Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981
23
SEPTEM ’81 Á KJARVALSSTÖDUM
„ABSTRAKT
eins og söngur fuglanna“
Rætt viö félaga
í Septem sem
opna 8. sýningu
sína í dag.
í DAG verður opnuð á Kjar-
valsstöðum sýninKÍn Septem
’81. A sýninKunni eru um 80
verk sjö listamanna, en þeir
eru Guðmunda Andrésdóttir,
Jóhannes Jóhannesson, Karl
Kvaran. Kristján Daviðsson,
SÍKurjón Ólafsson, Valtýr
Pétursson ok Þorvaldur
Skúlason.
Við litum inn á Kjarvals-
staði í fyrradag, en þá var
verið að leggja síðustu hönd á
uppsetningu sýningarinnar.
Valtýr Pétursson er formaður
Septem og tókum við hann tali
þar sem hann sat og skráði
málverk sín. Hann sagði þetta
vera áttundu sýningu Septem í
Reykjavík en félagið hefði
einnig staðið fyrir einni sýn-
ingu á Akureyri. „Félagar í
Septem eru allir úr hópi gömlu
meistaranna, ef nota má það
orð,“ sagði Valtýr, einnig að
elztu þátttakendurnir hefðu
fyrst sýnt saman fyrir 34
árum.
Um sýninguna sagði Valtýr:
„Hún er að magninu til abstr-
ökt. Það eru þó skörp skil milli
verka okkar og hver og einn
hefur sinn ákveðna svip. Ég er
ánægður með sýninguna,
ánægðari en oft áður.“ Valtýr
á sjálfur 12 myndir á sýning-
unni, olíumálverk, og eru það
allt verk sem hann hefur unnið
nýverið.
Guðmunda Andrésdóttir er
eina konan í Septem-hópnum
að þessu sinni. Hún á 11 verk,
öll unnin á þessu ári, að
hennar sögn. Aðspurð sagði
hún að eflaust mætti kenna
nokkurra breytinga á stíl.
„Myndir mínar á sýningunni
eru allar unnar út frá einu
ákveðnu efni, sem ég vinn
síðan á ýmsan hátt, fram og
aftur." Guðmunda hefur verið
í Septem frá upphafi og eins í
gamla Septemberhópnum, sem
svo var kallaður.
Karl Kvaran á þarna 13
verk, öll unnin í olíu. „Ohappa-
tala? Nei, nei, en gæti þó alveg
eins verið. Þetta er allt málað
á þessu ári nema ein mynd,
sem ég hef látið standa og
tekið til við á ný. Það getur
verið gott að láta fær standa
einhvern tíma, þá sér maður
nýja fleti og þær nýjar hug-
myndir." Karl er einn af þeim
elztu í hópnum. Hann sagði að
félagar í Septem hefðu haldið
hópinn í áraraðir. „Við sýnum
saman og hittumst einnig
reglulega og röbbum," sagði
hann um tilgang félagsins.
Þorvaldur Skúlason á
þarna átta myndir. „Ég býst
við að þetta sé svipuð lína og
áður, þó veit maður aldrei."
Þorvaldur hefur einnig verið í
Septem frá upphafi. „Auðvitað
hafa orðið breytingar á verk-
um hjá okkur. Fólk þroskast
og þar með hljóta verk þeirra
að fara batnandi, ekki satt?“.
Hann sagðist ánægður með
sýninguna, en það væri gest-
anna að dæma, — þeirra að
vera ánægðir eða óánægðir.
Jóhannes Jóhannesson er
með 10 olíumálverk, máluð á
Sjö íslenzkir
listamenn sýna
um 80 verk.
árunum ’80 og ’81. „Það er
annarra að dæma um hvort
einhverjar breytingar hafa
orðið." Við spurðum hver væri
að hans mati mesti ávinning-
urinn af sýningu sem þessari:
„Að sjá verkin sín annars
staðar en á vinnustofunni
finnst mér mest virði, og ekki
er verra að hafa þau innan um
verk annarra, það skapar vissa
stemmningu. Það er rétt að
myndirnar hér eru flestar
abstrakt, en er það ekki með
abstrakt eins og söng fugl-
anna?“
Síðast ræddum við við
Kristján Davíðsson. Hann er
eingöngu með þrjár myndir að
þessu sinni og ástæðan? „Jú,
ég er að safna að mér verkum
til að setja á yfirlitssýningu
sem haldin verður á verkum
mínum í Listasafni Islands í
októbermánuði." Myndir
Kristjáns eru frábrugðnar öðr-
um á sýningunni. Þær eru þær
einu sem eru undir gleri og
unnar úr indversku bleki, að
hans sögn. „Þær bera samheit-
ið„ Baðstrandarstemmning" og
túlka þá tilfinningu að vera á
baðströnd." Kristján sagðist
eiga um 20 aðrar slíkar mynd-
ir, sem væru nú á sýningarferð
á Norðurlöndum.
Sjöundi listamaðurinn, Sig-
urjón Ólafsson, var ekki
viðstaddur er blaðamaður var
þarna á ferðinni. Sigurjón er
elztur þeirra félaga en þrátt
fyrir það hvað afkastamestur,
að sögn Valtýs Péturssonar.
Hann á 19 listaverk á sýning-
unni, unnin úr tré og járni.
Sýningin Septem ’81 verður
opnuð í dag kl. 14 eins og fyrr
segir og stendur yfir til 20.
september. Sýningin er sölu-
sýning.
, öm&á
Sex af félögunum sjö við eitt af verkum Sigurjóns Ólafssonar, en hann vantar á myndina.
LjÓHm. Mbl. Guójón.
Valtýr Pétursson við mynd sína, sem hann nefnir Guðmunda segir myndir sínar á sýningunni allar Karl Kvaran sagðist ekki hafa gefið myndinni, sem
Rauða kannan. málaðar út frá einu ákveðnu verkefni. Þessa mynd hann stendur við, nafn. „En eigum við ekki bara að
nefnir hún Síðdegi. kalla hana „Vetur“, sagði hann og þar við situr.
„Elektra er nanfið sem myndinni var gefið,“ sagði
Þorvaldur Skúlason um mynd þá ér hann stendur við.
„Ég er orðinn leiður á þessum myndum af listamanni
við hlið málverks. Taktu bara mynd af mér einhvers
staðar,“ sagði Jóhannes Jóhannesson. í baksýn má þó
sjá nokkur verka hans.
Baðstrandarstemmning er samheiti myndaraðar
Kristjáns Davíðssonar, en þær eru unnar með
indversku bleki.