Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 43 vildu allt af hendi láta til að fá að hafa þetta unga fólk í kringum sig, fá að miðla því af því sem þau áttu og kunnu. Oft var kátt og hlegið dátt í eldhúsinu, þegar hóp- urinn var saman kominn eftir kvöldmáltíðir til að þvo upp leir- tauið. Þá naut Jóhanna sín vel og hafði gaman af að fylgjast með og skjóta inn athugasemdum. Eitt af áhugamálum Jóhönnu á hennar yngri árum var náttúru- skoðun og ferðalög hér innan- lands. Hún kunni vel að meta feg- urð lands síns. Ferðaðist hún mik- ið, fór oft í gönguferðir og á hest- um um óbyggðir og öræfi. Hún tók þá mikinn þátt í störfum Ferðafé- lags Islands og sat í stjórn þess um tíma. Hún hafði því mikinn áhuga fyrir því að við á heimili hennar lærðum að meta okkar fagra land. Ég minnist gönguferð- anna, sem Jóhanna skipulagði fyrir okkur um nágrenni Reykja- víkur. Óskar ók okkur á leið, en síðan héldum við af stað fótgang- andi. Þær voru margar göngu- og kynnisferðirnar, sem við fórum í hinu fagra umhverfi Reykjavíkur, en sem hefðum ef til vill aldrei uppgötvað nema fyrir handleiðslu góðs leiðbeinanda. Einnig minnist ég lengri ferðalaga með þeim hjónum um sveitir landsins meðan heilsa þeirra leyfði. I ferðum þessum vildu þau ætíð að öll sæti væru setin í bif- reið þeirra og að sem flestir fengju notið ferðarinnar með þeim. Því buðu þau oft kunningj- um sínum með. Á þessum árum var bifreiðaeign ekki eins almenn og hún nú er og voru því slík boð kærkomin. Á ferðalögum þessum kom það vel í ljós hve fróð þau voru um landið og kunnug. Á suð- urlandinu, austan fjalls, virtust þau jafnvel þekkja eða kannast við öll býli og ábúendur þeirra. Jóhanna las mikið þegar tími gafst frá önnum dagsins. Þau hjónin eignuðust flestar þær bæk- ur, sem gefnar voru út hér á landi og ekki voru þýddar. Var undra- vert hvað mikið þau hjón gátu les- ið og hversu fróð þau voru og minnug um flesta hluti. Þau ræddu saman um bækurnar og skiptust á skoðunum á innihaldi þeirra og meðferð efnisins. Einn bróður átti Jóhanna, Brynjólf tryggingaftr., sem var henni mjög kær. Hann var tveim- ur árum yngri og lézt á liðnu ári. Líf Jóhönnu var ekki einvörð- ungu dans á rósum frekar en hjá okkur flestum. Hún naut að vísu margs, stundum umfram marga aðra, en hún þurfti líka að þola margt, stundum umfram marga aðra. Óskar, maður hennar, átti við stöðuga vanheilsu að stríða, sem orsakaði það, að svigrúm hennar takmarkaðist á margan hátt. Á árinu 1961 fékk hún sjálf heilablæðingu og lamaðist alveg á hendi og fæti hægra megin. Einn- ig hlaut hún fleiri áverka af áfalli þessu. Með ótrúlegu þreki og festu reyndi hún með þrotlausum æf- ingum að ná aftur nokkrum kröft- um til að geta sinnt heimili sínu og vakað yfir velferð manns síns, en heilsu hans hrakaði stöðugt. Óskar lézt eins og áður segir árið 1967. Eftir lát hans virtist lífs- löngun Jóhönnu dvína mjög. Sjúkdómur hennar ágerðist stöð- ugt og síðustu árin dvaldi hún á Reykjalundi við einstaklega góða aðhlynningu hjúkrunarfólksins þar. Oft er dauðinn sár og beittur og kemur óvænt, en stundum kemur hann sem líknandi hönd svo sem í þessu tilfelli. Ekki var ætlunin með þessari fátæklegu grein að skrá lífssögu Jóhönnu Magnúsdóttur, þessarar mætu konu, og saga hennar verður kannski aldrei skráð frekar en saga hinna mörgu úrvalskvenna, nema í hug og hjarta þeirra, sem svo lánsamir voru að kynnast henni og eiga hana sem förunaut. Við kveðjum hana með þökk og virðingu. Ég flyt einkadóttur hennar, Þóru, eiginmanni hennar Ara Ólafssyni go börnum þeirra Magn- úsi, Ragnheiði og Oskari Óláfi innilegustu samúðarkveðjur. Kristinn ó. Guðmundsson Jóhanna Magnúsdóttir, fyrrver- andi lyfsali, andaðist 23. septem- ber síðastliðinn. Hún hafði um nokkurt skeið verið elzt kvenstúd- enta á lífi á Islandi, ef miðað er við stúdentsár, en Jóhanna lauk prófi frá Reykjavíkurskóla vorið 1914 og var þá aðeins tæpra 18 ára. Hún var fædd