Morgunblaðið - 01.10.1981, Page 10

Morgunblaðið - 01.10.1981, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981 Á myndinni má m.a. sjá hluta vistmanna dagdeildarinnar, en húsnæð- ið er mjög skemmtileKa innréttað oj? fjöldi listaverka í eigu Reykjavík- urborgar prýða veggi. Gerður Steinþórsdóttir flutti ávarp við opnun dagdeildarinnar, og rakti m.a. sögu framkvæmdanna. Ljósm. Mbl. Emilia Mikilvægur hlekkur í þjónustukerfí aldraðra: Opnun dagdeildar aldraðra Á ÞRIÐJUDAG var formlega tekin i notkun dagvistardeiíd aldraðra að Dalbraut 27, Reykja- vík. Fyrstu vistmenn komu til dvalar þann 18. scptember sl. og er gert ráð fyrir að 30 manns gcti dvalist þar daglega á timahilinu 8.00 — 17.00 daglega. alla virka daga. Ilámarksdvalartimi verður fyrst um sinn 3 mánuðir. Forsaga málsins er sú að tölu- verðu rými var óráðstafað í kjall- ara hússins eftir að þjónustuíbúð- ir voru teknar í notkun seint á árinu 1979 og í byrjun árs 1980. í húsinu eru 46 einstaklingsíbúðir og 18 hjónaíbúðir, fyrir samtals 82 íbúa. Um er að ræða sjálfstæðar íbúðir sem jafnframt bjóða upp á mikla þjónustu. í kjallaranum er hluti nýttur fyrir tómstunda- og félagsstarf íbúa hússins og að auki eru þar geymslur. Töluverður hluti var óráðstafaður, en hugsaður til ein- hverrar starfsemi í þágu aldraðra. Á fundi félagsmálaráðs 27. mars 1980 flutti Gerður Stein- þórsdóttir, tillögu um skipun nefndar til að koma fram með hugmyndir um nýtingu þess rýmis sem óráðstafað var, og þá einkum með tilliti til reksturs dagvistar- heimilis 'yr*r aldraða. Tillagan var samþykkt samhljóða. Eftirtaldir aðilar voru síðan skipaðir í nefndina á fundi félags- málaráðs Reykjavíkurborgar þann 10. apríl 1980: Róbert Sigurðsson, forstöðurmaður, Geirþrúður Hild- ur Bernhöft, ellimálafulltrúi og Kolbrún Ágústsdóttir, forstöðu- maður heimahjúkrunar. Á fundi félagsmálaráðs 24. júlí 1980 voru tillögur starfshópsins um rekstur dagdeildar fyrir aldr- aða síðan lagðar fram og sam- þykktar. Við gerð framkvæmda- og fjárhagsáætlunar Reykjavíkur- borgar var svo áætlaður stofn- og rekstrarkostnaður dagdeildar fyrir aldraða. Er ákvörðun var tekin var húsið nánast tilbúið undir tréverk og málningu. Framkvæmdir hófust fljótlega og var verkinu að fullu lokið um miðjan september og eins og fyrr segir komu fyrstu vistmenn til dvalar 18. september sl. Húsnæðið er í vesturhluta kjall- arans að Dalbraut 27 og eru u.þ.b. 350 m að mestu notaðir fyrir starfsemi dagdeildar. Húsnæðið skiptist í stóra dagstofu, sem hægt er að skipta í tvennt með fellihurð ef ástæða þykir til, föndurher- bergi og minna herbergi til ýmiss konar hópvinnu. Tvö hvíldarher- bergi eru þar sem vistmenn geta Eyfirzkar konur safna fé til hjúkrunarheimilis aldraðra NÚ Á laugardaginn munu konur úr kvenfélögum á Akureyri og við Eyjafjörð ganga í öll hús og á alla bæi í flestum hreppum Eyja- fjarðar. Erindið cr að safna fé til hjúkrunarheimilis aldraðra við Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri. en ætlunin cr að fjármagna gerð þess að öllu leyti með fram- lögum heima í héraði. Að sögn forráðamanna söfnun- arinnar ríkir algert neyðarástand í vistunarmálum sjúkra gamal- menna, og má segja að elliheimilin á Akureyri og í Skjaldarvík þjóni nú sem úrlausn dvalarvanda mjög sjúkra gamalmenna, þar sem hjúkrunaraðstaða er