Morgunblaðið - 01.11.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1981
37
Bubbi
af stað með Eqóið
Egó sem Bubbi
Morthens stofnaói eftir að Utan-
garðsmenn leystust upp er nú að
leggja upp í hljómleikaferð um
landið. Egóið stefnir að því að spila
16 sinnum í nóvember og er
dagskráin sem hér segir.
Mánud. 2. nóv.. Valaskjálf.
Þriöjud 3. nóv . Alþýóuskólinn, Eióum.
Mióvikud. 4. nóv.. Egilsbuö, Neskaupstaö
Fimmtud. 5. nóv.. Félgslundur, Reyöarfiröi.
Föstud. 6. nóv., Heröubreiö, Seyöisfiröi.
Sunnud. 8. nóv., Sindrabær, Hornafiröi.
Mánud. 9. nóv , Skógaskóli.
Fimmtud. 12. nóv., Hótel Akranes.
Sunnud. 15. nóv., Sjálfstæöishúsinu, Akureyri.
Þriójud. 17. nóv., Hótel Húsavik.
Mióvikud. 18. nóv., Héraösskólinn aö Laugum.
Fimmtud. 19. nóv., Nýja Bíó, Akureyri
Bubbi og Beggi Morthens: Portrait af artistunum sem ungum mönnum.
Grafík
Fáar hljómsveitir hafa komiö
okkur borgarbúum sem stöö-
ugt trúum aö viö séum
fremstir í rokktónlistinni hér á landi,
meir á óvart en hljómsveitin Grafik
frá isafirði. Þeir í Grafik sendu fyrir
skömmu frá sér stóra plötu „Út í
kuldann". Sú plata er næstum því
öll unnin á isafirði. Þeir önnuöust
upptökur sjálfir, og dreifing og út-
gáfa er í þeirra höndum. Aðeins
hljóðblöndunin varö aö gerast i
Rvk., var hún gerö í Stúdíói
Stemmu.
Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson ur Grafik.
Til að fræöast meir um lögin á
plötunni fékk Pokahorniö tvo af
höfuðpaurunum úr Grafík í heim-
sókn til sín, þá Rafn Jónsson og
Rúnar Þórisson.
Þeir sögöu m.a. aö ætlunin væri
aö spila á isafiröi um jólin en af
tónleikum í Rvk. gæti því miöur ekki
oröiö vegna anna nokkurra sveit-
armeðlima. En i stuttu máli...
Vídeó: Þetta lag er samið í júlí/-
ágúst þessa árs. Fjallar um vídeó-
væöinguna þótt hún sé alls ekki ný
af nálinni, togararnir hafa lengi nýtt
sér tæknina.
Rottuorkuheimur: Textinn er
fjögurra ára og saminn af Rafni eftir
aö hann las grein í Mbl. um eyju í
Kyrrahafinu þar sem einungis rottur
lifa. Þetta er fyrsta laglö sem tekið
var upp fyrir plötuna. Ekki ósvipuð
hugmynd og Plágan hans Bubba.
Ótíminn: Samiö í vetur, textinn
kom i vor, er haröur en gæti samt
veriö haröari, þótt hérna sé ekki
endilega veriö aö miða viö íslenskar
aðstæöur.
Hvaö segiö þiö um nafngiftina
kuldarokk?
Hún getur átt viö og kannski
ekki. Passar viö sum lögin, og þess
má minnast aö viö búum á mjög
köldu svæöi, hér noröur viö Ball-
arhaf.
eins og stundum segir, komst mjög
vel til skila þetta kvöld.
Varla er hægt aö minnast svo á
Purrkinn án þess aö geta texta Ein-
ars Arnar. Þeir þykja athyglisveröir
og persónulegir. Ýmsir af viömæl-
endum Pokahornsins hafa látiö í Ijós
þá skoóun að þarna sé á ferðinni
einn af betri textahöfundum innan
rokksins nú á dögum.
