Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981
30
Sjúílokkar sveitanna túku ætingu við höfnina og var
þessi mynd tekin við það tækifæri.
Úr stjúrnstöð fljálparsveitar skáta i Vcstmannaeyjum.
TryKffvi Páll Friðriksson. formaður LIIS, t.v. ok Bjarni
Sixhvatsson úr Vestmannaeyjasveitinni. en þeir stjúrn-
uðu æíinnunni.
I>að var kátt á hjalla þegar heimamenn buðu ölium þátt-
takendum upp á snittur og kakú.
Sjúklingur fluttur ofan af lshúsfélagshúsinu.
Ljósmyndir:
Sigurgeir
henni starfa áhugamenn um
leitir með hundum.
A vegum Landssambands
hjálparsveita skáta er síðan
starfandi eini björgunarskól-
inn á landinu, Björgunarskóli
LHS, en hlutverk hans er að
mennta félaga sveitanna og
reynda aðra þá er áhuga hafa.
Sérstaklega hefur verið lögð
rækt við skyndihjálparkennsl-
una, og hefur skólinn á þrem-
ur árum útskrifað 44 skyndi-
hjálparkennara, og eitt slíkt
Gengið frá meiðslum eins hinna slösuðu og
honum komið fyrir á sjúkrahörum.
Einn sjúkiinganna fluttur af slysstað í
sjúkrahíl.
Æfingin nokkuð óvenjuleg, en
tókst að allra mati mjög vel
„.EFINGIN gekk að allra
mati mjiig vel,“ sagði Tryggvi
I’áll Friðriksson, íormaður
Lnndssamhands hjálpar-
sveita skáta, LIIS, í samtali
við Mhl„ er hann var inntur
eftir gangi mála á samæfingu
allra hjálparsveita skáta, sem
haldin var í Vestmannacyj-
um.
„Það tóku um eitthundrað
manns þátt í æfingunni, sem
var skipulögð af Hjálparsveit
skáta í Vestmannaeyjum. Æf-
ingin var með nokkuð ólíku
sniði samanboFÍð við það, sem
við eigum að venjast. Hún
byrjaði um sexleytið á laug-
ardagskvöld og stóð yfir alla
nóttina fram til klukkan 08.00
á sunnudagsmorgun. Menn
voru því stöðugt að í liðlega
hálfan sólarhring.
Veðrið gerði okkur að vísu
lífið dálítið leitt, því um 10
vindstig voru allan tima.
Hugmyndin hafði verið, að
dreifa æfingunni um eyjarnar
í nágrenni Heimaeyjar, en af
því gat ekki orðið og við vorum
því að mestu leyti vítt og
breytt um Heimaey, auk þess
sem æfingar voru teknar í
höfninni.
Æfingin byggðist mikið upp
á leitaræfingu, björgunarað-
gerðum úr klettum og sjúkra-
hjálp, auk þess sem köfunar-
menn tóku æfingu niður við
höfn. Því er ekki að neita, að
- segir
Tryggvi Páll
Friðriksson,
formaður LHS
klettabjörgunaræfingarnar
voru töluvert strembnar í 10
vindstigum," sagði Tryggvi
Páll Friðriksson.
Aðspurður um hvernig þessi
æfing hefði verið frábrugðin
öðrum samæfingum LHS,
sagði Tryggvi Páll, að venju-
legast væru þetta æfingar frá
föstudagskvöldi fram á sunnu-
dag og þá með svefnhléum á
milli. „Menn voru hins vegar á
því, að þetta væri sízt verra
form á samæfingu, þegar
menn kæmu án þess að missa
úr vinnu eins og óhjákvæmi-
legt er, þegar gamla formið
var við lýði,“ sagði Tryggvi
Páll ennfremur.
Hjálparsveitir skáta eru
staðsettar á tólf stöðum vítt
og breytt um landið og innan
þeirra vébanda eru starfandi
um 800 félagar. Sveitirnar eru
í Reykjavík, Kópavogi, Garða-
bæ, Hafnarfirði, Njarðvík,
Hveragerði, Egilstöðum, Aðal-
dal í Þingeyjasýslu, Akureyri,
Blönduósi og svo í Vestmanna-
eyjum. Þá er starfandi innan
LHS sérstök hundasveit, en í
námskeið stendur fyrir dyr-
um. Skyndihjálparnámskeiðin
hafa sótt, auk félaga í hjálpar-
sveitum skáta menn frá Slysa-
varnafélagi íslands, lögreglu
og Almannavörnum.
Landssamband hjálpar-
sveita skáta, LHS, er um þess-
ar mundir 10 ára, og er þess
minnst með ýmsum hætti. Til
dæmis gengst LHS nú um
helgina fyrir sérstöku fjalla-
maraþoni fyrir allar björgun-
arsveitir landsins, en það er
keppni sem tveggja manna lið
taka þátt í. Keppendur ferðast
um liðlega 80 km gönguleið,
sem er mismunandi greiðfær
og bera með sér allan nauð-
synlegan búnað. Keppnin
hefst í Landmannalaugum og
verður gengið í Þórsmörk um
60 km, og þaðan verður síðan
gengið yfir Fimmvörðuháls,
milli Eyjafjallajökuls og
Mýrdalsjökuls að Skógum
undir Eyjafjöllum.
— sb.