Morgunblaðið - 05.09.1981, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981 29
Náttúruverkir
gerast allýmislegir
eftir Sigurð
Tryggva Thorodd-
sen verkfrœðinema
Þann 18.8. ’81 birtir Hannes H.
Gissurarson hér í blaðinu ritdóm
um 1981-hefti Náttúruverks, tíma-
rits verkfræði- og náttúrufræði-
nema. Þar sem ég sat í ritstjórn
heftisins get ég ekki stillt mig um
að svara nokkrum atriðum þessa
ritdóms, þar sem mér finnst
athugasemda þörf.
Eins og kunnugt er aðhyllist
Hannes Hólmsteinn kenningar
Friedmans og kallar þær frjáls-
hyggju, en eins og margir góðir
menn á undan Hannesi, fellur
hann í gryfju alhæfingarinnar.
Þótt frjálshyggjans sé góðra
gjalda verð á mörgum sviðum —
marxisminn er líka falleg kenning
— þá er hún engin allsherjarfor-
múla sem hægt sé að beita á öllum
vígstöðvum, lífið snýst ekki bara
um það hvort maður verzlar í
Hagkaupi eða Vörumarkaðnum.
Og þegar kemur að nftúruvernd-
armálum er „markaðurinn" alls-
ófær að leysa vandann, eins og
síðar verður rökstutt.
Frjálshyggjukenningin er í
þessum ritdómi teygð og toguð á
alla kanta og hafi menn gaman af
frjálshyggjutogunum þurfa þeir
ekki að ómaka sig annað en lesa
þessa grein Hannesar.
Fyrst lýsir Hannes skilningi
sínum á sóun náttúrugæða:
„Hvenær er náttúrugæðum
sóað? Þeim er sóað ef þau
kosta of lítið, með öðrum
orðum, ef þau eru ekki
verðlögð á markaði. Menn
fara því sparlegar með
benzín sem verð þess er
Það skríða fleiri
skepnur á jörðinni en
homo sapiens og að
mínu mati hefur
ofdrottnun mannsins
gengið of langt og
verðmætin sem felast
í fjölbreyttu lífríki
jarðar verið vanmet-
in.
hærra, og þeir menga því
síður vatn eða loft sem
mengunin sjálf kostar
meira. Spilling og sóun
náttúrugæða eru vegna
þess að markaðsöflin fá
ekki að takmarka notkun-
ina með eðlilegri verðlagn-
ingu.“
Dæmið um benzínið er vissulega
rétt, en nefnum annað dæmi og
fylgjumst með skipbroti kenning-
arinnar. Ymsar hvalategundir eru
ofveiddar og liggur við útrýmingu
sumra (sjá m.a. 1979-hefti Nátt-
úruverks), af því leiðir að framboð
hvaltanna og lyktarefna sem not-
uð eru í bjútíkrem og ilmvötn, fer
minnkandi, en það leiðir aftur til
hækkaðs verðs samkv. markaðs-
lögmálunum. En vegna þess að
sala ilmvatna er óháð verði, ieiðir
þessi þróun ekki til minnkandi
veiði hvala og kenningin siglir í
strand. Hvalfangarar sækja miðin
af enn meiri djöfulmóð þar sem
veiðin verður verðmeiri því færri
hvalir sem eftir lifa. Nú sé ég
Hannes fyrir mér, benda á að mér
hafi orðið á kórvilla ég hafi tekið
fyrir rangan markað, sá rétti sé
markaður sem ráði yfir hvalamið-
unum og haldi verði veiðileyfa
þannig að hvalirnir haldi lífi og
limum. Það er nokkuð til í þessu,
en þessi rétti markaður er bara
ekki til og ekki á næsta leiti. Það
er ekki alltaf hægt að góna út í
blámann og búa til framtíðar-
teoríur, aðsteðjandi vanda verður
að leysa.
Tökum annað dæmi. Hver vill
láta selja aðgang í Landmanna-
laugar eða Þórsmörk? Vonandi
enginn, þó að það myndi vissulega
leysa átroðsluvandann. íslend-
ingar vilja ekki ofurselja landið
einhverjum markaði, heldur hafa
það fyrir sig sjálfa.
í íslensku máli er sögnin að
kosta oftast höfð í samhengi að
kosta einhvern eitthvað. Hannes
segir að mengunin muni kosta
einhvern of mikið, en hann sleppir
úr aðalatriðinu hvern mengunin
muni kosta of mikið. Hérna er
þetta ekki alveg eins einfalt og
með benzínið þar sem varan kost-
ar of mikið fyrir neytandann,
bíleigandann sem borgar fyrir
sína 25 lítra á hundraðið og unir
illa sínum hag. Ég spyr, hvern á
mengunin að kosta of mikið, mig,
þig, volduga einstaklinga, fyrir-
tæki, auðhringa, ríkisstjórnir, al-
múgann eða komandi kynslóðir?
