Morgunblaðið - 16.01.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982
Við gömlu Ivftuna í pósthúsinu stendur MaUhías Guðmundsson póstmeistari
í miójunni, honum á hægri hönd er Árni Þór Jónsson póstrekstrarstjóri og til
vinstri er Sigurdur Ingason póstrekstrarstjóri. I.josm.: ól.K.M»nnús.s<in
Ein af elstu lyftum í
Reykjavík fjarlægð
GAMLI tíminn víkur fyrir nýja tím-
anum gæti verið yfirskrift þessa
texta, því nú er verió að fjarlægja
eina elstu lyftu, sem sett hefur verið
upp í Keykjavík en það var í pósthús-
inu við Póslhússtræti. í hennar stað
kemur ný og fín lyfta með háþróuð-
um tæknibúnaði, en alltaf er einhver
eftirsjá að því sem er gamalt og
þjónað hefur hlutverki sínu vel og
lengi. (iamla lyftan var sett upp í
nýbyggt pósthúsið árið 1913 og lyft-
an því orðin 69 ára gömul og þar
með löggilt gamalmenni eins og
Matthías (íuðmundsson póstmeist-
ari orðaði það í samtali við Mbl.
Fasteignagjöldin:
Seðlar komnir til viðtak-
enda í Stór-Reykjavík
Álagningarhlutfall
lægst í Garðabæ
Kasteignagjalda.seðlar hafa nú verið
sendir út t>1 grciðenda í nágranna-
byggðum Keykjavíkur. Álagningar
hlutfall er á þeim stöðum, sem Morg-
unhlaðið hafði samband við, það sama
og á síðasta ári og hækkun milli ára
því í samra mi við ha-kkun fasteigna-
mats, eða um 55% að meðaltali. Álagn
ingarhlutfall ba-jarfélaganna er nokk-
uð misjafnt og la-gst er það í Garðabæ.
í Kópavogi er fasteignaskattur
0,55% af fasteignamati á íbúðar-
húsnæði og 1,15% á atvinnuhúsnæði.
Gjalddagar eru tveir, 15. janúar og
15. maí. Eindagi mánuði síðar. I
Hafnarfirði er álagningarhlutfallið
0,45% á íbúðarhúsnæði og 1% á at-
vinnuhúsnæði og gjalddagar þeir
sömu og í Kópavogi. A Seltjarnar-
nesi er álagningarhlutfallið 0,4% á
íbúðarhúsnæði og 1% á atvinnu-
húsnæði og gjalddagar þrír, 15.
janúar, 15. marz og 15. maí. I Mos-
fellshreppi er álagningarhlutfallið
0,375% á íbúðarhúsnæði og 1% á at-
vinnuhúsnæði og gjalddagar 15.
janúar og 15. maí. I Garðabæ er
hlutfallið 0,4%. á íbúðarhúsnæði og
0,8% á atvinnuhúsnæði og gjalddag-
ar þeir sömu og í Mosfellshreppi.
Alls staðar falla gjöldin í eindaga
mánuði eftir gjalddaga.
Sólarlandaferðir hækka
um 1200 krónur á mann
f> MÁ segja að verðið á ferðum út,
hækki í sar -æmi við gengisfelling-
una." sagði: inn Gvrusson, formaður
K lags íslenskra ferðask’ifstofa í sam-
tali við Mbl. þegar hann var inntur
eftir hækkunum á utanlandsferðum,
sem fylgja í kjölfarið á 12 prósent
gengisfellingu íslensku krónunnar.
„Sólarlandaferð til Mallorca og
Kanaríeyja og slíkra staða koma til
með að hækka um allt að 1200 krón-
um á mann og sama er að segja um
skíðaferðirnar. Þriggja vikna ferðir
sem áður kostuðu 8—9.000 krónur
verða því á bilinu 9—10.000 krónur
eftir gengisfellinguna. Flugið er
reiknað í dollurum og dollarinn
hækkar um 15 prósent. Hótelkostn-
aður og annar kostnaður við dvöl á
sólarströndunum er reiknaður í pes-
etum og pesetar hækka um 13 pró-
sent.
Aðrar áætlunarferðir til Ameríku
og Evrópu hækka sjálfkrafa eftir
gengisfellinguna og auk alls þessa
hefur ríkisstjórnin hækkað brottfar-
arskattinn frá 1. apríl úr 160 krónum
í 200 krónur á hvern farþega,“ sagði
Steinn Lárusson að lokum.
Albert Guðmundsson borgarfulltrúi:
Fiskverðsannáll frá 16. desember:
Fiskverði og kjaradeilu
sjómanna siglt í strand
Forsætisráðhc-rra Gunnar Thoroddsen gerði fiskverðsákvörð-
un að umræðuefni á Alþingi 16. desember síðastliðinn, en þá
dvaldist sjávarútvegsráðherra Steingrímur Hermannsson erlend-
is og hafdi verið í burtu sídan 3. desember. Kom sjávarútvegs-
ráðherra til landsins nokkrum dögum, eftir ad forsætisráðherra
ræddi málið á Alþingi. Hér verður stiklað á helstu þáttum at-
burðarrásarinnar varðandi ákvörðun um nýtt fiskverð, sem lög-
um samkvæmt á að gilda frá 1. janúar ár hvert, frá því að
forsætisráðherra ræddi málið á Alþingi. Er stuðst við frásögn
Morgunblaðsins af þróun mála.
