Morgunblaðið - 01.11.1981, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1981
Sparifjársöfnun tengd rétti til lán
i •
i tij
Sparnaöur þinn eftir Mánaöarleg innborgun hámarksupphæö Sparnaöur i lok tímabils Landsbankinn lánar þér Ráðstöfunarfé þitt * Mánaöarleg endurgreiösla Þú endurgreiöir Landsbankanum
6 mánuði 2,500,00 15,000,00 15.000,00 31.262,50 2.776,60 6 mánuðum
12 mánuði 2,500,00 30,000,00 30.000,00 65.075.00 3.028,90 12 mánuöum
18 mánuði 2.500,00 45.000,00 67.500,00 124 536,75 3.719,60 27 mánuöum
24 mánuöi 2.500,00 60 000,00 120.000,00 201.328,50 4 822,60 48 mánuöum
Vertu
vtóbúinn
* f tölum þessum er relknaö með 34 % vöxtum af innlögöu fé, 37 % vöxtum af lánuöu fé, svo og kostnaöi vegna lántöku.
Tölur þessar geta breytzt miöaö viö hvenær sparnaöur hefst. Vaxtakjör sparnaöar og láns eru háð vaxtaákvöröun
Seölabanka íslands á hverjum tíma.
Frímerki til að
minnast 1000
ára kristniboðs
PÓST- ng simamálastjnrnin mun gela
út nytt frímerki þann 10. nóvember nk.
og á því er minnst 1000 ára kristniboðs
á íslandi, en árió 1981 er helgað
kristniboði á íslandi.
Frímerkið ber mynd af róðukrossi
frá kirkjunni að Álftamýri við Arn-
arfjörð. Hann er nú á Þjóðminja-
safninu og mun að líkindum vera frá
miðöldum. Krossinn er skorinn úr
rekavið, eintrjáningi og eru greinar
nýttar sem armar krossins.
Róðukrossmerkið verður 2 kr. að
verðgildi.
LANDSBANKENN
SparUán-tryggiiíg í framtíð
39. iðnþing Landssambands iðnaðarmanna:
Frá vinstri: vSigmar Árnason blaðafulltrúi iðnþingsins, Þórleifur Jónsson
framkvæmdastjóri Landssambandsins og Sigurður Kristinsson forseti
Landssambands iðnaðarmanna.
Svört atvinnustarf-
semi ofarlega á baugi
Leggir þú ákveöna upphæð mánaöar-
lega inn á sparilánareikning í
Landsbankanum,
öölast þú rétt á
spariláni,
sem nemur allt að
tvöfaldri sparnaðarupphæð þinni.
Lántakan er einföld og fljótleg.
Engin fasteignaveð.Engir ábyrgðarmenn.
Aðeins gagnkvæmt traust.
Sparilánabæklingurinn bíðurþín í næstu
afgreiðslu Landsbankans.
Iðnþing ísiendinga, það 39unda í
röðinni, verður haldið í Reykjavík 4.
til 6. nóv. nk. Iðnþing eru haldin
annað hvert ár og fara þau með
æðsta vald í málefnum Landssam-
bands iðnaðarmanna, jafnframt því
sem þar er mörkuð sú meginstefna,
sem Landssambandið starfar eftir
næstu tvö árin. Þingfulltrúar frá fé-
lögum og félagasamböndum innan
Landssambands iðnaðarmanna
verða að þessu sinni 170.
Skiptast þeir þannig, að frá
fjórtán félögum innan Meistara-
sambands byggingamanna eiga 62
fulltrúar seturétt. Frá Sambandi
málm- og skipasmiðja koma 37
fulltrúar frá fjórum félögum.
Þingfulltrúar húsgagna- og inn-
réttingaiðnaðarins eru 8 frá tveim
félögum. Frá fjórum félögum í
rafiðnaði eru 14 fulltrúar. Frá öðr-
um iðngreinafélögum og fyrir-
tækjum eru fulltrúar 30 frá þret-
tán félögum og fyrirtækjum. Þá
verða þingfulltrúar átta iðnaðar-
mannafélaga 19 að tölu. Auk þess-
ara 170 þingfulltrúa eiga rétt á
fundarsetu með tillögurétti og
málfrelsi fulltrúar frá iðnfræðslu-
skólum, iðnráðum ásamt fleiri að-
ilum, innlendum og erlendum.
Áætlaður fjöldi iðnþingsfulltrúa
verður því samtals rúmlega 200 að
þessu sinni, en að meðtöldum gest-
um er við því að búast, að við setn-
ingarathöfn Iðnþings verði um eða
yfir 350 manns.
Landssamband iðnaðarmanna
var stofnað árið 1932 og lætur það
sig skipta öll þau mál, er iðnrekst-
ur varðar, en tekur þó ekki þátt í
kjarasamningum. Þau mál sjá að-
iidarfélögin um sjálf.
Eftir venjuleg aðalfundarstörf
verður á málaskrá inntökubeiðni
nýrra félaga og hefur eitt félag
sótt um inngöngu en það er Félag
einingahúsaframleiðenda. Þá
verða á dagskrá málefni undir-
búningsnefnda Iðnþings og skipað
verður í nefndir en ályktanir
nefndanna móta stefnu Lands-
sambandsins fyrir næstu tvö ár.
Meðal mála sem verða á dagskrá
eru iðnaðarstefna og iðnþróun, ný-
iðnaður, útflutnings- og mark-
aðsmál, íslensk innkaupastefna,
efnahagsmál og ásamt mörgu öðru
svört atvinnustarfsemi.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi sem forráðamenn iðnþings-
ins héldu að svokölluð svört
atvinnustarfsemi færi æ vaxandi
og væri orðin stórt þjóðfélagslegt
vandamál sem snerti jafnt neyt-
endur sem og allra handa fyrir-
tæki. Þessi málaflokkur var einnig
á dagskrá á síðasta iðnþingi. Kom
fram á blaðamannafundinum að
jafnframt því að vera gersamlega
ólögleg snarbrenglaði svört at-
vinnustarfsemi alla samkeppni í
landinu.
Hvaö framtíöin
ber í skauti sér
er okkur huliö.
Eitter þó víst,
fyrirhyggja er nauðsynleg.
Ef þú hefur varasjóö til ráðstöfunar, þá
átt þú auðveldara með aö greiða óvænt
útgjöld.