Morgunblaðið - 19.12.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981
17
WAJKf7S7^/K
Ll0N\9 UtíMt Wíl SOWÓRiKlflNNfl, vJPíOR SCHOSR
Ætoffl vf£l</0fóHff7K/ flfGffN/'oTfl/l/: 9Ó/. flflftSl5/N5 (FflETTFiPJÓNUSTfl flPN, í?V»0
Pólland:
íslenzku vélstjórarnir um borð í skipunum
Sultartangastífla boðin út:
Heildarstofnkostn-
aður áætlaður um
200 milljónir króna
SKILABOÐ komu í gær
morgun frá íslenzku vélstjór-
unum þrem, sem voru í
Gdynia í Póllandi, þegar her
inn tók völdin í landinu, og
voru þetta fyrstu fréttir, sem
bárust af þeim. Vélstjórarnir
eru enn í Gdynia og búa um
borð í skipum sínum, sem
eru Engey og Viðey.
Vélstjórarnir höfðu náð
sambandi við sænskan sjó-
mannaprest í Gdynia, sem
síðan hafði samband við
sænska sendiráðið í Varsjá.
Voru skilaboð vélstjóranna
síðan send í gegnum loft-
skeytastöð sendiráðsins til
Stokkhólms. Vélstjórarnir
^egja, að þeir búi um borð í
skipunum og ekkert ami að.
Gert ráð fyrir
2—300 manns í vinnu
þegar á næsta ári
STJÓRN Landsvirkjunar sam-
þykkti fyrir skömmu, að ráðast í
framkvæmdir við gerð Sultar
tangastíflu, og stefnt er að því,
að hefja framkvæmdir næsta
vor. Síðan gera áætlanir ráð
fyrir, að framkvæmdum Ijúki í
árslok 1983.
— Stjórn fyrirtækisins
ákvað að skipta verkinu í þrjá
meginverkhluta og er ráðgert
að opna tilboðin 19. febrúar
nk., sagði Halldór Jónatans-
son, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Landsvirkjunar, í sam-
tali við Mbl.
— Áætlaður heildarstofn-
kostnaður er í kringum 200
milljónir króna, miðað við nú-
verandi verðlag og án vaxta á
byggingartímanum. Gert er
ráð fyrir að vinnan við ein-
staka verkþætti skiptist nokk-
uð jafnt milli áranna 1982 og
1983. Á árinu 1982 má því gera
ráð fyrir, að 200—300 manns
verði að störfum við verkið.
Stíflugerðin mun auka til
muna rekstraröryggi orkuvera
Landsvirkjunar á Þjórsár-
svæðinu. Eftir tilkomu stífl-
unnar verður sú hætta úr sög-
unni, að Búrfellsstöð geti orðið
fyrir alvarlegum rekstrar-
truflunum, sökum isvanda-
mála í Þjórsá.
Auk þess að auka rekstrar-
öryggið til muna, mun stíflan
auka orkuvinnslugetu Lands-
virkjunarkerfisins um allt að
130 gígawattstundir á ári,
sagði Halldór Jónatansson,
aðstoðarframkvæmdastjóri
Landsvirkjunar að síðustu.
Davíd Oddsson:
Stórkostlegt
lóðabrask
í skjóli
punktakerfis
„MEIRIHLUTINN hrósar sér af
því að hafa komið á í Reykjavík
stórkostlegu punktakerfi, sem gefi
af sér mikið réttlæti í lóðamálum.
En allir vita að punktakerfið hefur
orðið til þess að nú fer fram stór
kostlegt brask með lóðir hér í
borginni," sagði Davíð Oddsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, við umræður um fjárhagsáætl-
un borgarinnar, sem fram fór á
fimmtudag.
„Menn sem uppfylla tiltekin
skilyrði fá úthlutáð lóðum, þó
sýnt sé að þeir búi í betra hús-
næði og fyrirsjáanlegt sé að þeir
ætli sér að braska með þá lóð
sem þeir fá samkvæmt punkta-
kerfinu. Þetta þekkja menn af
eigin raun, það fer fram stór-
kostlegt lóðabrask hér í borg-
inni,“ sagði Davíð Oddsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 barna-
guðsþjónusta. Sr. Þórir Stephen-
sen. Lúðrasveit Laugarnesskóla
leikur, stjórnandi Stefán Þ.
Stephensen. Sr. Hjalti Guð-
mundsson les jólasögu. Dómkór-
inn syngur, organleikari Marteinn
H. Friðriksson.
ÁRBÆ J ARPREST AK ALL:
Barnasamkoma í safnaöarheimili
Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd.
