Morgunblaðið - 30.07.1981, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
Skyndiverk-
f öll í Póllandi
Varsjá, 29. júli. AP.
STRÆTISVAGNASTJÓRAR og starfsmenn stærstu
spunaverksmiðju Varsjár gerðu í dag þriggja stunda
verkfall til að undirstrika mótmæli sín vegna mikils
skorts á matvælum og háu matvælaverði. Þá hafa
deildir Samstöðu viða um Pólland boðað til mótmælaað-
gerða og skyndiverkfalla í byrjun næsta mánaðar.
í Lodz, næst stærstu borg
Póllands, var í dag efnt til
mótmælaaðgerða þriðja daginn í
röð, og þar var meðal annars 56
vörubifreiðum ekið með miklum
hornaþeytingi að skrifstofum
borgarstjóra til að leggja áherzlu
á óánægjuna með minnkandi
kjötskammt, vöruskort í verzlun-
um almennt, og mikla verðhækk-
un á matvöru.
Talsmenn Samstöðu segja, að
nauðsynlegt sé að finna lausn á
ríkjandi vandræðum, og ekki
þýði nú að grípa til neinna
skyndi- eða bráðabirgðaaðgerða,
vandann verði að leysa.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar
segja, að þá skorti fé til að auka
vöruframboð eða flytja inn mat-
væli í auknu magni. Efnahags-
vandi Póllands er mikill. Heild-
arframleiðslan hefur minnkað
um 12,5%, og erlendar skuldir
eru áætlaðar um 27 milljarðar
dollara (rúmlega 200 milljarðar
nýkróna).
Blöð í Póllandi skýra frá því,
að ekki megi búast við auknu
framboði á svínakjöti þar í landi
fyrr en undir árslok 1982, en
svínakjöt er vinsælt mjög þar í
landi. Framboð á nautakjöti, sem
ekki er jafn vinsælt, ætti að
lagast eftir um þrjú ár. Skortur
hefur verið á gripafóðri, en
uppskeruhorfur í ár eru góðar.
Akureyri 16 skýjaó
Amsterdam 20 heióskirt
Aþena 30 heióskírt
Barcelona 26 heióskírt
Berlín 20 skýjaó
BrUssel 23 heióskírt
Chicago 19 heióskírt
Denpasar 31 skýjaó
Dublin 22 skýjað
Feneyjar 23 lóttskýjaó
Frankfurt 21 skýjaó
Færeyjar vantar
Genf 24 heióskírt
Helsinki 23 heióskírt
Hong Kong 31 heióskírt
Jerúsalem 33 heióskírt
Jóhannesarborg 16 heiðskirt
Kairó 36 heióskírt
Kaupmannahöfn 19 skýjaö
Las Palmas 24 lóttskýjað
London 26 heiðskírt
Los Angeles 28 heióskirt
Madrid 38 heióskírt
Málaga 29 heióskírt
Mallorka 27 lóttskýjaó
Mexicoborg 22 heióskírt
Miami 32 skýjaó
Moskva 34 heióskírt
Nýja Dehlí 29 rigning
New York 26 rigning
Osló 22 skýjað
París 27 heióskírt
Reykjavík 10 rigning og súld
Götuvígi og benzín-
sprengjur í Liverpool
Liverpool, 29. júlí. AP.
ENN KOM til mikilla óeirða
í gærkvöldi og nótt i Tox-
teth-hverfi í Liverpool. Segir
talsmaður lögreglunnar þar,
að 32 lögreglumenn hafi orð-
ið fyrir sárum og meiðslum i
átökum við um 200 hvíta og
svarta unglinga, sem beittu
benzínsprengjum, grjóti og
öðru lauslegu gegn lögregl-
unni, auk þess sem þeir báru
eld að hjólbarðasölu og bif-
reiðum, og hlóðu götuvigi úr
bifreiðum og timbri, sem
þeir tóku á byggingarlóð
skammt frá átakastaðnum.
Ekki gat lögreglan skýrt frá því
hve margir unglingar hefðu orðið
sárir í átökunum, en 23 ára maður
lézt í sjúkrahúsi eftir að hafa
kramizt milli húsveggjar og lög-
reglubifreiðar, og hefur rannsókn
verið fyrirskipuð í því máli. Þá
voru 18 unglingar handteknir.
Þetta var þriðja nóttin í röð,
sem til átaka kom í Toxteth, en
fyrr i mánuðinum urðu þar hvað
eftir annað árekstrar, og einnig í
blökkumannahverfum Lundúna og
annarra stórborga Englands.
Hafa alls um 3.000 unglingar ver-
ið handteknir vegna þessara
árekstra
Lögregla og yfirvöld segja, að
áframhald átakanna stafi af von-
leysi unglinganna vegna gífurlegs
atvinnuleysis í Bretlandi, en full-
trúar borgaryfirvalda halda því
hinsvegar fram, að orsökin sé ekki
síður „ofsóknir" og harka lögregl-
unnar.
Picasso-
myndum rænt
New York. 29. júll. AP.
VÖRUBÍL með 600 litógrafíum
eftir Pablo Picasso, var rænt í dag
er hann var á leiðinni frá
Kennedy-flugvelli inn á Manhatt-
an. Fjórir vopnaðir menn munu
hafa staðið fyrir ráninu. Lista-
verkin eru metin á 500 þúsund
dollara.
Brúðkaup Karls prins og lafði Díönu:
Milljarður fylgdist með
athöfninni í Lundúnum
Við altarið; Karl prins og lafði Diana krjúpa fyrir framan erkibiskupinn af Kantaraborg. Elisabet drottning,
Filipus drottningarmaður og Elisabet drottningarmóðir fylgjast með. Fyrir aftan má meðal annars sjá Margréti
prinsessu og Andrés prins. Fremst má sjá baksvip Spencer jarls.
