Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981
Guðmundur S.
Snorrason Akur-
eyri - Minning
Góðum manni Ketur ekkert grandað,
hvorki lífs né liðnum.
Mundi frændi hefði orðið 83ja
ára hinn 29. sept., en hann lést á
Sjukrahúsi Akureyrar 14. apríl
síðastliðinn.
Hutíur minn hefir leitað norður
yfir fjöll til bernsku- 0« æskuár-
anna á Akureyri og alltaf bregður
honum fyrir.
Guðmundur Stefán Snorrason
var fæddur á Skipalóni við Eyja-
fjörð 29. september 1898, sonur
hjónanna Emmu Matthildar
Jónsdóttur og Snorra Guðmunds-
sonar bónda þar, en síðar bjuggu
þau lengi að Steðja á Þelamörk.
Systkinin urðu fimm: Aðalbjörg,
einnig fædd á Skipalóni, Sumar-
rós, Óskar og Jakob, öll fædd á
Steðja þar sem þau ólust upp með
foreldrum sínum.
Mundi var eitt ár við landbún-
aðarstörf í Noregi en fer ungur til
Akureyrar og gerist bifreiðastjóri
að atvinnu og starfaði síðan við
það alla tíð, var einn af stofnend-
um Vörubifreiðastöðvarinnar
Stefnis og heiðursfélagi þar. Einn-
ig var hann virkur þátttakandi í
ýmsum öðrum félagasamtökum,
enda framfarasinnaður mjög.
Kona hans var Sigurbjörg Jó-
hannsdóttir ættuð úr Svarfaðar-
dal og eignuðustu þau 3 dætur,
Guðrúnu, Jakobínu og Þórunni.
Síðar ólu þau upp og ættleiddu
Ólaf, son Þórunnar. Samhent voru
Sigurbjörg og Mundi í hesta-
mennskunni og tóku talsverðan
þátt í félagsskap hestamanna, en
Mundi átti alla tíð hesta sem hann
hugsaði um sjálfur, sér til mikillar
ánægju. Nokkuð höfðu þau ferðast
um landið og nutu slíkrar útivist-
ar vel og á ferðalagi voru þau er
Sigurbjörg lézt snögglega af
hjartabilun sumarið 1970. Óli
hafði verið þeim mikill gleðigjafi,
en nú var það Munda stóri styrkur
að hafa Óla, sem alla tíð reyndist
afa sínum frábærlega vel og í
sambýli með honum, konu hans og
litlum syni þeirra, Björgvin, bjó
hann síðustu árin.
Mundi var heilsteyptur dreng-
skaparmaður, vel greindur, fylgd-
ist alla tíð vel með málefnum líð-
andi stundar og hafði sínar
ákveðnu skoðanir, því hafði hann
frá mörgu að segja og sagði
skemmtilega frá. Gleðimaður var
hann á góðri stundu, hagorður vel
og var mjög gaman við ýmis tæki-
færi innan fjölskyldunnar að
heyra hann fara með eitthvað eft-
ir sig eða kveða rímur við raust,
en alltaf jafn hógvær og hlýr.
Feður okkar systurbarna hans
létust mjög ungir með skömmu
millibili frá kornungum börnum,
því er það þegar mikið liggur við
að kallað er á Munda frænda og
minnist ég ótal slíkra atvika. Það
var hann sem kom á fermingar-
daginn og ók til kirkjunnar, bauð í
smá bílferðir á sumrin í berjamó
eða eitthvert annað, eða þegar
hann kom á jólunum, gekk með
okkur öll börnin hring um jólatréð
og söng jólasálmana af sinni ein-
lægu trúarsannfæringu. Ömmu
var hann mjög góður sonur og er
hún sín síðustu ár hafði misst
bæði andlega og líkamlega orku
var hann henni afar nærgætinn og
gerði allt sem hann gat til að létta
henni erfið spor. Sjálfur var hann
svo lánsamur að njóta mjög góðr-
ar heilsu alla æfi, gat hugsað um
hestana sína og farið flesta daga
út á Stefni til síðustu áramóta.
Minningin um hann fyllir hugi
okkar frændsystkinanna og fjöl-
skyldna okkar þakklæti og hlýju,
honum biðjum við blessunar.
Ilulda Marinósdóttir
Sýning um
nýtingu
jarðvarma
FRANSKA sendiráðið og Orkust-
ofnun (Jarðhitaskóli Háskóla
Sameinuðu þjóðanna) halda í
framhaldi af fyrirlestri Michel
Desurmont frá Jarðfræðirann-
sóknastofnuninni í Frakklandi
(Bureau de Recherches Géologiqu-
es et Minieres, BRGM) sýningu á
framkvæmdum BRGM á sviði nýt-
ingar jarðvarma í Frakklandi í
fyrirléstrasal Orkustofnunar.
Sýningin er opin í fyrirlestrasaln-
um á 3. hæð á opnunartíma
Orkustofnunar og stendur til 9.
október.
Miðvikudaginn 14. október kl.
20.30 verður sýningin í Franska
bókasafninu, Laufásvegi 12, að-
eins það eina skipti og verða þá
jafnframt sýndar myndirnar
Jarðvarmi og Gullgerðarlist jarð-
arinnar.
Rússnesku-
kennsla hjá MÍR
EINS og undanfarin ár, skipulegg-
ur félagið MÍR, Menningartengsl
tslands og Ráðstjórnarrikjanna,
rússneskukennslu fyrir almenning
nú í vetur og verður Sergei Alisjon-
ok frá Moskvu kennari. Kennsla
hefst 5. október.
Rússneskukennslan verður í nám-
skeiðsformi og að þessu sinni boðið
upp á fleiri valkosti en áður, bæði
fyrir byrjendur og framhaldsnem-
endur, en kennslan mun fara fram í
húsakynnum Háskóla íslands og
MÍR-salnum, Lindargötu 48. Síðar í
vetur er ætlunin að efna til sérnám-
skeiða ef næg þátttaka fæst.
Big Band í
Atthagasal
„Stórhljómsveitin Big-Band '81 “
hefur vetrarstarfsemi sína með
djassleikum í Átthagasal Ilótel
Sögu á mánudagskvöld. klukkan
21. Hljómsveitina skipa tuttugu
hljóðfæraleikarar, undir stjórn
Björns R. Einarssonar. Auk Big-
Bandsins mun kvartett Kristjáns
Magnússonar leika, og í lok djass-
leikanna verður jam-session.
KOMNIR HEILITt
IHOFN
phoi/t
VERÐUR NÚ, OKKAR HEIMAHÖFN
Viö höfum flutt skrifstofur okkar og
alla varahluta- og viögeröaþjónustu
í Skipholt 7, Reykjavík.
Viö munum sem fyrr, veita alla
þjónustu fyrir SIMRAD / SKIPPER
siglinga- og fiskileitartæki í okkar
nýju húsakynnum.
f^ytt
SIMRAD umboöiö á íslandi
FRIDRIK A. IOVSSOV HF.
SKIPHOLT 7 - BOX 362 121 REYKJAVÍK — SÍMAR 14135 — 14340