Morgunblaðið - 30.08.1981, Síða 19

Morgunblaðið - 30.08.1981, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981 19 Tjaldað í Tröllahrauni. Nauðsynlegt er að hlaða skjólgarð umhverfis tjaldið til varnar veðri og vindum. Lífinu tekið með ró. Setið sunnan undir skálanum í Jökulheimum í glampandi sól. Vélsleðamennirnir á leið í Veiðivötn. Við vorum þeim samfara í Veiðivötn og síðar niður að Sigöldu. um og brátt var komin glampandi sól en síðustu leyfar þokunnar voru að leysast upp á fjallatopp- um. Samhliða þessu frysti og batn- aði þá færið mjög, enda veitti ekki af, því áliðið var orðið og enn var talsvert eftir í skálann. Brátt sáum við og þekktum umhverfi skálans og eftir það var síðasti spölurinn léttur, enda tilhlökkun- in mikil, góður skáli og veizlumat- ur sem við áttum þar. Þegar í skálann kom tókum við hraustlega til matar og rann 4-manna skammtur ljúflega niður. Var það ljúf hvíld sem við áttum þá nótt, vel mettir og í góðum húsum. Sólarlandaveður og Heklueldar Föstudagurinn langi rann upp bjartur og fagur. Þennan dag höfðum við ákveðið að halda kyrru fyrir, þurrka útbúnað okkar og hvílast. Frost hafði verið talsvert um nóttina en á pallinum sunnan undir skálanum var skjól fyrir golunni og þar dvöldumst við meiri hluta dags. Hitamælir sem stóð í sólinni sýndi 38°C. Að sumarlagi er fátt sem gleður augað í Jökulheimum. Sandauðnir og ógróin hraun svo langt sem augað eygir. En á þessum sól- bjarta degi, í greipum veturs konungs, virtist okkur umhverfið beinlínis fallegt. Þegar leið á daginn fórum við að undirbúa okkur fyrir áframhald ferðarinnar, pakka saman, smyrja nesti og skíði og fleira. Við höfðum ákveðið að breyta ferða- áætluninni, og í stað þess að fara niður á Síðu tókum við stefnu á Sigöldu. Þetta gerðum við vegna þess að í þessum langvarandi hlýindakafla hafði tekið upp mik- inn snjó á heiðum sunnanlands og leysing var mikil, aurbleyta og krapi. Við þóttumst hins vegar all öruggir um snjó langleiðina niður á Sigöldu. Við lögðum snemma af stað morguninn eftir. Frost hafði verið um nóttina og var færi allgott fyrstu klukkutímana. Um hádegis- bilið var sólbráðar farið að gæta mjög, ísskelin yfir krapablám var orðin ótrygg og auk þess var ösku úr Heklu farið að gæta í miklum mæli. Askan dró mikið úr rennsli og slípaði skíðabotnana illa. Síðari hluta dags vorum við svo heppnir að hitta vélsleðamenn sem höfðu bækistöð í Veiðivötn- um. Þeir ætluðu í bæinn daginn eftir og buðu okkur far með sér sem við þáðum með þökkum. Vorum við þeim síðan samferða í Veiðivötn og gistum þar um nótt- ina. Daginn eftir hélt allur hópurinn af stað áleiðis að Sigöldu á 7 vélsleðum. Um það leyti sem lagt var af stað lagðist þoka yfir svæðið og byrgði alla sýn. Fátt markvert bar til tíðinda á leiðinni, nema hvað einn sieðinn sökk á kaf í krapablá. Vel gekk að ná sleðan- um upp en ökumaður og farþegi fengu kalt bað. Reyndar skildist okkur á þeim vélsleðamönnum að flestir þeirra höfðu fengið kalt bað af þessu tagi á ferð þeirra um þessa páska. Niður á Sigöldu komum við eftir 2 klst. akstur. Má segja að þar hafi lokið rösklega viku öræfaferð. Þrátt fyrir að færi hafi verið mjög óhagstætt var þetta ánægjuleg og eftirminnileg ferð og við komum endurnærðir á sál og líkama til byggða strax byrjaðir að ræða hvert ætti að fara um næstu páska. Guðjón Ó. Magnússon og Þór Ægisson. hefst á mánud fyllir og þéttir á frábæran hátt Evonor 165 - polyúreþan sem fyllir og þéttir milli veggeininga, viö giugga- karma, huröarkarma, kringum rör, rafmagnsleiðslur o.fl. o.fl. Einstakt efni, sem einangrar ótrúíega vel. Evonor 165 er sprautaö i fljótandi formi, en þenst út og harðnar á skömmum tíma. Polyúreþanið rotnar hvorki né myglar, brennur ekki við eigin loga og þolir flest tæringarefni auk vatns, bensíns, olíu, hreingerningarefna og sýra. Úreþanið binst flestum efnum, s.s. steypu, pússningu, tré, spónaplötum og plastefnum. rjuiui annarra þéttiefna og áhalda til þéttingar it GLERBORG HF DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIROI - SIMI 53333

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.