Morgunblaðið - 30.08.1981, Síða 2

Morgunblaðið - 30.08.1981, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981 Prjóna- og saumastofur á Norðurlandi: St jórnvöld tryggi af- komu fyrirtækjanna Akureyri. 28. átrúst. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstœðisflokksins, ávarpar fulltrúa á þingi ismanna. 26. þing SUS: Nýr formaður og st jórn kosin í dag SAMTÖK prjóna- og saumastofa á Norðurlandi (SPSN) héldu aðalfund sinn á Akureyri í dag. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var fjallað um hag og horfur í rekstri fyrirtækjanna, sem að samtökunum standa, en þau eru nú 9 talsins. Mikill uggur var í fundar- mönnum vegna þess vanda, sem við er að etja í þessari iðngrein um þessar mundir. Útflytjendur prjónavarnings og prjónafatnaðar hafa, að því er heyrzt hefur, talið sig mæta alvarlegum erfiðleikum vegna styrkingar gengis Evrópu- gjaldmiðla annars vegar og Bandaríkjadollars hins vegar og hafa þess vegna ákveðið að gefa saumastofunum aðeins kost á við- bótarpöntunum á lægra verði en greitt hefur verið til þessa og nemur verðlækkunin allt að 10% og jafnvel meiru. Saumastofurnar telja sig ekki eiga annarra kosta völ en hlíta þessu verði, en þykir afkomu sinni stefnt í fullkomna tvísýnu af þessum ástæðum svo ekki sé meira sagt. Afkoma þeirra gefur tæplega svigrúm til mikillar lækk- unar á verði framleiðsluvarnings þeirra. Hér við bætist að verulegrar tilhneigingar hefur orðið vart í þá átt, að flytja starfsemi og verkefni æ meir frá landsbyggðinni til stærri fyrirtækja á Reykjavíkur- svæðinu og það er þróun, sem SPSN telur afar óheillavænlega. Verkefnaskortur hefur farið mjög vaxandi á Norðurlandi og er nú orðinn mikill og alvarlegur. Dæmi eru þess að saumastofur hafa ekki tekið til starfa aftur eftir sumar- leyfi starfsfólks. Sérstaklega eru „MÉR finnst það alveg með ólíkindum að stjórnvöld láti sér detta það í hug, þvi að þessi gengisbreyting er ekki nægileg til þess að leysa nema hluta af þeim vanda sem frystiiðnaðurinn á í núna,“ sagði ólafur Gunnars- son framkvæmdastjóri Síldar- vinnslunnar hf. á Norðfirði, er Morgunhlaðið spurði hann álits á þeim möguleika að gengismunur- það hin minni fyrirtæki, sem nú þegar eða á næstunni eiga í miklum erfiðleikum. í hinum 9 (voru áður 10) prjóna- og saumastofum, sem standa að SPSN starfa nú nokkuð á þriðja hundrað manns. Þær eru mikil- vægur þáttur í atvinnuiífi margra sveitarfélaga og afkoma og við- gangur fyrirtækjanna snertir mjög hag byggðanna. Atvinnu starfsfóksins er stefnt í fullkomna tvísýnu meðan þetta erfiðleika ástand ríkir þar sem fyrirtækin standa nú höllum fæti af fyrr- greindum ástæðum. Á aðalfundinum í dag var reynt að koma auga á einhverjar leiðir út úr ógöngunum, sem þessi mikil- vægi iðnaður hefur ratað í og hefur einkum verið bent á þessi atriði: 1. Að ullarverð verði ekki hækkað frá því sem nú er. 2. Að ýmis opinber gjöld svo sem laun- askattur verði afnumin á þessum útflutnigsiðnaði til samræmis við til dæmis sjávarútveg og landbún- að. 3. Að hagkvæmari kjör en hingað til hafa fengizt verði á framleiðslulánum til prjóna- og saumastofa. Fundurinn samþykkti að beina því til viðkomandi