Morgunblaðið - 01.11.1981, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
2ttor£mibIaÍJií>
fttt) vgiroMW&ifo
SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1981
Samdráttur í út-
flutningi um 15,6%
HKILDAKSAMDKATTIIR í útflutn-
ingi landsmanna, í magni talið, fyrstu
átta mánuði ársins var um 15,6%, en
alls voru flutt út 411.730 tonn janúar til
ágúst í ár, samanborið við 481.901,1
tonn á sama tímahili í fyrra. í útflutn-
ingsverðmæti varð hins vegar um 43%
aukning á þessu umrædda tímabili.
Séu eiirstakar greinar skoðaðar
kemur í Ijós, að sú grein sem mest
hefur dregizt saman er landbúnaður.
Þar hefur samdrátturinn orðið lið-
lega 23% á fyrstu átta mánuðum
ársins í magni talið, en flutt voru út
4.465,8 tonn, samanborið við 5.800,2
tonn í fyrra.
Samdrátturinn í iðnaði var fyrstu
átta mánuði ársins um 9,7% í magni
talið, en alls voru flutt út 79.873,7
tonn fyrstu átta mánuðina á þessu
ári samanborið við 82.321 tonn á
sama tíma í fyrra. Aukningin í verð-
mæti varð hins vegar aðeins tæplega
24%.
Sjávarútvegurinn kom illa út, því
alls varð tæplega 20%) samdráttur í
útflutningi sjávarafurða á fyrstu
átta mánuðum ársins í magni talið.
Alls voru flutt út 295.623,3 tonn
fyrstu átta mánuðina, samanborið
við 366.443,7 tonn á sama tíma í
fyrra. Verðmætaaukningin í útflutn-
ingi sjávarafurða varð hins vegar
tæplega 49% á fyrstu átta mánuðun-
Loðnuhrogn á Evrópumarkað:
Margfalt hærra
verð en í Japan
MAKGT bendir nú til þess, að mark-
aður sé að opnast fyrir loðnuhrogn í
Kvrópu. í norska blaðinu Fiskaren
sem kom út fyrir skdmmu segir að á
matvælakaupstefnunni Anuga í
Köln hafi mörg matvælafyrirtæki í
Kvrópu sýnt áhuga á að kaupa loðnu-
hrogn. Ilefur blaðið eftir Per Myr
land sölustjóra Peitsildfiskernes
salgslag að t.d. hafi eitt fyrirtækið
viljað kaupa 500 tonn.
Myrland segir að á sl. ári hafi
Norðmenn framleitt um 3000 lest-
ir af loðnuhrognum og hafi allt
magnið farið á Japansmarkað.
Japanir hafi greitt norskar krónur
8,50 fyrir kílóið en margt bendi til
þess að Evrópumarkaðurinn muni
greiða norskar krónur 35,00 fyrir
kílóið eða 45,30 ísl. kr.
Morgunblaðið bar þessa frétt
undir þá Hjalta Einarsson fram-
kvæmdastjóra Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna og Sigurð
Markússon framkvæmdastjóra
Sjávarafurðadeildar Sambands-
ins. Hjalti sagði, að hann hefði
heyrt rætt um að möguleikar
væru á að selja loðnuhrogn til
Evrópu fyrir gott verð og fyrir-
spurnir hefðu komið til SH frá
Noregi. En að öðru leyti sagðist
hann ekki vera nægilega vel inni í
málinu.
Sigurður Markússon sagði, að
sér væri aðeins kunnugt um þessa
möguleika. Staðreyndin væri að
rætt hefði verið um þetta sl. vor
bæði í Noregi og á Islandi. Kvaðst
hann hafa mestan áhuga á hvaða
áhrif Evrópumarkaðurinn hefði á
almennt söluverð, því það væri
erfitt að hugsa sér, að Evrópu-
markaðurinn myndi greiða marg-
falt hærra verð en sá japanski.
Heldur hlyti að skapast jafnvægi
á verði á milli þessara markaðs-
svæða.
í landi Voga er nú verið að bora eftir köldu vatni á vegum Fjárfestingafélagsins. Boraðar verða 3 holur og ef
árangur verður góður mun rísa þar ein stærsta fiskeldisstöð Evrópu. Nú standa yfir samningar við Vatnsleysu-
strandarhrepp og verði af þeim mun Fjárfestingafélagið í samvinnu við ameríska fyrirtækið Weyer Hauser reisa
þar fiskeldisstöð fyrir 400.000 seiði til að byrja með og síðan er stefnt að því að stækka hana upp í 6 til 10
milljónir seiða.
Kosið á lands-
fundinum í dag
í DAG er síðasti dagur 24. lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins og á
dagskrá fundarins í dag eru m.a.
kosningar formanns, varaformanns
og miðstjórnar. Fyrir hádegi fara
fram umræður um stjórnmálaálykt-
un og afgreiðsla hennar og álits-
gerða starfshópa. Kosning formanns
hefst kl. 14.00. 1‘egar Morgunblaðið
fór í prentun eftir hádegi, laugardag,
lágu fyrir framboð þeirra Geirs Hall-
grímssonar, sem gefur kost á sér til
endurkjörs, og Pálma Jónssonar,
sem hefur tilkynnt formannsfram-
boð sitt. Kosning formanns er
óbundin og án tilnefningar, at-
kvæðaseðlum er dreift og lands-
fundarfulltrúar skrifa á atkvæðaseð-
il nafn þess er þeir vilja kjósa.
