Morgunblaðið - 30.07.1981, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
Áður Boeing 747 en nú
tveggja manna Stearman
Rætt við John Schoonhoven íyrrum flugstjóra
BOEING 747 er náttúrulega það fullkomnasta sem til er i flugheiminum,
því vart finnst oruKKari flugvél og hrein unun er að stjórna þeirri þotu,
en hins vegar er eina raunveruleifa flugið það að sitja við stýri i gömlum
Stearman, eins og ég á heima i Colorado, segir John Schoonhoven
fluKstjóri i samtali við Mhl„ en hann annaðist þjálfun nokkurra fyrstu
flugmanna Arnarflugs eftir að félagið tók til starfa fyrir rúmum 5 árum.
John Schoonhoven hefur starfað
að flugmálum allt sitt Iíf, byrjaði
árið 1935 og hefur ekki hugsað sér
að hætta því þótt hann sé nú hátt á
sjötugsaldri.
— Ég byrjaði hjá United og var
þar í 35 ár eða þar til ég varð að
hætta sextugur að aldri samkvæmt
reglum bandarisku flugmálastjórn-
arinnar. Var ég síðustu 15 árin
eftirlitsflugmaður og sá um að
þjálfa flugmenn. Hjá United var ég
fyrsti flugmaðurinn, sem fékk rétt-
indi á Boeing 747 og sá um þjálfun
áhafna á hana þar til ég hætti árið
1974.
En hvernig var að þurfa allt í
einu að hætta störfum hjá United?
— Vissulega voru það viðbrigði
og mörgum flugmönnum finnst
þetta erfið tímamót. En ég hafði
búið mig undir þetta og meira en
ári áður en ég hætti hóf ég að
kanna hvort möguleiki væri á öðru
starfi í landi þar sem ekki væru
sömu aldurstakmörk. Hafði ég því
um nokkur tilboð að velja þegar ég
hætti hjá United og það varð úr að
ég settist að í Belgíu. Starfaði ég
þar í 16 mánuði og um tíma starfaði
ég einnig fyrir flugfélag í Thai-
landi. Ég starfaði hjá Delta Air
Transport í Belgíu, sem keypti
Boeing 720-vélar og fylgdi ég með
vélunum og þjálfaði flugmenn.
John Schoonhoven kvaðst hafa
John Schoonhoven flugstjóri.
Ljósm. Emilia.
kunnað vel við sig í Belgíu, hann
væri Hollendingur að uppruna og
hafi lengi viljað prófa að búa í
Evrópu. En hvernig komst hann í
kynni við Arnarflugsmenn?
— í Belgíu kynntist ég nokkuð
starfsemi Air Viking og síðar einn-
ig Arngrími Jóhannssyni, og þegar
Arnarflug hóf starfsemi sína hafði
hann samband við mig og ég tók að
mér að starfa fyrir félagið. Bjó ég
hérna í Hraunbænum og konan með
mér og var í fullu starfi bæði við að
fljúga og þjálfa menn, fara með þá í
fluglíkan til þjálfunar og í prófin.
Einnig var ég eitthvað með í ráðum
þegar Arnarflug keypti Boeing
720-vélarnar frá Western. En með
Arnarflugsmönnum vann ég í nærri
þrjú ár í allt.
Og hvernig var svo að vinna á
íslandi?
— Það var gott að vera hér og
höfum við kynnst mörgu ágætis-
fólki. Sumir hafa heimsótt okkur á
búgarðinn í Bandaríkjunum og við
höfum eignast vini hér. Þeir Arnar-
flugsmenn sýndu okkur líka þann
höfðingsskap að bjóða okkur hingað
í viku til að eyða sumarleyfinu og
hafa þeir farið með okkur víða. Hér
er auðvitað of mikil verðbólga, en
ég hef iðulega sýnt kunningjum
mínum skuggamyndir og sagt þeim
frá íslandi og verða þeir aldeilis
hlessa þegar þeir sjá hvað þetta er
sérstakt land. En þeir urðu margir
hissa þegar ég sagðist vera að fara
til íslands að vinna.
Varla hættirðu að fljúga eftir að
þú fórst héðan?
— Nei, ég fór t.d. um tíma til
Pakistan og vann hjá Pakistan
Airlines í Karachi, sem þá var að
taka 707-vélar í notkun og var ég
þar til aðstoðar varðandi þjálfun-
armál, en þar má segja að hafi verið
nokkuð erfiðar aðstæður. En síðan
hefur þetta smám saman minnkað
og nú hef ég sífellt meira varið tíma
mínum til að huga að gömlum
flugvélum.
Ekki verður farið ítarlega út í þá
sálma hér, en Schoonhoven er
forseti flugklúbbs í Colorado, sem
starfar að varðveizlu og endurbygg-
ingu gamalla flugvéla og kvaðst
hann einmitt í næstu viku hefja
undirbúning að árlegu móti klúbbs-
ins, þar sem menn safnast saman
með hina ýmsu forngripi, sem enn
er hægt að fljúga mörgum hverjum.
