Morgunblaðið - 31.10.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1981
Breytingar á kjördæmaskipan:
Heimild til að flölga
þingmönnum í 70
- til að jafna vægi atkvæða milli kjördæma
A LANDSFUNDI Sjálfstædisflokk.s-
ins liggja fyrir drög ad ályktun um
kjördæmaskipan og kosningalöggjöf.
í þeirri ályktun er gert ráð fyrir því,
að lágmarkstala þingmanna verði 60
en heimiluð verði nokkur fjölgun eft-
ir því sem þarf til þess að ná jafnræði
milli stjórnmálaflokka og jafna vægi
atkvæða milli kjördæma, þannig að
þingmenn gætu orðið allt að 70 að
tölu.
Þá er gert ráð fyrir því að fjölga
kjördæmakosnum þingmönnum í
þeim kjördæmum, sem minnst
hafa vægi atkvæða, þannig að kjör-
dæmakosnir gætu orðið 55—56 í
stað 49 og uppbótarsæti 4—5 með
heimild til fjölgunar uppbótarsæta.
Þá er gert ráð fyrir, að reglur um
úthlutun uppbótarsæta verði tekn-
ar til athugunar og að persónulegu
kjöri verði komið við með því að
kjósandinn eigi þess kost í próf-
kjöri, við kosningar eða með öðrum
hætti að velja milli frambjóðenda á
framboðslistum.
Sjá ræðu Matthíasar Á.
Mathiesen á bls. 18—19.
Kennarar við öldungadeildir íhuga vinnustöðvun:
Ákvörðun tekin
á mánudaginn
Qktóber — ágúst:
36,5% hækkun fast
eignaverðs í Rvík
„VTD fengum launaseðla nú dag
og þá kom í Ijós að við höfum
verið lækkaðir í kaupi og við það
sættum við okkur ekki. Hingað til
höfum við fengið greitt samkvæmt
sama taxta og kennarar við öld-
ungadeildina í Menntaskólanum
við llamrahlíð, en þar er miðað
við að nemendur séu 20 eða fleiri
í hverri deild. Það vill nú þannig
til að í mínum deildum eru nem-
endur rúmlega 20 að meðaltali, en
samt lækkar kaupið. Þetta sættum
við okkur ekki við og erum ekki
tilbúnir til samninga þegar kaup
okkar er lækkað meðan á samn-
ingum stendur. Því eru miklar lík-
ur á því að það komi til verkfalls
kennara við öldungadeildir lands-
ins á mánudag, en þá verður end-
anleg ákvörðun teki í samráði við
IIÍK,“ sagði Magnús Kristinsson,
skólastjóri öldungadeildar
Menntaskólans á Akureyri, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Deila kennara við öldungadeild-
irnar (Hins íslenzka kennarafé-
lags) og fjármálaráðuneytisins
stendur um það, hvort taka skuli
tillit til hópstærðar við útreikning
launa, en upphaflega var samið
við kennara öldungadeildar
Menntaskólans við Hamrahlíð þar
sem yfirleitt var um mjög stóra
hópa að ræða. Síðan hefur öld-
ungadeildunum fjölgað og víða eru
námshópar smærri en þar. Þá
kemur það einnig inn í þessa deilu
JON Kaldal, Ijósmyndari og íþrótta-
maður, lézt í Reykjavík í gær eftir
langvinn veikindi, 75 ára að aldri.
Jón fæddist í Stóradal í Svína-
vatnshreppi, Austur-Húnavatns-
sýslu 24. ágúst 1896. Foreldrar
hans voru Jón Jónsson, bóndi í
Stóradaí og kona hans Ingibjörg
Gísladóttir.
að launakostnaði við öldunga-
deildirnar er skipt í þrennt, fjár-
málaráðuneytið greiðir 1/3, sveit-
arfélög 1/3 og nemendur 1/3. Því
hafa sveitarfélögin og nemendur
einnig viljað taka þátt í samning-
um um launamál ken^iara, en það
mtal hefur ekki enn verið leyst.
