Morgunblaðið - 30.07.1981, Side 30

Morgunblaðið - 30.07.1981, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981 Aðlögunargjaldið eftir Hauk Eggertsson Ellefu og hálft ár eru liðið frá því, að Island gerðist aðili að Fríverzlunarbandalagi Evrópu, EFTA. Á sínum tíma gætti all- mikillar andstöðu gagnvart þeirri ákvörðun, bæði innan stjórnmála- flokka og svo hagsmunasamtaka. Það einkennilega átti sér þó stað, að Félag íslenzkra iðnrekenda stóð næstum því einhuga að því máli, þótt nokkrar andstæðar raddir heyrðust. Iðnrekendur áttu þó mest á hættu vegna óheftrar samkeppni við iðnvarning frá há- þróuðum iðnaðarþjóðum, en flest- ir aðrir höfðu allt að vinna. Skilyrðin Iðnrekendur mörkuðu ákveðna stefnu í máli þessu. Þeir settu fram sjónarmið sín á einfaldan og glöggan hátt, en það var í megin- atriðum, sem hér segir: 1. Að íslenzkur verksmiðjuiðnað- ur skyldi verða látinn njóta nákvæmlega sömu stöðu og hinir aðalatvinnuvegirnir, sjáv- arútvegur og landbúnaður, hvað snerti fjármagnsfyrir- greiðslu og lánskjör, svo og skatta á hvaða sviði sem er. 2. Að íslenzkur verksmiðjuiðnað- ur skyldi þó eigi njóta verri stöðu í íslenzku efnahagslífi en erlendir samkeppnisaðilar njóta almennt í sínu heima- landi — og erlendir aðilar njóta á íslandi. 3. Að hinn 10 ára aðlögunartími, sem um var samið, skyldi not- aður á þann hátt, að íslenzkum iðnfyrirtækjum gæfist kostur á að byggja sig upp til að mæta hinni óheftu samkeppni. Efasemdirnar Ég átti sæti í stjórn FÍI á þessum tíma, og ég skal viður- kenna, að hjá mér, og ég held öllum í stjórn félagsins, hafi komið fram nokkur vantrú um efndir stjórnmálamannanna, og jafnvel embættismannanna líka. Sjónarmið félagsins voru þvi sett fram skriflega, og þau voru upp á skrifuð af viðkomandi valda- „Iðnaðurinn er ekki að biðja um sérrétt- indi, hann biður að- eins um sama rétt og aðrir atvinnuvegir“ mönnum. Allt féll því í ljúfa löð, nema að í undirvitundinni Ieynd- ist alltaf einhver efi. Enda er nú spurningin: Var staðið við loforð- in? „Svikin“ Það hefur ekki verið staðið við loforðin! Um það hafa verið höfð mismunandi orð, eftir því hve heitt hefur verið í kolunum. Mein- ingin: að standa ekki við gefin loforð, vanefndir eða þá svik, getur verið hin sama, þótt talsverð blæbrigði séu þar á. Ég ætla að láta liggja á milli hluta, hvað er þar réttmætast og hverjir hafa tileinkað sér þann munnsöfnuð. Ráðuneytisstjórinn Þórhallur Ásgeirsson ráðuneyt- isstjóri í viðskiptaráðuneytinu hefur upp á síðkastið dregizt nokkuð inn í hinar hörðu umræð- ur um mál þessi. Stöðu sinnar vegna hefur hann fylgzt með hverri hreyfingu málsins enda var hann þegar orðinn ráðuneytis- stjóri á tímum samninganna við EFTA og einn af nánustu sam- starfsmönnum þáverandi við- skiptaráðherra, dr. Gylfa Þ. Gísla- sonar, sem var aðalhvatamaður aðildarinnar, og tók þátt i öllum samningum bæði við hina erlendu og innlendu aðila. Síðan hefur það orðið hlutverk Þórhallar, ásamt fleirum, að halda uppi málstað íslands á hinum erlenda vettvangi samtakanna. Enginn efast um, að þar vilji hann veg og heiður Islands sem mestan. Við samning- ana skal staðið! Mistök Þórhallar „Það er ekki hægt að svikja gerða samninga, það megum við ekki láta henda okkur,“ hefur Þórhallur Ásgeirsson (feitletrað) eftir Einari Ágústssyni fyrrver- andi utanríkisráðherra, og gerir að sínum orðum, í óvenjulega harkalegri grein, er hann (Þór- hallur) skrifar í Morgunblaðið 9. júlí sl. Þetta er rétt. Það á ekki að svíkja gerða samninga. En ég vil