Morgunblaðið - 31.10.1981, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1981
i HLAÐVARPINN ,
af BÓKUM: i
Leitin að sannleikanum
er það sem skiptir máli
- segir Guðmundur Daníelsson rithöfundur
„SjálfsaKt hefði én skrifað
öðruvísi, hefði ég alist upp á öðr-
um og allt öðruvísi slóðum en á
suðurlandsundirlendinu, því um-
hverfið og saga þess á sterk ítök
í mer o(í þess sér víða merki í
verkum mínum hyKK é({,“ sa({ði
Guðmundur Daníelsson rithöf-
undur, er tíðindamaður Hlað-
varpans ræddi við hann í tilefni
út({áfu ritsafns hans í vikunni.
Við spurðum Guðmund einnig,
hvort hann hefði einhvern tíma
langað til að skrifa verk, en þó
aldrei gert.
„Já, mig hefði ef til vill langað
tilað skrifa ákveðið verk, sem ég
þó aldrei gerði og geri aldrei,"
sagði Guðmundur, „en hvað verk
það er eða hvers vegna ekki varð
úr þvi, það held ég að sé best að
liggi í þagnargildi. — Já, ég mun
halda áfram að skrifa fyrir því,
en hvort útgefandi fæst veit ég
auðvitað ekki, en mér er þetta
svo eiginlent, að é({ verð að skrifa
meðan ég get.“
— Fyrirmyndir að sögum þín-
um og sögupersónum?
„Jú, það eru ákveðnar fyrir-
myndir að mörgum sögum mín-
um, til dæmis má nefna Húsið,
þar sem fyrirmyndin er sótt í
Húsið á Eyrarbakka og íbúa
þess, þá er Selfoss einnig nær-
tækt dæmi, og þeir er þar byggðu
upp, konur umhverfis fram-
kvæmdastjórann. Söguefnið úr
nágrenni mínu hefur leitað á
mig, og oft eru persónurnar úr
hópi þeirra sem ég hef mætt á
leiðinni, en oftar ef til vill hug-
arfóstur mitt. Ég ólst upp við
Guðmundur Daníelsson
rithöfundur
fótskör ömmu minnar, sem
kunni utan að mikið magn af
sögum, bæði í bundnu og
óbundnu máli, og þar er ef til vill
að finna kveikjuna að áhuga
mínum á skáldskap.
Þá spyrðu um einkenni á
skáldskap mínum, ég veit ekki
hvað segja skal. Konur eru mikl-
ir áhrifavaldar í sögum mínum,
ef til vill vegna þess að ég var að
stórum hluta til alinn upp af
kvenfólki. Ef þú ert að spyrja um
bókmenntastefnur, þá get ég að
ég held að minnsta kosti sagt, að
sósíalrealisti hef ég aldrei verið!
— Slíku var haldið að mér á með-
an ég var yngri, og ég fylltist
mótstöðu við það. Ég hef andúð á
öllu trúboði, en hef á hinn bóginn
dálæti á frelsishugsjóninni. En
frelsið er þó aðeins hugsjón og
verður ekki annað, líkt og sann-
leikurinn sem menn kannski
finna aldrei. Menn finna sann-
leikann ekki, en leitin að sann-
leikanum er það sem mestu máli
skiptir."
— Þú hefur lesið bækur þínar .
yfir nú, vegna endurútgáfunnar í
ritsafninu?
„Ég hef nú aldrei legið yfir eig-
in bókum, en ég neyddist til þess
að lesa þær yfir nú, það er rétt.
Ekki hef ég þó breytt þeim, þó er
stafsetningu breytt, og nokkrar
útstrikanir hef ég einnig gert. í
margar þeirra hef ég ekki litið
áratugum saman, en nú verð ég
að gera það. Það er erfið vinna,
að lesa svona yfir, prófarkir og
allt það, en ég hafði í því góða
aðstoðarmenn."
— Hvað er góður rithöfundur?
„Ég veit það ekki, og þó. Ætli
það sé ekki sá sem kemur því til
skila, sem hann ætiar að segja,
kgmur þvi til skila á listrænan
hátt. Takist höfundi að koma því
til skila,sem hann ætlar ser, þá
finnst mér að hann eigi að fá
jákvæða dóma.“
Birgir Hclgason við píanóið. I*eir eru ófáir krakkarnir á Akureyri, sem
hafa verið í söngtímum hjá Birgi, og lög hans, sem Kór Barnaskóla
Akureyrar hefur flutt, eru mörg hver vel þekkt.
