Morgunblaðið - 01.10.1981, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 01.10.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981 27 Klara Tryggva- dóttir - 75 ára Fyrir sjötíu og fimm árum bjó vestur í Gufudal bóndi sá er Tryggvi hét. Hann var hið bezta á sig kominn og gekk mjög í augu kvenna. Það með öðru varð til þess, að hinn 1. október 1906 fæddi Ágústína Magnúsdóttir í Garpsdal meybarn fritt og fagureygt. Kristjana, kona Tryggva, hefur ekki verið neitt smámenni. Þegar hún spurði fáum vikum síðar, að barnsmóður bónda hennar fengi ekki haldið barninu, brá hún skjótt við og sótti reifarstrangann og fór með sem sinn eiginn. Þetta er það fyrsta sem segir af Klöru Tryggvadóttur. — Hún ólst svo upp á vegum föður síns og fóstru næstu ár og fluttist með þeim að Kirkjubóli í Skutulsfirði fimm eða sex ára gömul. Þegar hún var svo komin á tíunda ár, var móðir hennar komin til Reykjavíkur og farin að búa. Eflaust hefur hana langað til að kynnast dóttur sinni og að vera henni eitthvað, a.m.k. óskaði hún að fá hana til sín. Umskiptin urðu Klöru ekkert fagnaðarefni. Bæði var það, að móður sína þekkti hún þá ekki neitt, og svó reyndist stjúpinn óreglusamur. Þótt að vísu væri samt úr nægu að spila heima fyrir, þá er hitt líka víst að ekki fékk Klara notið þess skólalær- dóms sem hún þráði; má vera vegna þess, að hún var ekki nema sautján ára, þegar móðir hennar dó. Næst kann ég það með vissu að segja, að Klara flyzt til Vest- mannaeyja með manni sínum, Hallgrími Júlíussyni, sem hún unni hugástum — og ann enn. Hallgrímur skipstjóri fórst ásamt öllum skipverjum sínum, er skip hans, Helga frá Vestmannaeyjum, rak með bilaða vél í aftaka veðri upp í Faxasker hinn 7. janúar 1950. Það þarf engan speking til að gera sér í hugarlund hve harmur þetta var Klöru, og auðvitað bætt- ust aðrir erfiðleikar við. Húsið var t.d. í skuld, en með ótrúlegri út- sjónarsemi komst Klara hjá að þurfa nokkru sinni að taka lán, þótt börnin væru fimm og tveir yngstu synirnir í bernsku. Allt hefur þetta blessast; börnin kom- ust upp og eru dugnaðarmann- eskjur, — þingmaðurinn, sonur hennar, er t.d. sá manndómsmað- ur að snúa sér að þjóðþrifastörf- um milli þinga og stundar sjó í alvöru, og er enda skipstjórnar- lærður. Valmennið Óskar er sjó- maður, Hallgrímur er viðriðinn flug og Tryggvi, sem er elztur, er vélstjóri. Arndís er húsfreyja í Kópavogi. Þar er löngum fullt hús af gestum, enda finnst hverjum, sem þar stígur inn fyrir dyr, hvort heldur er til langrar dvalar eða stuttrar, að hann sé heima hjá sér og veiti helzt engann átroðning hinum raunverulegu heimamönn- um. Því er þessa getið, að svona mun það hafa verið hjá Klöru í Vestmannaeyjum. Fyrir utan al- menna gesti og unglinga, sem komið var fyrir hjá henni, fyllti hún hjá sér kjallarann og meira til af einstæðingum og einnig fólki, sem enginn vildi hafa eða gat haft, og lét búa þar. Ætli mannkostunum verði nokkuð bet- ur lýst, þótt orðin þar um verði höfð fleiri? Frá því um gos hefur Klara búið í Reykjavík. Hún býr í notalegri og fallegri íbúð, þar sem hún les fagurbókmenntir, sagnfræði og ættfræði og á það reyndar til að skenkja gestum nýja frændur. Það sem hún les, brýtur hún til mergj- ar, og hún kann auðvitað m.a. glögg skil á helztu bókmennta- verkum íslenzkum. Næm tónlist- argáfa er henni gefin og að auki mjög fogur söngrödd, eins og þeim víst öllum Kirkjubólssystkinum. Og ekki má gleyma því, að Klara er afar orðheppin og talar fagurt mál og kjarngott. Hugsun hennar er bein og brotalaus, og hljómmik- il röddin kemur því öllu til skila, en viðtakandinn þarf þá að hafa vit til að lesa úr blæbrigðum radd- arinnar, því Klara kann að beita fyrir sig háði, þegar henni ofbýður einhver endileysan, og stundum segir innileg hlýjan meira en orð- in. Nú er Klara orðin hvít fyrir hærum en augun skær sem fyrr og reisnin hin sama, — drottningar- fas. — Þess má svo geta í lokin, þótt ættfærslum sé sleppt, að í Klötu mætast frá báðum foreldr- um nokkrar þekktustu fyrir- mannaættir landsins. Héðan úr Lárborg eru Klöru sendar hugheilar árnaðaróskir á þessum degi með ósk um, að fram- undan séu mörg góð ár og hún megi um alla framtíð vera umvaf- in nærveru Hallgríms, eins og hingað til, unz þau hittast að nýju á öðru lífsplani — ung og fögur. Þór.Jóh. SPEQLABUÐIN LAUGAVEGI 15 PÓSTHÖIF 1Z97 SÍMI 1963S 121 REYKJAVlK baövörur nýkomnar Hvítt — Beige — Rautt — Brúnt — Onyx lr S'í *• * HAUKUR- MORTHENS Tilhugalíf/Hvert liggur leið Hinn síungi söngvari, Haukur Morth- ens, syngur tvö hugljúf lög á nýju plötunni sinni. Titillagiö er hiö fallega lag „Tilhugalíf“, eftir Nönnu Jóns- dóttur og Hjördísi Morthens og á bakhliöinni syngur Haukur lagiö „Hvert liggur leiö?“ Hljómsveitin Mezzoforte annast undirleikinn af sinni alkunnu snilld, og er þetta plata viö allra hæfi. Heildsöludreifing stoÍAorhf Simar 85742 og 85055 á heJv>mdfild OmKARNABÆR L augavegi 66 — Giæs.bae — Austurstrsti 22 ' Sími trá skiptiboröi 05055

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.