Morgunblaðið - 30.07.1981, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
Tóku sporið á
Austurvelli í gær
HÉRLENDIS er nú staddur þýskur þjóðdansaflokkur frá Westfalen. í
gær komu þeir fram á Austurvelli og dönsuðu nokkra þjóðdansa. í
nokkur ár hafa þeir verið í sambandi við íslenska þjóðdansaflokkinn.
Þjóðdansar hafa verið gömul hefð í Westfalia svo lengi sem fólk man, en
þeir eru aðallega hafðir í frammi við brúðkaup á þakkargjörðarhátíðum
og fl. Með þessari fyrstu heimsókn sinni til Islands vilja þeir kynna
Islendingum þjóðdansa sína og dansa fyrir almenning til að sýna
íslensku fjölskyldunum þakklæti sem hafa hýst ungmennin meðan á
dvöl þeirra hérlendis stendur. Þjóðdansaflokkurinn heldur til Akureyrar
í dag, en mun næstkomandi miðvikudag dansa á Austurvelli klukkan
fjögur og vonandi verður veðrið þeim hagstæðara en það var í gær, þar
sem það rigndi allan tímann og blés.
Eimskip og Hafskip
með 350—600 farþega
skip næsta
Eimskipafélag íslands
og Ilafskip í samvinnu við
PF-skipafélagið Föroyar
og ef til vill fleiri aðila,
hafa ákveðið að vinna sam-
an að endanlegri hag-
kvæmnisáætlun og gerð
rekstraráætlunar fyrir
rekstur farþegaskips yfir
sumartímann. Rætt hefur
verið um 350—600
farþegaskip, sem einnig
tæki 100-150 bifreiðir.
Til verksins hefur verið
ráðinn Ágúst Ágústsson
hagfræðingur.
Eins og skýrt hefur verið frá í
fréttum, hafa Eimskip og Haf-
skip undanfarið unnið að athug-
un á því, hverjir eru möguleikar
á rekstri farþegaskips á milli
íslands og útlanda. Bæði félögin
hafa komizt að þeirri niðurstöðu,
að slíkur rekstur geti verið
mögulegur yfir sumartímann.
vor
Félögin telja hins vegar ekki
grundvöll fyrir rekstri nema
eins farþegaskips og hafa því
ákveðið, að starfa saman að
nánari athugun, eins og áður
sagði. Gert er ráð fyrir, að
félögin sameinist um þennan
rekstur, sem geti hafizt vorið
1982.
Gert er ráð fyrir, að athugun-
um Agústar ljúki fyrir ágústlok,
en nú er leitað að hentugu
farþegaskipi til farþega- og bíla-
flutninga og jafnframt unnið að
því, að samræma sjónarmið all-
ra aðila um áætlun og rekstur
þessa skips.
I hinu nýja skipi er til athug-
unar, að verði sundlaug, danssal-
ir, veitingasalir og verzlanir og
að viðkomustaðir þess verði auk
Færeyja og Islands, Kaup-
mannahöfn, ef til vill Hamborg,
Southampton og skozk höfn..
Athugunin, sem farið hefur
fram, hefur einnig verið4tengsl-
um við danska skipafélagið
DFDS.
Götuljós á mótum
Bankastrætis og Skóla-
vörðustígs lögð niður
GÖTUVITAR við tvenn gatnamót
á Bankastræti hafa verið óvirkir
um nokkurt skeið og Mbl. sneri
sér til Inga Ú. Magnússonar,
gatnamálastjóra. og spurði hann
hvort hér væri um bilun að ræða
eða hvort ákveðið hefði verið að
leggja Ijósin niður.
Ingi sagði að götuvitar á þessum
gatnamótum væru úr sér gengnir
og í ráði væri að endurnýja ljósin
við Ingólfsstræti, en hinsvegar
yrðu ljósin við Skólavörðustíg lögð
niður. „Búið er að panta búnað
fyrir götuljósin á Ingólfsstræti og
verða þau komin í lag bráðlega,"
sagði Ingi.