að Árbæ í Holtum hinn 22. júní árið 1896, dóttir hjónanna Magnúsar Torfa- sonar, sýslumanns og alþing- ismanns, og Camillu Bjarnarson. Frú Camilla hafði tekið stúd- entspróf í Danmörku árið 1889 og síðan stundað um skeið háskóla- nám í stærðfræði. Hún var fyrsta konan af íslenzkum ættum, sem stúdentspróf tók og háskólanám stundaði. Þegar Jóhanna, dóttir Camillu, óx úr grasi, var enn næsta sjaldgæft, að konur á ís- landi færu í menntaskóla eða hygðu á lengra nám. Var Jóhanna ein kvenna í stúdentahópnum árið 1914 og aðeins þrjár konur höfðu lokið stúdentsprófi frá Reykjavík- urskóla á undan henni. Eftir stúdentspróf hélt Jóhanna til Danmerkur og lauk cand. pharm. prófi frá Farmaceutisk Læreanstalt í Kaupmannahöfn ár- ið 1919. Heimkomin tók hún til starfa í fræðigrein sinni, fyrst hjá öðrum, en hinn 16. desember 1928 stofnaði hún lyfjabúðina Iðunni í Reykjavík, sem fljótlega varð eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Islandi. Hún rak apótekið í meira en 30 ár, en 1961 varð hún að alía af störfum vegna heilsu- brests. Með lífsstarfi sínu sem lyfjafræðingur og lyfsali hefur hún skipað sér veglegan sess í kvennasögu íslands. Jóhanna Magnúsdóttir gaf sig töluvert að félagsmálum og ún var í hópi þeirra kvenna, sem stofnuðu Félag íslenzkra háskólakvenna hinn 7. apríl árið 1928. Sat hún í stjórn félagsins um hríð og tók lengi virkan þátt í starfsemi þess. Þá hafði hún afskipti af félags- málum apótekara og átti sæti í stjórn Ferðafélags Islands, enda voru ferðalög henni hugstæð. Árið 1939 giftist Jóhanna bekkj- arbróður sínum úr menntaskóla, Óskari Éinarssyni, lækni og fræði- manni. Þau eignuðust eina dóttur, Þóru, bókasafnsfræðing, sem gift er Ara Ólafssyni verkfræðingi. Heimili Óskars og Jóhönnu á Laugavegi 40a var óvanalegt um margt. Þar var stórt og vandað bókasafn og málverk áttu þau mörg og húsbúnað allan, sem sæmdi höfðingjum. Þar var gest- risni í hávegum höfð og þar kom margt manna úr ýmsum áttum. Meðal þeirra voru kunningjar Óskars frá læknistíð hans á Vest- fjörðum og samstarfsmenn hans í baráttunni gegn berklaveikinni, en Óskar Einarsson hafði verið meðal hvatamanna að stofnun Sambands íslenzkra berklasjúkl- inga (SÍBS). Kjörorð þeirra sam- taka, „styðjum sjúka til sjálfs- bjargar" var mjög að hans skap- lyndi, og hann — sem þau hjón bæði — vildu einnig styðja fólk til annars konar sjálfsbjargar, þ.e. til mennta. Og þau létu ekki sitja við orðin tóm, heldur höfðu gjarnan á heimili sínu ungt námsfóik utan af landi — börn vina eða ættingja —, sem leituðu sér menntunar í Reykjavík. Sú, er þetta ritar, átti nokkra vetur heimili sitt hjá þeim Óskari og Jóhönnu og á þeim margt gott að þakka. Ég minnist með ánægju þeirra mörgu, sem þar komu til lengri eða skemmri dvalar. Sumir eru nú gengnir eins og þau hjón bæði og Brynjúlfur, bróðir Jó- hönnu, sem andaðist fyrir rúmu ári. Hann var maður víðförull, skemmtinn og fróður um margt. Eftir lát manns síns árið 1966, bjó frú Jóhanna enn um sinn að Laugavegi 40a, en heilsu hennar fór hrakandi og síðustu árin dvaldist hún að Reykjalundi. Nær tveggja áratuga veikindum tók þessi gáfaða atorkukona með ótrúlegu ljúflyndi og sönnum and- ans styrk. Blessuð sé minning hennar. Steinunn Einarsdóttir 'A , - „oV. Líturerekki ^V^Iengur lúxus 1* Skipholt 7 — Símar 20080 og 26800 (Gengió inn frá Vesturgötu) UMBOÐSMENN: Skagaradíó. Akranesi - Jón B. Hauksson, Bolungarvík Straumur h/f., ísafirði - Oddur Sigurðsson, Hvammstanga Hallbjörn Björnsson, Skagaströnd - Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi Hilmar Jóhannesson, Ólafsfirði - K.E.A., Akureyri - K.Þ.H., Húsavík K.N.Þ. Þórshöfn - Sigurjón Árnason, Vopnafirði - Rafsjá, Neskaupstað Rafeind s/f., Egilsstöðum - Eiríkur Ólafsson, Fáskrúðsfirði Radíóþjónustan, Höfn - Hornafirði - Neisti h/f., Vestmannaeyjum Mosfell, Hellu - Radíóvinnustofan, Hafnargötu 50, Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.