— Margir í klúbbnum eiga sína
vél, en aðrir eru með aðeins af
áhuga og það er ótrúlegt hvað menn
hafa lagt á sig mikla vinnu við að
endurbyggja gamlar vélar og gera
þær flughæfar. Það er nefnilega
Fyrir verslunarmannahelgina
Sértilboð
til
ferðalanga
JI5 húsið
kynnir nýju fatadeildina
Aöur Nú
Flauelisbuxur 199 149
Gallabuxur 199 99
Barnaflauelisbuxur 169 135
Unglingapeysur 129 79
Barnaskyrtur — langerma 129 85
Herraskyrtur — köflóttar 139 89
Sokkar 23 18
Háskólabolir 120 89
Dömup. — síðar m/munstri 249 189
Dömublússur — langerma 119 89
Dömublússur — stutterma 109 69
Peysur — ullarblanda 179 149
Náttkjólar 120 99
Dömufrottesloppar 299 239
Opiö: Fimmtudaga í öllum deíldum til kl. 22.00.
Föstudaga í matvörumarkaði, fatadeild og raf-
deild til kl. 22.00.
Aörar deildir til kl. 19.00. Lokað laugardaga.
Jón Loftsson hf.,
Hringbraut 121, sími 10600.
Leikári LR lokið:
Aldrei fleiri sýn-
ingar á einu leikári
LEIKÁRI Leikfélags Reykjavíkur lauk i júnílok, en sumarleik-
ferð með leikritið Rommi lýkur um næstu mánaðamót. Sýningar á
vegum félagsins urðu alls 315 á leikárinu og hafa aldrei orðið
fleiri á einu leikári. Áhorfendafjöldinn var einnig meiri en áður,
en alls sáu 71,100 manns sýningar L.R. í Iðnó, Áusturbæjarbíói,
skólum og á leikferð um landið.
Átta leikrit voru sýnd á leik-
árinu, þar af tvö frá fyrra
leikári, Ofvitinn eftir bórberg
Þórðarson og Kjartan Ragn-
arsson og Rommi eftir D. L.
Coburn. Bæði þessi leikrit voru
sýnd í allan vetur og fram á
sumar, Ofvitinn 62 sinnum og
Rommí 91 sinni, þar af 31 sinni
á leikferð um Norðurland. Þau
verða bæði sýnd áfram í Iðnó
næsta haust.
í vetur tók félagið til sýninga
barnaleikrit í fyrsta skipti í
nokkur ár. Það var finnska
leikritið Hlynur og svanurinn á
Heljarfljóti eftir Christina
Andersson. Leikritið var sýnt 45
sinnum í grunnskólum á höfuð-
borgarsvæðinu, og urðu áhorf-
endur rúmlega sjö þúsund. Þá
kynnti leikfélagið tvo erlenda
nútímahöfunda fyrir íslenskum
áhorfendum, þýska leikrita-
skáldið Franz Xaver Kroetz
með verkinu Að sjá til þín,
maður! og bandaríska leikrita-
höfundinn Sam Shepard með
leikritinu Barn i garðinum. Hið
siðarnefnda var sýnt 10 vinnum
í vor fyrir fasta gesti leikhúss-
ins, en í haust verður sýningum
haldið áfram. Að sjá til þín,
maður! var sýnt 28 sinnum fyrir
rúmlega fimm þúsund manns.
Jólasýning leikhússins var
ótemjan eftir William Shake-
speare í nýrri þýðingu Helga
Hálfdanarsonar, en sú sýning
var frumflutningur verksins á
íslensku leiksviði. Sýningar á
Ótemjunni urðu 21 og áhorfend-
ur rúmlega fjögur þúsund. Tvö
ný íslensk verk voru frumflutt á
leikárinu, söngleikurinn Grettir
eftir Egil Ólafsson, Ólaf Hauk
Símonarson og Þórarin Eldjárn
og revían Skornir skammtar
eftir Jón Hjartarson og Þórarin
Eldjárn. Söngleikurinn var
sýndur í útibúi Leikfélagsins í
Austurbæjarbíói, enda ein viða-
mesta sýning, sem félagið hefur
ráðist í um árabil, sýningar
urðu 28 og áhorfendur 14.500.
Revían var sýnd 30 sinnum í vor
Reykjavíkurhöfn hefur nýverið fest kaup á ekjubrú frá
Noregi til notkunar við losun og lestun ekjuskipa og
Ro-Ro-skipa, en notkun þeirra fer nú sivaxandi. Verður hún
staðsett í Sundahöfn. Ekjubrúin er 600 fermetrar að stærð,
20 metra breið og 30 metra löng. Heildarkostnaðurinn við
smíði brúarinnar og flutningskostnaður er um 3,5 milljónir
íslenskra króna. Ljéxmynd Mbi. ólk.m.