MIÐVIKUDAGIIR
_______16. DESKMBKK 1981______
Forsætisráðherra Gunnar Thor-
oddsen telur hugsanlegt að leysa
vanda útgerðarinnar án þess að
hækka fiskverð verulega, hugsan-
legar séu aðrar leiðir til að létta undir
með útgerðinni. Ef til vill sé hugsan-
legt að rétta hlut sjómanna „án þess
að fiskverðið í heild og þá til útgerð-
arinnar í heild um leið sé hækkað
mjög verulega". Telur ágætt, að sam-
tök sjómanna, útvegsmanna og fisk-
vinnslufyrirtækja, sem skipi fulltrúa
í yfirnefnd verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, skuli reka á eftir sjálfum sér
með því að boða stöðvun útgerðaf um
áramót til að knýja fram ákvörðun
um fiskverðið.
KIMMTIIDAGHK 17. DKSKMBKR
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir, að forsætisráðherra
sýni skilningsleysi á vanda útgerðar
og hann geti ekki meint það, sem eftir
honum sé haft. í yfirnefnd verðlags-
ráðs sitji fulltrúar veiða og vinnslu
auk formanns nefndarinnar, sem sé
fulltrúi ríkisstjórnarinnar og geti
hvorugur aðili samþykkt fiskverð
nema með samþykki formanns nefnd-
arinnar.
KÖSTIIDAGUR 18. DKSKMHKR
Sjómannasamband Islands boðar
verkfall sjómanna á bátum og togur-
um frá og með 26. desember.
MÁNHDAGIIK 21. DKSKMBKR
Vinnuveitendur boða verkbann á
sjómenn frá miðnætti 30. desember.
ÞRIDJdDAGIIR 22. DKSKMBKR
Samband fiskvinnslustöðva sendir
ráðamönnum frystihúsa skeyti, þar
sem bent er á, að kauptryggingu
starfsfólks þurfi að segja upp með
viku fyrirvara, ef búast megi við hrá-
efnisskorti og hans sé að vænta um
áramótin vegna verkfalla og verk-
banns.
MIÐVIKUDAGIJR 23. DESEMBER
Yfirnefnd verðlagsráðs kemur sam-
an til fundar. Þjóðhagsstofnun leggur
fram niðurstöður um stöðu útgerðar.
Meðaltalshalli hennar talin vera
13,5%, útgerð telur sig þurfa 23%
fiskverðshækkun til að „standa á
núlli“ miðað við óbreytt olíu- og
stofnfjársjóðsgjald. Sjómenn tala um
18%. hækkun til sín og niðurfellingu
olíugjalds.
MÁNIIDAGIIR 28. PHSKMBHR
„Það er verið að vinna að ákvarð-
anatöku um fiskverð og stefnt að
niðurstöðu milli jóla og nýárs. Um
aðrar ráðstafanir í framhaldi af því
verða varla teknar ákvarðanir fyrr en
eftir áramót," segir Jón Ormur Hall-
dórsson, formaður efnahagsnefndar
ríkisstjórnarinnar og aðstoðarmaður
forsætisráðherra.
ÞRIDJIIDAGIIR 29. DKSKMBKR
Morgunblaðið segir, að viðræður
um nauðsynlegar aðgerðir, svo að
hægt sé að ákveða fiskverð, séu
skammt á veg komnar. Spáð gengis-
fellingu.
„Ég er mjög svartsýnn á að nýtt
fiskverð verði ákveðið fyrir áramót-
in,“ segir Steingrímur Hermannsson.
Ingólfur Ingólfsson, fulltrúi sjó-
manna í yfirnefnd verðlagsráðsins,
segir engan grundvöll fyrir viðræðum
um nýtt fiskverð, fyrr en ríkisstjórn
in tilkynni, hvort olíugjaldið skuli
fellt niður, því skuli breytt eða það
verði lögfest óbreytt (7,5%) frá og
með áramótum, en samkvæmt ákvæði
laganna um olíugjaldið féllu þau úr
gildi um áramótin.
