Morgunblaðið - 30.08.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981
23
Gluggi
Norðurlanda
Tveir ungir íslendingar eru með
sjálfstætt fyrirtæki í stærstu
sýningarhöll Norðurlanda
Texti og myndir: Guðný Bergsdóttir
Þeir eru orðnir margir íslend-
ingarnir, sem flust hafa til Dan-
merkur og sest þar að. í dag búa
fleiri þúsund íslendingar þar —
enginn veit nákvæmlega hve marg-
ir — og eru ýmist við nám eða
störf, hafa stofnað þar heimili,
senda börn sín á dönsk barnaheim-
ili og í danska skóla. Sumir vinna
hjá öðrum og eru í mismunandi
stöðum og svo eru aðrir sem reyna
fyrir sér sjálfstætt. Að byggja upp
sjálfstætt fyrirtæki í erlendu landi
er oft erfitt og krefst bæði mikillar
þolinmæði og óhemju vinnu. Þrátt
fyrir það, eru ótrúlega margir
Islendingar í Danaveldi, sem komið
hafa sér upp blómstrandi fyrir-
tækjum. Meðal þeirra framtaks-
sömu ísleninga, sem stofnað hafa
og starfrækja í dag eigið fyrirtæki,
eru tveir ungir menn, Hans
Björnsson úr Reykjavík og Björn
Árnason frá Hafnarfirði. Fyrir-
tæki þeirra heitir STAND-DEKO
og er til húsa í stærstu sýningar-
höll Norðurlanda, Bella Center.
Áður en sagt er frá þessu
fyrirtæki, væri ekki úr vegi að lýsa
Bella Center eilítið, því þótt fjöl-
margir Islendingar hafi lagt leið
sína í þessa stóru höll, eru þó
margir sem ekki gera sér grein
fyrir þeirri starfsemi sem þar fer
fram. Til gamans má geta þess, að
Laugardalshöllin, sem sýningar-
svæði, er eins og ein lítil sýningar-
deild í samanburði við Bella Cent-
er.
Eins og áður er sagt, er Bella
Center stærsta sýningarhöll Norð-
urlanda, í allt 85.000 fermetrar
undir þaki, en sjálft sýningarsvæð-
ið með útisvæðum e miklu stærra.
Þetta er geipistór þjónustumiðstöð
fyrir allt verslunarlíf á Norður-
löndum og þegar sýningar standa
yfir, er þar ys og þys og þúsundir
gesta dag hvern.
Á hverju ári heimsækja rúmlega
580.000 gestir höllina og fjölmargir
framleiðendur frá flestum löndum
Evrópu sýna þar og kynna fram-
leiðsluvörur sínar á 25 —30 sýning-
um, sem allar eru af bestu hugsan-
legu gæðum, bæði hvað skipulagn-
ingu og vörugæði snertir.
Hér fyrir utan eru þrjár fastar
sýningar, sem opnar eru allan
ársins hring: Tískusýning; sýning
fyrir innbú og húsainnréttingar,
svo og gull- og silfursýning. Þetta
eru um leið sölusýningar og kaup-
endur koma frá flestum löndum
heims til að kaupa vörurnar. Þess-
ar 3ölusýningar og aðrar sýningar í
höllinni, hafa oft verið nefndar
„gluggar" gæðavöru Norðurlanda.
Bella Center er staðsett mitt á
milli flughafnarinnar Kastrup og
miðborgar Kaupmannahafnar.
Auk fyrrgreindra sýninga, eru þar
líka fjölmargar smáverslanir, sem
um leið eru sýningardeildir. Þar á
meðal hefur Sambandið verið með
eina slíka í mörg ár og er þar að
finna allt það nýjasta sem Sam-
bandið framleiðir í fatnaði, bæði úr
íslenskri ull og skinni. Og í ár,
bættist svo önnur íslensk verslun
við, STAND-DEKO, eins og áður er
nefnt. Nafnið STAND-DEKO höfð-
ar til bygginga sýningarbása, inn-
réttinga og skreytinga hverskonar.