Nýlega voru sett upp tvenn
götuljós við Elliðavog, á gatna-
mótunum við Holtaveg og
Skeiðarvog en þau hafa ekki verið
tekin í notkun enn. Ingi sagði, að
það hefði ekki verið gert vegna
framkvæmda Hitaveitunnar á
þessu svæði og yrði beðið með að
setja straum á ljósin uns þeim
framkvæmdum verður lokið. Ingi
sagði að áætlað væri að setja
einnig götuljós á gatnamót Elliða-
vogs og Dalbrautar bráðlega.
Aðalforstjóri FAQ, Edouard Saouma:
Evrópuþing FAO hald-
ið á Islandi árið 1984
L)ÓHm. Mbl. ÓI.K.M.
Aðalforstjóri FAO, Edouard Saouma, (i miðjunni) ræðir við
blaðamenn. Til vinstri á myndinni er Edward West aðstoðarfor-
stjóri FAO, en lengst til hægri er Björn Sigurbjörnsson forstjóri
Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins að Keldnaholti.
OPINBERRI heimsókn
aðalforstjóra Matvæla-
og landbúnaðarstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna,
FAO, Edouard Saouma
lýkur í fyrramálið, en
heimsóknin er í boði
Pálma Jónssonar land-
búnaðarráðherra.
I gær boðaði Saouma blaða-
menn til fundar við sig. Hann
sagði við það tækifæri að á
fundi, sem hann hefði átt með
landbúnaðarráðherra þá um
morguninn, hefði verið ákveðið
að Evrópuþing FAO myndi hald-
ið á íslandi árið 1984, en það
mun vera í fyrsta sinn sem slíkt
þing er haldið hér á landi. Næsta
Evrópuþing verður hins vegar
haldið í Búlgaríu 1982.
Saouma sagði að ráðherra
hefði sýnt málefnum FAO mik-
inn áhuga og væri nú að íhuga
frekari stuðning íslendinga við
samtökin.
Auk fundar við landbúnaðar-
ráðherra í gær, ræddi Saouma
við dr. Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra og dr. ólaf Jó-
hannesson utanríkisráðherra en
í dag hittir hann Steingrím
Hermannsson sjávarútvegsráð-
herra að máli. Þá heimsótti
Saouma ýmsar stofnanir á sviði
landbúnaðar og sjávarútvegs, en
hann heldur heim á morgun
föstudag.
Nú eru níu íslenskir sérfræð-
ingar starfandi á vegum FAO í
þróunarlöndum og sagði Saouma
að verkefni þeirra tengdust eink-
um fiskveiðum.
„Norðurlöndin hafa fram til
þessa veitt starfsemi FAO ríkan
stuðning, bæði með fjárframlög-
um og matargjöfum. Þau eru
eini ríkjahópurinn, sem heldur
reglulega fundi um málefni
FAO.
Talið er að 1% af þeirri
upphæð, sem í dag er notuð til
vígbúnaðar í heiminum myndi
duga til að seðja sárasta hungur
þeirra jarðarbúa, sem í dag
svelta," sagði Saouma.
Aðspurður taldi Saouma ís-
landsheimsóknina hafa verið
mjög fróðlega og sagði hann
viðræður við ráðamenn hafa
verið gagnlegar.
„Sérstaklega athyglisvert hef-
ur mér fundist hve íslenskir
sérfræðingar eru komnir langt á
sviði landbúnaðar- og matvæla-
rannsókna. íslendingar hafa
notið aðstoðar FAO á ýmsum
sviðum, einkum við beitarrann-
sóknir, grasfrærækt og á sviði
fiskiðnaðar, til dæmis við upp-
byggingu Laxeldisstöðvarinnar í
Kollafirði."
Vesturgötuhúsið hefur nú verið gert upp eins og það var i upphafi
fyrir 100 árum. Ljósm.: ói.k. Ma«.
Fær ASÍ aftur
forkaupsrétt að
Vesturgötu 29?
