Morgunblaðið - 31.10.1981, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1981
11
— Varsjárbandalagið nýtur sem
fyrr góðs af staðlaðri birgða- og
viðgerðarþjónustu fyrir flugvélar.
Megnið af flugvélum bandalagsins
getur ekki athafnað sig nema á
endurbættum flugbrautum, en fjöl-
margir nýtísku flugvellir eru til
reiðu með traustum flugskýlum. Á
hinn bóginn á NATO erfitt upp-
dráttar vegna skorts á flugvöllum
og óhæfilega margra flugvéla-
gerða, enda þótt verulegt átak hafi
verið gert til að bæta úr þessu með
stöðlun (flugvéla) og styrkingu
flugbrauta. Átlantshafsbandalagið
hefur trúlega enn yfirburði i al-
mennri rafeindatækni og kann ef
til vill að hafa meiri sveigjanleika í
flugstjórn og flugumsjón í ófriði,
en Varsjárbandalagið leggur kapp
á gagnráðstafanir og dregur þann-
ig á NATO í rafeindatækni.
Austurveldin
hafa raskað
valdajafnvæginu
Á síðustu 20 árum hafa Austur-
veldin hægt en örugglega breytt
styrkleikahlutföllunum sér í vil,
þegar fjöldi vopna er talinn. Á
sama tíma hafa Vesturveldin tapað
tæknilegum yfirburðum sínum, en
Atlantshafsbandalagið treysti því
áður, að gæði bættu upp það, sem á
skorti í fjölda. Þar með er ekki
sagt, að Atlantshafsbandalagiö
hlyti að bíða ósigur í styrjöld, en
menn geta ályktað svo, að þessi
þróun sé það háskaleg, að tafar-
laust verði að grípa til ráðstafana
til að snúa henni við.
— Styrkleikahlutföllin milli
Atlantshafsbandalagsins og Var-
sjárbandalagsins verða ekki metin
af neinni vissu með því að bera
saman liðstyrk, bardagasveitir eða
herbúnað. I fyrsta lagi skarar
Varsjárbandalagið fram úr í ýms-
um greinum, en Atlantshafsbanda-
lagið í öðrum og miklir annmarkar
eru á því að bera yfirburði annars
bandalagsins saman við yfirburði
hins á einhverju öðru og ólíku sviði.
Yfirburði annars bandalagsins í
skriðdrekum getur hitt t.d. jafnað
með því að safna að sér alls kyns
vopnum til varnar. í öðru lagi er
enginn vegur að beita tölfræði á
þætti, sem skipta sköpum í hern-
aði, svo sem þjálfun, siðferðisþrek,
herstjórn, vígdirfsku og landfræði-
lega kosti. I þriðja lagi er engin
vissa fyrir því, hvernig vopnavið-
skiptum yrði háttað, ef þau á ann-
að borð hæfust...
— Styrkleikahlutföllin eru enn
þannig, að þær þjóðir, sem hæfu
árás, yrðu að hætta miklu. Árás-
arveldin gætu talið sjálfum sér trú
um það, að með því að draga saman
her og neyta síðan liðsmunar
mætti ná árangri á afmörkuðum
vígvelli. En hitt virðist ljóst, að
hvorugt bandalaganna hefur þann
styrk, sem gert gæti sigurinn vísan.
Afleiðingarnar fyrir árásarmenn-
ina væru ófyrirsjáanlegar og
áhættan, sem þeir tækju, óskapleg,
einkanlega ef gripið yrði til kjarn-
orkuvopna og ófriðurinn magnað-
ist.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ VARSJARBANDALAGID
1970 1980/81 '■ ■ eða samdrattur l% Núverandi styrkur Núverandi styrkur uknirtg eöa samdrattur i% 1980/81 1970
74 80 + 8,1% MMttM Herdeildír MMMMMtMMM 0% 170 170
10.900 14.900 + 3 7% Skriðdrekar + 70% 54.400 32.000
6.400 8.200 + 28% í í í Fallbyssur yfír 100 mrty^ LVU.V^V^Vik.VVfcVL + 28% 15.100 11.800
Ekki vitað 200 Ekki vitað J. Fjölhlaðnir eldflauga- pallar +* ****&■ Ekki vitað 3.500 Ekki vitaö
Ekki vitað 7.500 Ekki vitað á. JL A. J á. á á. Loftvarnabyssur V Ár VÝ- V VvV Ekki vitað 7.500 Ekki vitað
Ekki vitað 2.000 Ekki vitað .Ív A Loftvarnaeldflaugar .i i 1 Ekki vitað 8.500 Ekki vitað
3.300 3.300 0% Orrustuvélar v V V V -V V -v -V + 11% 8.000 7.200
Ekki vitaö 800 Ekki vitaö Sprengjuvélar -4* 4» 4« 4« 4< Ekki vitað 5.000 Ekki vitað
Ekki vitað 900 Ekki vitað Flutningavélar Ekki vitað 1.500 Ekki vitað
41 32 -22% Stór herskip + 36% 38 28
31 18 -42% Flugmóðurskip + 100% 4 2
492 320 -35% Tundurspillar, freigátur og korvettur ' <éi . i A i láil + 40% 321 229
186 157 - 16% — — — Tundurskeytabátar _ . — -* - + 29% 327 254
257 269 + 4,7% Kafbátar + 25% 478 382
Ekki vitað 275 Ekki vitað Landgönguskip Ekki vitað 235 Ekki vitað
800 650 - 19% Skammdrægar kjarnorku- sprengjuvélar + 86% 650 350
250 300 + 20% Skammdrægar kjarn- , .vvvvvvvvvvvv + 62% 1.300 800
0 18 — á. + 134% 1.430 610
48 144 + 200% 4 / S S S Sy Meðaldrægar kjarnorku- eldflaugar í kafbátum A - 60% 18 45
90 390 + 333% + + Meöaldrægar kjarnorku- sprengjuvélar -+ -+* + -4* + 52% 1.250 820
1.084 2.152 + 98% Langdrægar kjarnorku-v eldflaugar s 'uvvuuu + 323% 5.500 1.300
656 4.848 + 639% s s / Langdrægar kjarnorku- eldflaugar í kafbátum \ + 328% 1.300 304
400 300 - 25% ^ Langdrægar kjarnorku- sprenguvélar - 12% 150 170
Samanburður á herstyrk
Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins
Taflan hér að ofan birtist á dögunum í þýska
blaðinu WELT am SONNTAG. Efnið í hana sótti
blaðið í skýrslu sem Werner Max, formaður varn-
armálanefndar þýska sambandsþingsins lagði
fyrir þingið. Tölurnar eiga aðeins við Evrópu nema
þegar fjallað er um herskip, kafbáta og langdræg
kjarnorkuvopn. Þær tölur lýsa stöðunni á heims-
mælikvarða. Við mat á kjarnorkustyrknum er ekki
miðað við fjölda þeirra tækja, sem geta flutt
kjarnorkusprengjur, heldur eru sprengjurnar
sjálfar taldar.
