stæði verða nóg og Tomma-ham-
borgarar verða seldir fyrir og eftir
dansleik.
UM verslunarmannahelgina verð-
ur haldin hátfð að Arnarstapa á
Snæfellsnesi. bar verða m.a. haldn-
ir þrir dansleikir, föstudag kl.
22—02, laugardag kl. 23—03 og
sunnudag kl. 22—02.
Á öllum dansleikjunum leikur
hijómsveitin Tíbrá frá Akranesi,
sem þekkt er fyrir líflega sviðs-
framkomu og mikið fjör. Hljóm-
sveitin leikur tónlist af ýmsu tagi,
þó einkum og aðallega kraftmikið
rokk.
Kl. 4 á laugardag verður fótbolta-
keppni milli hljómsveitar og úr-
valsliðs mótsgesta.
Kl. 22 á laugardagskvöld verður
kveiktur varðeldur ef veður leyfir.
Þar er meiningin að gestir hátíðar-
innar safnist saman, syngi og
skemmti sér. Þar mun mæta á
svæðið söngkvintett sem kallar sig
„Stripp-kvintettinn", og mun sjá um
að allir skemmti sér. Leynigestur
hátíðarinnar verður að þessu sinni
enginn annar en tvífari tvífara
Presleys nr. 7.
Hundraðasti hver gestur hátíðar-
innar fær ókeypis hársnyrtingu.
Fyrir þá sem ekki þekkja, þá er
Arnarstapi eða Stapi einn af mark-
verðustu stöðum á Snæfellsnesi,
sakir náttúrufegurðar.. Þar rennur
sérkennilegt hraun í sjó fram með
hinum einkennilegu gatklettum sem
brimið hefur sorfið. Þess má einnig
geta að Arnarstapi er talinn einn af
þremur stöðum á jörðinni sem
segulmögnunar gætir í ríkum mæli.
(Fréttatilkynning)
FÉLAGSGARÐUR í KJÓS
,Jtokk-
hdtíð“
„Rokkhátíð" verður haldin um Verzlunarmannahelg-
ina í Félagsgarði í Kjós. Hljómsveitirnar Utangarðs-
menn og Spilafífl munu leika fyrir dansi öll þrjú
kvöldin frá klukkan 22.00. Á laugardag og sunnudag
mun m.a. „Taugadeildin" leika ásamt fyrrgreindum
hljómsveitum. Boðið verður upp á sérstaka miða er
gilda eingöngu á dansleikina.
Húsið við Aðalstræti 10, þar sem er verzlun Silla og Valda, er eitt af
húsum Innréttinganna og nú eitt af elztu húsum borgarinnar. Húsið
nr. 12 við hliðina á teikningu Gísla Sigurðssonar brann 1977. Litla
húsið er eitt af þeim húsum sem nú er beðið um að rífa.
Beiðni um niður-
rif gömlu húsanna
við Aðalstræti
í DAG mun bygginganefnd
Reykjavikurborgar afgreiða
beiðni eigenda húsanna númer 2,
4, 10 og 16 við Aðalstræti í
Reykjavik um leyfi til að rifa
húsin, en þau eru með elztu
húsunum i borginni.
Var þessi beiðni vegna Geysis-
hússins nr. 2, hússins nr. 10 með
verzlun Silla og Valda og nr. 16,
kynnt í borgarráði á þriðjudag, en
beiðni Tryggva Ófeigssonar vegna
niðurrifs hússins nr. 4 þar sem
Herrahúsið er, fór beint til bygg-
inganefndar, sem samkvæmt nýju
byggingarlögunum þarf að gefa
leyfi til að rífa gömul hús. Ástæð-
an fyrir því að eigendur vilja rífa
þessi hús sín, er hið gífurlega háa
mat á húseignum á þessum stað og
þar af leiðandi svimandi há fast-
eignagjöld og eignaskattur, sem
hlaðast upp án þess að eignirnar
geti gefið af sér tekjur til að
standa undir því.
