Morgunblaðið - 01.11.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1981 4 1
Árbók sjávar-
útvegsins gef-
in út á ensku
GEFIN hefur verið út árbók sjávar
útvegsins á íslandi og eru í henni
gerð skil því helzta er varðar afla,
fiskvinnslu og útflutning ársins
1980. Auk þess er þar að finna
fróðleik um margvísleg efni tengd
þcssum höfuðatvinnuvegi íslend-
inga. Bókin er á ensku, gefin út af
Iceland Review.
„Þetta er í fyrsta skipti.sem
hliðstæð bók er gefin út hér á
landi og reyndar er slík bók ekki
til á íslensku í þessu formi,“
bnsl9ol
reer
39h9ri8R
>kx>dis9Y
Kápumynd árbókarinnar
sagði Haraldur Hamar, ritstjóri
bókarinnar. „Tilgangurinn með
þessari útgáfu er fyrst og fremst
að upplýsa fólk erlendis, sem
starfar að þessum málum, um
hvað er að gerast í sjávarútvegi
og fiskvinnslu á íslandi, ekki sízt
með tilliti til markaðsmála. Mín
von er sú, að þessi útgáfa geti
greitt fyrir útflutningi og aukið
skilning manna erlendis á að-
stöðu okkar og þörfum," sagði
Haraldur Hamar.
Hann sagði að undanfarið
hefði töluvert verið gert af því að
kynna bókina erlendis, en ýmissa
hluta vegna hefði útgáfa bókar-
innar tafist. Haraldur sagði að
að því væri stefnt að „Iceland
Fisheries Yearbook 1982“ kæmi
út fyrr á næsta ári og þá vænt-
anlega næsta vor og stefnt er að
því að sú bók verði nokkuð
stærri. Bókin er að þessu sinni í
tímaritsformi, 64 blaðsíður að
stærð og prýdd fjölda mynda. Út-
gefandi annast dreifingu.
Fjölmargir hérlendir framá-
menn á sviði sjávarútvegs rita
greinar í árbókina. Steingrímur
Hermannsson sjávarútvegsráð-
herra ritar inngang, Már Elísson
fiskimálastjóri fjallar um stjórn-
un fiskveiða og verndun fiski-
stofnanna gegn hugsanlegri
ofveiði og Ólafur Davíðsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, greinir
frá skiptingu fiskafla ársins 1980
eftir verkunaraðferðum, svo og
markaðshorfum í nánustu fram-
tíð. Þá ritar Þórhallur Ásgeirs-
son, deildarstjóri í Viðskipta-
ráðuneytinu, um útflutning sjáv-
arafurða til Evrópulanda. Guð-
mundur H. Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, greinir frá
horfum í frystiiðnaðinum, Jón
Reynir Magnússon, forstjóri
Síldarverksmiðja ríkisins, fjalar
um framleiðslu fiskimjöls og lýs-
is og Rafn A. Sigurðsson, sölu-
stjóri SÖlustofnunar lagmetis,
ritar um útflutning lagmetis.
Einnig er grein eftir Hjálmar
R.Bárðarson siglingamálastjóra
um fiskiskipaflotann og Óskar
Einarsson skrifar um innreið
tölvutækni í íslensk frystihús.
Auk þessa eru í bókinni grein-
ar um Landhelgisgæsluna, samn-
inga Islendinga um veiðiréttindi
við A.-Grænland og Jan Mayen,
um ástand síldarstofnsins, veiðar
og vinnslu skelfisks, humars og
rækju, verkun og útflutning
skreiðar og saltfisks, nýjungar á
sviði björgunartækni og margt
fleira. Einnig eru í ritinu töflur
yfir afla, vinnslu og útflutning og
listar yfir íslenska framleiðend-
ur iðnvarnings sem tengist sjáv-
arútvegi, yfir útflytjendur sjáv-
arafurða, söluskrifstofur erlend-
is svo og sendiráð íslands og
ræðismenn.
