Morgunblaðið - 01.11.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1981
45
Hilmar Garðars
í Gamla bíói:
„Vid óskum þeim
til hamingju
med þetta“
EINS og fram hefur komið í Mbl.
hefur íslenska óperan fest kaup á
Gamla bíói fyrir starfsemi sína og
var kaupverdið 8,5 milljónir króna.
Hyggst íslenska óperan reka húsið
áfram sem kvikmyndahús jafnhliða
eigin starfscmi. Mbl. hafði samband
við llilmar Garðars, einn af eigend-
um Gamla bíós, og spurði hann álits
á þessum breytingum á högum húss-
ins.
Hilmar sagði, að fráfarandi eig-
endur hússins væru mjög ánægðir
með, að það héldi áfram að vera
menningarstofnun og að framtíð-
arverkefni hússins væri einkar
verðugt. Hann sagði, að húsinu
yrði ekki breytt og það væri fyrri
eigendum mikils virði. Þá gat
Hilmar þess að hinir nýju eigend-
ur tækju við húsinu nú í byrjun
nóvember. „Við óskum þeim til
hamingju með þetta," sagði hann
að lokum.
Allra sálna
messa í Dóm-
kirkjunni
Gamla bíó heldur nafninu:
Mikil stækkun á leiksviði
og nýr ljósabúnaður
í
AÐALFUNDIJR íslensku óperunnar
hefur samþykkt kaupsamning Oper
unnar á Gamla bíói og mun óperan
halda rekstri bíósins áfram eins og
verið hefur undir nafninu Gamla bíó.
Hins vegar hafa þegar verið ákveðnar
ýmsar breytingar á húsinu og verður
fyrst ráðist í vcrulega stækkun sviðs-
ins þannig að það verður jafn djúpt
og svið Seala óperunnar heimsfrægu í
Milano og aðeins einum metra
mjórra en svið Þjóðleikhússins.
Þá er verið að festa kaup á mjög
fullkomnum ljósabúnaði fyrir nýja
sviðið og verður hann settur upp
fyrir fyrstu frumsýningu íslensku
óperunnar í eigin húsnæði, á ný-
ársdag, þegar Sigaunabaróninn
verður frumsýndur. Vegna stækk-
unar sviðs Gamla bíós verða þrjár
fremstu sætaraðirnar fjarlægðar
og einnig verða innréttuð bún-
ingsherbergi undir sviðinu en þar
er mjög rúmgott. Hljómsveitar-
gryfja verður fyrir framan sviðið
en aðeins til hliðar.
Islenzka óperan kaupir Gamla
bíó með öllu tilheyrandi og einnig
kvikmyndaumboðunum og verður
það rekið jöfnum höndum sem
kvikmynda- og óperuhús, en fram-
kvæmdastjóri hefur verið ráðinn
Árni Reynisson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndarráðs.
Á aðalfundinum var stjórn ís-
lenzku óperunnar öll endurkjörin
og ríkti mikill einhugur og áhugi á
fundinum. Formaður stjórnar er
Garðar Cortes, gjaldkeri er Þor-
steinn Júlíusson, ritari Þorsteinn
Gylfason og meðstjórnendur eru
Ásrún Davíðsdóttir og Ólöf Kol-
brún Harðardóttir.
Þcssa helgi
-í Kómaval
í DAG, fyrsta sunnudag í nóvember,
verður í Dómkirkjunni, samkvæmt
gamalli hefð minnst allra sálna
messu, sem er minningardagur lát-
inna.
Verða messurnar helgaðar því
efni ásamt fyrirbæn. Sr. Hjalti
Guðmundsson messar kl. 11, en sr.
Þórir Stephensen verður með
messuna kl. 2. Stólvers verður Lit-
anei e. Schubert.
Frá Dómkirkjunni.
Dómkirkjan.
Léttmjólk-
inni er mjög
vel tekið
SALA léttmjólkurinnar hefur
gengið vel að það sem af er, en
aðcins hefur verið dreift ákveð-
nu magni hennar í verzlanir, svo
ekki er enn hægt að segja til um
eftirspurnina.
Að sögn Guðlaugs Björg-
vinssonar, framkvæmdastjóra
Mjólkursamsölunnar, voru
framleiddir um 12.000 lítrar á
þriðjudag og miðvikudag og á
fimmtudag og föstudag voru
framleiddir 14.000 lítrar. Eru
það um 12% af mjólkurmagn-
inu, en það segir lítið um eftir-
spurnina því að undatekn-
ingarlítið hefur léttmjólkin
selzt upp. Það yrði þá leiðrétt í
næstu viku og þá færi eftir-
spurnin að koma í ljós.
Sýnum nú um helgina glæsilegt úrval skreytinga í hinum
ævaforna japanska skreytistíl, IKEBANA. Sjáið einfaldleikann
í sérstæðum skreytingum unnum eftir fomum austrænum
hefðum.
Sýnikennsla - kynning í dag kl. 2-6.
Gffe Balslev og Guðrún Sigurðardóttir kynna gerð IKEBANA
skreytinga.
í tengslum við IKEBANA kynninguna sýnir Glit nýja línu af
IKEBANA keramikvörum eftir Adrienne Crowe.
Skreytíngaverkstæðið
- þurrblómaskreytingar
Sjáið þurrblómaskreytingarnar í Blómaval, ótal
mismunandi tegundir skreytinga úr ólíkum
blómum. Birgit Weber sýnii gerð þeirra í dag
kl. 2-6.
Falleg blóm gleðja alla.
Komið í Blómaval.
Opiðtíl kl. 21.
Gróðurhúsinu við Sigtún:Símar36770-86340