Morgunblaðið - 30.07.1981, Síða 47

Morgunblaðið - 30.07.1981, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981 47 A glataði 2 marka forystu BREIÐABLIK sýndi mikla seiglu er liðið vann upp tveggja marka forystu ÍA á Skaganum i gær- kvoldi og tryggði sér annað stigið í miklum markaleik. Loka- tölur leiksins urðu 3—3, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1 — 1. Blikarnir eru þvi enn með i slagnum um efsta sætið og Skagamenn eiga raunar enn sina möguleika. Tap hefði verið miður gott fyrir hvort liðið sem er. Blikarnir sóttu gegn sterkum vindi í fyrri hálfleik, en sóttu þó talsvert meira framan af. Mark Skagamanna á 15. mínútunni kom því gegn gangi leiksins. Árni Sveinsson átti þá þrumuskot að marki UBK sem Guðmundur markvörður Ásgeirsson varði vel. Hann hélt knettinum hins vegar ekki og Gunnar Jónsson, sem fylgt hafði vel á eftir, skallaði örugg- lega í tómt markið, 1—0 fyrir IA. Þá var komið að ÍA að sækja meira, en þá var eins og við manninn mælt. UBK skoraði. Sig- urður Grétarsson og Jón Einars- Sigurlás lék KR-inga grátt SIGURLÁS Þorleifsson. miðherj- inn snjalli úr Eyjum, lagði i gærkvöldi grunn að öruggum sigri Eyjamanna yfir KR-ingum í Laugardal, 1—3. Sigurlás skor- aði tvö af mörkum Eyjamanna og lagði hið þriðja upp. Hann er nú markhæstur leikmanna 1. deildar með 10 mörk. Þar af hefur hann skorað 7 i þremur siðustu leikj- um ÍBV í 1. deild. Varnarmenn KR réðu ekkert við Sigurlás; með leikni sinni og hraða gerði hann Sigurlás skoraði tvivegis í gær- kvöldi og er nú markahæstur í 1. deild. oft mikinn usla í vörn KR og snjallar sendingar hans sköpuðu iðulega hættu. Falídraugurinn færist nú sífellt meir yfir KR. Af leik þeirra í gærkvöldi var fátt sem benti til að vesturbæjarliðið væri að rétta úr kútnum. Þvert á móti; liðinu virðist fara aftur með hverjum leik. Vonleysi virðist hafa heltekið leikmenn; uppgjöf. Sigurlás skoraði fyrsta mark sitt á 11. mínútu. Jóhann Georgs- son átti þrumuskot frá vítateig. KR:ÍBV 1:3 Stefán Jóhannsson, markvörður KR varði, en hélt ekki knettinum og Sigurlás fylgdi vel eftir og skoraði af öryggi. Á 32. mínútu var Sigurlás aftur á ferðinni. Fékk langa sendingu fram, sá að Stefán hafði hætt sér of framarlega og vippaði knettinum yfir hann úr vítateigshorninu og í netmöskvun- um hafnaði knötturinn, laglega gert hjá Sigurlási. Á 43. mínútu fékk Sigurlás sendingu upp vinstri kantinn. Lék á Gísla Felix Bjarnason eins og hann hreinlega væri ekki til; ekki eina skiptið í leiknum, lék síðan upp að endamörkum og gaf góða sendingu út á vítateigslínuna á Viðar Elíasson, sem skoraði með föstu skoti undir Stefán Jóhanns- son, 0—3 og öruggur sigur ÍBV í höfn. KR tókst að minnka muninn á 31. mínútu síðari hálfleiks. Þá skoraði Börkur Ingvason með skalla eftir að þrír KR-ingar höfðu snúið á rangstöðutaktík Eyjamanna. En sigri Eyjamanna varð ekki ógnað. Þeir voru nær að bæta við mörkum en KR að skora. Bæði Sigurlás og bróðir hans, Kári áttu góðar tilraunir. Sanngjarn sigur ÍBV í höfn; Eyjamenn sigla nú lygnan sjó í 1. deild og geta einbeitt sér að bikarkeppni KSÍ, þar sem þeir eru í undanúrslitum. KR á hins vegar fyrir höndum erfiða fallbaráttu og sannast sagna virðast KR-ingar hvorki hafa mannskap né þann baráttuanda, sem þarf til að forðast fall í 2. deild. Dómari í Laugardalnum var Magnús Pét- ursson. Hann og Sigurlás voru beztu menn vallarins; enda Magn- ús einn albesti dómarinn okkar. H.Halls. Framarar heppnir FRAM sigraði Þór i 1. deild íslandsmótsins i knattspyrnu á Akureyri i gærkvöldi. Sigur- ganga Fram heldur þvi áfram, en jafntefli hefðu verið sanngjörn- ustu úrslitin miðað við þau tæki- færi sem liðin fengu. Lokatölur urðu 2—1, en staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Fram. Pétur Ormsiev skoraði bæði mörk Fram en þau komu á 20. mínútu eftir hrikaleg varnarmis- tök Þórsara, og á 57. mínútu, er Pétur skoraði með þrumuskoti. Guðjón Guðmundsson skoraði mark Þórs eftir slæm varnarmis- tök Framara á 68. mínútu og eftir það sóttu Þórsarar látlaust. Á síðustu mínútunum varði Guð- mundur markvörður