þó nánast ófullnægjandi. Talið er að á þjón- ustusvæði sjúkrahússins sé þörf hjúkrunarheimilis eða deildar fyrir a.m.k. 50 manns á ellilífeyr- isaldri, og þar sem enn er ekki lokið nýbyggingu sjúkrahússins, er ekki að vænta þátttöku hins opinbera í byggingu hjúkrunar- heimilis aldraðra. Undirbúningsnefnd, sem hóf störf sl. vor að tilhlutan samtaka áhugamanna um lausn þessa vanda, hefur hafið undirbúning að breytingu hjúkrunarkvennabú- staðarins Systrasels, sem lítið hef- ur verið notaður, í hjúkrunar- heimili. Tilskilin leyfi hafa feng- ist, bæði til viðbyggingar og rekstrardeildarinnar innan véb- anda FSA, og er nú hafin fjársöfn- un til að ljúka megi verkinu og hefja rekstur eigi síðar en á miðju næsta ári. Send voru út bréf til fyrirtækja og félaga, og hafa margir brugðist vel og rausnarlega við. Framlög hafa borist síðustu vikur, allt frá nokkrum krónum, sem börn hafa komið með, upp í 50.000 króna framiög, frá kvenfélaginu Fram- tíðinni og Útgerðarfélagi Akur- eyringa. Margir aðrir hafa lagt fram rausnarlegan skerf, og má segja að nú hafi borist fé og loforð um allt að þriðjungi þeirrar upp- hæðar, sem talin er þörf á, en stefnt er að tveim milljónum nýkróna. Stórt átak verður nú um helg- ina, þegar gengið verður í öll hús — og má segja að fyrirmynd þess- arar fjársöfnunar sé að verulegu leyti komin frá framtaki félaga í Kópavogi, sem riðu á vaðið með slíku framtaki einstaklinga og fé- laga til að gera myndarlegt átak í úrlausn brýnustu öldrunarvanda- málanna. Einar Sigurðsson, skipasmiður (t.v.), sem tók fyrstu skóflustung- una að íhúðum aldraðra á Fáskrúðsfirði, ásamt Jóni G. Sigurðs- syni, sveitarstjóra. (Ljósm. Aibert.) F áskrúðsf jörður: Ibúðir fyrir aldraða Fáskrúðsfirði. 28. soptomhrr. I GÆR. sunnudag. var tekin fyrsta skóflustungan að íhúðum fyrir aldraða á Fáskrúðsfirði. l>að var Einar Sigurðsson. skipasmið- ur. sem það gerði. en hann er heið- urshorgari Búðahrepps og nú áttatíu og fjögurra ára gamall. Ilúsið. sem er á tvcimur ha’ðum. er alls 630 fermetrar. 360 fm á efri ha"ð og 264 fm á neðri ha-ð. Á cfri hæð eru sex íbúðir cn á þcirri neðri er gert ráð fyrir tveimur ein- staklingsíhúðum og aðstöðu til ýmiss konar félagsstarfsemi fyrir ihúa hússins. Ilúsið er teiknað af teiknistofunni „Óðinstorgi" og er arkitekt hússins Helgi Vilhjálms- son. en verkfra-ðitcikningar ann- aðist Vífill Oddsson og sá hann m.a. um útboð á verkinu. Tvö tilboð bárust og var því lægra tekið, en það hljóðaði upp á 2,1 milljón kr. Verktaki er Þor- steinn Bjarnason, húsasmiður hér á Fáskrúðsfirði. Fyrsti áfangi sem var boðinn út, er að gera húsið fokhelt og fullgera það að utan og á því verki að vera lokið í ágúst á næsta ári. í ávarpi Jóns G. Sigurðssonar, sveitarstjóra, sem hann hélt við at- höfnina, kom fram, að sveitar- stjórn Búðahrepps hefur áætlað til verksins um 450 þús. krónur á þessu ári, en á móti koma aðrar 450 þús. kr. frá Húsnæðismálastjórn, sem lánar þannig helminginn af heildarverði hússins. Sveitarstjór- inn lét í Ijós í ávarpi sínu þá ósk til íbúa staðarins og félaga og fyrir- tækja, að allir legðust á eitt um að verki þessu yrði lokið á sem allra skemmstum tíma. Allmargt manna var við skóflustunguathöfnina. — Albcrt Systrasel, sem breyta á í hjúkrunarheimili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.