Þetta er eina verslunin af þessu
tagi í Bella Center og því hafa
Hans Björnsson og Björn Árnason
góða sérstöðu fram yfir keppinauta
í sömu atvinnugrein, þar sem
fljótlegt og auðvelt er fyrir hina
mörgu sýningaraðila að snúa sér til
þeirra.
„Við sjáum um að búa til hinar
ólíklegustu tegundir sýningarbása,
hvort sem það er fyrir framleið-
endur fatnaðar, véla, húsgagna eða
framleiðendur á öðrum sviðum,"
segja Hans og Björn og bæta við,
að vinnan felist fyrst í því að
teikna básinn í samráði við við-
skiptavininn, síðan byggja hann
upp, mála og skreyta, búa til
auglýsingaspjöld, setja upp ljósa-
„show“ og annað sem viðskiptavin-
irnir kunna að óska. Þeir klæða
jafnvel útstillingarbrúður í föt
þegar á þarf að halda!
En það er þó langt í frá að
viðskiptavinir STAND-DEKO séu
eingöngu sýningaraðilar í Bella
Center, starfssvið þeirra á sér
engin takmörk. Þannig hafa þeir
félagar t.d. líka tekið að sér
verkefni á heimaslóðum, m.a. inn-
réttingar fyrir Prjónastofuna Ið-
unni á Seltjarnarnesi. Einnig hafa
þeir séð um innréttingar í ýmis
fyrirtæki og verslanir í Danmörku.
„Innréttingar í verslanir eru oft
háðar ýmsum dægurflugum, sér-
staklega tískufataverslanir og þess
vegna höfum við teiknað og smíðað
innréttinga-samstæðu, sem auðvelt
er að breyta með mjög litlum
tilkostnaði. Þannig er t.d. hægt að
breyta alveg útliti verslunar, að-
eins með nýjum litum, flutningi á
áður uppsettum innréttingum og er
hægt að gera þetta á mjög stuttum
tíma. Þannig eru margir möguleik-
ar fyrir hendi," segja þeir félagar.
Hans Björnsson, sem búið hefur
um ellefu ár í Danaveldi, stofnaði
fyrst fyrirtækið Björnsson reklame
og var fyrirtækið til húsa rétt við
hina frægu göngugötu Strikið, í
hjarta Kaupmannahafnar. Meðal
annars gerði hann þá mikið af
sýningarbásum fyrir aðila í Bella
Center og á sl. ári þegar hann fékk
tækifæri til að leigja húsnæði í
höllinni, sló hann strax til. Þá
hafði Björn Árnason hjálpað hon-
um við mörg verkefni.
Samstarf þeirra byrjaði snemma
árs 1980 í sambandi við sýninguna
World Fishing og svo leiddi eitt
verkefnið annað af sér. Það var svo
í febrúar í ár, að þeir félagar
stofnuðu STAND-DEKO, um leið
og flutt var í Bella Center. Hans er
lærður innanhússarkitekt og Björn
lærður smiður. Auk sjálfrar versl-
unarinnar, sem þeir félagar hafa
mjög smekklega innréttað, hafa
þeir litla teiknistofu og svo verk-
stæði til stærri verkefna.
Verslunin er opin svo lengi sem
viðskiptavinirnir hafa þörf fyrir
okkur og við seljum timbur, spóna-
Haustnámskeiðin
í manneldisfræði
hefjast næstu daga.
Upplýsingar og innritun í síma 74204.
Kristrún Jóhannsdóttir,
manneldisfræðingur.
Hér standa Björn Árnason (t.v.) og
Hans Björnsson fyrlr framan versl-
un sina i Bella Center.
Eigendur STAND-DEKO hafa sjálf-
ir séð um innréttingu i verslun
sinni og er öllu haganlega fyrir
komið. Á bak við eru teiknistofur
og lítið verkstæði. Fyrirtækið hefur
svo stærra verkstæði á sýningar-
hallarsvæðinu, þar sem aliar stærri
innréttingar sjá dagsins ljós.
