Morgunblaðið - 16.01.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982
27
Keflavíkurvegurinn:
VViNKFiSTWlK
Slysatíðni talsvert
undir landsmeðaltali
Viðgerðir á veginum hefjast næsta sumar
„GERT hefur verid yfirlit yBr slysa-
tídni á þjóðvegum landsihs undan-
farin fjögur til fimm ár og í því yfir
liti kemur fram að slysatíðni á
Reykjanesbraut á milli Hafnarfjarð-
ar og Kefiavíkur er talsvert undir
landsmeðaltali," sagði Helgi Hall-
grímsson, forstjóri tæknideilar
Vegagerðar ríkisins, í samtali við
Morgunblaðið.
Helgi sagði ennfremur að
Reykjanesbrautin næði nú frá
Hafnarfirði til Sandgerðis og
slysatíðni á þeirri leið hefði verið
1980 1,68 miðað við hverja milljón
ekna kílómetra, en landsmeðaltal
þá hefði verið 1,7. Á hinn bóginn
væri slysatíðni á kaflanum frá
Hafnarfirði og suður undir Kefla-
víkurflugvöll mun minni eða tæp-
lega 1 á árinu 1980, tæp 30 slys. Þá
væru vissulega sveiflur á
slysatíðninni, annað slagið kæmu
Kaupfélag Þing-
eyinga 100 ára 20.
næsta mánaðar
KAUPFELAG Þingeyinga verður
100 ára þann 20. febrúar næstkom-
andi. Verður þess minnzt með ýms-
um hætti, bæði á afmælisdaginn og í
sumar, en Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga á 80 ára afmæli sama
dag og verður aðalfundur sambands-
ins því haldinn á Húsavík í júní á
þessu ári í tilefni afmælisins. Einnig
mun það vera á döfinni að endur
byggja og færa til fyrra horfs nokkur
gömul hús í eigu Kaupfélagsins
vegna þessa. Að öðru leyti er Morg-
unblaðinu ókunnugt um hátíðarhöld
vegna afmælisins.
Kaupfélag Þingeyinga, elzta
kaupfélag landsins, var stofnað 20.
febrúar 1882 á Þverá í Laxárdal í
kjölfar fundarboðunar Jakobs
Hálfdánarsonar, sem var á þá leið,
að endanleg ákvörðun yrði tekin
um stofnun vörupöntunarfélags
hérðasins. Helztu hvatamenn að
stofnun þess voru, auk Jakobs, Jón
Sigurðsson á Gautlöndum og
Benedikt á Auðnum. Jakob var
síðan fyrsti kaupfélagsstjórinn,
gegndi því embætti í 4 ár, Jón Sig-
urðsson á Gautlöndum varð næst-
ur og var einnig í 4 ár. Þá tók
Pétur, sonur Jóns, við stöðunni og
gegndi henni í 30 ár, næstir voru
Sigurður Bjarklind, Karl Krist-
jánsson, Þórhallur Sigtryggsson,
Finnur Kristjánsson og nú gegnir
embættinu Hreiðar Karlsson.
Líkan af baðstofunni á Þverá í
Laxárdal í réttum stærðarhlut-
föllum og með mörgum uppruna-
legum gripum er nú varðveitt í
Safnahúsinu á Húsavík.
fyrir mjög slæm slys, en bæði árin
1980 og 1981 væru án dauðaslysa
og lítið um slys með alvarlegum
meiðslum. Hins vegar byrjaði
þetta ár mjög illa og árið 1979
hefði einnig verið slæmt. Þessi
slysatíðni væri ekki há miðað við
gæði vegarins, hún væri ekki
hærri en á öðrum mikið eknum
vegum með bundnu slitlagi og
reyndar lægri en á sumum þeirra.
Aðspurður um það hvort slæmt
ástand vegarins gæti valdið hærri
slysatíðni en ella, sagði Helgi að
svo virtist ekki vera. Vissulega
væru komin hjólför í veginn eftir
tæplega 20 ára notkun og ylli það
því að vatn héldist á honum og
gæti það valdið ökumönnum
nokkrum erfiðleikum, en sér virt-
ist slysin stafa fyrst og fremst af
því að ekið væri of hratt miðað við
aðstæður. Nú væri fyrirhugað að
ráða bót á þessu með svokallaðri
fræsingu, sem mjög hefði rutt sér
rúms á síðustu árum. Yrði þá
fræsað ofan af veginum efsta lagið
og örlítið niður fyrir lægsta punkt
á honum, þannig að nýtt yfirborð
myndaðist neðan við hjólförin.
Þessi aðferð væri bæði heppilegri
og ódýrari en að leggja yfir veginn
malbik. Reiknað væri með að við-
gerðir hæfust í sumar og tækju
tvö til þrjú ár og kostnaður væri
áætlaður 15—20 milljónir.
Þingflokkur sjálfstæðismanna:
Sjálfkjörið
í stjórn
Dagsbrúnar
AÐEINS einn listi kom fram til
kosningar stjórnar og trúnaðarráðs
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í
Reykjavík, en frestur til að skila list-
um rann út í gær.
Listi uppstillinganefndar og
trúnaðarráðs var því sjálfkjörinn
og Guðmundur J. Guðmundsson
formaður félagsins. Varaformaður
er Halldór Björnsson. Eðvarð Sig-
urðsson hafði gegnt formennsku í
Dagsbrún frá árinu 1962, en ákvað
nú að gefa ekki kost á sér til
endurkjörs.
Tónleikar og
gerningur
SUNNUDAGINN 17. janúar kl.
20.30 verða haldnir tónleikar og
gerningur í Nýlistasafninu, Vatns-
stíg 3B.
Það eru bandarísku listamenn-
irnir Philip Corner og Alison
Knowles sem flytja verk sín.
Philip Corner var hér á ferð, síð-
astliðið sumar á vegum Mob-Shop
(norræn sumarvinnustofa lista-
manna) og hélt meðal annars tón-
leika í Norræna húsinu. Tónlist
hans sækir ýmislegt til austrænn-
ar tónlistarhefðar.
Alison Knowles hefur eins og
l’hilip unnið innan margra sviða
lista og með því brotið niður hin
hefðbundnu mörk listgreinanna.
Lýsir fullri ábyrgð á
hendur ríkisstjórninni
Engu líkara en reynt hafi verið að viðhalda ósamkomulagi
„ÞETTA ER AUÐVITAÐ einkennileg staða sem komin er upp. Fyrst er
beðið með ákvörðun fiskverðsins eftir því að útvegsmenn og sjómenn nái
saman. Þegar þeir hafa svo gert það þá er myndaður meirihluti í yfirnefnd-
inni gegn þeim. Þetta eru forkastanleg vinnubrögð,“ sagði Ólafur G. Einars-
son formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins í gær, en þingfiokkurinn hélt
fund í gær og ræddi stöðu mála vegna fiskverðsákvörðunar og stöðu efna-
hagsmála.
Á fundinum í gær var samþykkt
eftirfarandi ályktun: „Þingflokkur
sjálfstæðismanna lýsti því yfir í
byrjun síðasta árs að afleiðingar
efnahagsáætlunar ríkisstjórnar-
innar myndu verða hinar alvarleg-
ustu fyrir atvinnulífið í landinu.
í byrjun þings á sl. hausti ítrek-
aði Sjálfstæðisflokkurinn aðvörun
sína við þeirri óheillastefnu sem
ríkisstjórnin fylgir í efnahagsmál-
um, sem m.a. hefur leitt stóraukn-
ar þrengingar yfir sjávarútveginn,
þegar litið er á hann í heild. Þrátt
fyrir mesta þorskafla í sögunni og
hagstæð ytri skilyrði, er stærsta
grein fiskvinnslunnar, frystingin,
rekin með meiri halla en þekkst
hefur. Útgerðin býr við gífurlegan
rekstrarhalla og sjómenn hafa
ekki fengið samsvarandi launa-
hækkanir og aðrir launþegar í
landinu. Svo alvarlegt er ástandið
að kreppulán hafa verið veitt til
nokkurra fyrirtækja, en flest
fyrirtæki í sjávarútvegi bíða úr-
lausnar.
I stað þess að gera sér grein
fyrir þessu hættuástandi lifði rík-
isstjórnin í sínum hugarheimi og
lét sem vandi stærsta undirstöðu-
atvinnuvegar þjóðarinnar væri sér
með öllu óviðkomandi. Það er ekki
fyrr en um áramót, þegar útgerð
og fiskvinnsla er stöðvuð og at-
vinnuleysi þúsunda landsmanna
blasir við, sem ríkisstjórnin fer að
sinna þeirri sjálfsögðu skyldu
sinni að hafa áhrif á fiskverðs-
ákvörðun, sem var forsenda þess
að sjómenn og útvegsmenn gætu
gengið til samningagerðar.
Öll afskipti ríkisstjórnarinnar
og yfirlýsingar einstakra ráðherra
hafa verið með þeim hætti, að
engu er líkara en fremur hafi ver-
ið reynt að viðhalda ósamkomu-
lagi en að greiða fyrir sáttum.
Þingflokkur sjálfstæðismanna
ítrekar andstöðu sína við efna-
hagsstefnu ríkisstjórnarinnar,
sem leitt hefur til þessara vand-
ræða og átelur harðlega vinnu-
brögð hennar í þessum málum.
Þingflokkurinn bendir á, að ríkis-
stjórnin hefur ekki haft hið
minnsta samráð við Alþingi eða
sjávarútvegsnefndir þess til
lausnar á þessu máli. Því lýsir
þingflokkurinn fullri ábyrgð á
hendur ríkisstjórninni."
Sjálfstæðisfélag Seltirninga:
Fjölsóttur kynningar-
fundur vegna prófkjörs
Sjálfstæðisfélag Seltirninga
hélt fjölsóttan kynningarfund
fyrir þátttakendur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins síðastliðið
fimmtudagskvöld. Voru fram-
bjóðendur í prófkjörinu kynntir
og hafði hver þeirra 5 mínútur til
ræðuhalds. Fundarmenn voru
hátt á annað hundrað.
Skúli Júlíusson, formaður
sjáifstæðisfélags Seltirninga,
setti fundinn, Gísli Ólafsson,
formaður fulltrúaráðs, var
fundarstjóri og fundarritari
var Jón Hákon Magnússon.
Guðmundur Hjaltason, for-
maður kjörstjórnar, lýsti
prófkjörsreglum og síðan töl-
uðu frambjóðendur í prófkjör-
inu. Eftir að framboðslisti til
sveitarstjórnarkosninganna
verður endanlega frágenginn
verður haldinn fundur með
frambjóðendum þar sem þeir
munu sitja fyrir svörum.