Þorsteinn Geirsson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu,
sagði að sér kæmi það á óvart að
kennarar við öldungadeildina við
MA hefðu verið lækkaðir í laun-
um, en hann gæti ekki tjáð sig
frekar um það mál nú. Þá sagði
hann, að starfsmenn í þjónustu
ríkisins, sem hyggðust taka til svo
alvarlegra aðgerða eins og að
leggja niður vinnu, ættu að ræða
við sig eða einhverja aðra embætt-
„BANKARÁÐ Seðlabankans
hefur samþykkt að falla frá
uppfærslu á afurðalánum
Jón Kaldal var brautryðjandi á
sviði ljósmyndunar hér á landi og
einn mesti ljósmyndari, sem land-
ið hefur eignazt. Hann nam fyrst
ljósmyndun hjá Karli Ólafssyni í
Reykjavík, en síðar í Kaupmanna-
höfn og vann síðan við ljósmynd-
un hér á landi. Jón var einn fræg-
asti íþróttamaður Islands og vann
marga frækna sigra í langhlaup-
um, bæði hér heima og víða á er-
lendri grund. Hann átti meðal
annars Islandsmet í 3.000, 5.000 og
10.000 metra hlaupum um langt
skeið og var hann meðal keppenda
á Olympíuleikunum í Antwerpen
1920. Hann varð ungur að hætta
keppni vegna veikinda, en vann
engu að síður mikið að íþróttamál-
um og var formaður íþróttafélags
Reykjavíkur um skeið, varafor-
maður ÍSÍ og síðar heiðursfélagi
ÍSÍ og ÍR.
Jón kvæntist Guðrúnu Sigurð-
ardóttur 1940 og lifir hún mann
sinn.
ismenn í fjármálaráðuneytinu áð-
ur en þeir legðu niður vinnu. Hann
sagðist nánast ekki trúa því á
jafnmenntaða stétt og kennara'að
þeir legðu niður vinnu í trássi við
þau lög, sem gilda um þeirra
kjarasamninga, öðru vísi en að
minnsta kosti að ræða það við sína
viðsemjendur áður.
Jón Hnefill Aðalsteinsson,
formaður HÍK, sagði, að ekki hefði
verið tekin endanleg afstaða um
verkfall enn, það yrði gert á
mánudag enda hæfist kennsla við
öldungadeildir ekki fyrr en á
kvöldin. Er hann var spurður
hvort það þýddi, að ekki yrði verk-
fa.ll, svaraði hann því, að það hefði
hann aldrei sagt. Að öðru leyti
vildi hann ekki tjá sig um málið..
vegna gengisfellingarinnar
21. ágúst sl. og er hér um
rúmar 41 millj. króna að
ræða,“ sagði Halldór Ás-
grímsson, alþingismaður og
formaður bankaráðs Seðla-
banka íslands, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Banka-
ráðið samþykkti þetta á
fundi sl. þriðjudag, en eins
og komið hefur fram í Mbl.
þá er mikið rætt um að um-
rædd 41 milljón verði notuð
til að styrkja stöðu sjávarút-
vegsins og þá fyrst og fremst
frystiiðnaðarins.
„Það er hugmyndin að endur-
greiða þessa fjárhæð til þeirra að-
ila, sem skulda bankanum, en hins
vegar er það ekki á valdi Seðla-
bankans að dreifa því, um það
liggur fyrir tillaga á alþingi,“
sagði Halldór.
Að sögn Halldórs þá liggur það
fyrir að langstærstur hluti þessa
fjár á að renna til sjávarútvegsins
eða um 36 millj. króna. Við gengis-
uppfærsluna í ágúst sköpuðust 15
millj. kr. vegna frystingarinnar,
en að sögn Halldórs, þá er gert ráð
fyrir í þeim tillögum sem nú liggja
Fasteignaverðshækkun í
Keykjavík á tímabilinu október
1980 til ágúst 1981 var um 36,5%,
samkvæmt upplýsingum í nýlegu
fréttabréfi fasteignamats ríkis-
ins, en þessi hækkun er mjög
svipuð þeirri hækkun, sem orðið
hcfur á byggingarvísitölu á þessu
sama tímabili, eða 37,2%.