hæfara starfsfólki, sem af aukinni
ánægju og þekkingu þjónar við-
skiptavinunum.
NÝSTÁRLEÍiT VIÐTAL
I all nýstárlegu viðtali í útvarp-
inu nýlega, við Tómas Árnason
viðskiptaráðherra og þingmann
okkar, kom fram álit hans á smá-
sölu álagningu búvara, sem hefur
verið eitt af baráttumálum okkar
frá upphafi að fá leiðrétt. Ljóst er
að sala á hinni svokölluðu vísitölu-
vöru vegur mun þyngra hjá okkur
en stórmörkuðunum í Reykjavík.
Hér er því raunverulega um lífs-
hagsmuni matvöruverzlana að
ræða og fróðlegt verður að fylgj-
ast með ákvarðanatöku 6 manna
nefndarinnar.
Stjórnir Félags matvörukaup-
manna og Félags kjötverzlana
hafa að undanförnu beitt sér mjög
í þessu máli og rituðu þau ráð-
herra nýlega bréf þar um.
Gísli Blöndal
Við hljótum að trúa því, ef
eitthvað er takandi mark á ráð-
herranum, að nú hilli undir leið-
réttingu í þessu máli. Að vísu á
hann við ramman reip að draga
þar sem eru ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins, en við skulum samt
leyfa okkur að vona hið besta.
FJÁFRESTING
KAUPFÉLAGANNA
RANNSÓKNAREFNI
Það hlýtur að vera okkur öllum
áhyggjuefni að verzlanir á lands-
byggðinni hafa á liðum árum verið
að týna tölunni. Nægir þar að
nefna Selfoss og Kjörbúð Bjarna á
Akureyri. Einhverra hluta vegna
virðist þetta ekki svo mjög þjaka
kaupfélögin ef marka má fjarfest-
ingu þeirra bæði í verzlun og öðr-
um atvinnugreinum að undan-
förnu og er það raunar rannsókn-
arefni út af fyrir sig.
VEXTIR INN í VERÐIÐ
•I verðlagsmálum ber vaxtamál-
ið hæst. Við teljum það bæði
sjálfsagt og eðlilegt að smásölu-
verzluninni verði heimilað að
reikna vexti af vöruvíxlum inn í
útsöluverðið með sama hætti og
heildverzlunin gerir. Hér er um að
ræða einn stærsta kosnaðarlið í
verzlunarrekstri í dag. Einnig að
söluskattur af flutningskostnaði
verði felldur niður svo og að
sjálfsögöu hinn sérstaki skattur á
verzlunarhúsnæði, því hann kem-
ur enn harðar niður á verzluninni
úti á landi vegna hins mikla
birgðahalds, sem eðlilega þarf sitt
húsnæði.
DREIFBÝLISNEFND
Á fulltrúaráðsfundi KÍ sl. vetur
var samþykkt tillaga um skipun
sérstakrar nefndar um verzlun í
dreifbýli, sem í ættu sæti fulltrúar
frá öllum landsfjórðungunum. Við
hljótum að binda nokkrar vonir
við að nefnd þessi verði skipuð nú
í haust og hefji störf, þar sem
samræma mætti baráttumál
okkar vítt og breitt um landið.
Þar gæti ég vel hugsað mér að
kæmi á dagskrá fræðslumál, vöru-
flutningar og flutningskostnaður,
og raunar margt fleira sem eru
sérstök vandamál okkar í dreifbýl-
inu, umfram Reykjavíkursvæðið.
Að lokum góðir fundarmenn vil
ég þakka það traust sem mér var
sýnt á síðasta aðalfundi'með því
að gefa mér kost á að vera i for-
svari fyrir kaupmenn á Austur-
landi. Þá vii ég þakka meðstjórn-
armönnum mínum fyrir samstarf-
ið og einnig stjórn og starfsfólki
Kaupmannasamtaka íslands, og
læt í ljós þá ósk og von að kaup-
mannafélag Austfjarða og Kaup-
mannasmtök Island megi eflast og
dafna á komandi árum, þjóðinni
allri til heilla.
Frjáls verzlun — framtíð þjóð-
ar.