Af tilvitnuninni má helst ráða að
mengunin muni kosta menn
(homo sapiens) of mikið. Þykir
mér mjög líklegt að komi til
árekstra manna í milli við það
kostnaðaruppgjör og ólíklegt að
allir eigi sömu hagsmuna að gæta.
Það skríða fleiri skepnur á
jörðinni en homo sapiens og að
mínu mati hefur ofdrottnun
mannsins gengið of langt og verð-
Sigurður Tryggvi Thoroddsen.
mætin sem felast í fjölbreyttu
lífríki jarðar verðið vanmetin.
Sýrt vatn í Skandinavíu hefur
kostað ýmsa vatnafiska allt of
mikið, þeir hafa dáið út. Ég tel
árekstra hins alfrjálsa markaðs-
kerfis og náttúruverndar óhjá-
kvæmilega og að menn verði á
stundum að velja milli þessara
stefna. Hvar var töfrahendi mark-
aðarins þegar Geirfuglinum var
útrýmt, var þá of miklum ríkis-
afskiptum um að kenna? Nei, þar
vantaði aukna stjórn, friðun!!
Næst tekur Hannes til við að
tíunda góðverk vestrænu iðnríkj-
anna sem hafi m.a. leitt til þess aö
í Afríku geti nú 100 millj. manna
dregið fram lífið en hafi aðeins
verið 1 millj. áður. Hannes telur
það „furðulega ofdirfsku" að halda
því fram að hluti þessa fólks hefði
verið betur kominn óborinn í
þennan heim. Heldur þykir mér
Hannes nú kominn inná línu
kaþólsku kirkjunnar og horfa
blinda auganu á fólksfjölgunar-
vandann.
Hannes heldur áfram:
„I þriðja lagi er sú kening
röng, að bæta megi úr
eymdinni í þriðja heiminum
með því að taka frá vest-
rænum þjóðum. Það hefði
sennilega þveröfugar af-
leiðingar, yrði til þess að
læsa þróunarþjóðirnar inni
í fátæktargildru."
Af þessu má helst ráða að hætta
beri allri aðstoð af því að hún hafi
oft verið misheppnuð, þetta kalla
ég uppgjöf. Ég er ekki inná þeirri
línu að láta holdsveikisjúklinga á
Indlandi halda áfram að hrynja í
sundur þangað til þeir hafa efni á
að borga sanngjarnt markaðsverð
fyrir lyfin. Hannes! hvernig væri
að krydda kenninguna örlítið með
mannúð, þá myndu eflaust fleiri
hafa lýst.
Heldur finnst mér rökvísin
grunn í tilvitnuninni, því ef afleið-
ingarnar verða sennilega þveröf-
ugar því sem kenningin spáir, þá
er kenningin ekki röng, heldur
sennilega röng. Hannes telur í
furðulegri blindni Kremlverja
eina eiga sök á vígbúnaöarkapp-
hlaupinu. Mér er jafnilla við
yfirgang Sovétmanna og Hannesi,
en svo einsýnn er ég ekki að kenna
þeim einum um allan vígbúnað í
heiminum. Hverjir eru að smíða
ægilegasta vopn allra tíma, nift-
eindasprengjuna?
Nei, Hannes, stórveldin eiga hér
öll hlut að máli ef betur er að gáð.
Undir lok greinarinnar lýsir
Hannes gremju sinni;
„Mér finnst gremjulegt,
þegar moðhausar klæðast
búningi mannúðar og ætla
með því að þagga niður í
öllum öðrum. Hvern dreym-
ir ekki um mengunarlausa
tilveru? Hver kýs ekki að
bæta úr skortinum í þriðja
heiminum? Hver sér ekki
eftir fénu sem notað er til
vígbúnaðar á Vesturiönd-
um? Ágreiningurinn er í
rauninni ekki um markmið
heldur leiðir."
Hannes verður gramur þegar
minnst er á vandamálin, til að
vekja umræður, það er alls ekki
ætlunin að „þagga niður í öllum
öðrum“, leiðinlegur misskilningur
hjá frjálshyggjupostulanum, það á
ekki að þagga niður í neinum,
heldur ýta við þeim sem hafa setið
of lengi hljóðir.
INNRÉTTMGAHIJSID kynnir
HTH-eldhúsió!
Síðastliðin vika hefur farið í að endurskipuleagja húsnæðið til
að rýma fyrir einu vinsælasta eldhúsi Norðurlanda, HTH eldhúsinu.
Við höfum fengið einkaleyfi á islandi fyrir HTHeldhúsin,
og viljum gjarnan halda upp á það, með þvf að hafa opið hús,
dagana 5. og 6. september, millikl. 10-18, og þaðeruallirvelkomnir.
Líttu við og skoðaðu hinar fjölmörgu skemmtilegu HTH innréttingar,
og fáðu upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar. Það verður nóg kaffi
handa öllum, og auðvitað blöðrur fyrir börnin.
innréttinga-
Háteigsvegi 3 105 Reykjavík
Verslun sími 27344
L
.^abunnnH e möitíatii^ oyiii.