Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 21 Strindberg með dætrum sínum Grétu og Karin í Gersau (Sviss) haustið 1886. Um konuna sem hann átti dæturn- ar með, Siri von Essen, skrifaði hann sitt fræga níðrit „Le plaidoyer d’un fou“, sem útleggst „Varnarræða dára“. Hann skrifaði það á frönsku 1887—88 og kom það fyrst á þrykk á þýsku 1893, eða réttara útdráttur úr því. Hið óbreytta frumhandrit kom fyrst í leitirnar fyrir fáum árum. Ástralía var raunar við næsta horn! Þannig leysir fjöldinn heldur ekki hnútinn með tilkomu myndsegulbanda m.a. vegna þess að kaupahéðnar ráða þar mark- aði og fólk er löngu heilaþvegið og sljóvgað fyrir raunverulegu gildismati á skemmtiefni. Það telst fleira vera skemmtiefni og huganum kært en t.d. aula- fyndni, sem er svo vinsæl hér- lendis og t.d. í Noregi. I Noregi er bingó-æði orðið að sjúkdómi og þjóðarmeinsemd á sama hátt og hvers konar afþreyingartæki eru að verða hérlendis. — Og hvað kemur þetta allt Dauðadansi Strindbergs við? spyr nú einhver Því er til að svara, að leikrit Strindbergs höfða til umhugsunar um átaka- mikið svið mannlífsins og svo dauðadans lífsflóttans. Fram kom, að leikritið „Dauðadans- inn“ hafi verið tormelt, valdi þunglyndi og dapurð, menn hafi ekki haft geð í sér að fylgjast með slíkri langloku, og því hafi verið nær að sýna eitthvað „létt- ara“. Ég verð að segja fyrir mig, að ég komst í létt skap við að sjá þessi stórkostlegu leikrænu til- þrif, er verkið bauð upp á, og allt gnæfði það langt yfir annað efni sjónvarpsins um langt skeið. Það er ekki allskostar rétt, að fólk vilji ekki horfa á þetta, en hins vegar eru fordómarnir gagnvart slíku efni svo miklir, að fólk dæmir fyrirfram án þess að horfa né hugsa og eru það einkenni útnesjamennsku, sem er lífseig í íslenzkri þjóðarsál. — Það vildi svo til, að ungur sonur minn, sem er allur í rokk- inu og boltaleikjum, horfði fyrir einhverja dularfulla tilviljun á leikritið í stað þess að fara í knattleik. Ég átti alls ekki von á þvi, að hann hefði gaman af, en raunin var önnur, hann fylgdist með af áhuga og settist svo óþreyjufullur í stólinn sinn, er þráðurinn var tekinn upp aftur seinni daginn. Og það sem meira var, hann hló á sömu stöðum og ég og við litum brosandi hver á annan. Ég var hissa og forvitinn og spurði seinna, hvað honum hafi fundist svona skemmtilegt í leikritinu og hann svaraði með einu orði, hinu sígilda og rök- fræðilega „bara“ ... E.t.v. horfði hann einungis á þáttinn vegna þess að enginn hafði komið því inn á hann fyrir- fram, að þetta væri „lummó", og leiðinlegt. Já, heimurinn væri öðruvísi, ef fólk reyndi að upp- götva það sjálft, hvað hafi raunverulega gildi í heiminum í stað þess að berast með fjar- stýrðum fjöldanum. — Má vera rétt, sem lærðir segja um kyn- slóðabilið, að það sé að minnka í þá veru að ungt fólk hafi ýmis þau einkenni, sem áður hafa nær einungis verið sett í samband við ellina svo sem „depression", þunglyndi, framtíðin dökk og einskis að bíða eða stefna að. Báðir aldursflokkarnir eiga það sameiginlegt að vera ákaflega uppteknir af sjálfum sér. Sjálfs- aðdáunin kemur í ljós bæði á unglingsárum og elli. Lærðir nefna slíka „aldna táninga", þeir virðast komnir á leiðarenda og eru áhugalausir um framtíðina og umhverfi sitt. — Hér er komið að kjarna málsins, að það skiptir megin- máli að vera sér meðvitandi um umhverfi sitt og að vera virkur í sínum tíma. Énginn einstakur finnur til samsemdar og auð- legðar lífsins, sem ekki horfir af áleitinni forvitni í kringum sig og má það telja kjarnann í boðskap Strindbergs. — Og mætti ekki ætla, að slíkt sé meir í ætt við lífsmögu en leiðindi? Styrkið og fegrið líkamann Dömur og herrar Nýtt 4ra vikna námskeið hefst 5. október. Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu. Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Vigtun - mæling - sturtur - Ijós - gufuböð - kaffi. Júdódeild Armanns Ármúla 32. Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13—22 í síma 83295. TÖLVA: Minnisbanki PC1211 — Vasa BASIC tölva Tengjanleg við segulband og prentara. 24 stafir — 7 K BASIC ROM. Forritunarskref 1.424 mesta lýsing. 26 minni til geymslu. Verð kr. 1.700.- með „Play back“. Scientific tölvur — fyrir skólafólk á öllum stigum og þá sem lengra eru komnir EL-506S EL-506S 10 stafir — 46 reikniaðferðir. Innbyggð forritun. Sjálfslökkvari. Er í veski. Verð kr. 320,00 M í W lv«l I * 11»'] |i/»l |aj |«»| EL-5103 — FRÁBÆR TÖLVA 10 stafir — 63 reikniaðferðir. Tekur við formúlum beint. Algebru-formúlureikningur. Lýsandi tölustafaborð. Með 6 minni og 70 forritunarskref. Verð kr. 640,00 @®H[Wl&lQ3iSiSIW Þ/xJ Rótarreikningur. IB Konstanl. [V*l Grunnrót al tölu. PÁl Prósanturelkningur. @ Tll aö flnna % tötu. 0 Veldlsrelknlngur. rr°l Fljótandl Chrystal statlr. IfluI Fluor Poru stallr. [fEj Fastur aukastatur. m Fljótandl aukastatur. H] Mlnnl. ÍSCl Mlnnis tölva. Mlnnis öryggl (mlnni hreinsast ekkl þótl slökkt sé). @ Slekkur á sér sjálf. S Rúnnar at tölur upp og niöur. |P HLJÓMTÆKJADEILD <|jp KARNABÆR B Tóntakkar. HVERFISGÖTU 103 SIMI 25999 J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.