Morgunblaðið - 30.07.1981, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1981
Laugardagsmorgnar
og „vísitöluþrælar“
eftir Óskar
Jóhannsson
Gunnar Snorrason, form. Kaup-
mannasamtakanna, sendir mér
kveðjur sínar í Mbl. 24. júlí og
segir þar að ég hafi „ráðizt gegn
sér“ í grein í Mbl. 16/7. Það er
misskilningur hjá honum.
Sem form. Innkaupasambands
matvörukaupmanna, IMA, var ég
að leiðrétta ummaeli hans um fund,
sem hann hafði fengið rangar
upplýsingar um.
Eg taldi að hann vildi frekar
láta hafa eftir sér það sem rétt er.
Máli mínu til sönnunar sendi ég
til Mbl. ljósrit úr fundarmætingar-
bókinni með nöfnum þeirra 18
manna, sem samþykktu víturnar á
Kaupmannasamtökin, en vegna
plássleysis í blaðinu var það ekki
birt með greininni.
Ennþá heldur Gunnar því fram,
að 18 fundarmenn af 41 sk.ráðum
félaga séu „örfáir menn, aðeins
hluti félagsmanna".
Til samanburðar á fundarsókn
talaði ég um almennan fund hjá
Kaupmannasamtökunum, en
Gunnar snýr því upp í fulltrúa-
ráðsfund, sem er að sjálfsögðu allt
annað.
„Allt bendir því til
þess, að þeir sem hafa
haft verzlanir sínar
opnar á laugardögum
hafi ekki brotið lög,
heldur hinir sem
sendu lögregluna til
að loka þeim.“
Hvaðan kom þessi kelling?
Af grein hans má ætla, að ég
hafi fengið upplýsingar um hverjir
sendu lögregluna á kaupmenn og
viðskiptavini þeirra frá einhverri
„kellingu". Ég kannast ekki við að
hafa nefnt neina „kellingu" í því
sambandi, nema það sé nafn, sem
Gunnar kýs að nota yfir lögregl-
una í Reykjavík.
Að hindra að félag
fremji sjálfsmorð
Gunnar segir að ég viti betur en
hann um það, sem gerist á stjórn-
arfundum í Félagi matvörukaup-
manna.
Ég er þar í varastjórn og get því
upplýst hann um það, að í upphafi
árekstranna varaði ég stjórnar-
menn við því að senda lögregluna á
sína eigin félagsmenn — með því
væri félagið nánast að fremja
sjálfsmorð.
Það væri fyrir mín orð og fleiri
velunnara KI að ekki gengju 40—
50 kaupmenn úr félaginu samtím-
is.
Ég hafi talið þá á að beita heldur
áhrifum sínum innan félagsins til
að fá leiðréttingu mála sinna, og í
þeim tilgangi var óskað eftir fundi
í Félagi matvörukaupmanna. þar
sem þeir fóru fram á að fá
starfsfrið fyrir lögreglunni á laug-
ardagsmorgnum meðan reynt yrði
að sætta sjónarmið þeirra, sem
málið varðaði.
Eins og fram kemur í grein
minni 16. júlí var þeirri beiðni
vísað frá.
Þeir, sem sendu víturnar
Innkaupasamband matvöru-
kaupmanna, IMA, er félagsskapur
eigenda 41 matvöruverzlana, sem
flestar eru litlar og staðsettar á
Reykjavíkursvæðinu.
Skilyrði til inngöngu er m.a. að
vera félagi í Kaupmannasamtök-
unum. Dæmi eru um það, að menn
hafi gengið í KÍ. til að fá inngöngu
í IMA.
Óskar Jóhannsson.
Auk þess að hafa stuðlað að
öryggi og hagkvæmni í viðskiptum
fyrir framleiðendur, heildsala,
kaupmenn og neytendur hefir IMA
styrkt KI. með starfsemi sinni, og
hefir í alla staði átt gott samstarf
við aðra félagsmenn og skrifstofu
KÍ.
Tillagan um hinar margumtöl-
uðu vítur kom fram á fundinum
eftir að þeir kaupmenn, sem hindr-
aðir voru í starfi höfðu sagt
félögum sínum frá þeim atburðum.
Ógæfa KÍ.
Kaupmannasamtökin hafa lent í
þeirri ógæfu að bera að hluta
ábyrgð á breytingu á reglugerð um
lokunartíma í Reykjavík, sem
brýtur það eindregið í bága við
hagsmuni tiltekins hóps félaga
þeirra og viðskiptavina, að margir
hafa ekki viljað við það una, og
hafa þeir hlotið sömu meðferð og
afbrotamenn.
VÍ tekur í taumana
Verzlunarráð íslands hefir vakið
athygli borgaryfirvalda á, að laug-
ardagslokunin fái ekki staðizt
gagnvart stjórnarskránni. Lög-
maður borgarinnar tekur undir
það álit, og vegna þess er forseti
borgarstjórnar reiðubúinn til að
láta endurskoða reglugerðina sem
fyrst.
