Morgunblaðið - 01.10.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981
17
Guðmundur Hansen:
Tillagan
út í hött
Málið sótt af meira
kappi en forsjá
„Mér finnst þessi tillaga, að menntaskólinn
taki yfir húsnæðið hérna en nemendur Þing-
hólsskóla fari út um hvippinn og hvappinn,
fáránleg og raunverulega út í hött“, sagði
Guðmundur Hansen skólastjóri Þinghóls-
skóla. „Með þessu væri gengið gróflega á hlut
grunnskólanema og þeirra kostur þrengdur
svo mjög að það gengi hreinlega ekki. Ég hef
starfað í 24 ár að fræðslumálum unglinga og
var með Þinghólsskóla á götunni fyrstu árin
sem hann var starfræktur, — ég þekki það
því vel hvernig er að starfa við slíkar aðstæð-
ur og veit að með þessu myndum við stíga
stórt skref afturábak.
Þessi húsnæðisvandi menntaskólans er bú-
inn að vera lengi til umræðu hér og áður
komið upp hliðstæð deila. í febrúar sl. var
MK með áþreifingar um að komast inn í
Víghólaskóla. Þá urðu mikil fundarhöld í
Víghólaskóla og þeim tókst að hrista þetta af
sér, en eftir það byrjuðu spjótin að beinast að
okkur. Nú skilst mér að skólameistari
menntaskólans hafi farið framá, ef ekkert
verður af þessum flutningum, að MK fengi
einhverjar kennslustofur í Kópavogsskóla.
Þannig er sífellt leitað á grunnskólann til að
bjarga menntaskólanum við. Þeir kennarar
sem um málið hafa fjallað, telja hins vegar að
grunnskólinn þurfi á öllu sinu að halda og
þýði ekki að leysa vandamál menntaskólans á
kostnað grunnskólans.
Stuðningsmenn tillögunnar hafa bent á, að
veruleg fækkun hefur að undanförnu orðið á
nemendum hér í Þinghólsskóla, — hér eru nú
um 250 nemendur en voru mest 450. Hér er
líklega á ferð svonefnd 30 ára sveifla — fjöl-
mennasti árgangurinn hér var 145 nemendur,
en núna í haust komu 61 nemandi í sjöunda
bekk, svipaður fjöldi mun koma inn í skólann
næstu ár en í yngstu árgöngum eru börn
hinsvegar fleiri. Þannig væri ekki ólíklegt að
aðsókn yrði frá 90 til 100 í árgangi næstu
árin. Þá er á það að líta, að nú stendur til að
bygKja um 250 íbúðir í Austurbænum og
verður um 100 úthlutað í vetur. Þetta hefur
að sjálfsögðu þau áhrif að nemendafjöldi
Þinghólsskóla mun fara vaxandi. Þannig er
ég búinn að sýna fram á, að þörf er fyrir
þennan grunnskóla hérna og ef menntaskól-
inn flyttist í þetta húsnæði, þyrfti einfaldlega
að reisa nýjan skóla handa börnunum hér í
Austurbænum.
Menntaskólinn yrði illa staðsettur hér og í
þessu húsnæði hefði hann ekki neina mögu-
leika á að þróast yfir í fjölbrautaskóla eins og
ætlast er til að hann geri. Það gefur því auga
leið að þessi tillaga fellur um sjálfa sig.
Þessi tilhögun að leggja Þinghólsskóla
niður sem grunnskóla og flytja starfsemi
menntaskólans þangað, hefur verið sótt fast
af ýmsum aðilum — mennamálaráðuneyti,
skólameistara MK og bæjarstjórn. Ég tel að
það hafi verið gert af meira kappi en forsjá,
eins og auðséð er ef málið er skoðað í heild
sinni."
