Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 1
88 SIÐUR
221. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981
Prentsmiðja MorRunblaðsins.
Khamenei nær
forsetakjöri
- stórsókn í Kúrdistan
Bpirút. 3. október. AP.
ALI Khamenei, formaður Islamska lýðveldisflokksins, var öruKKur
um sigur i írönsku forsetakosninKunum á laugardaK- Hann hafði
hlotið nærri 95% atkvæða þegar þriðjuniíur var talinn, samkvæmt
fréttum útvarpsins í Teheran.
Fjórir frambjóðendur voru í
kjöri í kosningunum sem fóru
fram á föstudag. Khamenei hafði
hlotið 7,4 milljónir atkvæða þegar
7,7 milljónir voru taldar. Enginn
mótframbjóðenda hans hafði hlot-
ið fleiri en 200.000 atkvæði.
Mohammed Reza Kani, forsæt-
isráðherra, dró forsetaframboð
sitt til baka á fimmtudagskvöld og
lýsti yfir stuðningi við Khamenei.
Khamenei sagði að Kani yrði
áfram forsætisráðherra eftir að
hann tekur við embætti.
Khamenei er 42 ára. Hann lifði
af sprengjutilræði í bænahúsi í
Teheran í júní. Hann verður fyrsti
klerkurinn sem tekur við embætti
forseta í íran. Khamenei sagði eft-
ir kosningarnar að hann ætlaði að
reyna að bæta hag hinna bág-
stöddu og vinna að endurskiptingu
auðsins en það var einnig stefna
Rajais forseta, sem fórst þegar
sprengja sprakk í stjórnarráði í
Teheran í ágúst.
Stjórnvöld í íran sögðust hafa
unnið mikinn sigur í bardögum við
Kúrda í norðvesturhluta landsins
í dag. Yfirstjórn hersins sagði að
fimm daga sókn hefði lokið með
árás á borgina Rukan úr fimm átt-
um og borgin hefði náðst úr hönd-
um Kúrda en þeir hafa haft hana
á sínu valdi síðan 1979.
Pars-fréttastofan sagði að borgin
hefði nú verið „frelsuð úr klóm
óvina Islams".
í yfirlýsingu herstjórnarinnar
sagði að mikill fjöldi andbylt-
ingarsinna hefðu fallið og særst í
bardaganum um Bukan. Þar sagði
að með Bukan hefði mikill sigur
unnist og nú væru allaF helstu
borgir og bæir i Azerbaijan-hér-
aðinu nærri landamærum írans
og Tyrklands komin undir stjórn
þjóðstjórnarinnar. Kúrdar hafa
lengi barist fyrir sjálfstæði Kúrd-
istan.
Geysistórt gat
1% alheimsins
\N ashington. 3. okt. AP.
BANDARÍSKIR stjarnvísindamenn hafa fundið tómarúm langt úti
í geimnum — stórt svæði þar sem varla er nokkur skapaður hlutur
— ekkert stjörnukerfi eða reikistjörnur.
Þetta svæði er rúmlega einn af
hundraði hins sýnilega alheims
og á því gætu 2.000 stjörnukerfi
með milljörðum stjarna komizt
fyrir með góðu móti.
Dr. Robert Kirshner við Mich-
igan-háskóla í Ann Arbor sagði í
dag að þetta stóra auða svæði úti
í geimnum væri stærra en nokk-
urt annað slíkt svæði sem áður
hefði fundizt.
„Við höfum lengi vitað að það
væri tómarúm úti í geimnum, en
vissum ekki að það gæti verið í
líkingu við þetta," sagði Kirshn-
er. „Það er miklu stærra en
nokkur gerði ráð fyrir."
Stjörnufræðingarnir sögðu að
þetta „gat“ í geimnum væri um
300 milíjónir ljósára í þvermál.
Vetrarbrautin er aðeins 100.000
ljósár í þvermál.
Kirshner sagði að tómarúmið
væri um 400 milljónir ljósára frá
Vetrarbrautinni og stækkaði,
þar sem stjörnukerfi nálægt
mörkum þess drægjust saman
vegna þyngdarafls síns.
Stjörnufræðingarnir segja að
tómarúmið sé trúlega ekki al-
gerlega tómt og gæti haft að
geyma gasský og kannski jafnvel
lítil sólkerfi sem séu of lítil til
þess að þau sjáist frá jörðu.
Hvað sem því líður er fátt þarna
að finna segja þeir.