tvívegis á ævintýralegan hátt hörkuskot Guðmundar Skarphéðinssonar, ÍA:UBK 3:3 son spiundruðu þá saman vörn ÍA og það kom í hlut Jóns að skora með föstu skoti frá markteig. Þetta var á 35. mínútu. Skagamenn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og skoruðu strax á 49. mínútu með aðstoð Guðmundar Ásgeirssonar í marki UBK, sem missti undir sig fyrir- gjöf Guðjóns Þórðarsonar frá hægri. Gunnar Jónsson var aftur réttur maður á réttum stað og í netinu hafnaði knötturinn, 2—1. Og Skagamenn komust í 3—1 á 67. mínútu, er Guðbjörn Tryggvason skoraði laglega eftir góða sóknar- lotu Sigurðar Lárussonar og Kristjáns Olgeirssonar. Að svo komnu féllu Skagamenn í þá gryfju að slaka á og gengu Blikarnir umsvifalaust á lagið. Sigurjón Kristjánsson minnkaði muninn er hann skoraði úr þvögu á 77. mínútu og tíu mínútum síðar, eða þremur mínútum fyrir leiks- lok, tókst Hákoni Gunnarssyni að jafna með glæsilegu skallamarki eftir hornspyrnu Sigurðar Grét- arssonar. Jón Alfreðsson og Sigurður Lár- usson báru nokkuð af í liði ÍA, einnig hinn markheppni Gunnar Jónsson. Blikarnir voru jafnari, þó virtust varnarmennirnir Ómar Rafnsson og Valdemar Valde- marsson sterkastir, ásamt Jóni Einarssyni í framlínunni. í stuttu máli; íslandsmótið 1. deild: ÍA — UBK 3-3 (1—1) Mörk ÍA; Gunnar Jónsson (2) og Guðbjörn Tryggvason Mörk UBK: Jón Elnarsson, Sigur- jón Kristjánsson og Hákon Gunn- arsson Spjöld: Engin. Dómari: Þóroddur Hjaltalín Áhorfendur: 850. HG./gg. Þór: Framl;2 sem auk þess átti hörkuskot í þverslá fyrr í leiknum. Guðmund- ur ásamt Pétri Ormslev var yfir- burðamaður í liði Fram, en Guð- mundur Skarphéðinsson frískast- ur í frísku liði Þórs. Að öðru leyti var um skemmtilegan leik að ræða í góðu veðri. EP./gg. Margir leikir MARGIR leikir eru á daKskrá á Islandsmót- inu í knattspyrnu i kvóld. allir hefjast klukkan 20.00. f 1. deild mætast Vlkin«ur ok Valur á I>auKardalsvellinum. en FH ok KA á Kaplakrika. í 2. deild eÍKast viA VölsunKar ok IBK á Húsavik. Haukar ok Skalla-Grimur á llvaleyrarholtsvelli. ÍBÍ ok I’rottur N. á ísafirói ok loks Reynir ok Selfoss i Sand- Kerði. Bracey aftur til Fram Úrvalsdeildarlið Fram i körfuknattleik hefur ráðið Bandaríkjamanninn Val Bracey til sin sem þjálfara og leikmann fyrir komandi keppnistimabil. Fram var i 1. deild síðasta vetur og Bracey gerði þá góða hluti með lið- inu. Þótti hann með snjallari Bandarikjamönnum sem hér lék. Guðsteinn hættir Guðsteinn Ingimarsson, körfuknattleiksmaðurinn sterki úr Njarðvík, hefur til- kynnt Einari Bollasyni Iands- liðsþjálfara, að hann gefi ekki kost á sér i landsliðið á komandi keppnistimabili. Reyndar mun enn á huldu hvort hann svo mikið sem leiki með Njarðvikurliðinu. en það á eftir að skýrast. Engin ur- valsdeild?! FRESTUR sá sem úrvals- deildarfélögin i körfuknatt- leik hafa tií að tilkynna þátt- töku sina í næsta fslandsmót rennur út á laugardaginn. t gær var ekki ein einasta umsókn farin að berast og ef ekki rætist úr er ljóst að seta í mótanefnd verður allt að þvi sældarlif. Annars er þetta ekki ný hóla, þvert á móti mjög forn bóla. Áður en yfir lýkur sjá félögin að sér og tilkynna sig. Þó var einhver vafi með Ármann, sem féll úr úrvalsdeildinni siðasta vetur. Einhver losarabragur er vist kominn á hiutina þar og að minnsta kosti einn af lykil- mönnum liðsins hefur skipt um félag, Kristján Rafnsson. en hann gekk nýlega i KR. Fúannmá foróast meó Aquaseal Aquaseal býður margartegundirfúa- varnarefna á tré. „SUPER“ Alhliða viðarvörn sem hentar mjög vel á illa loftræstum stöðum, t. d. háaloftum og kjöllurum. „CLEAR“ Vörn gegn fúa og skor- dýrum.T. d. á sperrur, hurðir, burðar- virki o. fl. „GREEN“ Ver timbrið fúa og þurra- fúa. Hentar vel á girðingar, garðhús, útihús o. þ. h. „EXTERIOR BROWN“ 2 brúnir litir, Ijós og dökkur. Hefur náttúrulega áferð. Smýgur vel inn í viðinn. „RED CEDAR“ Frábær vatnsvörn. Skerpir eilítið áferð viðarins. Rétt ráð gcgn raka olis OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HF. HAFNARSTRÆTI 5 • REYKJAVÍK SÍMI 24220

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.