I ÞESSARI viku er að ljúka
umfangsmiklum viðgerðum á
húsi því við Vesturgötu, sem
Þorkell Valdemarsson gaf Al-
þýðusambandi Islands til minn-
ingar um Otto N. Þorláksson og
upphaf verkaiýðsbaráttunnar, en
það siðan seldi Þorsteini Jóns-
syni, forstöðumanni Listasafns
Alþýðu.
Húsið er 100 ára gamalt á þessu
ári og hefur Þorsteinn gert það
upp í sinni upprunalegu mynd,
nema hvað bakskúr er nokkuð
stærri og kemur þar borðstofa
tengd eldhúsi í stað kamarsins,
sem þar var. Þurfti að rífa af
húsinu forskölun og skipta á
fúnum viðum undir gluggum o.fl.
og er kostnaður kominn upp í 60
milljónir gamalla króna.
Húsið var gefið til minningar
um Otto N. Þorláksson, sem bjó í
húsinu, og þar munu hafa verið
ákveðnar fyrstu verkalýðsaðgerðir
hér í borg, og nú hefur komið til
tals að Alþýðusambandið tryggi
sér aftur forkaupsrétt að húsinu,
ef Þorsteinn selur. Aðspurður
sagði Þorsteinn það rétt vera að
þetta hefði komið til tals, en ekki
verið frá því gengið. Hins vegar
tók hann vandlega fram, að það sé
fjarri honum að hugsa til að selja
húsið. Ágætt sé þó, að forkaups-
réttur ASÍ sé kominn inn í dæmið.
— Þetta er orðið gott hús að búa í,
sagði Þorsteinn, sem er búinn að
vera þar um nokkurt skeið. Þótt
húsið sé ekki stórt, er þar rúmt
um einn íbúa í húsi, sem áður
hýsti allt frá Alþýðubrauðgerð-
inni, súkkulaðigerð, verzlun o.fl.
auk fjölskyldu. En fyrir helgina
verður viðgerðunum á húsinu að
mestu lokið.
Sjónvarpið
úr sumar-
fríi 8. ágúst
— Spurningaþættir
og íslensk leikrit á
döfinni
ÚTSENDINGAR sjónva/psins
hefjast að afioknum sumarleyf-
um þ. 8. ágúst nk. Er það u.þ.b.
viku seinna en venja er að hefja
sendingar eftir sumarleyfi og
mun þar, að sögn Hinriks
Bjarnasonar forstöðumanns
Lista- og skemmtideildar sjón-
varpsins, vera um að ræða lið i
þeim aðgerðum, sem sjónvarpið
hefur orðið að gripa til til að
mæta siauknum fjárskorti.
Af innlendu efni á dagskrá
sjónvarps næstu mánuðina nefndi
Hinrik nýtt leikrit Davíðs
Oddssonar, sem lokið var upptök-
um á í júnílok og leikrit eftir
Steinunni Sigurðardóttur, sem
undirbúningur var hafinn að fyrir
sumarleyfi og verður væntanlega
tekið upp á næstunni. Ekki hefur
enn verið tekin endanleg ákvörðun
um það hvenær myndin um
Snorra Sturluson, sem unnin var í
samvinnu norrænna sjónvarps-
stöðva, verður sýnd. En ekki er
ólíklegt að það verði um það leyti,
er vetrardagskrá hefst, um mán-
aðamótin september-október.
Þá verður á næstunni hafist
handa við undirbúning spurninga-
þátta, sem Tage Ammendrup mun
hafa umsjón með og verða þeir
a.m.k. sex að tölu.
Síldin frá 1978
VEGNA fréttar í blaðinu sl.
þriðjudag, um ónýta síld hjá
Siglósíld, skal tekið fram að um-
rædd síld er frá árinu 1978. Þá
drógust samningar við Rússa á
langinn en framleitt var upp í
væntanlega samninga. Loks þegar
var samið, skall á farmannaverk-
fall og síldin varð ónýt.