Þór Steinarsson:
Vinnuað-
staða kenn-
ara mjög
slæm
Husanleg lausn að MK
flytjist í Víghólaskóla
„Það verður ekki annað sagt en vinnuað-
staða kennara i Menntaskólanum í Kópavogi
sé mjög slæm eins og húsnæði skólans er
háttað," sagði Þór Steinarsson formaður
Kennarafélags MK. „Við höfum t.d. aðeins
eitt herbergi þar sem vinnuaðstaða er fyrir
kennara. Þar erum við með skrifborð fyrir
þrjá og þrjár ritvélar en jafnframt er þarna
fjölritunarvél til afnota fyrir kennara. í
þessu herbergi geta mest unnið fjórir menn í
einu en við skólann eru 22 kennarar. Þá eru
kennslustofur skólans mjög þéttsetnar og að-
staða til kennslu mjög slæm.
Sú aðstaða sem við fengjum í Þinghóls-
skóla yrði mun rýmri. Kennarastofan þar er
t.d. þrisvar til fjórum sinnum rýmri og þar
eru ein fjögur vinnuherbergi fyrir kennara,
og auk þess önnur vinnuaðstaða. Mér skilst
reyndar að eins og málum er komið sé mjög
hæpið að af flutningunum verði. Húsnæðis-
vanda menntaskólans verður hins vegar að
leysa og ekki er nein önnur skyndilausn fyrir
hendi en að fá annað skólahúsnæði í bænum
undir starfsemi menntaskólans. Það tekur
langan tíma að byggja og ef ráðist verður í
byggingu hlyti hún að miðast við fjölbrauta-
skóla. Ég sé ekki að Kópavogskaupstaður hafi
peninga í slíka byggingu næstu árin.
Að vísu myndi það létta nokkuð á mennta-
skólanum ef leigt væri húsnæði undir verk-
menntabrautir en það myndi þá engan veginn
leysa vanda hans að fullu. Hugsanleg bráða-
birgðalausn er að menntaskólinn fengi hluta
af húsnæði Vighólaskóla — þar eru nú þegar
starfandi fjölbrautir með um 100 nemendum
en veruleg fækkun grunnskólanema við skól-
ann er fyrirsjáanleg. Mætti hugsa sér að
nemendafjöldi á námsbrautum þar yrði auk-
inn eða að menntaskólinn fengi hluta af
kennsluhúsnæði skólans.
En það er að sjálfsögðu alltaf mjög óhent-
ugt að starfrækja skóla á mörgum stöðum og
eru skólamenn yfirleitt ekki hrifnir af slíkri
tilhögun.
Varðandi fundinn sem haldinn var í Þing-
hólsskóla vil ég segja það að fundarstjórn var
þar næsta bágborin og ekki eins og hún á að
vera. Það var búið að fara fram á það við
fundarboðendur að við hjá menntaskólanum
fengjum að halda framsöguræðu ef skólinn
kæmi mikið inn í umræðurnar. Þeir voru
búnir að segja að svo yrði ekki en það brást.
Þó höfnuðu þeir þeirri málaleitan okkar að
við fengjum framsögumann og sögðu að við
gætum skýrt okkar mál í almennum umræð-
um — en þar var tími hvers ræðumanns
takmarkaður við fimm mínútur. Þá hafði
formaður skólanefndar beðið um að fá að
halda stutta ræðu til að kynna innihald til-
lögunnar en var neitað um það. Þetta hvort
tveggja tel ég að hafi spillt fyrir þessum
fundi, hann hefði getað farið betur fram ef
stjórnendur hefðu viljað.
Það er rétt að geta þess hér að við í Kenn-
arafélagi MK höfum sent frá okkur samþykkt
þar sem segir að við tökum ekki neina
ákveðna afstöðu til tillögunnar um að
Menntaskólinn í Kópavogi flytjist í Þing-
hólsskóla, en förum hins vegar fram á að
bæjarstjórn og menntamálaráðuneyti leysi
vandamál fjölbrautaskólans hér sem allra
fyrst. Óskalausn okkar er sú að Kópavogsbær
ráðist í ásamt ríkinu að byggja nýtt skólahús
fyrir fjölbrautaskólann. I þessu sambandi má
benda á að í tillögum framhaldsskólanefndar,
sem lagðar voru fram fyrir nokkrum árum, er
gert ráð fyrir að um 1990 verði allt fram-
haldsskólanám í Kópavogi komið saman á
Víghólaskólalóðinni og gæti það þannig verið
hentug lausn að Menntaskólinn yrði fluttur
þangað á þessum áratug," sagði Þór.