Iceland — Fisheries yearbook
1981 er prentuð í allstóru upplagi
og mun verða dreift að verulegu
leyti erlendis. Útgefandi hefur á
undanförnum mánuðum auglýst
bókina í helstu alþjóðlegu fisk-
veiðiritunum, sem út eru gefin,
og hefur fjöldi pantana farið
langt fram úr því, sem búist
hafði verið við. Eru það fyrst og
fremst aðilar í Vestur-Evrópu og
á austurströnd Norður-Ameríku,
en einnig í fjarlægari löndum,
svo sem Japan og Suður-Afríku.
Frelsið, annað hefti 1981:
Vopnabúr frjálshyggjumanna
HT ER komið tímaritið Frelsið, annað
hefti ársins 1981, en Frelsið er árs-
fjórðungsrit, gefið út af félagi frjáls-
hyggjumanna. Kitstjóri þess er Hannes
II. Gissurarson, ráðgjafi ritstjórnar er
F.A. Hayek nóhclsverðlaunahafi í
hagfra'ði, og ritnefnd skipa Gísli Jóns-
son, Jónas Haralz, Matthías Johannes-
sen, Olafur Björnsson og porsteinn
Sæmundsson.
Hið nýútkomna hefti Frelsisins er
helgað samantekt eða skrá um bæk-
ur og bæklinga á íslensku og tungu-
málum öðrum, er varða frelsið. I
inngangsorðum að samantektinni
segir svo meðal annars: „Mikil
vændræði eru að sjálfsögðu á að
semja bókaskrá frjálshyggjumanna.
Hún verður alltaf ófullkomin, deila
má til eilífðarnóns um það, hvað á
heima í henni og hvernig haga skuli
slíkri skrá. Það þótti þó svo mikils
vert að eiga þennan vísi að „vopna-
búri“ í hugmyndabaráttunni, að til-
raunin var gerð. Ekki á það síðan að
spilla fyrir, að ung og falleg stúlka
gætir vopnabúrsins, en á forsíðu er
mynd af Elísabet Taustadóttur, feg-
urðardrottningu íslands, í bol með
hinu gamla og góða vígorði áletruðu:
„I.aissez-faire“ — látið vera, og sú
Frelsið
* Y
2-1981
Mbúrió
‘ftnmlaba
noi
i
áskorun á ríkið hefur sjaldan att
eins vel við og á okkar dögum."
Frelsinu, að þessu sinni, er skipt
niður í tvo megin kafla, um rit á
islensku, og um rit á ensku og öðrum
erlendum tungum. íslenski ritakafl-
inn skiptist í sex þætti; frjálshyggja
— hagfræði, samhyggja — sam-
h.vggjuríki — samhyggjuflokkar, al-
þjóðamál, stjórnmálamenn — saga
— ævisögur, bókmenntir og loks er
kafli um tímarit.
Tímaritið Frelsið er hið vandað-
asta að allri gerð og frágangi, 256
blaðsíður að stærð, unnið í ísafold-
arprentsmiðju. — AH
gjöf til vina
heima og eriendis
Nú gefst ykkur kostur á aö
gleöja vini erlendis og heima
meö íslensku úrvals lagmeti
ífallegri gjafaöskju.
3 mismunandi samsetningar
eru í öskjunum.
Pærfást í:
Álafossbúdin Rammagerðin SS Glæsibæ
Vesturgötu 2 Hafnarstræti 19
Verslunin Akur
Skipagötu 13
Akureyri
Nýjung á markaðnum
Kynnum nýjar
innréttingar að
Sólvallagötu 48.
Tilvaliö í: forstofuna
eöa svefnherbergið.
Svefnbekkir, rúm og
fataskápar úr Ijósu
beyki. Sérhannaöir
snagar og herðatré.
Kynniö ykkur mögu-
leikana.
Fyrsta flokks gæöi og
hagstætt verö.
Skoöiö útstillinguna
og fáiö
ykkur myndalista.
F0RST0FU- 0G SVEFNHERBERGISINNRÉTTINGAR
Framleiðandi: Smiðastofa Eyjólfs Eðvaldssonar. Sólvallagötu 48. Reykjavik. s. I 66 73
Hönnun: Pétur B. Lúthersson húsgagnaarkitekt FHI