Morgunblaðið - 05.09.1981, Page 34

Morgunblaðið - 05.09.1981, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981 Faöir minn, ELÍSBERG PJÉTURSSON, bryti, lést þann 3. september. Henning Elísberg. + Faöir okkar, JÓNASJÓNASSON. Lækjarbug, Blesugróf, andaöist í Landakotsspítala þann 3. september. Guómundur Jónasson, Gunnlaugur Jónasson, Jón Jónasson. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUOBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Eyjabakka 6, Reykjavík, lést föstudaginn 28. ágúst. Jarösungiö veröur frá Akureyrarkirkju, þriöjudaginn 8. sept. kl. 14. Haukur Claessen, Hallgrimur Arason, Guórún Ófeigsdóttir, Björn Arason, Kristín Sveinsdóttir, Sígríóur Aradóttir, Björn Finnbjörnsson og barnabörn. t Maöurinn minn, BJARNI SIGBJÖRNSSON, Kleppsvegi 38, Reykjavík, varö bráökvaddur þriöjudaginn 1. september. Fyrir hönd vandamanna, Anna Gunnarsdóttir. t Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GUÐBJARGAR JÓHANNESDÓTTUR, Hamrahlíó 5, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 7. september kl. 13.30. Matthea Pétursdóttir, Siguróur Grétar Eggertsson, Jóhannes Pétursson, Þóra Kristjánsdóttir, Auður Pétursdóttir, Haraldur Finnsson og barnabörn. t Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, GUOMUNDU MARGRETAR SVEINBJORNSDOTTUR, Snorrabraut 69, sem lést 27. ágúst sl., fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. september kl. 10.30. Birna Sigvaldadóttir, Ragnar Karlsson, Kristbjörg Sigvaldadóttir, Ásgeir Sigurðsson, Hrefna Sigvaldadóttir, Ólafur Sígvaldason, Guðbjörg Sigrún Sigvaldadóttir, Kristján Torfason, Aðalheiður Sigvaldadóttir, Gunnar Guójónsson barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför MAGNÚSAR SIGURDSSONAR, fyrrverandi bónda, Björgum, Hörgárdal. Sérstaklega þökkum viö starfsfólki lyfjadeildar Fjóröungssjúkra- hússins á Akureyri, og vistfólki og starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíö. Sigríður Magnúsdótttir, Björn Gestsson, Pálína Magnúsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Margrét Magnúsdóttir, Þóroddur Jóhannsson barnabörn og fjölskyldur. + Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför ÁGÚSTU H. HJARTAR, Safamýri 50. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 4A, Landspítalanum, fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar. F.h. aöstandenda, _ Birna Björnsdóttir. Kveöja: Aðalheiður Svein- björnsdóttir Fædd 24. júlí 1898 Dáin 12. ágúst 1981 Mig setti hljóða, er ég frétti lát minnar elskulegu frænku. Minningar liðinna bernskuára rifjast upp. Fersk er sú mynd af þeim hjónum, Aðalheiði og Kristni, fyrst er þau komu í heimsókn frá Ólafsfirði á heimili foreldra minna hér í Reykjavík, hann svo glaðvær og hvers manns hugljúfi, ávallt tilbúinn að rétta hjálparhönd. Hún falleg, hlý og mild. Árin liðu, kom að því að þau fluttu heimili sitt til Reykjavíkur. Ógleymanlegar eru mér þær stundir sem ég átti hjá þeim í Fagrahvammi. Það var ætíð til- hlökkunarefni fyrir litla stúlku úr Vesturbænum að taka sér ferð og dvelja daglangt hjá þeim mætu hjónum, í návist þeirra í sérlega notalegu umhverfi. Gestrisni þeirra hjóna