Albert Einarsson:
Tillagan
forkastanleg
Vantar fjölbrautaskóla
fyrst og fremst
„Þetta er alveg forkastanlegt, að láta sér
detta í hug að flytja MK í Þinghólsskóla og
leggja grunnskólann þar niður — þetta er
engin lausn heldur er verið að velta vandan-
um yfir á grunnskólana hér í Kópavogi,“
sagði Albert Einarsson formaður Kennarafé-
lags Víghólaskóla. „Vandi framhatdsskólans
yrði heldur alls ekki leystur með þessu, því
menntaskólinn á enga þróunarmöguleika í
þessu húsnæði og þess ekki að vænta að hann
geti þróast þar í fjölbrautaskóla.
Það mætti hins vegar hugsa sér þá lausn að
settur yrði á stofn fjölbrautaskóli hér í Kópa-
vogi — menntaskólinn myndi hverfa inn í
hann sem bóknámskjarni en fjölbrautaskól-
inn starfa á þrem stöðum til að byrja með: í
Víghólaskóla, í húsnæði Menntaskóla Kópa-
vogs og Þinghólsskóla. Þetta væri hugsanlegt
bráðabirgðaúrræði þar til byggt hefur verið
yfir fjölbrautaskólann.
Eins og þessi mál standa núna eru 100
nemendur við nám á 4 brautum hér í Víghóla-
skóla og næstu ár er rými fyrir nokkurn
fjölda framhaldsskólanema i Þinghólsskóla.
Þessari tilhögun fjölbrautaskólans mætti
koma við án þess að það yrði verulegur baggi
á grunnskólanum. Verknámsdeildir fjöí-
brautaskólans geta hins vegar ekki komist í
neinn þessara skóla — það þyrfti að vinda
hráðan bug að koma þeim fyrir og mætti t.d.
leigja handa þeim iðnaðarhúsnæði þar til
b.vggt hefur verið.
Það hefur allt ofmikið verið um það talað
að leysa húsnæðisvanda menntaskólans hér í
Kópavogi en of lítið verið hugað að því að það
er fjölbrautaskóli sem okkur vantar fyrst og
fremst. Meðan þetta mál hefur verið í deigl-
unni hafa fjölbrautir í Víghólaskóla vaxið
upp í að verða 100 nemenda skóli meðan nem-
endur MK eru 350. Þannig érum við raun-
verulega þegar komnir nokkuð á veg með að
byggja upp fjölbrautafyrirkomulag.
Varðandi þessa gagnrýni sem þú segir að
hafi komið fram á fundinn sem við héldum í
Þinghólsskóla vil ég segja eftirfarandi: Þessir
aðilar sem standa að tillögunni eru búnir að
vera með þetta mál í sínum höndum frá því í
sumar og hafa haft alla möguleika til að
kynna málið frá sinni hlið — en það hafa þeir
hins vegar látið undir höfuð leggjast. Á borg-
arafundi sem haldinn var mánudaginn 14.
þ.m. var líka ákaflega lítið gert til að upplýsa
fólk um þennan fyrirhugaða flutning
menntaskólans. Við töldum það fyrst og
fremst skyldu okkar að vára fólk við hætt-
unni og upplýsa fólk um okkar afstöðu til
málsins. Þá var Ólafur Jens Pétursson með
greinargott yfirlit yfir sögu þessa máls í
framsöguræðu sinni á fundinum og reifaði
það frá flestum hliðum.
Nú hefur trúlega verið komið í veg fyrir að
Þinghólsskóli verði lagður niður sem
grunnskóli og tel ég þennan fund hafa átt
sinn þátt í því. Nú liggur raunverulega fyrir
að stofnsetja fjölbrautaskóla hér í Kópavogi
og vona ég að menn snúi sér heilshugar að því
verkefni og láti ekki gamlar væringar hamla
sér við að ná samstöðu í því máli,“ sagði
Albert.
