Morgunblaðið - 16.01.1982, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982
9
Frá æfingu kammersveitar í Gamla bíói, en hún flytur á sunnudag fjóra
Brandenburgarkonserta Bachs undir stjórn Gilbert Levines.
Ljósm. Kmilía.
Kammersveit í Gamla bíói á sunnudag:
Flytur fjóra af sex
Brandenborgar-
konsertum Bachs
BACH-tónleikar verða haldnir í Gamla bíói næstkomandi
sunnudag, 17. janúar, og verða þar fluttir fjórir Branden-
borgarkonsertar tónskáldsins. Eru þetta fyrstu tónleikarn-
ir í Gamla bíói eftir að því var breytt í óperuhús. Stjórn-
andi er Gilbert Levine, en ásamt honum hefur Guðný
Guðmundsdóttir konsertmeistari staðið að undirbúningi
tónleikanna. Ræddi Mbl. stuttlega við Guðnýju:
— Við Gilbert Levine höfum
lengi rætt þessa hugmynd, að
gaman væri að spila Branden-
borgarkonserta Bachs, en ekki
hefur verið hægt að koma því við
fyrr en nú. I haust ræddi ég við
um 20 hljóðfæraleikara, sem all-
ir höfðu mikinn áhuga og tóku
strax vel í að taka þátt í tónleik-
unum. Æfingar hófust um síð-
ustu mánaðamót.
Hvers vegna er Gamla bíó
fyrir valinu?
— Upphaflega ætluðum við að
vera annars staðar, en okkur
datt skyndilega í hug að kanna
hvort við fengjum þar inni og
forráðamenn Islensku óperunn-
ar tóku strax vel í það. Erum við
þakklát fyrir afnot af húsinu og
teljum það gott til tónleikahalds.
Við leikum á sviðinu og leiktjöld
óperunnar verða ekki tekin niður
og við rétt komumst þarna fyrir,
en verði gryfjunni lokað í fram-
tíðinni þegar tónleikar eru þá
verður þetta fyrirtaks aðstaða.
Guðný er einnig spurð um
verkin og val þeirra:
— Brandenborgarkonsertar
Bachs eru ekki mjög oft fluttir
hér og leikum við fjóra af þess-
um sex konsertum hans, nr. 1, 4,
5 og 6. Þeir eru eiginlega úrval
verka sem Bach samdi á bestu
árum sínum, 1717 til 1723, þegar
hann var hirðtónskáld í Cöthen
og samdi þá mörg verk. Tileink-
aði hann síðar sex þessara verka
markgreifanum af Brandenborg
og kemur þaðan nafnið. Talið er
að Bach hafi samið þessi verk
fyrir aðeins eitt hljóðfæri á
rödd, nema konsert nr. 1 sem
hann hafi ætlað stærri strengja-
sveit til móts við mörg blást-
urshjóðfæri. Konsert nr. 5 er
saminn síðastur, er í raun fyrsti
stóri einleikskonsertinn fyrir
sembal og nr. 6 er talinn hafa
verið saminn fyrstur þeirra.
Hljóðfærasamsetningin er nokk-
uð ólík því semvenjan var á tím-
um Bachs, en þetta eru stór-
kostleg verk, erfið í flutningi og
mikið að gerast í öllum röddum.
Hyggist þið síðar flytja hina
Brandenborgarkonsertana?
— Það er allt óráðið, en þó
hugsanlegt, við höfum ekki
hugsað neitt lengra fram í tím-
ann, en þessa tónleika. Þetta
hefur verið mikil törn fyrir
okkur flest, við erum í vinnu og
námi og sumir spila einnig í
óperunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 á
sunnudag í óperuhúsinu og að-
göngumiðar verða seldir þar frá
kl. 14. Flytjendur eru auk Guð-
nýjar: Helga Ingólfsdóttir,
Manuela Wiesler, Jón H. Sigur-
björnsson, Mark Reedman,
Helga Þórarinsdóttir, Kristján
Þ. Stephensen, Janet Wareing,
Daði Kolbeinsson, Joseph Ogni-
bene, Jeanne Hamilton, Haf-
steinn Guðmundsson, Auður
Hafsteinsdóttir, Gréta Guðna-
dóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir,
Stephen King, Carmel Russill,
Isidor Weiser, Ólöf Sesselja
Óskarsdóttir og Jennifer King.
Fræbbblarnir til Noregs
HIJÓMSVEITIN Fræbbblarnir verður á hljómleikaferð í Noregi dagana
15.—26. jaaúar. l>egar hafa verið skipulagðir fjórir hljómleikar í Osló, á Chib 7,
Rokkekaffe og Ridderhallen, en fyrirhugaðir eru tónleikar víðar um landið. í
fréttatilkynningu frá Fræbbblunum segir að fjárhagslegur grundvnllur þessarar
hljómleikaferðar sé tryggur og samningar gerðir fyrirfram um greiðslur til
sveitarinnar fyrir leikinn.
Efnisskrá Fræbbblanna í ferð-
inni verður að hálfu nýtt efni, en að
hálfu lög af hljómplötum hljóm-
sveitarinnar og annað eldra efni.
Nýr gítarleikari hefur gengið í
hljómsveitina, Kristinn Stein-
grímsson, verður Noregsferðin
fraumraun hans með Fræbbblun-
um.
Skólabörn í Kjós og Kjalarnesi fyrst
til að fá mötuneyti með Goðaréttum
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins
hefur um nokkurt skeið fram-
leitt tilbúna rétti, Goða-rétti, til
dreifíngar í verslunum. Á sama
tíma hefur stóraukist fram-
leiðsla svipaðra rétta fyrir mötu-
neyti. Hafa jafnt stór og smá
fyrirtæki notfært sér þessa nýj-
ung í síauknum mæli, enda þarf
ekki annan tækjabúnað en
frystikistu og hitunarofn til þess
að unnt sé að bjóða upp á mikið
úrval heitra máltíða.
