Morgunblaðið - 16.01.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.01.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982 11 eru öll unglingaklúbbar sem starfa innan Æskulýðsráðs. Léku unglingarnir undir stjórn Ketils Larsens leikara, sem jafnframt kvikmyndaði. „Þessar tökur voru einungis einn þáttur í langri kvikmynd, „Reykjavíkurlífið í spaugilegri mynd“,“ sagði Ketill Larsen í samtali við Hlaðvarpann. „Ég hef verið að taka þessa mynd með krökkunum öðru hvoru undanfarin ár og hafa verið gerðir um tuttugu þættir af henni. Hver þáttur þessarar myndar er sjálfstæður eins og tíðkast um sjónvarpsfram- haldsþætti. Það voru 16 krakk- ar sem tóku þátt í þessu núna og tökurnar held ég, að hafi tekist alveg sérstaklega vel — bæði sýndu krakkarnir góðan leik og svo komu ýmsir vegfar- endur óvænt inn í myndina og gerðu sumir mikla lukku. Efni myndarinnar er í stuttu máli það, að sjóndapur útlend- ingur kemur til Islands en fær hér fyrir handvömm, í gler- augnaverzlun, einkennileg gleraugu sem gera að að verk- um að hann fær að sjá margt sem aðrir sjá ekki. Mann- garminum verður ekki um sel er hann sér virðulegt veizlu- samsæti útá miðri Lækjargöt- unni, þar sem þjónn ræsir veizlugesti til átsins með „startbyssu“ og hempuklæddur prestur kemur á lyftara með steikina. Þannig gerist margt einkennilegt, og þótt útlend- ingnum þyki þjóðlífið hér að vonum einkennilegt þarf hann ekki að láta sér leiðast. Myndina höfum við sýnt innan klúbbanna og einnig á sjúkrahúsum. Krakkarnir eru mjög áhugasamir við þetta verkefni. Meinið er að krakk- arnir í leikklúbbum Æsku- lýuðsráðs eru ekki nógu mörg í næsta atriði en í það þarf tölu- vert marga unglinga á aldrin- um 12—18 ára. Það gæti verið að ég þyrfti að ræna banka og þá er gott að vera liðmargur. Krakkar á þessum aldri ættu að hafa samband við Æsku- lýðsráð ef þeir hafa áhuga á „að koma inn í myndina“,“ sagði Ketill. með Grýlunum um Vestfirði í júní og komum víða við. Er sú ferð var afstaðin tókum við okkur þegar upp á ný og ferðuð- umst með Hauki Morthens um landið og komum ekki heim fyrr en í júlílok. Svo spiluðum við á Þjóðhátíð í Vestmanna- eyjum um verslunarmanna- helgina. Það stóð reyndar til hjá okkur að gefa út plötu fyrir jól- in en svo sáum við að markað- urinn yrði hreint mettaður af innlendum og erlendum plötum á þessum tíma. Hins vegar stefnum við að því að gefa út plötu í vor — með lögum eftir okkur sjálfa og aðra. Hvað um framhald Aríu — ætlið þið að halda ykkar striki? — Já, og reyna að gera bet- ur. Sem stendur erum við að leita að æfingahúsnæði og ætl- um að bæta við okkur verkefn- um. Það verða væntanlega breytingar á hljómsveitinni í vor, því við höfum í hyggju að bæta við manni til að geta gert betur. Við ætlum okkur ekki að staðna og verðum því sífellt að leitast við að ná betri og betri árangri. Gamla kvikmyndavélin ásamt rafalinum sem henni fylgir. Er þetta kvikmyndavélin úr Fjalakettinum? Þennan fornfálega „spæsara" sem notaður var í Fjalakettinum gaf Ólaf- ur Arnason sýningarstjóri í Bamla bíói Kvikmyndsafninu. HEIMSÓKN í KVIKMYNDASAFN ÍSLANDS: Fyrsta kvikmyndatökuvél Óskars Gíslasonar af tegundinni „Pathé baby“ frá árinu 1925. Filma Spólurokkur sem notaður var við kvikmyndasýn- þessarar vélar er sérstæð að því leyti að götin, sem tannhjólin grípa í, eru í miðri filminni en ekki ingar í Fjalakettinum. Það var Jsrgen Hsberg- út við jaðrana eins og síðar varð. Petersen, sonur Bíó-Petersens, sem gaf hann safn- inu. Aldur og uppruni gömlu sýningar- vélarinnar ennþá óráðin gáta — e.t.v. sýningarvélin úr Fjalakettinum, fyrsta kvikmyndahúsi landsins Kvikmyndasafn Islands, Skip- holti'35, safnar ekki aðeins göml- um og nýjum kvikmyndum heldur einnig gömlum tækjum sem notuð voru við kvikmyndatökur og sýn- ingar hér áður fyrr, ásamt ýmsum gögnum sem tengjast kvikmynd- um og kvikmyndagerð. Tíðinda- menn Hlaðvarpans brugðu sér í vettvangsheimsókn í Kvikmynda- safnið á dögunum skoðuðu þessa gömlu muni og spurður Erlend Sveinsson