Morgunblaðið - 01.10.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981
39
Minning:
BenediktS. Guðmunds-
son Sandgerði
Hinn 21. ágúst síðastliðinn and-
aðist á Landspítalanum í Reykja-
vík Benedikt S. Guðmundsson, vél-
stjóri í Sandgerði. Hafði hann átt
við erfiðan sjúkdóm að stríða síð-
ustu tvö ár ævi sinnar og gekk
þess ekki dulinn að hverju mundi
draga.
Benedikt Sigurður Guðmunds-
son, eins og hann hét fullu nafni,
fæddist að Nýjabæ, Brimilsvöllum
í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi 16.
apríl 1925. Foreldrar hans voru
hjónin Sumarrós Einarsdóttir og
Guðmundur Ólafsson. Fluttist
hann drengur með foreldrum sín-
um til Ólafsvíkur og tók að stunda
sjó ungur að árum.
Þegar hann hafði aldur til sótti
hann vélstjóranámskeið í Reykja-
vík og aflaði sér réttinda á 500
tonna bátum og minni. Mun faðir
hans hafa flutt að Hólabrekku í
Garði um svipað leyti og sneri
Benedikt því ekki aftur til átthag-
anna. Tók hann að róa sem mótor-
isti frá Keflavík og kynntist þar
mörgum dugandi skipstjórnar-
mönnum, sem hér verða ekki tald-
ir.
Árið 1951 kvæntist Benedikt
eftirlifandi konu sinni, Sigríði
Gunnarsdóttur frá Akurgerði í
Garði, og bjuggu þau nokkur ár í
Reykjavík, en fluttu alfarin til
Keflavíkur 1953. Eignuðust þau
sex mannvænleg börn sem öll eru
á lífi: Þórunn f. 1950, Gift Jóhann-
esi Jóhannessyni tollverði í Kefla-
vík; Guðmunda f. 1954, gift Erlingi
Jónssyni verkstjóra í Sandgerði;
Einar f. 1955, sjómaður ókvæntur;
Leiðbeiningar-
stöð um gerð
þjóðbúninga
TEKIN er til starfa leiðbeiningar-
stöð um gerð íslenzkra þjóðbúninga
á Laufásvegi 2, Reykjavík. annarri
hæð. í húsakynnum Ileimilisiðnað-
arskólans. Leiðbeiningarstöðin er
starfrækt á vegum Samstarfsnefnd-
ar um islenzka þjóðbúninga, sem
starfað hefur frá 1970. 1 nefndinni
eru aðilar frá Heimilisiðnaðar-
félagi íslands, Kvenfélagasam-
handi fslands. Þjéiðdansafélagi
Reykjavikur og Þjóðminjasafni Is-
lands.
Þjóðhátíðarsjóður hefur veitt
styrk til að hefja starfsemi leiðbein-
ingarstöðvarinnar.
Fríður Ólafsdóttir, fatahönnuður
og handavinnukennari, er starfs-
maður leiðbeiningarstöðvarinnar.
Mun hún veita leiðsögn um eldri og
yngri gerðir þjóðbúninga, æskilegt
efnisval, snið og munstur og auk
þess safna heimildum og skrásetja
heimildir um íslenzka þjóðbúninga.
Leiðbeiningarstöðin er opin mánu-
daga klukkan 16—18 og miðvikudaga
klukkan 10—12.
Þjóðbúningur er einn þáttur þjóð-
legra menningarverðmæta, sem
ástæða er til að vernda og leggja
rækt við, svo að þeir afskræmist
ekki, og traust, fagleg leiðsögn gerir
fólki auðveldara að eignast búninga,
sem fylgja hinum upphaflegu gerð-
Eiríkur f. 1960, stundar nám í
Fjölbrautarskólanum í Keflavík;
Katrín f. 1961, unnusti hennar er
Hilmar Hilmarsson sjómaður í
Sandgerði; Gunnar f. 1964, heima.
Eins og fyrr er getið var Bene-
dikt vart af barnsaldri er hann tók
að stunda sjómennsku. Hneigðist
hann mjög að því starfi og fékk
snerrtma brennandi áhuga á út-
gerð. Keypti hann tvo báta 1962,
vélbátana „Tý“ og „Guðmund
Ólafsson". Reyndust þeir ekki vel
og lauk þeirri útgerð með því að
Benedikt varð að selja gott einbýl-
ishús sem hann hafði brotist í að
koma sér upp í Keflavík. En það
var Benedikt síst að skapi að gef-
ast upp þó á móti blési og 1972
kaupir hann í félagi við nafna
sinn, Benedikt B. Guðmundsson,
vélbátinn „Fram“ KE 105. Ráku
þeir hann í sameiningu í nokkur
ár, en 1975 kaupir Benedikt heit-
inn hlut nafna síns í bátnum.