Bátaáhafnir eru á meðal þeirra
sem nýlega hafa slegist í hópinn
og fyrir skömmu reið Gagnfræða-
skólinn í Mosfellssveit á vaðið og
opnaði fyrstur íslenskra grunn-
skóla mötuneyti með Goða-rétt-
um. Er það fyrir börn úr Kjósar-
og Kjalarneshreppi sem í eina tíð
voru í heimavist, en er nú ekið
daglega að og frá skóla. Sjá ungl-
ingarnir sjálfir um matreiðsluna,
sem vart getur verið einfaldari því
réttirnir eru tilbúnir til neyslu
beint úr bökkunum að lokinni hit-
un.
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins
fagnar samstarfinu við Gagn-
fræðaskólann í Mosfellssveit og
væntir þess að fleiri skólar sjái
sér hag í að notfæra sér þá nýju
möguleika sem opnast hafa á
kostnaðarlitlum mötuneytum, þar
sem „eldhúsið" þarf e.t.v. ekki að
vera meira en einn fermetri að
stærð.
Sigurður Haraldsson matráðs-
fulltrúi og Björn Guðmundsson yfir
matreiðslumaður Goða kenndu
unglingunum matreiðsluna fyrsta
daginn.
14NGII0LT
Fasteignasala — Bankastræti
• Simi 29455 ínur t
i Opiö í dag
^ 2JA HERB. ÍBÚÐIR
4 Álfaskeið 60 fm á jaröhæð.
^ Bílskúrsréttur. Útb. 350 þús.
k Vailargerði Góö 75 fm á efri
hæð. Suöursvalir. Bílskúrs-
J réttur.
<• 3JA HERB. ÍBÚÐIR
^ Ferjuvogur 107 fm á jaröhæð
M í tvíbýlishúsi meö bílskúr. Útb.
M 600 þús.
' Markland 85 fm íbúð á 3.
™ hæð. Verö 700 þús.
| Fífuhvammsvegur Ca. 80 fm
i kjallara. Góöur bilskúr. Ein-
» staklingsíbúö fylgir. Fallegur
J garður. Útb. 500 þús.
1 Vesturberg 85 fm á 6. hæö.
^ Útsýni. Verð 580 þús. Útb.
h 430 þús.
, Háaleitisbraut Ca. 90 fm íbúö
á 1. hæð. Fæst eingöngu i
% skiptum tyrir 2 herb. í Vestur-
bæ eða Miðbæ.
■» Orrahólar Vönduð 90 fm á 1.
,3 hæð. Góðar innréttingar. Útb.
5 500 þús.
Í 4RA HERB. ÍBÚÐIR
I Hverfisgata Nýstandsett íbúö
h á 2. hæð i steinhúsi. Allt nýtt á
æ baði. Ný teppi. Laus. Bein
5 sala.
1 Álfaskeið Góð 10 fm á 1. hæð
S| m. bílskúr. Nýjar innréttingar.
h Viöarklæöningar.
• Melabraut 120 fm hæö og ris
'J í tvibýlishúsi. Mikið endurnýj-
í að. Verð 750 þús. Útb. 540
^ þús.
| SÉRHÆÐIR
I Austurborgin 3 glæsilegar
^ hæðir, ásamt bílskurum. Skil-
2 ast tilbúnar undir tréverk.
I Hafnarfjörður Noröurbær
^ Glæsileg efri sérhæð með
k bilskúr. Alls 150 fm. Suður
t* svalir. Skipti æskileg á 3 herb.
■ ibúð i Hafnarfiröi.
! EINBÝLISHÚS
Malarás 350 fm hús á tveimur
^ hæðum skilast fokhelt og
k pússaö að utan. Möguleiki á
^ séribúð
^ Stekkir Glæsilegt einbýlishús
^ 1. hæð 186 fm. Stórar stofur,
fe 4 herb. Útsýni. Fæst eingöngu
h i skiptum fyrir góða sér hæð í
2 vesturbænum.
I Seljahverfi Fokhelt ca. 290
| fm raðhús á tveimur hæðum.
Tvöfatdur bílskur.
h IÐNAÐARHÚSNÆÐI
| NÁLÆGT MIÐBÆ
k lönaöarhúsnæöi á 3 hæðum
2 240 fm hver hæð. viðbygg-
“ ingarréttur.
Jóhann Daviðsson,
sölustjóri.
Sveinn Rúnarsson.
Friðrik Stefánsson,
viðskiptafr.
(Fréllalilkvnninj').
ÞINGIIOLT
Fasteignasala — Bankastræti
Símar 29455 — 29680 — 4 línur
Opið í dag
Austurborgin
— sér hæoir
1 500
390 |-l 20 -j-l 30 |—180 -~j- 180 -j- i. 8Q|—180 _|8G_| H 50 69
265—1-140 Il35- -130
1500
Vorum aö fá í sölu 3 glæsilegar hæöir í húsi á bygg-
ingarstigi í grónu hverfi. A 1. hæö 150 fm sér
hæö meö bílskúr. Á 2. hæö 150 fm hæö ásamt
bílskúr og á 3. hæö 150 fm hæö meö lyftu stofulofti.
Allar skilast þær tilbúnar undir tréverk. Rúmgóöar
suðvestur svalir. Öruggur byggingaraðili.
Jóhann Davíósson sölustjóri.
Friðrik Stefánsson viðskiptafr.
Svemn Rúnarsson.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU