Morgunblaðið - 31.10.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1981
3
Samningar fé-
laga í ASÍ verða
lausir á morgun
Mörg félög hafa
aflað sér verk-
fallsheimildar
Á MORGUN, 1. nóvember,
verður mikill hluti launþega í
landinu með lausa samninga.
Samningum sambanda og fé-
laga innan ASÍ var sagt upp
frá og med mánadamótum og
ýmis félög utan ASÍ, t.d.
bókagerðarmenn og blaða-
menn, eru í sömu stöðu.
Samningar bankamanna
hal'a verið lausir frá 1.
september, en samningum
opinberra starfsmanna hefur
verið sagt upp frá og með 1.
janúar nk.
í gær vóru margir fundir hjá
sáttasemjara og auk fundar með
bókagerðarmönnum og viðsemj-
endum þeirra í gærmorgun, átti
sáttasemjari fundi með nokkrum
sérsamböndum innan ASI og við-
semjendum þeirra. Á mánu-
dagsmorgun veður fundur sátta-
semjara með samninganefndum
ASÍ, VSÍ og Vinnumálasam-
bandsins um skipulag vinnu-
bragða við samningagerðina.
Fyrri hluta næstu viku verða
fundir sáttasemjara með þeim
félögum og samböndum í ASI,
sem enn hefur ekki verið rætt
við. Einn þeirra funda hefur ver-
ið tímasettur, fundur með Félagi
starfsfólks í veitingahúsum.
Bókagerðarmenn og Félag
prentiðnaðarins voru á fundi hjá
sáttasemjara í gær og nýr fundur
hefur verið boðaður á mánudag
klukkan 15. Fundur verður um
kjarasamninga blaðamanna
þann sama dag klukkan 13.30.
Mörg félög hafa aflað sér verk-
fallsheimildar og enn fleiri eru
með fundi um helgina. Síðastlið-
inn miðvikudag var slík heimild
samþykkt á fundi í Einingu á
Akureyri, í fyrrakvöld hjá Fram-
tíðinni og Hlíf í Hafnarfirði og í
gær hjá Blaðamannafélagi Is-
lands. í dag er fundur hjá
Dagsbrún og Framsókn í Reykja-
vík um heimild til vinnustöðvun-
t
«niá)
r ranikvæmdir eru hafnar við nýjan stórmarkað Kaupfélags Suðurnesja í Keflavík. í baksýn má sjá Fiskiðjuna
og Tollvörugeymslan er til vinstri á myndinni. i.jó.sm. mw. Arnór.
Skrefatalning á síma
tekur gildi á morgun
Skólataska forðaði
dreng frá hjólum bfls
ÁTTA ára gamall drengur varð fyrir bifreið á Snorrabraut um kl. 14 í ga r.
liann hljóp vestur yfir Snorrabrautina á móts við Austurbæjarbíó og varð
fyrir Volkswagenbifreið. Drengurinn lenti á stuðara bílsins og kastaðist í
götuna fyrir framan hann en stöðvaðist við framhjólin. I>að var skólataska
drengins, sem kom í veg fyrir að drengurinn lenti undir hjólum bifreiðarinn-
ar, en hún skorðaðist milli stuðara og farangursgeymslu bifreiðarinnar. Má
segja að það hafi verið mikil mildi og Ijóst, að skólataskan forðaði drcngn-
um frá mun alvarlegri meiðslum en raun varð á, en hann hlaut heilahristing.
Þá varð harður árekstur á talsvert. Konan var í bílbelti og að
Tjarnargötu um kl. 14 í gær. Kona
ók bifreið af Skothúsvegi inn á
Lækjargötu. Hún var rétt búinn að
taka beygjuna inn á Lækjargötu
þegar hún teygði sig í takka í
mælaborði. Skipti engum togum að
bifreiðin skall á bifreið, sem hafði
verið lagt í bílastæði á móts við
hús Æskulýðsráðs. Sú bifreið skall
á næstu fyrir framan, sem aftur
kastaðist á næstu bifreið, þannig
að fjórar bifreiðar skemmdust
líkindum forðaði það henni frá
meiri meiðslum en raun varð á, en
hún skarst á augabrún.