Purrkurinn flutti lög af væntan-
legri stórri plötu sinni, sem ber nafn-
ið „Ekki enn“. Þá voru þeir meö lög
af litlu stóru plötunni sinni, „Tilf“ sem
út kom í vor. Þar aö auki flutti
hljómsveitin nokkur nýsamin lög
sem mörg voru frumflutt þarna í
NEFS.
Siöasta lagiö á efnisskránni var
lag af rétt óutkominni plötu þeirra og
heitir lagið: „Land míns fööur“ og i
því spilaói Tóti úr Lojpippos-Spoj-
sippus sem var mjög til aö gera lagiö
skemmtilegra.
Eftir þaö kom hiö heföbundna
uppklapp, i tvígang meira aö segja.
Purrkurinn lék fyrir lýðinn lagið hans
Megasar, „Viö sem heima sitjum",
og er það oröinn fastur liöur hjá
hljómsveitinni. Þegar hér var komiö
sögu var klukkan að nálgast þann
tíma sem skrautkerran breytist í
grasker og kjólarnir i tötra, þ.e. 12.
Einn strengur slitinn í bassanum
hans Braga og mál til komiö aö
hætta leiknum.
Purrkurinn getur vel við unaö,
meö þær undirtektir sem þeir fengu.
Þeir eru greinilega komnir i fremstu
víglínu islenska rokksins á ótrúlega
skömmum tima og líklega eiga þeir
eftir að vera talsvert áberandi í vet-
ur.
POKAHOmiB
(ásamt Bara-flokknum).
Föstud. 20. nóv., Hótel Höfn, Siglufiröi.
Laugard. 21. nóv., Reykjaskóli. Hrútafiröi.
Fimmtud. 26. nóv. Hótel Borg, Rvk.
Laugard. 28. nóv., Háskólabió, Rvk. (ásamt
norsku hljómsveitinni The Cut).
Hlómsveitin er skipuö þeim
Bubba (söngur), Þorleifi Guöjónssyni
(bassi), Jóhanni Richard (trommur),
Bergþóri Morthens (gítar), Ragnari
Siguróssyni (gitar) og Erni Nilsen
sem sér um hljóöblöndun.
Að sögn Bubba kennir margra
grasa í tónlist Egósins. Þeir spila
nýbylgjupopp, þungarokk og einnig
eru nokkur lög sem eru kannski í
þeim stíl sem hann var aö fást viö
fyrir Utangarösmannatímabiliö.
Textagerö Bubba hefur einnig tekiö
breytingum í í Ijóöum sinum kemur
hann viða við.
Pönkið, Hótel Borg, Járblendiö,
dómsvaldiö og fleira fá sina af-
greióslu hjá honum.
Ef allt gengur samkvæmt áætlun
fer Egóið í stúdió í desember/janúar
til aö hljóörita efni á stóra plötur.
Við munum gera Egóinu, textum
þeirra og tónlist nánari skil síðar en
aö lokum má geta þess að Bubbi
sagóist vera mjög ánægóur meö
gang mála á æfingum fram aö þessu
og er bjartsýnn á ferðina.
pix.
Hrollaugsbunga: Hæsti tindur
Orangajökuls. Hljómarnir samdir
fyrir áramót af Rúnari og síöan var
unniö aö laginu í janúar.
Hlið tvö.
í múrnum: Samið eins og nafniö
gefur til kynna um þá tilfinningu aö
sitja í tukthúsi. Viö höfum samúó
meö þeim sem inni sitja, okkur
finnst að þaö sé jafnoft þjóðfélag-
inu aö kenna eins og þeim fangels-
uöu, aö þeir skuli vera í haldi.
Guðjón bílstjóri: Elsta lagiö á
plötunni, um þaó bil þriggja ára.
Þaö er til í nokkrum útgáfum, til
dæmis rokkaðri sem viö notum á
böllum og verður kannski notaö á
„greatest hits“. Lagiö varö til löngu
á undan Ijóöinu hans Þ. Eldjárns.