stjórnvalda að beita sér fyrir lausn framan- greindra vandamála og tryggja afkomu iðnfyrirtækjanna innan SPSN, sem eru svo mikilvæg fyrir atvinnuöryggi fólksins í þeim byggðarlögum þar sem þau starfa. Stjórn SPSN var endurkjörin á fundinum, en hana skipa þessir menn: Hannes Baldvinsson, saumastofunni Salín Siglufirði, formaður, Zophanías Zophanías- son, Pólarprjóni Blönduósi og Guðmundur Lúðvíksson, Útskál- um Raufarhöfn. inn vegna síðustu gengishreyt- ingar yrði látinn renna í Verð- jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. „Það liggur fyrir að tapið í frystiiðnaðinum er sex til sjö prósent og ég mundi kalla það tilræði við þennan atvinnuveg að láta gengismuninn renna í sjóð- inn. Það þarf að kippa vanda frystiiðnaðarins í áður í lag,“ sagði Ólafur. IsalirAi. 29. áKÚst. Frá Ólafi Júhannssyni, blaAamanni MorKUnblaAsins. STÖRFUM 26. þings Sam- bands ungra sjálfstæð- ismanna var framhaldið í Hnífsdal í dag. Nefndir hófu störf um klukkan 9 i morgun og unnu að gerð ályktana, sem bornar verða undir at- kvæði siðdegis í dag. Þegar nefndir höfðu lokið störfum sínum, flutti Jón Magnússon, formaður Sam- bands ungra sjálfstæð- ismanna, skýrslu stjórnar og Olafur Helgi Kjartansson, gjaldkeri, gerði grein fyrir reikningum sambandsins. Miklar umræður urðu um reikninga sambandsins og svaraði gjaldkerinn fyrir- spurnum þar að lútandi. Þá verða lagabreytingar ræddar í dag og mál afgreidd. Síðdegis í dag verður farið í skoðunarferð um ísafjörð og nágrenni, en að ferðinni lok- inni verður knattspyrnukapp- leikur og keppa þar stjórn SUS og landsbyggðarúrval gegn stjórn Heimdallar. í kvöld verður hátíðarkvöld- verður og dansleikur. Á morgun, sunnudag, verða almennar umræður og af- greiðsla mála. Að þeim lokn- um verða kosningar, þar sem nýr formaður og stjórn Sam- bands ungra sjálfstæð- ismanna verða kosin. Að því loknu verður þingi slitið. SJÓNVARPIÐ hcfur lagt bann við því að birt verði oftar auglýs- ing frá Getraunum, þar sem i auglýsingunni mun hafa verið notað í óleyfi efni úr ensku knattspyrnunni, sem Sjónvarpið hefur keypt og þegar sýnt. Aug- lýsingin hafði birst tvivegis áður en hún var stöðvuð, og sáust þar glefsur úr nokkrum knattspyrnu- leikjum f Englandi, sem sýndir hafa verið i sjónvarpinu, og teknir Sambands ungra sjálfstæð- LjÚKmyndir Úllar Jón Magnússon, formaður SUS, setur 26. þing Sambandsins. þaðan upp á myndsegulband til notkunar í auglýsingunni. „Efnið í auglýsingunni er kvik- myndað af sjónvarpsskermi, það er ekki vafamál, og við verðum að gæta hagsmuna þeirra fyrirtækja sem við kaupum efni af. Það var ekki um annað að ræða en að stöðva auglýsinguna á þessum for- sendum. Við myndum alltaf grípa til okkar ráða ef fleiri tilfelli af þessu tagi kæmu upp, en við höfum ekki orðið vör við þau,“ sagði Pálína Oddsdóttir, skrifstofustjóri Sjónvarpsins. Auður Óskarsdóttir, auglýsinga- stjóri Sjónvarpsins sagði, að gjör- samlega væri bannað að taka efni úr sjónvarpsþáttum vegna auglýs- inga. í gær tókst ekki að ná í forráðamenn Kviks sf., sem gerði auglýsinguna, þar sem þeir eru í útlöndum. Forstöðumaður Get- rauna hafði á hinn bóginn eftirfar- andi að segja er málið var borið