Lundúnum. 29. júli. AP.
Karl. erfingi brezku krúnunnar, og
lafði Díana Spencer voru gefin
saman i hjónaband i Sánkti Páls-
dómkirkjunni f morgun. „Ég. Karl
Filip Arthúr Georg, geng að eiga
þig, Dfönu Frances ...“ hafði Karl
Filip skýrri röddu eftir
erkibiskupnum af Kantaraborg,
Robert Runcie, og tók f hönd brúði
sinni. Hann gleymdi að vísu „ver-
aldlegur“ i orðasambandinu „ver-
aldleg gæði“ og rödd lafði Diönu
var eilftið hikandi og henni varð á i
messunni þegar hún bar fram eið
sinn: Hún hét að giftast Filip Karli.
En athöfnin fór í hvívetna vel
fram, þó brúðhjónunum yrði eilítið á
í messunni. Þegar þau höfðu gengist
að eiga hvort annað og Karl hafði
dregið hring úr welsku gulli á fingur
lafði Díönu kváðu við mikil fagnað-
arlæti fyrir utan Sánkti Páls-
dómkirkjuna. Athöfnin í dómkirkj-
unni tók rétt um klukkustund.
Lafði Díana kom til kirkjunnar í
fylgd með föður sínum, Spencer
jarli. Mannfjöldinn fagnaði þeim
innilega er þau gengu upp kirkju-
þrepin og í kirkjunni stóðu um 2500
gestir upp; allir litu inn eftir kirkju-
skipinu, þeirra á meðal Elísabet
drottning og Karl prins en ekkert
bólaði á lafði Díönu. Gestir settust
því aftur en skömmu síðar gekk lafði
Díana inn kirkjuna ásamt föður
sínum í kjölfar erkibiskupsins af
Kantaraborg. Kirkjugestir risu úr
sætum sínum.
Glæsilegur brúðarkjóll
lafði Díönu
Lafði Díana þótti ákaflega glæsi-
leg í brúðarkjól sinum; hann var úr
beinhvitu silkitafti með gamaldags
knipplingum. Að ofan féll hann þétt
að líkama hennar og hálsmálið var
sett pífum. Silkið í kjólinn var
framleitt í silkiverksmiðju í Lull-
ingstone í Dorset og höfuðdjásnið
var úr skartgripasafni Spencer-
fjölskyldunnar. Karl prins var
klæddur í viðhafnarbúning sjóhers-
ins, með rauðan borða um brjóst sér
og heiðursmerki skrýddu svartan
einkennisbúninginn. Lafði Díana
gekk brosandi til Karls, sem rétti
henni arm sinn og leiddi hana að
altarinu.
Til hægri handar sátu Elísabet
drottning og Elísabet drottningar-
móðir, 81 árs að aldri, Filipus
drottningarmaður og aðrir meðlimir
konungsfjölskyldunnar.
í fyrsta sinn í sögunni tók róm-
versk-kaþólskur klerkur þátt í gift-
ingu innan brezku konungsfjölskyld-
unnar. Basil Hume, kardináli kaþ-
ólsku kirkjunnar á Englandi, las
bæn „friðar og hamingju" brúðhjón-
unum til handa. Þegar brúðhjónin
höfðu verið gefin saman, var flutt
tónlist, sem Karl prins og lafði
Díana höfðu valið. t sjónvarpsviðtali
'Msm
Karl prins og lafði Diana ganga niður tröppur Sánkti Páls-dómkirkjunn-
ar. Simamyndir AP.
í gær sagðist Karl allt eins búast við
að tárfella undir tónlistinni. Svo
varð þó ekki.
Gullinn Mountbatten-
blómvöndur
Þegar brúðhjónin höfðu skrifað
undir skjöl til staðfestingar eiði
sínum, gengu þau fyrir drottningu.
Bæði brostu breitt og lafði Díana,
sem nú var orðin prinsessan af
Wales, kraup djúpt fyrir drottningu
úinni og tengdamóður.
Hönd í hönd gengu brúðhjónin
eftir kirkjuskipinu. í kjölfarið
fylgdu brúðarmeyjar lafði Díönu. Þá
komu drottningin í fylgd Spencers
jarls og hertoginn af Edinborg fylgdi
móður lafði Díönu, Frances Shand
Kydd. Foreldrar lafði Díönu skildu
árið 1969. Lafði Díana bar glæsi-
legan blómvönd, gullnar Mount-
batten-rósir til heiðurs Mountbatten
jarli. Hann hefur Karl prins kallað
„heiðursafa” sinn, en jarlinn var
myrtur 1979.
Milljarður fylgdist með
brúðkaupinu
Þegar brúðhjónin ungu komu út
úr kirkjunni laust mannfjöldinn upp
miklum fagnaðarópum. Veðrið var
eins og bezt var á kosið; sólin brosti
við öllum. Talið er að um ein milljón
manns hafi verið við leiðina frá
Sánkti Páls-dómkirkjunni til Buck-
ingham-hallar, alls um þrjá kíló-
metra. Margir höfðu beðið síðan á
sunnudag til að ná sem ákjósan-
legustum stað, sumir tjaldað. Hvar-
vetna mátti sjá brezka fánann, blóm,
borða, sem á voru letraðar ham-
ingjuóskir. Um 750 milljónir fylgd-
ust með athöfninni í sjónvarpi víðs
vegar um heim og talið er að 250
milljónir hafi hlustað á beina hljóð-
varpssendingu. Alls fylgdist því um