Morgunblaðið - 03.03.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982
35
ísraelar hóta Aröbum:
Komum í veg
fyrir smíði kjarn-
orkusprengju
Tel A?iv, 25.febrúar. AP.
AKIEL Sharon varnarmálaráðherra
ísraels sagði í dag, að ísraelar
myndu koma í veg fyrir að Arabaríki
smíðuðu kjarnorkusprengju.
„Við munum ekki leyfa nokkru
Arabaríki að smíða kjarnorku-
sprenRju. Við höfum þegar stöðv-
að tilraunir íraka til þess,“ sagði
Sharon í viðtali, sem birtist í
næsta hefti franska tímaritsins
Paris Match.
í viðtalinu segir Sharon ísraela
ekki muna líða hervæðingu Sínai-
skagans af hálfu Egypta eftir að
ísraelar hverfa þaðan að tveimur
mánuðum liðnum. Einnig mundi
Sýrlendingum ekki líðast herseta í
Líbanon, né mundi írökum líðast
að fara með her inn í Jórdaníu.
„Við viljum stuðla að friði í Mið-
austurlöndum, en verðum að
tryggja tilveru okkar,“ sagði Shar-
on.
Hættir Mubarak
vid heimsókn
til fsraels
JtrusaUm, 1. marz. AP.
ÞÆR fregnir voru látnar ber
ast út frá ísraelskum stjórn-
viildum á sunnudag, að svo
kynni að fara að ísraelar af-
þökkuðu opinbera heimsókn
Hosni Mubaraks, forseta
Egyptalands ef hann féllist
ekki á að vitja Jerúsalem í för
sinni til ísraels. Arieh Nahor,
ráðuneytisstjóri sagði að lokn-
um ríkisstjórnarfundi á sunnu
dag, að Israelar settu á
oddinn, að Mubarak kæmi til
Jerúsalem í þessari mikilvægu
fyrstu ferð hans til landsins.
Begin forsætisráðherra sat
ekki ríkisstjórnarfundinn því
að hann var á fundi með reið-
um landnemum á Sinai sem
margsinnis hafa látið í Ijós
Hosni Mubarak
andúð á því að Egyptar yfirtaki
allan Sinaiskagann sam-
kvæmt samningi Egypta og
Israela.
í Kairó sýndi Mubarak
engin viðbrögð við yfirlýs-
ingu stjórnar ísraels, en
Osama E1 Baz deildarstjóri
utanríkisráðuneytisins sagði
að egypska stórnin myndi
senda á næstunni frá sér orð-
sendingu til ýmissa vest-
rænna ríkja um „þróun mála
í þessum heimshluta". Hann
sagði að í orðsendingu til
bandarísku stjórnarinnar
myndi sérstaklega verða vik-
ið að málefnum og stöðu
Jerúsalem.
Astæðan fyrir því að Mu-
barak er tregur að fara til
Jerúsalem er að aðrir Araba-
leiðtogar kynnu að taka það
sem viðurkenningu Egypta á
því að ísraelar hafa innlimað
arabíska hluta borgarinnar í
vestur Jerúsalem og gert
hana að höfuðborg. Þegar
Sadat kom í fyrstu ferð sína
til ísrael og heimsótti Jerú-
salem hafði þessi ákvörðun
ekki verið tekin. í ágúst 1980
ákvað stjórn Begins að Jerú-
salem heil og óskipt skyldi
verða höfuð borg Israels um
aldur og ævi. Vegna þessa
neitaði Sadat að koma til
borgarinnar í seinni ferðum
til Israels og átti fundi með
Begin í Haifa og síðar í
Sharm el Sheikh.
Mulley út
Lundúnum, I. mtre. AP.
FRED Mulley, fyrnim varnarmála-
ráðherra í Bretlandi, hefur setið á
þingí fyrir Verkamannaflokkinn í 32
ár samfleytt og hefur að undanlornu
verið einn helzti fulltrúi hófsamra í
flokknum, var í gær hafnað sem
frambjóðanda flokksins í næstu
þingkosningum, sem eiga að fara
fram árið 1984.
\f/
ERLENT‘
í kuldann
Þaó voru vinstri sinnar í kjör-
dæmi hans í Sheffield Park i Jór-
víkurskíri sem gerðu atlöguna að
Mulley, en hann er sjötti þingmað-
ur Verkamannaflokksins sem
hafnað er sem frambjóðanda til
endurkjörs eftir að breyttar
skipulagsreglur flokksins tóku
gildi að frumkvæði vinstri aflanna
undir forystu Tony Been.
Talið er að þessi meðferð á
Mulley eigi eftir að draga dilk á
eftir sér og magna á ný átök milli
hinna tveggja arma Verkamanna-
flokksins, hugsanlega með þeim
afleiðingum að enn fleiri þing-
menn Verkamannaflokksins gangi
til liðs við hinn nýja Jafnaðar-
mannaflokk en orðið er.