Þórir Hallgrímsson:
Vonlaus
tilhögun
hvernig sem á
hana er litið
„Samkvæmt þessari tillögu átti mennta-
skólinn að flytjast í Þinghólsskóla en stór
hluti nemenda Þinghólsskóla að flytjast
hingað í Kársnesskóla," sagði Þórir Hall-
grímsson skólastjóri Kársnesskóla. „Með
þessu átti að leysa húsnæðisvanda mennta-
skólans, sem vissulega er fyrir hendi, á kostn-
að grunnskólans — og skerða þar með stór-
lega starfsaðstöðu grunnskólans og framtíð-
arþróunarmöguleika.
Hvað Kársnesskóla varðar, er skólahúsið
einkum hannað með það fyrir augum að yngri
börn sitji skólann, en hér hafa jafnan verið
börn frá 6 til 12 ára. Ef hingað kæmu nem-
endur úr Þinghólsskóla yrðu þeir á aldrinum
frá 13 til 16 ára. Þegar nemendur eru á svona
víðu aldursbili í einum skóla, þarf hann að
vera þannig úr garði gerður, að hægt sé að
skipta nemendum alveg í tvo hópa bæði í
skólanum sjálfum og eins á leiksvæði skólans.
Þá má einnig nefna að skólastofurnar hér eru
mjög litlar og þó hægt sé að hafa 25 börn í
hverri stofu, gildir það ekki um unglinga.
Þetta átti að leysa með því að flytja hingað ?
lausar kennslustofur frá menntaskólanum en
með því móti yrði leiksvæði barnanna skert
verulega.
Enn má nefna, að ef skólamörkum milli
Kársnesskóla og Kópavogsskóla verður
breytt eins og rætt hefur verið um, þannig að
nemendur sæki skóla í Austurbæ, verða þeir
að fara yfir hættulegustu umferðaræðar bæj-
arins. Það hefur verið kvartað undan því að
margsett sé í MK eins og er og nemendur séu
við nám fram á kvöld. Verði nemendur Þing-
hólsskóla settir í Kársnesskóla, þá sé ég ekki
annað en hér verði að kenna frameftir kvöldi
framvegis. Þannig er þessi tilhögun vonlaus
hvernig sem á hana er litið — og það versta
er að hún leysir alls ekki vandamál mennta-
skólans, því það sjá allir að starfsemi hans
yrði allt of þröngur stakkur sniðinn í Þing-
hólsskóla og þar gæti hann aldrei þróast í
fjölbrautaskóla eins og almennur vilji er
fyrir að hann geri,“ sagði Þórir.
Þórir Ólafsson:
MK staðið
sig með prýði
en húsnæðisskortur
heft þróun hans
„Foreldrafélag Menntaskólans í Kópavogi
var ekki stofnað í tilefni af umræðu sem stað-
ið hefur að undanförnu um málefni mennta-
skólans heldur var stofnun þess ákveðin sl.
vetur,“ sagði Þórir Ólafsson, stjórnarmeðlim-
ur hins nýstofnaða Foreldrafélags MK. „Við
höfum ekki tekið afstöðu til hugsanlegs flutn-
ings menntaskólans yfir í Þinghólsskóla,
áhugamál okkar er aðeins að styðja mennta-
skólann í öllu sem til framfara horfir.
Menntaskólinn í Kópavogi hefur staðið sig
með prýði — sem menntaskóli hefur hann
þrátt fyrir þröngt húsnæði og erfið skilyrði
fyllilega staðist samkeppni við aðra mennta-
skóla. Hugmynd okkar var að reyna að stuðla
að því að eitthvað yrði gert til úrbóta varð-
ar.di húsnæðismál skólans.
Við höfum ekki enn komið saman neinum
tillögum varðandi það hvernig vandi mennta-
skólans yrði bezt leystur. Hins vegar finnst
manni að æskilegast hefði verið að það hefði
verið byggt yfir hann þegar að það stóð til
fyrir nokkrum árum. Við höfum þannig ekki
sett okkur inn i hver væri heppilegasta lausn-
in í dag, enda ekki nema nokkrir dagar síðan
við héldum fyrsta stjórnarfundinn.
Við tökum því ekki afstöðu til Þinghóls-
skólamálsins en skiljum ákaflega vel afstöðu
Foreldra- og kennarafélags Þinghólsskóla.