TONLIST: ■■■■■■■■
Lögin verða til
við ljóðalestur
- Spjallað við Birgi Helgason um
nýja plötu með lögum hans
NYLEGA kom út hjá Stúdíó
Bimbó á Akureyri hljómplata
með lögum eftir Birgi Helgason,
sögkennara við Barnaskóla Ak-
ureyrar. I kvöldró heitir platan,
og við lög Birgis eru ljóð kunnra
höfunda Norðanlands, auk texta
eftir Birgi sálfan. Birgi þarf ekki
að kynna á Akureyri, svo lengi
hafa bæjarbúar, aldnir sem ung-
ir, notið tónlistarhæfileika hans,
en þar sem Hlaðvarpanum flaug
í hug að aðra landsmenn fýsti að
vita deili á honum, var slegið á
þráðinn norður í vikunni.
„Jú, jú, þar er rétt að þessi
plata var að koma út“ sagði
Birgir, þar sem við trufluðum
hann frá kennslunni í barnaskól-
anum — Barnaskóla íslandseins
og norðanmenn nefna hann
stundum í gamni. „Þetta er
fyrsta platan sem er eingöngu
með lögum mínum" sagði Birgir
ennfremur, „en áður hafa aíl-
mörg lög komið á ýmsum plöt-
um, einkum hjá kór barnaskól-
ans. Meðal annars átti ég lög á
plötunni Kom blíða tíð, sem út
kom í fyrra, og nú er verið að
dreifa á ný. — Hvernig lög?
Þetta eru svona lítil snotur lög,
sem falla, að ég held, vel að text-
anum. Upphafið að þessu er nú
eiginlega það, að Jóhann Daní-
elsson, söngvari, hafði hug á að
syngja einhver laga minna inn á
segulband, og bjóða útvarpinu til
flutnings, en smám saman vatt
það utan á sig, þar til þessi
hljómplata var orðin að veru-
leika."
Birgir sagði erfitt að lýsa því
fyrir öðrum hvernig lögin verða
til en „ég les mikið af ljóðum, og
oft fæ ég þá hugmyndina að ein-
hverri laglínu, sem ég svo prjóna
við, stundum passar það þó
miklu fremur við eitthvað annað
kvæði, og stundum verða lögin
til eins og af sjálfu sér, það er
engin algild regla í þessu efni.
Upphaflega byrjaði ég að semja
lög þegar mér fannst kórinn
vanta lög, og þá var það oftast
Tryggvi heitinn Þorsteinsson,
skólastjóri, sem samdi ljóðin. —
Fjöldi laga? það veit ég varla,
50-60-70 kannski."
Fyrir nokkrum árum kom út
bók með 10 lögum Birgis, Vorid
kom heitir hún, og væntanleg er
nótnabók með 12 einsöngs- og
kórlögum.
TRÚBOÐ:
í kristniboðsieiðangri
í úteyjum Vestmannaeyja
GideonfélaRÍð, sem um
árabil hefur dreift Biblí-
unni víða um land, sendi
Biblíu í allar úteyjar
\
Gísli afhendir llalla Steina
Álseyingi Biblíu Gideonfélagsins.
Vestmannaeyja sl. sumar
og var Gísli Friðgeirsson,
skólameistari, gerður út
af örkinni í þeim leið-
angri.
Sótti Gísli fyrst heim
Bjarnarey og fékk síðan
til liðs við sig Bjarnarey-
inga til að heimsækja all-
ar aðrar úteyjarnar og
var kristniboðsförin farin
á heiðskírum sumardegi.
Meðfylgjandi myndir
tók Grímur Gíslason þeg-
ar leiðangursmenn sóttu
Álsey heim og færðu stað-
armönnum Biblíu, sem
forseti Álseyinga þann
dag tók á móti.
Bjarnareyingarnir sem fóru í kristniboðsforina með Gísla Friðgeirssyni,
sem cr lengst til vinstri með dóttur sína, en hægra megin við hann er
Þorkcll Húnbogason, Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólastjóri Stýri-
mannaskóla íslands, Hlöðver Johnsen, Bjarneyjarbóndi, og Valur And-
ersen með son sinn Frey.