Kosning varaformanns hefst kl.
15.30 í dag og er með sama hætti
óhundin og án tilnefningar. Þrír
landsfundarfulltrúar hafa til-
kynnt að þeir gefi kost á sér við
varaformannskjör, eru það þau
Friðrik Sophusson, Ragnhildur
Helgadóttir og Sigurgeir Sigurðs-
son. Þegar Morgunblaðið fór í
prentun eftir hádegi, laugardag,
Ólafur G. Einarsson á landsfundi:
Hvað hefði orðið um varafor-
manninn í öðru þingræðislandi?
GHNNAR Thoroddsen sagði, að í
öðrum þingræðislöndum hefði
formaður í sporum formanns
Sjálfstæðisflokksins verið búinn
að segja af sér eða hann hefði ver
ið settur af vegna ósigra flokksins.
En ég segi, hjá okkur stendur ekki
til að setja formann Dokksins af,
honum verður ekki kennt um
ósigra ftoksins, þar hafa önnur öfl
í flokknum verið að verki. Og ég
spyr: Hvað hefði verið gert við
varaformann stjórnmálaflokks í
öðrum þingræðislöndum, ef hann
hefði hagað sér með sama hætti og
varaformaður okkar? — Þannig
komst Olafur G. Einarsson, for
maður þingflokks sjálfstæð-
ismanna, að orði, þegar hann svar
aði ræðu Gunnars Thoroddsens,
varaformanns Sjálfstæðisflokks-
ins, á landsfundinum í fyrradag.
Eins og fram kom í stuttri til-
vitnun í ræðu Olafs G. Einars-
sonar í gær, taldi hann ekki unnt
að tala um sættir í Sjálfstæðis-
flokknum nema þingmenn hefðu
sömu afstöðu til ríkisstjórnar.
Og Olafur G. Einarsson svaraði
fleiru í ræðu Gunnars Thor-
oddsens. Hann sagði:
— Og Gunnar Thoroddsen
kveinkar sér undan því, að
haustið 1978 hafi komið fram
raddir um það í þingflokknum,
að ef til vill væri happasælast að
skipta um þingflokksformann,
en í því embætti sat hann þá.
Þessar raddir áttu tvímælalaust
rétt á sér, en næstu fjögur árin á
undan hafði þingflokksformaður
verið varaformaður og ráðherra
að auki, og þótt Gunnar væri
hættur að vera ráðherra haustið
1978, fannst ýmsum nóg, að
hann gegndi varaformennsku.
Ég fullyrði, að í dag myndi eng-
um í þingflokknum detta í hug,
að kjósa þann mann formann
Olafur G. Einarsson
sinn, sem gegndi varaformanns-
embætti.
— I ræðu sinni rifjaði Gunnar
Thoroddsen það enn upp, sem
menn töldu útrætt á síðasta
landsfundi, að illa hafi verið far-
ið með Albert Guðmundsson í
nefndakjöri á Alþingi haustið
1978. Þessar ásakanir eru al-
rangar. Albert Guðmundsson
varð undir i lýðræðislegum
kosningum í þingflokknum. Ég
veit ekki betur en hann hafi sætt
sig við það og þolað, sagði Ólafur
G. Einarsson og bætti við:
— Menn, sem þola ekki að
verða undir í lýðræðislegri kosn-
ingu eiga ekkert erindi í pólitík,
nema þá menn vilji hafa það eins
og þeir Gunnar Thoroddsen og
fylgismenn hans og fara bara til
annarra flokka og bjóða þeim
fram þjónustu, þar sem eigin
flokksbræður hafi ekki kunnað
að meta hana.
var ekki kunnugt um önnur fram-
boð til varaformanns.
Kosning miðstjórnarmanna
hefst kl. 17.00 í dag. Landsfundur-
inn kýs 11 manns í miðstjórn úr
hópi annarra en alþingismanna en
þingflokkurinn kýs sérstaklega 5
fulltrúa í miðstjórn úr sínum hópi.
Kosning til miðstjórnar er nú
bundin við skriflegar tillögur.
Kjörstjórn vegna miðstjórnar-
kjörs skipa þeir Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sjálfstæð-
isflokksins, Sveinn H. Skúlason,
framkvæmdastjóri fulltrúaráðs-
ins í Reykjavík, og Engilbert Ing-
varsson, formaður Kjördæmis-
ráðsins á Vestfjörðum.
Að loknum kosningum verða al-
mennar umræður og afgreiðsla
mála. í kvöld, sunnudagskvöld,
verður kvöldfagnaður fyrir lands-
fundarfulltrúa í Sigtúni.
Sjá frásögn og myndir frá
landsfundi á bls 46.
Tónlistarsamkeppni
Norðurlandaráðs:
Verk Jóns
Nordal og Leifs
Þórarinssonar
VALIN hafa verið tvö íslenzk tónverk
til tónlistarsamkeppni á vegum Norð-
urlandaráðs, sem fram fer snemma á
næsta ári. Verkin eru „Kís upp ó guð“,
kantata eftir Leif Þórarinsson og Tví-
söngur fyrir fiðlu, lágfiðlu og hljóm-
sveit eftir Jón Nordal.
Af íslands hálfu sitja þeir Árni
Kristjánsson og Páll Kr. Pálsson í
dómnefndinni, sem kemur saman í
janúar til að komast að endanlegri
niðurstöðu. Verðlaun, 75.000 krónur,
verða síðan veitt í Helsingfors á
fundi Norðurlandaráðs í marsbyrjun
1982.