var ólýsanleg. Ekkert var of gott fyrir aðkomandi. Oft gisti fólk hjá þeim, þá lengra að komið. Hjartarúmið var ómælan- legt, þó að húsrými væri ekki mikið. Dæturnar tvær, Sigurbjörg og Hlíf, giftust og eignuðust börn. Ekki brugðust þau hjón afa- og ömmuhlutverkinu, enda löðuðust börn að þeim, virtu þau og dáðu. Sár var söknuður Aðalheiðar er hún missti eiginmann sinn á besta aldri. Átti hún þá sínar góðu dætur og tengdasyni að, sem önnuðust hana. Aðalheiður fylgdist alltaf vel með sínu vina- og frændfólki. Eftir að undirrituð eignaðist heimili og fjölskyldu, lét frænka mín sér mjög annt um velgengni okkar. Fylgdist hún sérlega vel með dætrum mínum í gegnum árin, gladdist með okkur á góðri stund. Eftir að dæturnar uxu úr grasi, og þær kynntust Aðalheiði, kunnu þær vel að meta hana, og varð hún þeirra uppáhaldsfrænka. Að jafnaði rétt fyrir hver jól fóru þær í heimsókn til hennar. Höfðu þær þá orð á því, að nú væru jólin alveg að koma. Minnisstætt er mér það, sem yngsta dóttir mín sagði að kvöldi 1. desember sl., eftir fagnað á heimili móður minnar, þar sem hún átti merkisafmæli: „Það vant- aði bara aðeins eitt í afmælisveizl- una hennar ömmu, það var það, að hún Aðalheiður frænka gat ekki komið." Hún var því miður veik þann dag, en kom strax og heim- sótti frænku sína um leið og heilsa og kraftar leyfðu. Hún laðaði að sér unga sem aldna, alltaf var stutt í fallega brosið hennar. Gott var að hitta hana, þó oft væri um stutta stund, skilningurinn og hjartahlýjan var mikil. Við hjónin áttum því láni að fagna í júlí sl., að Aðalheiður ásamt Ingibjörgu, systur sinni, og fleiri góðum Skagfirðingum dvöldu hjá okkur eina kvöldstund. Var mjög glatt á hjalla, skrafað, og að sjálfsögðu rifjað upp margt gamalt og gott, reyndar mest frá liðnum árum er dvalið var í Skagafirði, úr héraðinu, sem allir viðstaddir kunnu vel að meta. Verður þetta kvöld vel geymt í minningum okkar sem síðustu samverustundirnar með frænku. Síðastliðin 11 ár hefur Aðal- heiður búið hjá Sigurbjörgu, dótt- ur sinni, og Frans, tengdasyni sinum, og börnum þeirra hjóna. Aðdáunarverð er sú umhyggja og alúð, sem hún naut hjá þeim. Ekki get ég hætt að skrifa þessi síðbúnu kveðjuorð vegna fjarveru minnar Minning: Ingiríður Einarsdóttir frá Vestmannaeyjum F»‘dd 6. febrúar 1902. Dáin 30. ágúst 1981. Fast við girðinguna, sem var í kring um Tivoli, stóð lítið hús. Þar bjó eldri maður, Jón Jónsson að nafni, og bjó einn. Hann gekk oft til okkar, sem þar störfuðum, og fann ég fljótt að honum leiddist stundum einveran. Svo var það árið 1951, að ég sá að þaðan fór að koma út úr húsinu myndarleg kona, Jón var búinn að fá sér ráðskonu. Eg gladdist fyrir hans hönd, þó mér dytti síst í hug, að ég ætti eftir að kynnast þessari konu nánar. Þetta var Ingiríður Einars- dóttir frá Norðurgarði í Vest- mannaeyjum, og er hún til grafar borin í dag. Inga, eins og hún var að jafnaði kölluð, annaðist þennan mann, þar til hann dó 1963. Síðustu ár hans voru Ingu mjög erfið, Jón heitinn lá veikur langtímum saman, og helst vildi hann vera heima, og þá hjúkraði Inga honum. Oft varð hún að vaka yfir honum nótt eftir nótt, og