Morgunblaðið - 30.08.1981, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981
43
Wesley Warren
Risner - Minning
Fæddur 11. apríl 1909.
Dáinn 19. ágúst 1981.
Nú er Wess okkar búinn að
kveðja, eftir áralangt stríð við
veilt hjarta, sem oft gerði honum
erfitt fyrir. En þar sem hann hafði
einstaklega mikia lífslöngun og
þrautseigju fékk hann um 20 ára
frest.
Ég get ekki látið vera að minn-
ast þessa kaera vinar nokkrum
orðum, þótt ekki hafi ég í höndum
ártöl eða aðrar upplýsingar sem
venja er að styðjast við, þegar
minnst er liðinna tíma.
Wesley Warren Risner fæddist
11. apríl 1909 í Philadelphiu Pa.,
og bjó þar alla daga síðan. Á
stríðsárunum gekk Wess í herinn
og lá þá ieið hans um ókunna stigu
til ísiands. Árið 1946 giftist hann
Ingunni Ingimundardóttur frá
Keflavík, og lifir hún mann sinn.
í gegnum árin hafa margir
„landar" fengið að kynnast Ingu
og Wess og upplifað dýrðlegar
stundir á heimili þeirra. Alltaf var
heimili þeirra opið öilum þeim
Fjallamara-
þonkeppni
skáta
í TILEFNI tíu ára afmælis
Landssamhands hjálparsveita
skáta. hefur verið ákveðið i sam-
ráði við Skátabúðina, að gangast
lyrir fjallamaraþonkeppni. Til-
gangur keppninnar er að efla
félagsanda og samheldni félaga
hinna ýmsu björgunarsveita
ásamt þvi að auka áhuga þeirra á
göngu og gildi líkamlegrar þjálf-
unar. Einnig að vekja þá til
umhugsunar um góðan og heppi-
legan útbúnað, þannig að þeir
verði sem hæfastir i starfi.
Með þátttöku sinni vill Skáta-
búðin vekja athygli á þeim góða og
vandaða útbúnaði sem þeir leggja
áherslu á. Keppnin felst í því að
komast á sem skemmstum tíma
milli tveggja staða, með viðkomu
á sérstökum eftirlitsstöðum, sem
þátttakendur verða sjálfir að
finna eftir staðarákvörðun með
hjálp áttavita og landabréfs.
Þátttaka er heimil öllum félög-
um í björgunarsveitum landsins.
Keppt verður í tveggja manna
liðum og er hverri björgunarsveit
heimilt að senda eins mörg lið og
hún óskar. Strangar kröfur eru
gerðar um útbúnað, þannig að
fyllsta öryggis sé gætt.
Keppt verður i opnum flokkum
kvenna og karla á sömu vega-
lengd. Skátabúðin veitir sigurveg-
urunum í hvorum flokki vegleg
persónuleg verðlaun.
Lagt verður af stað úr Land-
mannalaugum laugardaginn 19.
sept. í fyrsta áfanga. Annar
áfangi hefst í Þórsmörk á sunnu-
deginum og lýkur síðdegis sama
dag á Skógum undir Eyjafjöllum.
Ef vel tekst til er vonast til að
hér verði um árvissan viðburð að
ræða, hugsanlega síðar með þátt-
töku almennings.
sem að bæ báru og lágu hvorugt
hjónanna á liði sínu, við að létta
undir, liðsinna og rétta hjálpar-
hönd.
Ég átti þá hamingju að eiga
Ingu frænku eins og systur, fyrst
heima hjá mér um tíma áður en
Inga giftist, en síðan var heimilið
þeirra Wess og Ingu eins og mitt
annað heimili í Ameríku, og okkar
hjónanna beggja. Voru börnin
þeirra fjögur eins og okkar eigin
börn. Þrír synir þeirra, Róbert,
Warren Ingi og Wayne Eiríkur,
hafa allir þjónað í amerísku her-
þjónustunni. Eiríkur féll í Víet-
namstríðinu árið '68, þá rétt 18
ára. Var þetta sár sem aidrei grær
um heilt, þótt tíminn smátt og
smátt mildi þetta á sinn hátt með
hjálp Guðs og góðra vina. Yngst af
börnunum var dóttir þeirra Hel-
ena. Synirnir tveir hafa báðir
kvænst og búa nú á Cape Cod í
Massachusetts, en Helena býr nú í
Philadelphiu, nálægt móður sinni
og verður henni nú mikil stoð, eins
og þau öll.
Við hjónin áttum með þeim
margar dýrmætar stundir í gegn-
um árin og oft var tekið lagið og
var þá gaman að hlusta á Wess
syngja íslensku lögin með sinni
hljómfögru bassarödd, t.d. „Til
Austurhejms vil ég halda". Þetta
eru stundir sem ekki gleymast.
Hann var svo hrifinn af að fá
íslensku fjölskylduna til sín, fyrst
tengdaforeldrana og síðan frænd-
ur, frænkur, mágkonur og svila og
berum við nú öll miklar hlýjar
kveðjur og alúðarþakkir fyrir
óteljandi dýrmætar stundir og
sendum samúðarkveðjur til Ingu
og barnanna og barnabarna.
Guð blessi ykkur öll.
Gunný Marteinsson O’Leary
Videoleigur athugið!
Hjá okkur ffáiö þið myndirnar
Mjög gott úrval mynda, t.d. barnamyndir, gamanmyndir, stríðsmyndir, hrollvekjur,
vestrar, skemmtiþættir, sakamálamyndir, íþróttamyndir. Leiguréttur fylgir öllum
myndum, bæði VHS og Beta.
Heildverslunin Hamrasel sf.,
Bragagötu 22, símar 10377, 27593, 76582.
riska
komin
hljómplata með
ianda-
ántrýsönc ivaran-
um Kenny Rogers.
Sjaldan hefur kappan-
um tekist jafn vel upp
og á bessari
rel í lió
plötu kemur vel i Ijós af
hverju
kallaður
Kenny er jafnan
konungur
anun
nna.
kántrýsöngvara
Fæst i öllum
mplötuversl
KENNY R0GERS -
FÁLKINN S
SHARE
urlandsbrau
jgavegi24 —
sturveri — síi
Y0UR
8 — sími 84670
sími 18670
33360
ni
L0VE