Skátaguösþjónusta í safnaöar-
heimilinu kl. 2. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
BREIOHOLTSPREST AKALL:
Barnaguösþjónusta kl. 11 árd. í
Breiðholtsskóla. Sr. Lárus Hall-
dórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Jólasöngvar
fjölskyldunnar kl. 11. Kórar
Breiðageröis- og Fossvogsskóla
syngja og börn úr Fossvogsskóla
flytja helgileik. Almennur söngur
og jólasaga eftir Ingólf Jónsson
frá Prestsbakka. Organleikari
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr.
Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheimil-
inu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guösþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 11. Barnakór úr Snælands-
skóla syngur jólalög. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
ELLIHEIMILID GRUND: Messa
kl. 10. Sr. Þorsteinn Björnsson
messar.
FELLA- OG HÓLAPRESTA-
KALL: Laugardagur: Barnasam-
koma í Hólabrekkuskóla kl. 2.
Sunnudagur: Barnasamkoma i
Fellaskóla kl. 11. Sr. Hreinn
Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA:: Barnasam-
koma kl. 11. Lesmessa meö alt-
arisgöngu kl. 2. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Fjöl-
skyldumessa kl. 2. Fermingar-
börn flytja jólaguöspjalliö í helgi-
leik. Barnakór Austurbæjarskóla
syngur. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Ensk jólaguðsþjónusta kl. 4. Dr.
Jakob Jónsson predikar. Þriðju-
dagur 22. des.: Fyrirbænaguös-
þjónusta kl. 10.30, beöið fyrir
sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Fjölskyldu-
guösþjónusta kl. 11. Börn úr Æf-
ingaskóla KHÍ syngja og leika á
hljóöfæri. Kl. 22 jólasöngvar viö
kertaljós. Biskup íslands, herra
Pétur Sigurgeirsson, flytur hug-
vekju, kirkjukór og organisti
flytja aöventu- og jólasöngva úr
Litlu orgelbókinni eftir J.S. Bach.
Prestarnir.
KÁRSNESPREST AKALL:
Barnasamkoma i Kársnesskóla
kl. 11 árd. Jólatónleikar í
Kópavogskirkju kl. 2 á vegum
Tónlistarskóla Kópavogs. Sr.
Árni Pálsson.
Guöspjall dagsins:
Jóh. 1.: Vitnisburöur
Jóhannesar.
LAUGARNESKIRKJA: Jóla-
söngvar fjölskyldunnar kl. 11.
Barnakór Laugarnesskóla syng-
ur. Lesin jólasaga. Sóknarprest-
ur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
10.30. Jólasöngvar kl. 2. Kór
Melaskóla syngur undir stjórn
Helgu Gunnarsdóttur. Unglingar í
æskulýösfélagi kirkjunnar sýna
helgileik. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
SELJASÓKN: Barnaguösþjón-
usta í Ölduselsskóla kl. 10.30.
Barnaguösþjónusta aö Selja-
braut 54 kl. 10.30. Fluttur veröur
jólaleikur. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÓKN:
Barnasamkoma kl. 11 árd. i Fé-
lagsheimilinu. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Messa kl. 2. Altarisganga.
Organleikari Sig. ísólfsson.
Prestur sr. Kristján Róbertsson.
DÓMKIRKJA KRISTS konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lág-
messa kl. 2 siöd. Alla rúmhelga
daga er lágmessa kl. 6 síöd.,
nema á laugardögum þá kl. 2
síöd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa
kl. 11 árd.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg
2B: Samkoma á vegum Kristni-
boðssambandsins. Hrönn Sig-
uröardóttir og Ragnar Gunnars-
son tala. Tekiö á móti gjöfum til
kristniboðsins.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Safnaö-
arguösþjónusta kl. 2 síöd. Al-
menn guösþjónusta kl. 8 síöd.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Einar J. Gíslason.
KIRKJA JESÚ Krists hinna síö-
ari daga heilögu, Skólavörðu-
stíg 46: Sakramentissamkoma
kl. 14. Sunnudagaskóli kl. 15.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garöabæ: Hámessa kl. 2 siöd.
KAPELLAN í St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30 árd. Rúmhelga daga
messa kl. 8 árd.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Jólafund-
ur Sunnudagaskólans kl. 11 árd.
Jólasöngvar kl. 17. Kór Keflavík-
urkirkju syngur ásamt félögum úr
Karlakór Keflavíkur og Kvenna-
kór Suöurnesja. — Einsöngvarar
Hlíf Káradóttir, Sverrir Guö-
mundsson og Steinn Erlingsson.
Undirleik annast Helgi Bragason
og Ragnheiöur Skúladóttir. —
Söngstjóri Siguróli Geirsson.
Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA: Barnaguös-
þjónustakl. 11 árd. Sóknarprest-
ur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Barnaguös-
þjónusta kl. 13.30. Sóknarprest-
ur.
AKRANESKIRKJA:: Jólasöngvar
kl. 14. Sr. Björn Jónsson.