Ég var ekki á fundinum í Þinghólsskóla og
get ekkert um hann sagt. Hins vegar hefur
mér svona á köflum, af því sem ég hef séð
bæði af blaðagreinum og þar sem vitnað er í
fundinn, að það hafi verið ráðist að ósekju á
menntaskólann, því hann hefur þrátt fyrir
húsnæðisskortinn staðið ágætlega fyrir sinu
sem menntaskóli. Auðvitað er æskilegt að
hann fái tækifæri til að þróast sem fjöl-
brautaskóli, eins og almenn samstaða er um.
En meðan húsnæðismálum skólans er háttað
eins og nú, er ekki við því að búast að það
gæti gengið.“
Arinbjörn V. Clausen:
Skólastarf-
ið mjög erf-
itt vegna
þrengsla
Verður að gera úrbætur
fyrir næsta haust
„Við styðjum það eindregið og heilshugar
að MK fái betra og rýmra húsnæði — eins og
búið er að skólanum er skólastarfið mjög erf-
itt,“ sagði Arinbjörn V. Clausen formaður
Nemendafélags MK. „Ef ég lýsi t.d. þeirri
aðstöðu sem Nemendafélagið hefur, til að
byrja með, þá höfum við starfsemi okkar í
smá kompu sem á sínum .tíma var dæmd
óhæf sem vinnustofa kennara. Ef við þurfum
að halda fundi þurfum við að bíða eftir að
losni skólastofa. Hátíðarsalur skólans, sem
svo er nefndur, er aðeins á stærð við eina og
hálfa kennslustofu, og þar er að sjálfsögðu
kennt alla daga.
Skólinn er tvisetinn — kennsla hefst kl. 8 á
morgnana en lýkur kl 7:15 á kvöldin. Þrengsli
eru mikil í kennslustofum, þær eru tiltölulega
litlar en samt er troðið inn í þær frá 25—30
nemendum. Það er að sjálfsögðu mjög erfitt
að kenna við þessar aðstæður og torvelt fyrir
nemendur að fylgjast með.
Við í Nemendafélaginu erum eindregið á
móti því að Menntaskólanum verði skipt
niður í marga skóla hér í Kópavogi — það
myndi þýða hrun á öllu sem gæti kallast fé-
lagslíf. Ef byggt væri yfir skólann gæti hann
haldið áfram að þróast yfir í fjölbrautaskóla
og æskilegast væri auðvitað að öll skóla-
starfsemin yrði á sama stað. Við stöndum
einhuga á bak við þá kröfu að byggt verið yfir
fjölbrautaskóla hér í Kópavogi, bæði nem-
endur og kennarar. Hins vegar er ekki hægt
að bíða lengur eftir auknu skólahúsnæði —
það verður að gera einhverjar úrbætur í síð-
asta lagi fyrir næsta haust.
Yrði MK fluttur í Þinghólsskóla myndi það
leysa okkar vanda, allavega næstu árin. öll
aðstaða myndi þá batna verulega, bæði fyrir
kennara og nemendur. Þarna gæti jafnvel
verið um lausn að ræða sem dygði næsta ára-
tuginn. Ef sú leið yrði farin yrði verknámið
að sjalfsögðu að vera á öðrum stað. Ég tek
það hins vegar skýrt fram, að það vorum ekki
við sem lögðum til að Þinghólsskóli yrði tek-
inn undir menntaskólann eins og gefið hefur
verið í skyn — við viljum aðeins fá fram
viðunandi lausn á húsnæðisvandanum hér.
Á fundinum í Þinghólsskóla lögðum við
nemendur MK fram tillögu sem samþykkt
var samhljóða, og var hún þess efnis, að skor-
að var á menntamálaráðuneyti og bæjaryf-
irvöld að le.vsa húsnæðisvanda menntaskól-
ans þannig að hann gæt þróast yfir í fjöl-
brautaskóla. Á þessum fundi voru allir sam-
mála um að leysa þyrfti vanda menntaskól-
ans en hinsvegar var ekki smkomulag um
hvernig ætti að gera það. Um það má náttúr-
lega þrátta endalaust — aðalatriðið er hins-
vegar að eitthvað verði gert í málinu og það
sem allra fyrst,“ sagði Arinbjörn.