2 ræningjar
handsamaðir
MUnster. Vostur hýskalandi. 3. október. AP
VESTUR-þýska lögreglan handtók á laugardagsmorgun tvo vopnaöa
grímukla'dda menn sem héldu sjö manns I gislingu i næstum 20 tima
eftir misheppnað bankarán á föstudag. Engan sakaði.
Bankaræningjarnir höfðu feng-
ið 1 milljón marka greidda í lausn-
argjald fyrir einn gíslinn. Gíslarn-
ir voru í upphafi 10 en tveimur
sem gerðu sér upp veikindi var
sleppt á föstudag.
Mennirnir rændu miðbæjarúti-
bú Volksbankans i Munster
skömmu eftir að það opnaði á
föstudagsmorgun. Starfsmaður
gat hringt neyðarbjöllu áður en
þeir komust leiðar sinnar svo þeir
sneru aftur inn í bankann og tóku
gíslana.
Lögreglan umkringdi bygging-
una og talaði við ræningjana í
síma. Þeir voru klófestir þegar
þeir reyndu að læðast burt með
lausnarféð í bítið á laugardags-
morgun.
„Venun viðbúnir
eríiðum tímum“
Varsjá. 3. okt. AP.
„VERUM viðbúnir erfiðum tím-
um. Gerum ráð fyrir að þurfa að
nota reiðhjól og hesta við að
flytja matinn úr sveitunum.
Astandið á eftir að versna enn,“
sagði Lech Walesa þegar hann
fagnaði endurkjöri sinu sem
formaður Samstöðu, hins óháða
verkalýðssambands i Póllandi. á
ingi þess í gærkvöldi. föstudag.
Póllandi er nú sá orðrómur á
kreiki. að forystumenn Samstöðu
muni brátt hvetja fólk til að
safna mánaðarbirgðum af mat til
að búa sig undir hugsanlegan
skort á vetri komanda.
Walesa, sem hlaut 55% atkvæða
í fyrstu umferð formannskosn-
inganna, mun verða í forsvari
fyrir Samstöðu næstu tvö árin. í
ræðu sinni að loknum kosningun-
um lagði hann áherslu á, að sam-
tökin yrðu að reyna að hafa gott
samstarf við stjórnvöld „en ef það
ber ekki árangur verðum við að
grípa til annarra ráða“. Hann var-
aði þingfulltrúa við og sagði, að
stjórnvöld væru þess umkomin að
koma þeim á kné og að þess vegna
yrði að taka tillit til þeirra. „Þau
geta svelt okkur og þrengt að
okkur á alla lund. Þess vegna
verðum við að vera á varðbergi og
hafa frumkvæðið í samskiptum
okkar við þau,“ sagði Walesa.
I öðrum fréttum segir, að fyrr-
verandi forystumenn kommún-
istaflokksins í Bielsko Biala-hér-
aði hafi verið reknir úr flokknum
en þeir voru á sínum tíma ákaft
gagnrýndir af félögum Samstöðu
fyrir valdníðslu og aðrar sakir.
Sovéska fréttastofan Tass sagði í
gær, að nú „streymdu" bréf úr öll-
um áttum til jwlskra stjórnvalda
þar sem þau væru hvött til að
grípa í taumana og koma á lögum
og reglu. Vitnað var í eitt bréf-
anna og sagt, að „uppákoman í
Gdansk er eins og fyrr sett á svið
af gagnbyltingarmönnum, sem
eiga sér þá ósk heitasta að koma
sósialísku samfélagi fyrir kattar-
nef“.
Austur-þýskur
hermaður flýr
Borlin. 3. okt. AP.
TUTTUGU ok sex ára gamall
austur-þýskur landama'ravörður
flúði í gær yfir Berlinarmúrinn
og hefur nú beðist hælis i Vestur-
Þýskalandi. Hann er þriðji aust-
ur-þýski hermaðurinn, sem flýr
land sitt á átta dögum. að sögn
lögreglunnar í Vestur-Berlín.
24. september sl. tókst tveimur
austur-þýskum hermönnum í borg-
aralegum búningi að komast vest-
ur yfir en áður höfðu þeir lokaí
félaga sinn inni í varðturni til ai
auðvelda sér flóttann. Að sögn lög-
reglunnar var hermaðurinn, sen-
nú flúði, alvopnaður, í einkennis-
búningi og með riffil um öxl, þegai
hann gaf sig fram við lögregluyfir
völd í Spandau-hverfi í Vestur-
flerlín.