Bókstafi í ölium stærðum og gerðum er að finna í STAND-DEKO. Hér
ákveða eigendur fyrirtækisins. Björn Árnason (t.v.) og Hans Björnsson,
hvaða bókstafi skuli nota i verkefni sem þeir eru að vinna að.
plötur, málningu og allt sem þarf
til skreytinga, einnig verkfæri ým-
iss konar og allt sem þarf til
venjulegs skrifstofuhalds. Við
leigjum ennfremur út ýmis raf-
magnsverkfæri og ljósa-„show“,
sjáum um prentun minni prent-
verkefna, teikningar auglýs-
ingaspjalda og handskerum stafi
og texta, sem t.d. eru notaðir í
glugga fyrirtækja og verslana,"
segja Björn og Hans.
Það er dýrt að leigja húsnæðið í
Bella Center, en þeir félagar segja
að það borgi sig vegna þeirrar
sérstöðu sem þeir hafa, nefnilega
að vera á staðnum, þegar þörf er
fyrir þá.
Af öllu þessu er hægt að sjá, að
það eru bæði mörg og spennandi
viðfangsefni, sem Hans og Björn
vinna að, og þau eru jafn ólík eins
og þau eru mörg. Fyrirtækið hefur
þegar marga fasta viðskiptavini og
það er nóg að gera. Þeir vonast líka
til að veltan í ár verði vel á aðra
milljón danskra króna.
Og svo að siðustu, hvers vænta
félagarnir Hans Björnsson og
Björn Árnason sér af framtíðinni?
„Framtíðin? Ja, við vonumst
auðvitað eftir að fá nóg af nýjum
verkefnum, þannig að við getum
lifað vel af þessu og vonumst til að
því lengur sem við verðum hér í
Bella Center fáum við fleiri og
fleiri viðskiptavini. Við álítum
sjálfir að starfið sé ákaflega spenn-
andi og lítum björtum augum til
framtíðarinnar. Að hafa nóg að
gera og gera það svo viðskiptavin-
um okkar líki, hlýtur að vera okkar
framtíðarósk."
SHARP
SKRIFSTOFUVÉLAR
ÞAÐ SEM KALLAST
„EINSTAKIR EIGINLEIKAR“
ÁLÍTUM VIÐ SJÁLFSAGÐAN
HLUT HJÁ SHARP
Berið SHARP SF-741 saman vlð aðrar
Ijósprentunarvélar og sjálð muninn.
Kannið framköliunargæðin.
SHARP SF-741 ijósprentar ekki eingöngu á
allan venjulegan pappír, heldur einnig á
bréfsefni, glærur. teiknipappír, kartonpappír
allt að 200 gr og m.fl. Þurrduftsframköllun
skilar hámarksskírleika
Tveir prentrofar auka möguleikana á prentun
á mismunandi þykkt pappírs, þannig að ávallt
fæst besta mögulega framköllun
sem völ er á hverju sinni.
800 LÍNAN FRÁ SHARP:
SF-850 33 kópíur á mínútu.
Hámarks hraðvirkni. Frábærframköllun
Vinnuhesturinn frá Sharp.
Athugið hve SF-741
er hagkvæm í rekstri.
Hönnun vélarinnar miðast öll við einföldun í
notkun og sem lægstan rekstrarkostnað.
Örtölva stýrir allri vinnslu vélarinnar, sjálf-
virkur stopprofi sparar orku meðan vélin er
ekki I notkun. Prentun beggja megin á hvert
blað lækkar pappírskostnað um leið og
geymsla slíkra gagna útheimtir helmingi
minna pláss.
Fjölritun, notkun kalkipappírs og önnur tíma-
frek vinna verður óþörf því SF-741 Ijósprent-
unarvélin gerir allt slikt margfalt fljótar og
snyrtilegar, auk margsannars.
SF-820 24 kópíur á mínútu með smækkun.
Auðveldar alla skjalavinnslu, meö ótrúlega
möguleika við gerð gagna og sparnað í
geymslu pappírs. Hagræðingurinn frá Sharp.
SF-811 24 kópíur á mínútu.
Allar fáanlegar
með sjálfvirkum
kópíuraðara
og matara.
Hverfisgötu 103, sími 17244.
J