forstöðumann um deili á þeim. Sérstaklega vakti athygli okkar sýningarvél handsnúin og allfornfáleg er Rangheiður Þor- láksdóttir hjá Sölufélaginu af- henti safninu í október 1980. „Mér er sagt að þessi sýningar- vél sé trúlega frá því fyrir heimsstyrjöldina fyrri en frekar veit ég ekki um aldur hennar," sagði Erlendur. „Þar sem hún finnst í húsi í Grjótaþorpi er freistandi að ætla að hún hafi verið notuð við sýningar í Fjala- kettinum þegar Reykjavikur Bíógraftheater tók þar til starfa, og væri hún þá með fyrstu sýn- ingarvélum sem bárust hingað til lands. Hugsanlegt er einnig að þarna sé komin vélin sem Ólafur Johnsson notaði við kvik- myndasýningar í bárunni 1904—1906. Það er hugsanlegt að Jóhann V. Sigurjónsson hjá Filmur og vélar viti nánar um aldur vélarinnar eða Ragnheiður Þorláksdóttir sem afhenti hana safninu. Þetta er allavega elzta kvikmyndavél sem ég veit um hér á landi og ég efast stórlega um að eldri vél sé til,“ sagði Er- lendur. „Við rákumst á þessa sýn- ingarvél innan um kynstur af gömlu drasli uppá háalofti í Há- koti í Grjótaþorpi er verið var að gera húsið upp,“ sagði Ragnheið- ur i samtali við Hlaðvarpann. Eigandi hennar var Friðrik heit- inn Jónsson útvarpsvirki en hann sá um viðgerðir hjá elztu kvikmyndahúsunum hér í bæn- um um langt skeið. Ég minnist þess núna að eldri sonur Frið- riks, sem nú er læknir úti í Sví- þjóð, hafði einhverntíma á orði að faðir hans hafi oft talað um að þetta væri merkileg vél, afar gömul og með fyrstu vélum sem komu hingað til lands. Friðrik Jónsson var mikill áhugamaður um kvikmyndir og er alls ekki út í hött að ætla að gamla sýningarvélin úr Fjala- kettinum hafi lent hjá honum. Friðrik bjó í Grjótaþorpi alla tíð. Hann ólst upp í Hákoti og bjó þar unz hann var fulltíða maður að hann reisti húsið að Garða- stræti 9 þar sem hann bjó alla sína æfi,“ sagði Ragnheiður. „Ég þori ekki að fullyrða um aldur vélarinnar, en hún er ör- ugglega framleidd fyrir 1924,“ sagði Jóhann V. Sigurjónsson. Það vantar mikið í vélina og til dæmis ómögulegt að sjá hvernig ljósbúnaður hennar hefur verið, hvort um hefur verið að ræða kolbogaljós eða gasloga. Ásamt vélinni fannst rafall en líklega hefur hann ekki tilheyrt vélinni upprunalega. Ég gæti vel trúað að þessi sýningarvél hafi upp- runalega verið með gasljósi en seinna hafi verið sett í hana kolbogaljps. þá hefur rafallinn verið notaður til að framleiða 24 volta jafnstraum en hann knú- inn með 220 volta riðstraumi. Sýningarvélin hefur hins veg- ar alltaf verið handsnúin. Það er vel hugsanlegt að hér sé komin sýningarvélin úr Fjalakettinum en ekki er hægt að slá neinu föstu um það að svo komnu. Ég held að ég geti komist' eftir því hversu gömul vél þetta er með því að kanna ýmis gömul gögn sem ég á um sýningarvélar frá fyrri tímum en það er hætt við að það taki töluverðan tíma að grufla það upp,“ sagði Jóhann. Hlaðvarpinn hafði samband við fleiri aðila sem málinu tengj- ast en þeir gátu engar frekari upplýsingar gefið. Aldur og upp- runi þessarar gömlu sýningar- vélar og hvar hún hefur verið í notkun er þannig ennþá óráðin gáta. Erlendur Sveinsson með kvikmyndagræjur fri því fyrir heimstyrjöldina fyrri. Bæði sýningarvélin, sem hann heldur á og kvikmvndatökuvélin í hillunni eru handsnúnar. Þótti fara best á því að sami maður tæki og sýndi kvikmyndir með þessum tækjum, því líklegt var að honum tækist að halda sama „snúningsritma" við töku og sýningu. Þessari tækni var þannig háttað að sýningarmenn urðu helzt að lifa sig inní atburðarás kvikmyndanna og snúa hárrétt ef vel áttí að takast. Ljósm. RAX Þannig lítur kvikmvndatökuvél Bíó-Petersens út að innan. Kassinn er ú tré og einnig eru lausir trékassar fyrir filmuna og sjást þeir opnir innan í vélinni. Vélin er handsnúin og er fyrir 35 mm filmu. Petersen keypti hana notaða í lok heimsstyrjaldarinnar fyrri en ekki er vitað nákvæmlega um aldur hennar. Börn Petersens gáfu kvikmyndasafni íslands vélina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.