spyrja ráðuneytisstjórann: Hefur verið staðið við samningana gagnvart íslenzkum iðnaði? Mér er það ljóst, að það er ekki hlutverk hans sem ráðuneytis- stjóra að gæta hagsmuna ís- lenzkra iðnrekenda gagnvart ríkisvaldinu, en hann hefði ekkert verið of góður til að láta þá vitneskju sína í ljós, að við þá hlið samningsins hefur ekki verið stað- ið. Það eru fleiri en iðnrekendur og Þórhallur Ásgeirsson, sem það v>ta- Hvað segir Gylfi Þ. Gíslason í erindi, sem hann flutti á ráð- stefnu, sem haldin var á Þingvöll- um 12. maí 1979, undir heitinu „ísland, Fríverzlunarsamtökin í Efnahagsbandalagið**? Gylfi hefur verið þekktur fyrir annað en að bera eingöngu hag atvinnurek- enda fyrir brjósti á sínum langa stjórnmálaferli. En hann hefur þekkingu, einurð og drengskap til að segja allan sannleikann um þessi mál. Hann vill, að það sé staðið við alla samningana, hvort heldur það er við innlenda eða erlenda aðila. Hann fullyrðir í erindi sínu, að íslenzkur iðnaður búi við langtum lakari kjör á öllum sviðum, sem máli skipta, í íslenzku athafnalífi en hinir at- vinnuvegirnir. Hann segir, að það hafi ekki verið staðið við samn- ingana. En hvað segir dr. Jóhann- es Nordal í erindi, er hann flutti 30. marz 1979? Lokaorðin eru þessi: „öll rök hníga nú að því, að fara eigi þveröfuga leið til þess að jafna metin milli iðnaðar og sjávarútvegs, en hún er sú að gera þarf kerfisbundið átak til þess að afnema hvers konar mismunun, sem enn á sér stað milli sjávarút- vegs og iðnaðar, hvort sem er í skattamálum, opinberri fyrir- greiðslu, lánskjörum eða aðgangi að fjármagni. Þetta er eina leiðin, sem ég sé liggja að raunverulegu jafnræði þessara tveggja höfuð- atvinnuvega þjóðarinnar." Þetta veit Þórhallur allt, eins vel og Gylfi, iðnrekendur og Jóhannes Nordal. Hann hefur ekki verið að segja neitt ósatt. En hann hefur Haukur Eggertsson aðeins sagt þann sannleika, sem snýr að útlendingunum og lætur eins og að hinn sé ekki til. En hvers vegna EFTA? Mér er ekki grunlaust, að það velkist fyrir mörgum, hver hafi verið tilgangurinn með Fríverzl- unarsamtökunum og hvers vegna íslendingar gerðust þar aðilar. Ég held að hægt sé að segja það í einni stuttri setningu: Það er til þess að vara verði framleidd. þar sem það er ódýrast, og að hún verði þá ódýrust. Sé ódýrara að framleiða einhverja vörutegund úti í Evrópu en hér á landi, skal framleiða hana þar og greiða með annarri, sem er ódýrara að fram- leiða hér. Eða þá að íslenzk framleiðslufyrirtæki aðlagi sína framleiðslu framleiðsluháttum annarra, svo aö þau geti framleitt sömu vöru á sambærilegu verði. Þetta skildu íslenzkir iðnrekendur og gengust undir þessa kvöð. En þeir vissu, að til þess yrðu þeir að fá að njóta sömu aðstöðu og keppinautarnir. Það má heldur ekki skapa þeim atvinnuvegi, sem framleiðir meginhluta þess gjald- eyris, sem hin erlenda vara er keypt fyrir, betri skilyrði en iðn- aðinum sjálfum. Þá verður gjald- eyririnn of ódýr og hinn erlendi samkeppnisaðili selur sína fram- Sigurbjörg Unnur Amadóttir - Minning Fædd 9. júlí 1921. Dáin 23. júlí 1981. Hún fæddist hér í borg þann 9. júlí 1921. Var hún kjördóttir þeirra ágætu hjóna Árna Árna- sonar fiskimatsmanns og Þóru Þorkelsdóttur konu hans. Voru þau þá búsett í Viðey. Aðeins 9 ára gömul missir hún móður sína, og flyzt þá ásamt föður sínum á heimili Árnbjargar systur sinnar og Kristjáns heitins Þorgrímssonar frá Laugarnesi, manns hennar. Árið 1943 giftist hún Kjartani Ingimarssyni, hópferðabifreiða- stjóra frá Laugarási, syni