Allt bendir því til þess, að þeir
sem hafa haft verzlanir sínar
opnar á laugardögum hafi ekki
brotið lög, heldur hinir sem sendu
lögregluna til að loka hjá þeim.
Heyrzt hefir, að þeir fyrrnefndu
íhugi nú málsókn á hendur þeim,
sem hindrað hafa störf þeirra með
ólögmætum aðgerðum.
Það að réttur þeirra til að nota
laugardaginn sem valtíma virðist
nú vera viðurkenndur er þó aðal-
atriðið, og tel ég því öllum fyrir
beztu að láta af þessum deilum.
Þekkti ekki afa sinn
Áður en utanferðir urðu svo
algengar sem nú er, henti það einn
ungan mann, sem „forframaðist"
erlendis í hálft ár að við heimkom-
una hafði hann ekki einungis
gleymt málinu, heldur þekkti hann
ekki afa sinn.
Þessi saga rifjaðist upp fyrir
mér þegar ég las í grein Gunnars,
að hann áliti að nýja reglugerðin
bætti hag hverfisverzlananna.
Hann virðist ekki álíta að neitt
Sigurður Eyjólfsson
- Minningarorð
Fæddur 12. desember 1892.
Dáinn 22. júlí 1981.
í dag, fimmtudaginn 30. júlí,
verður jarðsunginn frá Neskirkju
móðurbróðir minn, Sigurður Eyj-
ólfsson, lengst af til heimilis að
Fálkagötu 34 í Reykjavík.
Hann andaðist í Borgarspítal-
anum 22. júlí síðastliðinn eftir
skamma sjúkrahúsvist.
Sigurður var fæddur í Hrúta-
fellskoti undir Austur-Eyjafjöll-
um 12. desember 1892. Foreldrar
hans sem þar bjuggu voru Sigríð-
ur Helgadóttir frá Skálholti í
Biskupstungum og Eyjólfur
Sveinsson frá Stóruborg. Var
hann sjöundi í röðinni af ellefu
börnum þeirra.
Ein af fyrstu bernskuminning-
um Sigurðar voru jarðskjálftarnir
miklu árið 1896. Vorið eftir var
honum komið í fóstur vestur í
Biskupstungur. Það ferðalag var
honum mjög minnisstætt, er faðir
hans reiddi hann yfir óbrúuð
vatnsföllin. Fyrstu árin var hann í
Torfastaðakoti en síðar í Uthlíð til
fullorðinsára. Voru þetta góð
heimili.
Sigurður var greindur maður og
gæddur frásagnargleði svo unun
var á að hlýða. — Hann sagði mér
frá því að þegar hann var í
Torfastaðakoti lá hann veikur um
hásláttinn. Kom þá presturinn,
séra Magnús Helgason á Torfa-
stöðum, sem taldi til frændsemi
við drenginn og sagðist ætla að
sitja hjá honum svo hann væri
ekki einn meðan heimilisfólkið
væri við heyskap. Sagði hann
drengnum sögur og las fyrir hann.
Þá var tíminn fljótur að líða, sagði
Sigurður og ljómaði við bernsku-
minninguna. Eyjólfur faðir hans
fór oft að heimsækja hann þó
leiðin væri torsótt og mörg stór-
fljót á leiðinni. Óð hann þau með
fyllta vasa af grjóti.
Þegar Sigurður fluttist frá Út-
hlíð fór hann að Skálholti og þar
kvæntist hann Þorbjörgu Vigfús-
dóttur og bjuggu þau þar sín
fyrstu búskaparár.
Þegar fyrsta barn þeirra fædd-
ist var Sigurður við sjóróðra í
Þorlákshöfn. Hann skrapp fót-
gangandi upp að Skálholti til að
sjá soninn. Á leiðinni voru þrjár
stórár. Ölfusá fór hann á ferju í
Óseyrarnesi, yfir Hvítá í Arnar-
bæli í Grímsnesi og loks yfir
Brúará frá Reykjanesi í Gríms-
nesi. Ferðin tók ellefu klukku-
stundir og tvo daga gat hann verið
heima. Seinna stundaði hann sjó-
inn frá Reykjavík og var þá
tuttugu og þrjá tíma að ganga frá
Árbæ austur að Skálholti. Á
Kolviðarhóli stóð hann við í eina
klukkustund og aðra í Alviðru.
Eftir að fjöiskyldan flutti suður,
bjuggu þau fyrstu árin á Seltjarn-
arnesinu. Eru mér minnisstæðar
sunnudagsgönguferðir til þeirra
að Ráðagerði. Ekki var ég þó
allskostar ánægð með að þau átti
eintóma stráka, en synirnir voru
fimm.
Árið 1924 keyptu þau húsið
Fálkagötu 34 og þar hefur hann
búið síðan. Þorbjörg Vigfúsdóttir
andaðist árið 1933.