taldi það síst eftir sér. Svo var það síðla sumars 1964, að Inga kemur til mín, og hafði þá haft fréttir af því að okkur hjónunum vantaði húsnæði, og var erindi hennar að bjóða okkur litla íbúð í húsinu hjá sér. En svo hafði Jón heitinn metið mikils hennar hjálp og þjónustu, og kannski ekki ávallt getað borgað mikið kaup, að hann arfleiddi hana að húsinu. Við tókum boði hennar með þökkum og leigðum hjá henni í sjö ár. Inga þráði oft að fara til Vestmannaeyja, þar bjó Guðbjörg systir hennar, ekkja, og börnin flest farin að heiman. Meðan Inga var enn heima í Norðurgarði, hjálpaði hún systur sinni með barnahópinn. Fannst henni alltaf að hún ætti talsvert í börnum systur sinnar, og hafði oft áhyggjur af velferð þeirra. Inga heitin var fremur heilsulít- il, veik í baki og fleira. 1968 var svo komið að hún varð að gangast undir mikla skurðaðgerð, vegna kölkunar í mjöðm. Inga var mjög iðjusöm, og hennar mesta yndi var útsaumur, bæði myndir og í dúka. Þegar systir hennar dó, snemma á áttunda áratugnum, varð það henni mikið áfall, svo voru kær- leikar með þeim systrum miklir. Inga fór þá að hugsa til þess, að koma sér fyrir á heimili, þarsem hún nyti einhverrar umönnunar í ellinni. Og þegar hún sá mögu- leika á því að komast inn á Hraunbúðir, dvalarheimili aldr- aðra í Vestmannaeyjum, var hún fljót að selja húsið sitt, og ánafna dvalarheimilinu andvirðinu, og fluttist þangað 1975. Því miður held ég að Inga hafi aldrei hugsað út í að nú er allt orðið breytt á bernskustöðvunum, ekki eingöngu vegna gossins, heldur var allt hennar skyldfólk flutt þaðan. Ég skrifa þessar línur, sem örlítinn þakklætisvott, fyrir kynni okkar af þessari sérstæðu og örlátu konu, fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur hjónin, að vissu leyti var það gagnkvæmt, við reyndum að styðja hvert annað. erlendis, án þess að minnast á yngri dóttur Aðalheiðar, Hlíf, eiginmann hennar, Svan, og börn þeirra hjóna, sem hafa verið búsett í Svíþjóð nokkur sl. ár. Gaman var að hlýða og horfa á Aðalheiði, er hún minntist á veru sína og tvær heimsóknir til þeirra þar, og alla þá elskusemi og umhugsun til hennar frá þeim í fjarlægð. Reyndar komu þau nokkrum sinnum á þessum árum til íslands, og núna Hlíf ásamt dætrunum tveim til að fylgja mömmu sinni og ömmu siðasta spölinn. Nú er ævisól frænku minnar hnigin til viðar. Hafi hún þakkir fyrir tryggð sína við mig og foreldra mína í áraraðir. Sérstakar þakkir og saknað- arkveðjur frá mömmu minni, sem hefur misst frænku sína og sér- lega góða vinkonu. Saknaðar- kveðjur frá okkur hér í Starrahól- um 10. Guð blessi hana. Innilegar samúðarkveðjur til eftirlifandi ástvina. Guðrún Erna Konan sat hjá henni þegar hún var heima og ég að vinna. Öll sameiginlega reyndum við að halda við litla húsinu, annast garðinn á sumrin og annað sem þurfti að gera, og svo var stundum farið saman í smáferðalög á sumr- in. Það er margs að minnast og margt að þakka, og það viljum við reyna með þessum fátæklegu kveðjuorðum, og um leið vottum við öllu skyldfólki hennar og vinum innilegustu samúð okkar. Guðmundur og Jóna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.