Mikil árekstraalda reið yfir
Reykjavík síödegis í gær og urðu
yfir 20 árekstrar frá hádegi fram
til kl. 18, en um morguninn urðu
aðeins fjórir. Mikið eignatjón varð
og virðist sem lækkandi sól hafi í
mörgum tilvikum blindað öku-
GRUNDVALLARBREYTING verður
á gjaldkerfi sjálfvirku símaþjónust-
unnar 1. nóvember nk., þegar svo-
kölluð skrefatalning tekur gildi. Þá
lækka langlínusamtöl og tími nætur
og helgitaxta lengist.
Skrefatalningu bæjarsímans verð-
ur komið á tímabilið 08.00—19.00,
mánudaga til fóstudaga. Þessar
breytingar verða framkvæmdar um
allt landið, en óhjákvæmilegt er, að
þær taki nokkra daga segir m.a. í
frétt frá Póst- og símamálastofnun-
inni.
Lækkun langlínutaxta er að með-
altali um 29%. Tímamæling fer
þannig fram, að fyrsta talning
kemur ætíð við svar. Ef önnur taln-
ing kemur gerist það á tímabilinu
frá svari til 6 mínútna. Eftir það
koma allar talningar með 6 mín-
útna millibili eftir lengd símtals-
ins.
„Mér finnst menn nú heldur
seinir að kippa við sér í þessu máli,
þegar þeir fara fram á skoðana-
könnun á því,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, samgönguráðherra,
t samtali við Mbl., er hann var
inntur álits á framkominni þings-
ályktunartillögu um skoðanakönn-
un meðal almennings um skrefa-
talninguna.
„Þetta byrjaði allt hjá "Ingólfi
Jónssyni á sínum tíma, þegar hann
gaf fyrirmæli um, að leitað yrði
leiða til að jafna símakostað. Þá
kom þessi hugmynd strax upp, síð-
an er samþykkt þingsályktun um
jöfnun simakostnaðar árið 1974 og
þá var þessi hugmynd einnig nefnd.
Síðan ákveður Halldór E. Sigurðs-
son að halda málinu áfram og
sömuleiðis Ragnar Arnalds árið
1979, þegar hann ákveður að láta
kaupa tæki,“ sagði Steingrímur
ennfremur.
„Annars sé ég ýmsa annmarka á
því, að láta fara fram skoðana-
könnun um málið. Það þyrfti að
setja slíka könnun ákaflega skýrt
fra;.. til að almenningur gæti gert
sér grein fyrir henni, en það er
ljóst, að skrefatalningin kemur um
helgina," sagði Steingrímur Her-
mannsson, samgönguráðherra að
síðustu.
„Hef lítid álit á af-
greidslu flugráds“
- segir Steingrímur Hermannsson
Trúi ekki loðnuskýrslunni:
„Var við loðnuleit í 3 vikur
1979 án þess að finna neitt“
— segir Hafsteinn Guðnason skipstjóri á Gígju RE
„VIÐ vorum við loðnuleit á tímabil-
inu 7. til 21. desember 1979. Þá
sigldum við yfir 3000 mílur og var
fiskifræðingur með allan tímann
sem leitin stóð. Þrátt fyrir um-
fangsmikla leit eins og öll þessi sigl-
ing gefur til kynna, þá fundum við
enga loðnu í það skiptið. Það er
meðal annars þessvegna sem ég trúi
ekki hinni nýju skýrslu fiskifræð-
inga, um að aðeins séu eftir 144 þús-
und tonn af loðnu,“ saði Hafsteinn
Guðnason, skipstjóri á Gígju RE, í
samtali við Morgunblaðið í gær
kvöldi.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
llafstein var hann á leið á loðnumið-
in norður af landinu og voru skipin
byrjuð að kasta um kl. 19.
„Tveimur mánuðum áður en við
vorum við loðnuleitina 1979 hafði
stofnstærðin mælst 950 þúsund
tonn, en allt þetta magn bókstaf-
lega hvarf, þar til að veiðar hófust
á ný eftir áramfin 1980, en þá virt-
ist loðnan allt í einu koma undan
ísnum.
Það sem mér finnst enn vanta
inn í þá loðnu, sem við höfum ver-
ið að veiða í haust er t.d. loðnan
sem heldur sig við Jan Mayen um
mitt sumar og einnig má geta þess
að á þcssu veiðitímabili höfum við
ekkert verið á því svæði, sem var
okkar aðalveiðisvæði í fyrrahaust,
en það var vestan við miðlínuna
milli íslands og Grænlands,“ sagði
Hafsteinn að lokum.