Árið 1937 var hamingjuár í lífi
Sigurðar, þá eignaðist hann seinni
konu sína, Maríu Þórðardóttur,
sem var ekkja. María átti fjögur
börn, tvo syni og tvær dætur
undur fagrar. Þessar litlu systur,
Helga og Nanna, komu oft með
honum í Stóra-Skipholt að finna
Ömmu. María og Sigurður eignuð-
ust tvo syni, Gylfa og Sigþór, og
þar með voru börnin þeirra orðin
ellefu. Það var gaman að sjá þessi
hamingjusömu hjón og mikil reisn
yfir þeim.
Sumarið 1977, þann 12. júní, var
haldið ættingjamót í Skálholti til
minningar um Helga Ólafsson, afa
Sigurðar, sem fæddur var í Skál-
holti árið 1834. Ingiríður Einars-
dóttir frá Bryðjuholti, móðir
Helga, hafði lífstíðarábúð í Skál-
holti en hún var dóttir Guðrúnar
hinnar yngri Kolbeinsdóttur
prests í Miðdal í Laugardal, þess
sem orkti Gilsbakkaþulu.
Faðir Ingiríðar, Einar, var
fæddur á Sóleyjarbakka í Hruna-
mannahreppi árið 1756 Bjarnason
Jónssonar.
Þórunn Eyjólfsdóttir, amma
Sigurðar, drukknaði í Hvítá 7.
apríl 1863. Hún var að fara yfir
ána á vorís ásamt vinstúlku sinni
frá Auðsholti og drukknuðu þær
báðar. Sigríður móðir hans var þá
í vöggu í Skálholti. Valgerður
Eyjólfsdóttir, systir Þórunnar,
kom að Skálholti og gekk Sigríði
litlu í móður stað. Hún giftist
Helga föður hennar nokkrum ár-
um síðar.
Á ættingjamótið komu 300
manns, afkomendur þessa fólks
ásamt mökum. Aldursforsetinn og
stolt okkar allra var Sigurður
Eyjólfsson, sem við kveðjum í dag.
Sigurður stundaði sjóinn lengi
vel og var ellefu vertíðir á ára-
skipi. Síðan fór hann á togara um
20 ára skeið, var t.d. á togaranum
Maí í Halaveðrinu mikla. Einnig
var hann á togaranum Belgum og
sigldi þá á Þýskaland.
Þegar hann fór að starfa í landi
var hann hjá Almenna bygginga-
félaginu. Meðal annars hlóð hann
skeifuna framan við Háskólann.
Síðar tók hann að sér með aðstoð
yngstu sona sinna að hlaða veggi
við Hrafnistu og Laugarásbíó.
Einnig hlóðu þeir veggi og í
kringum fánastengur að Bifröst í
Borgarfirði.
Hjá Eimskipafélaginu vann
hann í 17 ár eða þar til hann var
kominn yfir aldurs-mörkin. Á
áttatíu og fimm ára afmæli hans
var boðið til veglegrar veislu á
heimili þeirra hjóna.
Ég rifjaði ýmislegt upp í afmæl-
isávarpinu sem ég flutti honum
þá, t.d. brást það ekki ef hann var
í landi að hann heimsækti hana
móður sína á sunnudögum. Amma
átti heima uppi á lofti hjá okkur í
Stóra-Skipholti.
Þegar ég sá hann fara upp
útitröppurnar hennar á sunnudög-
um vissi ég að klukkan var á
mínútunni 2. Hann stóð við sem
svaraði messutíma. Það var hans
guðsþjónusta að sýna ekkjunni
henni móður sinni tryggð og
kærleika. Stundum var hann með
börnin sín með sér. Ég man að
bræður mínir litu mjög upp til
„Sigga frænda" eins og við kölluð-
um hann.
Á þessum árum var greið leið
milli Grímsstaðaholts og Bráð-
ræðisholts. Engin byggð var þá á
Melunum, nema Einholt. Náttúr-
an var ósnortin. Þangaö fórum við
á berjamó og ilmurinn af blóð-
berginu gleymist ekki. Það var
aldrei gróin gata milli þeirra
systkinanna Sigurðar og Sigríðar
á Fálkagötu, Valgerðar í Lambhól
og Þórunnar í Stóra-Skipholti.
En miðpunkturinn í öllu var
hún móðir þeirra, hún Sigríður
amma mín. Hún var einstök kona.
Hún og Sigurður átti það sameig-
inlegt að afgreiða erfiðleika með
UNISBFfrá JAPAN
Utvarpsseguíbandstæki
í bíla
með stereo móttakara
TC- 850/860 ML
Bylgjur: LW/MW/FM —MPX
Magnari: 2x6 wött
Hraðspólun: Áfram og til baka
Auto Reverse Suðeyðir (Noise killer)
Styrkstillir fyrir móttöku
Kr. 1.795
TC -25 ML
Bylgjur: LW/MW/FM — MPX
Magnari: 2x6 wött
Hraðspólun: Áfram
Kr. 1.150