undir hann: „Já, það er rétt að þessi auglýs- ing var stöðvuð af Sjónvarpinu, eftir að hún hafði birst bæði á þriðjudag og miðvikudag," sagði Sigurgeir Guðmannsson, forstöðu- maður Getrauna, er Morgunblaðið bar málið undir hann. „Ástæðan, sem þeir gáfu upp var sú að við hefðum „stolið“ birtinga- rétti á efni er Sjónvarpið hefði keypt, það er úr ensku knattspyrn- unni. Það er best að auglýsinga- stofan svari þessu frekar, en mér finnst málið vera hrein della af hálfu Sjónvarpsins. Þessar myndir eru til hér úti um allan bæ í myndsegulbandakerfum, en síðan er okkur bannað að greiða Sjón- varpinu fyrir að sýna brot úr þeim,“ sagði Sigurgeir að lokum. Hafréttarfundinum lokið árangur eftir atvikum segir Hans G. Andersen Frá Eyjólfi K<»nráð Jónssyni i Gcnf. „ÞAÐ SEM áður var óformlegt uppkast að hafréttarsáttmála hefur nú fengið stóraukið gildi,“ sagði Hans G. Andersen, for- maður íslenzku sendinefndarinn- ar. á hafréttarráðstefnunni i Genf í samtali við Morgunblaðið I lok funda hennar í gærkvöldi. „Þetta var því árangursrikur fundur eftir atvikum.“ Viðtalið við Hans fcr hér á cftir: Náðist einhver árangur á þess- um fundi? „Mér finnst enginn vafi leika á því, að þetta hefur verið árangurs- ríkur fundur eftir atvikum. Það var aiveg nauðsynlegt að skýrt kæmi í ljós hvort breytingatillög- ur Bandaríkjamanna hefðu stuðn- ing á ráðstefnunni og nú er Ijóst að þeir geta ekki búizt við að ná grundvallarbreytingum fram. Þess vegna verður að vænta þess að á næsta fundi verði málin rædd í ljósi þeirrar staðreyndar og vonandi næst þá samkomulag. Fundurinn hefur einnig verið notaður til að vinna áfram að ýmsum málaflokkum, sem ekki hefur náðst samkomulag um, svo sem aðild að samningnum, undir- búningsnefnd og afmörkun svæða. Hefur öllum þeim málum miðað verulega áleiðis. Textanefnd hefur gert mörg- hundruð breytingatillögur um samræmingu á tungumálunum 6 og langflestar þeirra hafa verið afgreiddar og er það mikils virði." Er uppkast hafréttarsáttmálans óbreytt að megin efni? „Allt það, sem okkur varðar mestu, er óbreytt, en höfuðatriðið er, að það sem áður var óformlegt uppkast hefur nú fengið stóraukið gildi og nálgast nú að vera form- legur, endanlegur texti." Býstu við að næsti fundur verði jafn losaralegur og sumir fyrri fundir? „Starfstilhögun næsta fundar hefur nú verið fastákveðin þannig að tímamörk eru sett fyrir hvert stig endanlegrar afgreiðslu. Ráðstefnan hefur nú ákveðið og forseti hennar lagt áherzlu á það að næsti fundur í New York, 8. marz til 30. apríl, verði lokafundur ráðstefnunnar og starfsáætlun er stranglega miðuð við það.“ Má ioksins treysta því? „Vonandi, en þeir eru komnir með syni sína hingað til að venja þá við,“ sagði Hans hlæjandi. „Samt er þetta kannski merkasta ráðstefna mannkynssögunnar og ábyggilega sú mikilvægasta fyrir Island. Hér er með samkomulagi verið að ákveöa yfirráð yfir tveim þriðjuhlutum jarðkringlunnar." Sv. P. ólafur Gunnarsson, frkvstj. Síldarvinnslunnar hf.: Kalla það tilræði við frystiiðnaðinn - verði gengismunur látinn renna í Verðjöfnunarsjóð Sjónvarpið bannar birtingu auglýsing- ar frá Getraunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.