Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTOBER 1981 15 Musica Nova hefur starfsár sitt Nú er starfsár Musica Nova aft hefjast að sumarfríum loknum. Fyrirhugaðir eru fernir tónieik- ar í vetur og verða hinir fyrstu í Norræna húsinu mánudaginn 5. okt. nk. kl. 20.30. Á efnisskrá þessara tónleika eru verk eftir fjóra isienska höfunda: Kvintett f. blásara og Stig f. blásara og slagverk eftir Leif Þór- arinsson, Brek f. flautu og sembal eftir Jón Þórarinsson, Bergabesk f. blásara eftir Þorkel Sigur- björnsson (frumfl. á íslandi) og Romanza f. pianó, flautu og klar- inettu eftir Hjálmar Ragnarsson (frumflutt). Flytjendur á þessum tónleikum verða: Jón H. Sigurbjörnsson, Ein- ar Jóhannesson, Reynir Sigurðs- son, Þorkell Sigurbjörnsson, Helga Ingólfsdóttir og íslenski blásarakvintettinn, en hann skipa: Manuela Wiesler, Kristján Þ. Stephensen, Sigurður Snorrason, Hafsteinn Guðmundsson og Stef- án Stephensen. Af verkefnum Musica Nova síð- ar í vetur má nefna 4 tónverk, sem félagið hefur pantað sérstaklega til að frumflytja á tónleikum sín- um. Þau eru: 1) Kórverk eftir Jónas Tómasson. (Háskólakórinn frumflytur 7. des. nk.) 2) Kammerverk eftir Karólínu Eiríksdóttur. (Signý Sæm- undsdóttir, Einar Jóhannesson, Bernard Wilkinson, Gunnar Kvaran og Guðríður Sigurðard- óttir frumflytja 8. febr. ’82.) 3) Píanóverk eftir Atla Heimi Sveinsson. (Anna Málfríður Sigurðardóttir frumflytur 8. febr.) 4) Tríó eftir Guðmund Ha- fsteinsson. (Nora Kornblueh, Óskar Ingólfsson og Snorri S. Birgisson frumflytja 5. apríl ’82.) Að öðru leyti er í ráði að flytja í vetur verk eftir ýmsa erlenda höf- unda: Peter Maxwell Davies, Luigi Nono, Stravinsky, Xenakis, Eric Satie o.fl. Á tónleikunum 5. okt. nk. verður tónleikagestum gefinn kostur á að kaupa afsláttarmiða á alla tónl- eika Musica Nova veturinn 1981—1982 og ennfremur verður hægt að kaupa miða við inngang- inn á einstaka tónleika. Takmarkió toppurinn fJORDICA áw/t/r Mest seldu skíðaskor heims HORDICA skíðaskór í sérflokki á frábæru verði BARNA- OG UNGLINGASKÍÐASKOR SPRINT Stærðir: 26—30. Verð 226. SPRINT Stærðir: 31—38. Verð 260-295. PULSAR Stærðir: 38—44. SLALOM Stærðir: 36—42. Verð 450. Verð 356. Verð 575. Hreinsanir í Júgóslavíu? liflcrad. 2. okt. AP JÚGÓSLAVNESK stjórnvöld sættu I dag harðri gagnrýni i um- ræðum á þingi og kröfðust marg- ir þingmenn afsagnar háttsettra embættismanna vegna efnahags- legrar óreiðu og getuleysis. Ýmis- legt þykir líka benda til að skammt sé að biða uppstokkunar innan stjórnarinnar og að ýmsir frammámenn verði látnir fara frá. í umræðum um efnahagsáætlun stjórnarinnar fyrir næsta ár, létu margir þingmenn í ljós þá skoðun sína, að kominn væri tími til, að sumir forystumenn yrðu látnir víkja vegna þeirrar kreppu, sem stöðugt einkenndi júgóslavneskt efnahagsiíf. Um efnahagsáætlun- ina sögðu þeir, að hún væri „kast- alabygging í lausu lofti, gersam- lega án tillits til raunveruleikans". I viðtali við Zoran Polic, einn af forsetum þingsins, sagði hann, að þingforsetar ættu að hafa rétt til að krefjast afsagnar embætt- ismanna, sem „ekki geta gætt hagsmuna samfélagsins". í svip- aðan streng hafa aðrir forystu- menn þingsins tekið að undan- förnu, og er það tekið sem vís- bending um að þess verði ekki langt að bíða að hreinsanir verði innan stjórnarinnar. imuliuMWámtiiotmm Litir: Bláir/Rauðir. VENUS Léttir byrjendaskór. Stærðir: 36—42. Litir: Bláir/Rauðir. Litur: Ljósir/Gráir. DÖMUSKIÐASKOR NOVA m/Thermo einangr. Mjög hlýir og léttir. Verð 399. :ærðir: 36-42. erö 599. ZEPHYR Meira kretjandi skór. Stærðir: 37-42. Verð 695. Litur: Ljós/Svart. SCIROCCO Topp-skíðaskór. 1 eður-loöfóóraðir. JUNIOR COMPETITION Stærðir: 36—42. £r % Litur: Ljós/Rauður. LADY COMPETmON Keppnisskór i sérfl. Stærðir: 37— „ W Verö 922. Litur: Grár/Svartur. COSMOS Litur: Hvítur/Blár. Litur: Grár/L.grár. HERRASKIÐASKOR VEGA FORCEtl w* Litur: Ljósir/Gráir. COMPETITION Stærðir: 37-42. Verö 1010. m/Thermo — einangr. Stærðir: 41-47 Verð 599 Topp skiöaskór Stærðir: 41-46 Verð 1052 Litur: Ljósir/Bláir. COMPETITION s Keppnisskór isérfl með Thermo Stæröir » 40-45 Litur: Gráir/Gráir. Litur: Grár/Grár Litur: Svartir Litur: Gráir/Svartir Litur: Svartir t A w w _____ UTKLIF Glæsibæ, \w M mmrnMM símiS2922

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.