Missifengur: Sumum blöðunum
finnst þetta versta lagió á plötunni
en okkur þykir þaö einna best
heppnaó. Textinn var saminn af
Rafni eina andvökunótt í Uppsölum
en á meöan var Rúnar aö semja lag
á isafirði. Síðar kom í Ijós aö texti
þessi og lagið áttu vel saman. Lík-
lega hafa hugskeytin flogiö á milli
okkar. Aö mínu mati (segir Rúnar)
er þetta besti textinn á plötunni,
fyrir utan „Guöjón“ ef til vill.
Út í kuldann: Upphaflega var
hugsunin sú aö nota hljóöeffekta til
aö sýna þær andstæöur sem fyrir-
finnast í nútímanum og hafa
kannski alltaf veriö fyrir hendi. Lag-
iö byrjar á hirðingjasögn í íran, síö-
an kemur Marlene Dietrich meö lag
úr striöinu, þá umferöin, bílflautur,
barnaleikvöllur og endar á setningu
úr munni dóttur hans Rafns, heim-
spekilegri vangaveltu.
Spurning: Hvaö finnst ykkur um
þá dóma sem ykkur hafa verið
gefnir í blöðunum?
Svar. Ágætir, þeir hafa oft veriö
jákvæöir, samt er sumt alveg út í
hött. Skrifaö af vanefnum. Viö hefö-
um viljað fá ítarlegri umsögn.
Sp: Farnir aö huga að annarri
plötu?
Sv: Jú, þaö er aóeins farið aö
leggja í bleyti.
Og Pokahorniö þakkar þeim
Rafni og Rúnari fyrir innlitiö.
Hljómleikar
víkunnar
Sunnud. 1/11
Jazzkv. Guómundar Stein-
grímss. Stúdkj.
Miðvikud. 4/11
Nýja Kompaníiö. Menntask.
/Sund.
Fimmtud. 5/11
Nýja Kompaníið. Djúpið.
Föstud. 6/11
Nýja Kompaníið. Fjölbr.
/Breiðholt.
Laugard. 7/11
Nýja Kompaníið. Djúpiö.
Sykurlaus-
ar Gæjól
• Rod Stewart leggur upp i
langa tónleikaferö um Banda-
ríkin þann 11. nóvember. Áætl-
aö er aó feröinni Ijúki í Kanada
um miöjan febrúar. Feröin er
meöal annars farin til aö kynna
nýja stóra plötu sem hann er aö
láta frá sér, og heitir Tonight
l’m yours. Hún kemur um mán-
aöarmótin.
• The Steve Miller Band eru
einnig á leiðinni meö nýja plötu,
eftir langt hlé. Hún kallast,
Circle of Love.
• Meir af nýjum plötum;
Queen eru á leiðinni meö jóla-
glaöninginn fyrir sína dyggu aö-
dáendur. Ein „Greatest Hits“ er
sá pakki sem þeir senda frá
sér, og er þaö safn vinsælustu
laganna þeirra. Þó fær eitt nýtt
aö fljóta með. „Under Press-
ure“ heitir þaö lag og meö þeim
kemur fram kappinn David
Bowie, í þessu lagi.
• Stutt var miðvikudags-
kvöldsælan fyrir unglingana í
NEFS. í sóöustu viku þurfti aö
aflysa unglingahljómleikunum
af því aö haskolakórinn þurfti
að fá húsnæöiö undir sig. Þar
meö rauk hin góöa skemmtun
unglinganna út í vindinn, en
vonandi tekst NEFS aö greiöa
úr vandræðunum svo ungl-
ingakvöldin lognist ekki útaf.
• Hljómsveitin Þeyr eru aö
leggja upp í tólf daga ferö til
Englands, nú á þriðjudaginn.
Þar munu þeir m.a. spila þrjú
skipti. j leiöinni ætla þeir aö
láta skera nýju plötuna sína
sem nú er nýlokió viö. Stefnt er
aö hun komist á markaöinn
síöla nóvembermánaöar.
• Fleiri íslenskar hljómsveit-
ir stefna utan. Fræbbblarnir
sem um þessa helgi eru aö
hljóðrita tónlist fyrir kvikmynd
Hrafns Gunnlaugssonar ætla
aö þiggja boö um að spila i
Noregi i febrúar.