„SATT bezt ad segja hef ég ekki
mikið álít á þessari afgreiðslu flug-
ráðs,“ sagði Steingrímur Her
mannsson, samgönguráðherra, í
samtali við Mbl., er hann var inntur
álits á þeirri samþykkt flugráðs, að
mæla gegn því, að Arnarflugi verði
veitt heimild til áætlunarfiugs frá ís-
landi til Frankfurt og Hamborgar í
VesturÞýzkalandi, Ziirich í Sviss og
l’arísar í Frakklandi.
„I þessu máli finnst mér mikil-
vægast, að menn fari að eigin
sannfæringu, og það get ég sagt, að
ég mun ekki láta þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins segja mér fyrir
verkum í þessu máli.
Þá finnst mér vægast sagt mjög
vafasamt, að menn sem eru í mik-
ilvægum stöðum hjá Flugleiðum,
sem hafa lagst mjög hart gegn
þessari leyfisveitingu, skipi flug-
ráð í þessu tiltekna máli. Þeirra
staða hlýtur að vera mjög erfið þó
ég sé ekki að væna þá um óheilindi.
Mér hefði þótt eðlilegar, að
menn eins og Leifur Magnússon,
formaður flugráðs, hefðu setið hjá,
eins og hann gerði þegar málefni
íscargó voru til umfjöllunar á sín-
um tíma. Því finnst mér ákvörðun
flugráðs óneitanlega minna virði,
en hún hefði þurft að vera.
Eg hef fengið öll gögn málsins í
hendur og mun athuga þau gaum-
gæfilega yfir helgina, en ákvörðun
mun liggja fyrir eftir helgi,“ sagði
Steingrímur Hermannsson sam-
gönguráðherra að síðustu.
„Sé mikla annmarka á því
að stöðva loðnuveiðarnar“
- segir Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra
„ÉG SÉ mjög mikla annmarka á því,
að stöðva loðnuveiðar á þessum
punkti,“ sagði Steingrímur Her
mannsson, sjávarútvegsráðhcrra, í
samtali við Mbl., er hann var inntur
eftir því hvort hann hugðist stöðva
loðnuveiðar í kjölfar tillagna og
skýrslna frá Ilafrannsóknastofnun,
sem gefa til kynna mun minni loðnu,
en áður hefur verið haldið að væri til
staðar.
„Ég ákvað því, að bíða eftir
skýrslum vegna þeirra veiða sem
nú eru í gangi. Við höfum verið að
fá upplýsingar frá þeim og eitt
skipið fékk nú eitthvert stærsta
kast, sem sögur fara af í dag. Það
bendir óneitanlega ekki til þess, að
eins lítið sé af loðnu á þessum
slóðum og talað hefur verið um.
Við bíðum því eftir upplýsingum
um veiðarnar um helgina, en ég
verð að segja eins og er, að ég hef
mínar efasemdir í þessum málum
og sé því mikla annmarka á því, að
stöðva veiðarnar,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson, sjávarút-
vegsráðherra að síðustu.
Tónlistarfélagid:
Píanótónleik-
ar í Austurbæj-
arbíói í dag
ANNA Áslaug Ragnarsdóttir píanó-
leikari heldur tónleika á vegum Tón-
listarfélagsins kl. 14.30 í dag í Aust-
urbæjarbíói. Á efnisskrá tónleik-
anna er Sónata nr. VI eftir I’ietro
Domenico Paradisi, Sónata op. 42
eftir Franz Schuhert og 12 prelúdíur
eftir Claude Debussy.
Anna Áslaug Ragnarsdóttir
stundaði píanónám á Isafirði hjá
föður sínum, Ragnari H. Ragnar,
og síðar hjá Árna Kristjánssyni í
Reykjavík. Að loknu einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík stundaði hún píanónám
við skóla í London, Róm og Þýska-
landi. Hún lauk einleikaraprófi
frá Tónlistarháskólanum í Múnch-
en 1976 og hefur hún starfað þar
síðan, við kennslu og píanóleik.
Anna Áslaug hefur margsinnis
leikið á tónleikum innanlands og
utan, m.a. nokkrum sinnum meö
Sinfóníuhljómsveit jslands hér í
Reykjavík.