í Dagblaðinu og Vísi birtist for-
síðufrétt þess efnis, að hugmyndir séu
um það innan ríkisstjórnarinnar að
rjúfa þing í janúar og boða til kosn-
MIDVIKIIDAGUK 30. DESEMBER
Sjö félög yfirmanna
boðuðu verkfall í gær
FLEST félög yfirmanna á fiski-
skipaflotanum, að Vestfjörðum
undanskildum, hafa nú bodað verk-
fall frá og með 22. janúar. Strax og
Ijóst var að sjómenn myndu ekki
sætta sig við það fiskverð sem lýst
var yfir í fyrrinótt að búið væri að
ákveða, og að samningsdrög sjó-
manna og útgerðarmanna væru þar
með fallin úr gildi, komu stjórnir og
trúnaðarmannaráð fjölmargra fé-
laga saman til fundar. Voru sum
félaganna búin að senda verkfalls-
boðun til Landssambands ísl. út-
vegsmanna og Félags íslenskra
botnvörpuskipaeigenda um klukk-
an 9 í gærmorgun.
Morgunblaðinu er kunnugt um
sjö félög yfirmanna sem í gær
boðuðu verkfall frá 22. janúar
næstkomandi og ef samningar
hafa ekki náðst fyrir þann tíma,
er ljóst að allur fiskiskipafloti
landsmanna mun liggja bundinn
við bryggju á næstunni eins og
verið hefur. Ef hins vegar fisk-
verð verður ákveðið fyrir þann
tíma, munu Vestfjarðaskipin
halda til veiða. Þau félög yfir-
manna, sem boðuðu verkfall í
gær eru Skipstjóra- og stýri-
mannafélagið Vísir í Keflavík,
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Hafþór á Akranesi, Skipstjóra-
og stýrimannafélag Norðlend-
inga, Skipstjóra- og stýrimanna-
félagið Ægir í Siglufirði, Skip-
stjóra- og stýrimannafélagið Ald-
an í Reykjavík, Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Verðandi í
Vestmannaeyjum og Vélstjórafé-
lag Vestmannaeyja.
Aðalstjórn Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna hefur verið
boðuð til fundar í Reykjavík í dag
og verður rætt um verkfall sjó-
manna á fundinum og þau vand-
kvæði sem orðið hafa vegna þess,
en aðalmálið á fundinum verður
vandamálið sem komið hefur upp
vegna fiskverðsákvörðunarinnar.
ASV fjallaði um
stöðuna í samn-
ingamálum
IIALDINN var fundur í samninga-
nefnd ASV í gær og fjallaó um stöðuna
í kjaradeilu sambandsins og mættu
fulltrúar allra aðildarfélaga á fundinn.
Að sögn Péturs Sigurðssonar
ítrekaði fundurinn, að ASV áskildi
sér allan rétt til aðgerða til að knýja
á um samningsgerð. Aðspurður um
tímasetningu slíkra aðgerða sagði
Pétur: „Það þarf ekki nema eina viku
til að boða verkfall."
Aldrei farið jafti mikið til rekstrar
og lítið til framkvæmda í borginni
- 80% fara í rekstur en 20% í framkvæmdir
„EYÐSLA borgarinnar er nú meiri
en nokkurn tímann áður,“ sagði
Albert Guðmundsson, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins á borgar-
stjórnarfundi sem haldinn var ný-
lega en á þeim fundi var fjárhags-
áa-tlun borgarinnar samþykkt.
I ræðu sem Albert hélt á fund-
inum gat hann þess að á þessu
ári væri áætlað að 20,4% af fjár-
hagsáætlun færi til eignabreyt-
inga, en árið 1978 hefði samsvar-
andi tala verið um 24%. Þá gat,
Albert þess að 20%. þeirrar upp-
hæðar sem verja ætti til fram-
kvæmda (eignabreytinga) væru
vextir af vanskilaskuldum sem
borgin gerði ráð fyrir að fá hjá
gjaidheimtunni. Gagnrýndi Al-
bert framkvæmdadeyfð vinstri
meirihlutans harkalega og sagði
að aldrei hefði farið jafn mikið
fé hlutfallslega til rekstrar og
nú, og aldrei jafn lítið til fram-
kvæmda.
Birgir ísl. Gunnarsson talaði
einnig á fundinum og benti hann
á að í ár hefði meirihlutinn yfir
300 milljónum króna að ráða,
umfram það sem sjálfstæðis-
menn höfðu árið 1978. Þrátt
fyrir þetta hefðu framkvæmdir í
borginni minnkað og rekstrar-
kostnaður aukist, og væri það
talandi dæmi um, hvernig
stjórnun borgarinnar væri nú
komið.
Karl Þorsteins í
öðru sæti en á tvær
skákir til góða
KARL Þorsli inssnn tefldi á alþjóðlega
unglint>a.skákmótinu í Rio de Janeiro í
Brazilíu í gær við Lutz frá Vestur-
Þýzkalandi og fór skák þeirra í bið og
er staða Karls heldur lakari.
Zuniga frá Perú tapaði fyrir
Saeed, en hann er með 8 vinninga.
Trinade frá Brasilíu er nú efstur
með 9'h. vinning eftir 13 umferðir, en
Karl er í öðru sæti með 9 vinninga,
en hefur aðeins teflt 11 umferðir og
á biðskák. Saeed og Dubai hafa 8‘Á
vinning eftir 12 skákir og Zuniga og
D’Lugy hafa 8 vinninga eftir 12
skákir.