þeirra ágætu hjóna Ingimars Kjartans- sonar og Sólveigar Jónsdóttur. Unnur var fríð kona og gjörvi- leg, fylgdi henni bæði reisn og þokki og sú hlýja og bjarta gestrisni, sem vinir og nágrannar aldrei gleyma. Þau hjón voru sérlega samhent, ekki sízt í þeirri viðleitni að gjöra heimili sitt að þeim griðastað, þar sem bæði fjölskyldu og vinum mætti líða vel. Þeim Kjartani og Unni varð fimm barna auðið. Elzt þeirra er Þóra, gift Gðmundi Karlssyni, stýrimanni, eiga þau fjögur börn. Næstur er Ingimar, bifreiðastjóri, ógiftur og dvelur heima. Þá Kristján, er einnig dvelur heúna og Árni, sem vinnur við þunga- vinnuvélar, kvæntur Guðrúnu Ágústsdóttur. Eiga þau eitt barn. Yngst systkinanna er svo Björg 16 ára. Unnur gekk ekki heil til skógar síðustu árin — en alltaf var svipur hennar jafn rósamur og bjartur. „Guð treysti ég — ég óttast eigi.“ Sú fullvissa, sem í þeim orðum felst, var skjöldur hennar og skjól, allt til enda. Guð blessi og styrki ástvini hennar alla í þeirra þungu sorg. Garðar Svavarsson Með fáum orðum viljum við minnast Unnar, móðursystur okkar, sem svo skyndilega var hrifin burt í dagsins önn. Þó Unnur hefði átt við vanheilsu að stríða undanfarin ár, var hún ávallt lífsglöð og kát og bar ekki veikindi sín á torg. Kallið kom því bæði snöggt og óvænt. Unnur var mjög ósérhlífin kona og alla sína lífstíð lifði hún fyrir aðra og var ætíð boðin og búin að veita þeim skjól og huggun, sem á þurftu að halda. Eftirlifandi eiginmanni sínum, Kjartani Ingimarssyni, giftist hún hinn 8. maí 1943 og eignuðust þau fimm böm; Þóru,-Ingimar, Krist- ján, Árna og Vigfúsínu Björgu. Þau hafa allan sinn búskap búið við Kirkjuteig í Reykjavík. Ekki er það ætlun okkar að rekja æviferil Unnar hér, heldur færa henni beztu þakkir fyrir alla þá hlýju og umhyggju, sem hún hefur sýnt okkur og fjölskyldum okkar. Hennar er saknað af öllum þeim er þekktu hana. Við biðjum góðan Guð að styrkja þig Kjartan minn og börnin þín og þeirra fjölskyldur og vitum að það er huggun harmi gegn, að látinn lifir. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi." Þóra og Ásta. Hún Unnur vinkona mín er dáin og verður jarðsett frá Laugar- neskirkju í dag. Af hverju Unnur er dáin skiptir ekki máli. Þó dettur mér í hug að það hafi verið vegna þess að hún var alltof góð við aðra. Þannig fólk vill Guð fá til sín, þótt óskiljanlegt sé, því Unnur hefði getað gert svo mikið gott hér á jörðu niðri í mörg ár í viðbót. Unnur hlífði sér aldrei, hún var fjölskyldunni og vinum sínum allt. Af miklum kjarki og myndar- skap höfðu Kjartan og Unnur nýlega keypt sér eigið hús, prests- bústaðinn í Laugarnessókn. Bæði lögðu sig fram um að gera allt fyrir þetta hús, enda tókst það með afbrigðum vel. Þetta er stórt hús, en stórhugurinn hjá þeim báðum réði þar ríkjum og þetta óx þeim ekki í augum. Veit ég að þau hafa í þessu tilfelli, sem öðrum, verið að hugsa - unv ■ börnin og- barnabörnin, fyrir utan það að geta loks orðið sjálfstæð varðandi húsnæði. Viðgerðir og endurbætur þessa húss bera þeim glöggt vitni og munu gera um ókomin ár. Unnur hefði átt að geta notið þessa frábæra árangurs lengur. Hún átti einnig skilið að fá að njóta Kjartans, barnanna og barnabarnanna lengur. Þökk sé Kjartani fyrir það hve góður hann var Unni. Hún dáði Kjartan og elskaði fyrir framtakssemi hans og dugnað. Dugnaður var þeim sameiginlegt hugtak. Ættir Unnar nenni ég ekki að tala um í þessum fátæklegu Iínum mínum. Bæði voru þau Unnur og Kjartan úr Laugarnesinu, — það er ég líka. E.t.v. er