Morgunblaðið - 16.01.1982, Síða 3

Morgunblaðið - 16.01.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982 3 inga í mars. Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra, segist ekki fara í framboð nema á vegum Sjálfstæðis- flokksins. Svavar Gestsson og Gunn- ar Thoroddsen segja, að frétt DV eigi ekki við rök að styðjast. KIMMTUDAGUR 31. DESEMBER Morgunblaðið segir frá því, að miklar deilur séu innan ríkisstjórnar- innar um efnahagsaðgerðir samhliða fiskverðsákvörðun. Steingrímur Hermannsson skýrir frá því, að hann hafi lagt fram hug- myndir sínar um nýtt fiskverð fyrir yfirnefnd verðlagsráðs í fullu umboði ríkisstjórnarinnar, sé hann bjartsýnn um lausn málsins. Efnahagsaðgerðir þurfi að ákveða strax eftir áramót og ekki síðar en um miðjan janúar. I til- lögum Steingríms er gert ráð fyrir 13,5% hækkun fiskverðs, olíugjald verði 5% í stað 7,5%. I áramótaávarpi leggur forsætis- ráðherra áherslu á, að niðurstöðu um fiskverð verði náð sem næst áramót- um, „svo að firra megi þjóðina því tjóni, sem stöðvun aðalatvinnuvegar þjóðarinnar myndi valda“. Fram kemur ágreiningur milli Þjóðhagsstofnunar og fulltrúa fisk- vinnslunnar í yfirnefndinni um stöðu fiskvinnslugreina. Telur stofnunin, að í heild standi vinnslugreinarnar á núlli en fulltrúar vinnslunnar telja hallann á henni vera 3—4%, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982 Morgunblaðið skýrir frá því, að 13.000 sjómenn og verkamenn séu frá vinnu í byrjun vetrarvertíðar. ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR Morgunblaðið skýrir frá því, að ekki sé einhugur innan ríkisstjórnar- innar um hliðarráðstafanir að lokinni fiskverðsákvörðun. Gjaldeyrisdeildum bankanna lokað. Tómas Árnason, viðskiptaráðherra, ber upp í ríkisstjórninni með Gunnari Thoroddsen, forsætisráðherra, tillögu Seðlabanka íslands um 10% lækkun á gengi krónunnar. Tillagan nær ekki fram að ganga. Engin niðurstaða á fundi ríkisstjórnarinnar. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR Svavar Gestsson lýsir því yfir, að það sé pólitísk aðgerð að setja verk- bann og segja fjölda manns í frysti- húsunum upp og sé henni ætlað „að klekkja á ríkisstjórninni". Kristján Ragnarsson segir, að hér sé um varn- araðgerðir að ræða vegna verkfalls sjómanna og „ráðherra sem sér skrattann í hverju horni, hann leysir engan vanda“. Atvinnuleysisskráning hafin. Lausafé Atvinnuleysistryggingasjóðs mjög takmarkað. „Mér sýnast hlutirnir séu að skýr- ast og það leiði til lausnar fiskverðs- deilunnar í yfirnefndinni," segir Steingrímur Hermannsson. „Eg vona að þetta skýrist um helgina .. . Ég er alltaf bjartsýnn nema allt saman sé stopp og mér sýnist þetta vera að skýrast." Sjómenn halda fund og mótmæla „harðlega óbilgjarnri afstöðu út- vegsmanna og frumkvæðisleysi stjórnvalda“. Enn krafist „að stjórn- völd tilkynni nú þegar forsendur fyrir fiskverðsákvörðun“. LAUGARDAGUR 9. JANl'lAR Fulltrúar fiskkaupenda í yfirnefnd- • inni, Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson og Friðrik Pálsson, segja, að hægt hafi verið að ganga frá fiskverði á gaml- ársdag, sem væri mjög nærri tillögum sjávarútvegsráðherra. Engin alvarleg tilraun hafi verið gerð til að ræða við þá um ákvörðun fiskverðs heldur ein- blínt á að ná samstöðu með útgerðar- og sjómönnum. Það væri út í hött að velta fyrir sér lagasetningu um fisk- verð við þessar aðstæður. SUNNUDAGUR 10. JANÚAR Samningalota hefst hjá sátta- semjara í kjaradeilu útgerðarmanna og sjómanna. Fulltrúar þessara aðila hitta sjávarútvegsráðherra, rætt um 13,5% hækkun fiskverðs og 2,5% lækkun olíugjalds. Fram kemur að stefnt sé að meirihluta formanns og seljenda í yfirnefndinni, það er full- trúa ríkisstjórnarinnar og sjómanna og útgerðarmanna. MÁNUDAGUR 11. JANÚ.VR Ráðherrar á einu máli um, að náist niðurstaða í kjaradeilu sjómanna og útgerðarmanna myndi samkomulag um fiskverð ekki langt undan. ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR Klukkan 23.30 er fundi frestað hjá sáttasemjara. Steingrímur Hermannsson segir, að ríkisstjórnin hafi ákveðið að hinkra við meðan úrslitatilraun sé gerð til að ná samkomulagi í kjara- deilu sjómanna og útgerðarmanna. „Við viljum ekki spilla fyrir því,“ seg- ir Steingrímur, „að slíkt samkomulag megi takast, en hins vegar finnst mér alveg voðalegt, að þegar um svona mál er að ræða, skuli viðræður deilu- aðila ekki hafa hafist löngu fyrr, því kröfur lágu fyrir snemma í desember. Það var hins vegar ekki talast við fyrr en allt var komið í óefni.“ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR Skilyrt samkomulag næst í kjara- deilu sjómanna og útgerðarmanna. Ríkisstjórnin ákveður 12% gengis- fellingu. Gjaldeyrisdeildir opna. Yfirnefnd ákveður fiskverð með at- kvæði fulltrúa ríkisstjórnarinnar, Ólafs Davíðssonar, forstjóra Þjóð- hagsstofnunar, og fulltrúum kaup- enda, þ.e. fiskverkenda. Fiskverð hækkar um 13,5% að meðaltali. Olíu- gjald lækkar úr 7,5% í 5%. Fiskverð hækki um 7% frá 1. mars nk. Fulltrúar kaupenda og seljenda lýsa því yfir, að forsendur séu brostn- ar f.vrir þeim kjarasamningi, sem þeir hafi gert, ríkisstjórnin hafi svikið gefin loforð og þess vegna sé kjara- deilan komin í óleysanlegan hnút. Það hafi ætíð verið forsendan, að meirihluti í yfirnefnd um nýtt fisk- verð yrði myndaður með seljendum. Bifreiðastöð Steindórs: Lögreglustjóri endursendi málið til ráðuneytisins LÖGREGLUSTJÓRINN í Reykjavík hefur nú endursent samgönguráðu- neytinu beiðni þess um að embætti hans geri ráðstafanir til að stöðva rekstur Rifreiðastöðvar Steindórs sf. Ixigreglustjóri sendi ríkissaksóknara- embættinu málið til umsagnar og er það niðurstaða þess, að málið verði ekki leyst í hinum opinbera farvegi heldur fyrir almennum dómstólum. Eftir að beiðni samgönguráðu- neytisins barst lögreglustjóra afl- aði hann sér gagna um málið frá báðum hliðum og sendi gögn sín síðan til ríkissaksóknara. Honum hafa síðan borizt gögnin aftur með þeim skilaboðum að málið verði ekki rannsakað frekar í þeim far- vegi, sem það sé í nú, heldur á al- mennum grundvelli. Ljóst sé að verulegur ágreiningur sé á miili málsaðila og engin lausn á málinu fáist fyrr en hann sé leystur, þó hægt sé að sekta einstaka bifreiðar- stjóra um 5 til 200 krónur fyrir meintan ólöglegan akstur. „Með hliðsjón af því, þykir á þessu stigi málsins ekki efni til þess að hálfu ákæruvaldsins að mæla fyrir um frekari lögreglurannsókn eins og málið liggur fyrir sam- kvæmt þeim gögnum, sem send voru saksóknara, og því var málið endursent til samgönguráðuneytis- ins ásamt þeim gögnum, sem lög- reglustjóraembættið hefur aflað sér og bréfi ríkissaksóknara,“ sagði lögreglustjóri, Sigurjón Sigurðsson, í samtali við Morgunblaðið í gær. Fundir um atvinnu- málin eru vel sóttir - segir Kjartan Gunnarsson um funda- herferð Sjálfstæðisflokksins NOKKRIR fundir Sjálfstæðisflokks- ins um atvinnumál undir yflrskrift- inni Leidin til bættra lífskjara hafa þegar verið haldnir, en þeir verda alls 30. Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri flokksins, sagði fund- ina hafa verið vel sótta miðað við árstíma og það sem mætti búast við á slíkum fundum og ekki kvað hann hafa þurft enn að fresta fundum vegna veðurs eða færðar. Sem fyrr segir verða alls haldnir 30 fundir og mun þessi fundaher- ferð standa yfir út mánuðinn og fram í næsta mánuð. í dag, laug- ardag, eru fundir á ísafirði, Grund- arfirði, í Búðardal og á Ólafsfirði, á sunnudag á Dalvík, í Húsavík, Bol- ungarvík og Borgarnesi og á mánu- dag eru fundir á Hellu, í Þórláks- höfn og Hafnarfirði. Heimsóttar veröa sögusióöir hinna fornu menningaþjóða indíána, sem skildu eftir sig listaverk og byggingar, sem ennþá teljast meöal undra veraldar. Heimsfrægar baöstrendur og skemmtiborgir eins og Acapulco viö Kyrrahafiö. Sannkölluö sólskinsvetrar-paradís, þar sem veörið bregst ekki. Möguleiki er að framlengja dvöl í New York. Nánari upplýsingar um verð og ferðatil- högun liggja fyrir á skrifstofu okkar. herÚSS!í.rifstofan Laugavegi 66, 101 Reykjavík, Sfmi: 28633 Almenn ferða- þjónusta Flugfarsedlar um allan heim. Viö bjóöum nú reglulegar feröir til Mexícó — ævintýralands- ins mikla í Miö- Ameríku. Áætlaðir brottfarardagar: 6. febrúar og síðan á tveggja vikna fresti út árið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.