Húsið nr. 10 er eitt af húsum
Innréttinganna, byggt 1752 og eitt
af elztu húsum borgarinnar, en
Silli og Valdi keyptu það 1926. í
umsögn sinni um húsin í Grjóta-
þorpi segir borgarminjavörður:
„Húsið er ómissandi vegna sögu
sinnar, legu og gerðar. Það er eitt
af elztu húsum í Reykjavík og það
eina sem eftir er af þeirri húsaröð
sem gaf Aðalstræti þá mynd sem
það hafði fram yfir síðustu öld.“
Húsið við hliðina, nr. 12, brann
1977. Húsið nr. 16 er hornhúsið við
Túngötu, byggt 1785 og var um
tíma landfógetahús, og er um-
sögnin um það sú sama: „Húsin
eru ómissandi vegna legu sinnar
og sögu.“ Þessi hús bæði erfði
Sigríður Valdimarsdóttir. Ekki er
sótt um niðurrif á Fjalakettinum
nr. 8 að þessu sinni, sem er í eigu
Þorkels Valdemarssonar, en fyrir
nokkru var höfðað mál á borgina
vegna þess, og áfrýjað til hæsta-
réttar, og fékk Þorkell þá dæmdar
nokkrar bætur. Húsið nr. 4 er eign
Tryggva Ófeigssonar og þykir
framhúsið við Aðalstræti ekki
jafn dýrmætt og húsin á bak við,
sem snúa að Fichersundi, enda er
það yngra og af annarri gerð, skv.
umsögn borgarminjavarðar. Hús-
eignin nr. 2 er í eigu verzlunarinn-
ar Geysis síðan 1948. Þar stóðu
áður hús konungsverzlunarinnar,
sem flutt voru í land úr Örfirisey
1780 og telur borgarminjavörður
húsið jafn ómissandi og hin, vegna
sögu sinnar, legu og gerðar, en á
staðnum hefur einna lengst verið
verzlað í Reykjavík.
Varla er reiknað með að bygg-
ingarnefnd telji sér fært að leyfa
niðurrif þessara húsa, enda ekki
verið gengið frá skipulagi í
Grjótaþorpi. Og kemur þá boltinn
eina ferðina enn til borgarstjórn-
ar. Skipulag og friðunarhugmynd-
ir um húsin í Grjótaþorpi hafa
verið að velkjast fyrir borgar-
stjórn Reykjavíkur í áratugi, og
stendur svo enn.
Af mælisrit Lúðvíks
Kristjánssonar
EINS OG skýrt var frá i vor, mun
Sögufélag gefa út rit í tilefni
sjötugsafmælis dr. Lúðvíks Krist-
jánssonar hinn 2. sept. nk. Frest-
ur til að láta skrá nafn sitt á
heillaóskalista og gerast áskrif-
andi að ritinu. rennur út hinn 5.
ágúst nk. beir, sem vilja heiðra
Lúðvík með þessum hætti, eru
vinsamlega beðnir að tilkynna
það á afgreiðslu Sögufélags,
Garðastræti 13B, opið virka daga
kl. 14 — 18. Verð ritsins er kr. 200.
í ritinu verður eftirfarandi efni:
Á sjötugsafmæli Lúðvíks Krist-
jánssonar eftir Einar Laxness,
Heillaóskalisti (tabula gratulat-
oria), Átján ritgerðir eftir Lúðvík
Kristjánsson, sem bera þessi heiti:
Konan, sem gaf mér reyrvisk, Af
honum fóru engar sögur, Enn er
Dritvíkurmöi fyrir dyrum fóstra,
Upprifjanir á níræðisafmæli Jóns í
Einarslóni, „Hún sveik aldrei
saumstungan hennar Gróu“,
Heimasæturnar í Akureyjum,
Fylkingin vestra umhverfis Jón
Sigurðsson, Bréf til Ingigerðar,
Grænlenzki landnemaflotinn og
breiðfirzki báturinn, Þorvaldur
Jakobsson. prestur í Sauðlauksdal,
„Þá eru komnir þrír í hlut“,
Sjóslysaárin miklu, Þegar flytja
átti íslendinga til Vestur-Indía,
Jóladýrðin í Gullbringusýslu árið
1755, „Stúlka“ og höfundur hennar,
Varðveizla Fjölnis á Snæfellsnesi
og í Breiðafirði, Fjölnismenn og
Þorsteinn J. Kúld, Dagbækur Finn-
boga Bernódussonar, Skáldið Long-
fellow og íslenzk þjóðfrelsisbar-
átta.
Auk þessa verður ritskrá Lúð-
víks Kristjánssonar. Útgáfuna
annast Einar Laxness og Berg-
Steinn Jónsson. (Frétt fri SoKufolakíinu).