það þess vegna sem ég- átti því Láni að fagna að leiðsluvöru á lægra verði á ís- lenzkum markaði, þótt fram- leiðslukostnaður hennar sé í raun ekki lægri. Það verður engum til góðs og þá er búið að brjóta lögmál fríverzlunarinnar. Hvers vegna aðlögunargjald? Aðlögunartíminn að EFTA rann út 31. des. 1979. Vegna skammsýni og þrekleysis stjórn- málamannanna (og kannski emb- ættismannanna) var 10 ára aðlög- unartíminn ekki notaður sem skyldi. Þess vegna var og er iðnaðurinn ekki reiðubúinn til að takast á við samkeppnina í þeim mæli, sem hann væri annars. Þetta fékkst að nokkru viðurkennt árið 1979, og þess vegna var 3%-aðIögunargjaldið lagt á fyrir árið 1980. Þetta mætti fullum skilningi EFTA og EBE, en tím- ann skyldi nota til endurbóta hér heima. Það var ekki gert og er staðan því enn nákvæmlega hin sama fyrir iðnaðinn. „Bang, bang,“ segir ráðuneytisstjórinn. Það skal staðið við samningana! „Svik“ útlendinganna Við viljum vera heiðarlegir og standa við gerða samninga, en gera allir útlendingarnir það? Hvað er oft búið að sýna fram á það í ræðu og riti, að flestar ef ekki allar þjóðirnar innan EFTA og EBE sniðganga að meira eða minna leyti grundvallarhugsjónir samtakanna og samningana með alls konar beinum eða óbeinum styrkjum. Eru þetta „svik“ eða er það að standa við gerða samn- inga? Ferðin til EFTA og EBE Eins og frægt er orðið fór hópur iðnrekenda og nokkrir aðrir aðil- ar, þ.á m. embættismenn, í heim- sókn til aðalstöðva EFTÁ í Genf og EBE í Brússel. Ég var í þeirri för og veit því, hvað þar fór fram. Þótt ferðin hafi fyrst og fremst verið ætluð til kynningar á starfs emi samtakanna, fór ekki hjá því, að til umræðu komu nokkur „krít- isk“ málefni. í umræðunum við fulltrúa EFTA komu brátt fram úr okkar hópi raddir gagnrýni á þær styrkjaaðgerðir, sem sumar aðildarþjóðirnar reka, sérstaklega Norðmenn og Svíar. Þeirra eigin fulltrúar voru til svara, en þeir reyndu lítt að bera í bætifláka fyrir sínar þjóðir. Þá kom fram bein spurning um gagnaðgerðir af hálfu samtakanna og hvaða valdi þau gætu beitt til að koma fram hafa þekkt þau bæði og fylgst með framgangi þeirra og dugnaði. Unni hefi ég þekkt frá því að ég man eftir mér, fyrst af Laugarnes- veginum og síðan af Kirkjuteign- um. Árin á Kirkjuteignum eru mér þó minnisstæðust. Ég man eftir því, þegar þeir bræður Kjart- an og Ingimar fengu sína fyrstu rútu, — ég veit hvað þau voru stolt, — ég var það líka. Þetta var mikil framtakssemi á þeim tíma. Fylgst var með öllum nýjungum á þessum sviðum. Ég man eftir því, meðan ég lifi, þegar þeir bræður komu til Svíþjóðar á námsárum mínum, eingöngu til þess að fylgj- ast með framförum á þessu sviði og kaupa snjóbíl. Þessi heimsókn var okkur hjónum mikið ánægju- efni. Ekki veit ég betur en að þeir bræður hafi verið fyrstir til þess að fá fyrstu rútuna, sem var á tveimur flötum. Átti ég þess kost að vera með í þeirri fyrstu ferð á þeim bíl. Ferðirnar urðu fleiri og fleiri. Stundum held ég að Unnur hafi verið áhyggjufull af framtakssemi Kjartans, en aldrei lét hún á því bera. Hún hafði ekki skap til þess, hún var alltaf glaðlynd, létt í skapi og geislandi af brosi. Þetta kunni Kjartan að meta og varð honum til góðs. Stundum hefir leitað á mig þunglyndi og skapið ekki alltaf jafngott. Ávallt var það þannig, undir slíkum kringumstæðum, að ég fór til Unnar og Kjartans. Þótt dvölin hafi ekki alltaf verið löng fór ég þaðan alltaf í góðu skapi, — - sneri glaður,h«im.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.