Gekk þessi rekstur vel, enda skipið
gott, og 1978 réðist Benedikt í,
ásamt vini sínum og félaga Svav-
ari Ingibergssyni, að koma upp
beitingarhúsi og veiðarfæra-
geymslu. Virtist nú sem bjartari
tímar í efnalegu tilliti færu í
hönd. En því miður naut Benedikt
ekki lengi þessa meðbyrs, því
haustið 1979 reið fyrsta áfallið yf-
ir er hann hné niður við vinnu
sína. Mun hann þá þegar hafa
kennt vanheilsu nokkra hrlð, þó
ekki hefði hann það í hámælum.
En svo var áhuginn mikill, að eftir
fyrstu spítalaleguna hélt hann
áfram að vinna að verkun aflans,
eins og lítt eða ekki hefði í skorist.
Hafði honum þó verið gert ljóst að
hann gæti ekki átt langt líf fyrir
höndum.
Það sem mest var áberandi I
fari Benedikts var stilling og
æðruleysi. Fæstir þola fjárhagsleg
áföll án þess að tapa gleði sinni að
nokkru, en aldrei fannst það á, að
Benedikt brygði skapi sínu þó að
óvænlega horfði. Er ekki ósenni-
legt að Ægir konungur hafi
snemma kennt honum að taka
með stillingu ágjöfum á lífsins
báti. Og það hefur Jóhannes
tengdasonur Benedikts heitins
sagt mér, að þægilegri manni á sjó
hafi hann sjaldan kynnst, né betri
leiðbeinanda óvaningum og yngri
mönnum.
I einkalífi sínu var Benedikt
farsæll sem best var á kosið. Var
ætíð rausnarskap og gestrisni að
mæta á heimili þeirra hjóna, og
ekki annað að sjá en þar byggi
góður andi innan veggja. Börnum
sínum var Benedikt fremur sem
vinur en strangur stjórnari og er
það fjölskyldunni allri þungur
missir að sjá honum á bak, löngu
fyrir aldur fram. En minningin
um góðan dreng mun lifa í hug-
skoti allra sem til hans þekktu.
18. sept. 1981.
Ingólfur Pálmason
Hártoppar
frá Trendman
Eðlilegir, léttir, þægi-
legir, auðveldir
hirðingu og notkun
Engin verðhækkun
Sérfræðingur frá Trendman verður til viötals á rakarastofu
minni, laugardaginn 3. október, sunnudaginn 4. október og
mánudaginn 5. október. Pantið tíma í síma 21575 og 42415.
Villi rakari Miklubraut 68.
Skotveiðimensa
Harrington & Richardsson Inc.,
RIFFLAR
Boltaction 22 cal., 5 skota, kr. 1610,-
HAGLABYSSUR
Einhleypur 28“ og 30“ hlauplerigd.
Kr. 1417 og 1555
Einnig
SABALA tvíhleypur 3“ magn. Kr. 6888,-
Mikið úrval af skotfærum og byssupokum.
SHtSfflgl ÚTILÍF
'Glæsibæ,
sími 82922.
BJARGVEIÐIHÁTÍÐ 81
Eyjakvöld að Hótel Loftleiðum föstudaginn 2.9. og laugardaginn 3.9.
Fyrsta átthagagleði Hótels Loftleiða verður tileinkuð
bjargveiðimönnum og öðrum Vestmannaeyingum.
Hátiðinni stjórnar Árni Johnsen, en honum til lið-
sinnis verða m.a. þeir Ási í Bæ og Guðjón Ármann
Eyjólfsson.
Kjami matseðilsins verða kræsingar sem aldrei hafa
sést í veitingasölum áður. Hlaðborðið kemur til með
að svigna undir heitum og köldum Eyjaréttum s.s.
reyttir, steiktir, marineraðir og reyktir lundar, létt-
reyktar og nýjar súlur, lundakjötseyði með eyjaberj-
um, o.fl.
Auk þess verður auðvitað gimilegt úrval af
salötum, rófustappa, asíur, agúrkur og
ýmsir meginlandsávextir.
Valdir bjargveiðimenn verða matreiðslu-
mönnum hótelsins til halds og trausts við
matargerðina.
Nú mæta allir bjargveiðisinnaðir íslendingar á
föstudags- eða laugardagskvöldið. Sumir koma
jafnvel bæði kvöldin. f
Boröapantanir í s. 22321 og 22322.
VERIÐ VELKOMIN!
HOTEL LOFTLEIÐIR