Á þessu ári hefur þróun fast-
eignamarkaðarins í Reykjavík
verið með hliðstæðum hætti og í
fyrra. Árið 1979 urðu aftur á móti
miklar hækkanir.
fyrir á alþingi að frystideild Verð-
jöfnunarsjóðs fái 26 millj. kr., sem
í reynd þýðir að stór hluti upp-
hæðarinnar kemur frá öðrum
greinum sjávarútvegsins, eins og
söltun og herslu.
Á FIJNDI Verkalýðsfélagsins Kiningar
á Akureyri síðastliðinn miðvikudag
var samþykkt að heimila trúnaðar
mannaráði félagsins að boða vinnu-
stöðvun „til að ýta á eftir gerð nýrra
kjarasamninga, enda verði haft fullt
samráð við aðalsamninganefnd Al-
þýðusambands íslands og Verka-
mannasambands íslands um það,
hvenær vinnustnðvun verður látin
koma til frarukva-mda og með hvaða
hætti hún verði boðuð", eins og segir í
ályktun frá Kiningu. Þá beindi fundur-
inn því til trúnaðarmannaráðs, að álits
félagsmanna verði leitað um með
hvaða hætti vinnustöðvun komi til
Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
varð um 15,0% hækkun, á öðrum
ársfjórðungi um 8,4% hækkun og
á þeim þriðja um 10,5% hækkun.
Til samanburðar, þá varð 16,0%
hækkun á fyrsta ársfjórðungi árs-
ins 1980, um 9,7% á öðrum árs-
fjórðungi og 6,3% á þeim þriðja.
Arið 1979 urðu hins vegar nokkru
meiri hækkanir eins og áður sagði,
en á fyrsta ársfjórðungi varð
13,5% hækkun, 15,1% hækkun á
öðrum ársfjórðungi og 17,9%
hækkun á þeim þriðja.
Það sem vekur einna helzt at-
hygli við þessa upptalningu eru
hinar miklu hækkanir á fyrsta
ársfjórðungi, bæði árin 1980 og
1981.
Ef athugaðar eru hækkanir
milli mánaða frá ákvörðun fast-
eignamats í fyrra, kemur í ljós að
litlar sem engar hækkanir hafa
orðið í nóvember og desember í
fyrra. Sama gildir um marz og
júní. Annars hefur hækkunin ver-
ið eftirfarandi á þessu ári: 9,7% í
janúar, 7,3% í febrúar, 0,1% í
marz, 3,0% í apríl, 3,6% í maí,
0,1% í júní , 4,9%. í júlí og 4,0% í
ágúst.
Þess má að lokum geta, að á
síðustu vikum hefur orðið mjög
umtalsverð hækkun á fasteigna-
verði, þótt það sé ekki að fullu
kannað hversu mikil hún er.
framkva'mda.
í ályktun um samflot segir, að í
trausti þess að fullt tillit verði tekið
til krafna minnihlutans í Verka-
mannasambandinu, var samþykkt
að hætta ekki að svo komnu máli
þátttöku í samfloti innan VMSÍ.
Hins vegar voru einstaka starfs-
menn og forysta hreyfingarinnar
gagnrýnd fyrir að draga upp al-
ranga mynd af raunverulegum til-
gangi og innihaldi kröfugerðar fé-
lagsins. Fundurinn mótmælti sér-
staklega þeim hugmyndum að fella
brott eftirvinnu án þess að það komi
til hækkunar á dagvinnulaunum.
Jón Kaldal látinn
Bankaráð Seðlabankans:
Samþykkt að falla frá
uppfærslu afurðalána
Félagsfundur f Einingu á Akureyri:
Forysta VMSÍ gagnrýnd
fyrir að draga upp al-
ranga mynd af kröfiinum